Morgunblaðið - 09.02.2002, Page 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Uppfærslutilboð – 30% afsláttur!!
www.atv.is – Skeifunni 17
Afritunarhugbúnaður
ÞINGVELLIR hafa aðdráttarafl ár-
ið um kring og laða til sín íslenska
sem erlenda ferðamenn svo þús-
undum og tugþúsundum skiptir.
Náttúran sýnir þar síbreytilegan
svip eftir árstíðum og veðurfari.
Ekki eru vetrarstillurnar síðri í
stemmningu sinni en aðrar ásýndir
Þingvalla og því ofur eðlilegt að
ljósmyndarinn reyni að fanga þær
til varðveislu.
Ljósmynd/Haukur Snorrason
Vetrar-
stillur á
Þingvöllum
BIRGIR Björn Sigurjónsson, sem
sæti á í launanefnd sveitarfélaganna,
segir að sveitarfélögin hafi markað
þá stefnu að jafna lífeyrisréttindi op-
inberra starfsmanna og félagsmanna
í ASÍ. Þess vegna hafi sveitarfélögin
hafnað því að semja um viðbótarlíf-
eyrissparnað sveitarfélaga við opin-
bera starfsmenn, en hins vegar hafi
þau gert slíka samninga við félögin í
ASÍ. Ríkið hefur hins vegar ekki
fylgt þessari stefnu og samið um slík-
an sparnað við alla starfsmenn sína.
Í nýútkomnu málgagni Kennara-
sambands Íslands, Skólavörðunni,
gagnrýnir Eiríkur Jónsson, formað-
ur KÍ, sveitarfélögin fyrir að hafa
ekki samið um viðbótarlífeyrissparn-
að til handa kennurum í grunnskól-
um, leikskólum og tónlistarskólum,
en ríkið hefur gert samning um slík-
an sparnað við framhaldsskólakenn-
ara.
„Þessi afstaða launanefndar sveit-
arfélaganna olli vissulega vonbrigð-
um og með henni skipar hún sér á
bekk með fulltrúum þeirra vinnuveit-
enda sem hvað minnstan skilning
hafa á mikilvægi sparnaðar í þjóð-
félaginu,“ segir Eiríkur og skorar á
kennara og skólastjóra að halda
þessu máli vakandi í aðdraganda
sveitarstjórnarkosninga í vor.
Töldu að ríkið myndi
fylgja sömu stefnu
Birgir Björn Sigurjónsson, for-
maður samninganefndar launanefnd-
ar sveitarfélaganna, sagði að sveitar-
félögin hefðu ekki gert neina samn-
inga um viðbótarlífeyrissparnað við
stéttarfélög nema þau félög sem enn-
þá byggju við mun lakari lífeyrisrétt-
indi en opinberir starfsmenn.
„Sú stefna var mörkuð, og ég hélt
að það hefði verið sameiginleg
stefnumörkun ríkisins og sveitarfé-
laganna, að jafna lífeyriskjörin milli
allra launamanna. Þess vegna ákváðu
sveitarfélögin vorið 2000 að bæta
kerfisbundið lífeyrisréttindi ASÍ-fé-
laganna en vera ekki að breikka mun-
inn aftur með því að gera samninga
um viðbótarlífeyrissparnað við opin-
bera starfsmenn. Ríkið breytti svo
um stefnu á miðri leið og hélt áfram
þessum mun á lífeyrisréttindum milli
ASÍ-manna og opinberra starfs-
manna. Það kom okkur reyndar al-
veg í opna skjöldu vegna þess að milli
okkar hafði verið rætt um hið gagn-
stæða.“
Birgir Björn sagði vert að geta
þess að hjá ríkinu störfuðu tiltölulega
fáir ASÍ-menn, en hjá sveitarfélög-
unum væru ASÍ-menn mjög stór
hluti starfsmanna.
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, kannast
ekki við að ríkið hafi nokkurn tímann
markað þá stefnu að semja ekki við
opinbera starfsmenn um viðbótarlíf-
eyrissparnað.
„Ríkisstjórnin hafði verið að mæl-
ast til þess að innlendur sparnaður
yrði aukinn. Samtök avinnulífsins og
fleiri töldu að þessi aðferð væri mjög
góð til að auka innlendan sparnað.
