Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 33
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 33 VENJULEGA eru tvö dómstig í dóms- málum hér á landi, héraðsdómur og Hæstiréttur. Frá þessu eru þó undan- tekningar. Er þar um að ræða einkamál þar sem fjárhagslegir hagsmunir eru ekki miklir og opinber mál þar sem refsingar eru ekki þungar. Í slíkum málum þarf leyfi frá Hæstarétti til þess að unnt sé að áfrýja nið- urstöðum héraðs- dóms. En þótt refsingar séu ekki þungar borið saman við ýmis önnur mál er ekki þar með sagt að þær geti ekki verið þung- bærar. Mér er kunnugt um mál þar sem dómur hefur fallið í hér- aðsdómi en hinum dæmda meinað að sækja rétt sinn í Hæstarétti. Viðkomandi hafði verið dæmdur til þess að greiða sekt sem hljóp á tugum þúsunda ella sæta fangels- isvist. Hann segir sig vera sak- lausan og að í sínum huga vegi þyngra æran en samanlögð sektin og hugsanleg fangavist. Í þessu umrædda máli réðst nið- urstaðan af framburði vitna og var að sjálfsögðu nauðsynlegt fyrir héraðsdóm að vega og meta ýmis álitaefni. Í héraðsdómi að þessu sinni sat þó aðeins einn dómari og ef að líkum lætur er hans dómsorð endanlegur úrskurður nema Hæstiréttur breyti fyrri ákvörðun sinni og heimili einstaklingnum að áfrýja máli sínu. Þetta hlýtur að orka tvímælis. Að mínu mati er fráleitt annað en að unnt sé að vísa slíkum úrskurði til Hæstaréttar. Í frumvarpi sem undirritaður hefur flutt á Alþingi er lagt til að þegar um er að ræða mál sem ráð- ast af sönnunargildi framburðar vitna verði lögbundið að dómurinn sé fjölskipaður. Það gefur augaleið að með þeim hætti yrði stuðlað að traustara réttaröryggi. En þar með er réttaröryggið þó ekki nægilega tryggt. Áfrýjunarréttur- inn þarf að vera mun rýmri en hann nú er. Hér er rétt að staldra við og spyrja á hvern hátt löggjafinn réttlæti þá heimild sem Hæstarétti er veitt til þess að ákvarða hver megi áfrýja og hver ekki. Rök- semdir fyrir takmörkun á rétti til áfrýjunar eru fyrst og fremst þær að takmarka þurfi málafjölda á áfrýjunarstigi. Sagt er að miklir hagsmunir séu bundnir við að álag á áfrýjunarstigi verði ekki of mikið þannig að málsmeðferð dragist á langinn. Og í framhaldinu er bent á að undanfarin ár hafi náðst mik- ill árangur hvað varðar málshraða fyrir Hæstarétti. Þetta kann allt að vera satt og rétt en ekki má gleyma því að þetta er á kostnað þeirra mála sem er vísað frá. Hér að framan nefndi ég slíkt dæmi. Viðkomandi einstaklingi þykja brotin á sér mannréttindi. Undir það sjónarmið skal tekið. Í fyrrnefndu frum- varpi er lagt til að felldar verði niður takamarkanir við því að maður sem hefur verið sakfelldur í op- inberu máli geti áfrýj- að niðurstöðunni til Hæstaréttar. Ákvörð- un handhafa ríkis- valdsins um að ákæra einstakling fyrir refsi- verðan verknað er að sjálfsögðu stór ákvörðun. Leiði ákær- an til sakfellingar get- ur slíkt verið mikið áfall fyrir þann sem fyrir verður. Þau rök eru ekki til og þeir þjóð- félagslegu hagsmunir ekki heldur sem réttlæta lagareglu sem tak- markar rétt sakfellds manns til þess að bera sakfellinguna undir dómara á æðra dómstigi. Að mínu mati eru rökin fyrir óheftum áfrýj- unarrétti sakfelldra manna í op- inberum málum svo sterk að önnur rök verða að víkja. Sparnaðarrök- um má ekki tefla fram á kostnað réttlætis og mannréttinda. Þegar allt kemur til alls er það viðkomandi einstaklingur sem tek- ur fjárhagslega áhættu af því að áfrýja máli. Tapi hann málinu mun hann að jafnaði þurfa að bera allan sakarkostnað. Þetta mál snýst þó ekki um þá peninga sem dæmdur maður er reiðubúinn að tefla fram í von og óvon frammi fyrir Hæsta- rétti. Þetta mál snýst um mann- réttindi og væri fróðlegt að heyra álit lögmanna og annarra um þá hlið málsins. Hæstiréttur, áfrýjunarheimild- ir og mannréttindi Ögmundur Jónasson Dómsmál Að mínu mati, segir Ögmundur Jónasson, eru rökin fyrir óheftum áfrýjunarrétti sak- felldra manna í opinber- um málum svo sterk að önnur rök verða að víkja. Höfundur er alþingismaður og formaður BSRB. Málarar - Múrarar - Píparar - Smiðir Dúkarar - Rafvirkjar - Ræstitæknar Vertu í góðum höndum! Eitt númer - 511 1707 www.handlaginn.is handlaginn@handlaginn.is Járn + C vítamín fyrirbyggir járnskort. C-vítamínið eykur nýtingu járns. Nýtt frá Biomega Fæst í apótekum M O N S O O N M A K E U P lifandi litir 1 Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans sl. starfsár. 2 Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt skýrslu endurskoðanda, lagður fram. 3 Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á síðastliðnu reikningsári. 4 Kosning bankaráðs. 5 Kosning endurskoðanda. 6 Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna. 7 Tillaga um heimild bankaráðs til kaupa á eigin hlutum í bankanum, sbr. 55. gr. hlutafélagalaga. 8 Tillaga um framlag í Menningar- og styrktar- sjóð Búnaðarbanka Íslands hf. 9 Önnur mál. Fundargögn liggja frammi á skrifstofu bankastjórnar, Austurstræti 5, Reykjavík. BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS HF. Aðalfundur Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 2. mars kl. 14:00 2002 F í t o n / S Í A F I 0 0 4 1 6 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.