Menn mátu það svo að ríkið gæti ekki
skorast undan út frá þessu sjónar-
horni. Menn gerðu sér hins vegar
grein fyrir því að þetta viðhéldi þess-
um réttindamun sem hefur verið í líf-
eyrismálum,“ sagði Gunnar.
Sveitarfélög semja ekki við opinbera starfsmenn um viðbótarlífeyrissparnað
Sveitarfélögin vilja
jafna lífeyrisréttindin
RAUÐVÍNSSALA hjá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins
(ÁTVR) var 27,9% meiri nú í jan-
úar en í sama mánuði á síðasta
ári. Hvítvínssala jókst um 16,2%
og bjórsala um 7,4% miðað við
sama tíma.
Í lítrum talið hefur áfengissal-
an aukist um 7,9% í janúar í ár
miðað við janúar árið 2001. Ef
aukningin er hins vegar reiknuð í
alkóhóli hefur salan aukist um
5,7%. Ekki varð mælanleg aukn-
ing á bjórsölu síðustu viku jan-
úar þegar Evrópumótið í hand-
knattleik stóð sem hæst miðað
við aðrar vikur eins og margir
höfðu spáð.
Sala rauðvíns
jókst um 28%
FERÐUM Herjólfs milli lands og
Eyja verður fjölgað um tæpar fimm-
tíu á ári og á tímabilinu 15. maí til
fyrstu helgarinnar í september siglir
Herjólfur þrettán ferðir á viku, þ.e.
tvær ferðir alla daga nema laugar-
daga. Þetta var samþykkt með at-
kvæðum meirihlutans á bæjarstjórn-
arfundi seint í gærkvöldi.
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum, segir að þetta sé
veruleg breyting og þá beri einnig að
nefna að í athugun sé að reyna að fá
aukaferðir á næturnar á álagstím-
um, þ.e. kringum Þjóðhátíð og Shell-
mótið í knattspyrnu, þannig að hægt
sé að flytja alla farþega milli lands og
Eyja.
„Þetta skiptir gríðarlega miklu
máli fyrir Eyjamenn sjálfa og eins
ferðamannaiðnaðinn. Og það skiptir
máli að hér er um varanlega fjölgun
á ferðum að ræða.“
Guðjón segir að brýn þörf hafi ver-
ið að fjölga ferðum Herjólfs, að hluta
til vegna þess hve stutt skipið sé, þ.e.
bíladekkið stjórni farþegafjöldanum.
Gjaldskráin hækkar
að meðaltali um 13%
„Samfara þessu hækkum við
gjaldskrána að meðaltali um 13% en
í því sambandi vil ég taka fram að
hún hefur ekki hækkað frá byrjun
árs 1997 þannig að hækkunin er ekki
einu sinni í takt við verðlagsþróun.“
Aðspurður segir Guðjón að þessi
ákvörðun komi í kjölfar borgara-
fundar með samgönguráðherra þar
sem samgöngumálin voru í brenni-
depli og rætt um að fjölga ferðum
Herjólfs. Ríkið borgi ákveðna upp-
hæð fyrir hverja ferð og þar hafi
menn náð samkomulagi um fjölgun
ferða. „Vestmannaeyjahöfn hefur að
vísu alltaf komið á móti líka með nið-
urgreiðslu á ferðum fyrir aldraða,
öryrkja og unglinga.“
Ferðum Herj-
ólfs fjölgað um
nær 50 í sumar
KONA á fimmtugsaldri, sem var
ökumaður jeppabifreiðar, beið bana
er hún missti stjórn á bifreið sinni í
beygju á þjóðvegi 1 innarlega í norð-
anverðum Hamarsfirði um miðjan
dag í gær. Bifreiðin valt út af veg-
inum og fór yfir stórgrýtisurð og er
talið að konan hafi látist samstundis,
samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar á Fáskrúðsfirði.
Í bifreiðinni var farþegi sem slapp
ómeiddur úr slysinu. Aðvífandi veg-
farandi tilkynnti um slysið í gegnum
Neyðarlínuna og var farþegi fluttur
á slysadeild til skoðunar. Hálku-
blettir voru á veginum en ekki hefur
verið leitt í ljós hvort tildrög slyssins
megi rekja til hálku. Tildrög slyssins
eru til rannsóknar hjá sýslumanns-
embættinu á Eskifirði.
Ekki er unnt að greina frá nafni
hinnar látnu að svo stöddu.
3$45+*
6
Kona
lést eftir
bílveltu