Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 18
AKUREYRI 18 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Þar er um að ræða að kaupverð verði ákveðið af dómkvöddum mönnum eða gerðardómi, að sögn Stefáns. Hann sagði að nokkuð mik- ið bæri í milli en vildi ekki nefna neinar tölur, enda hefði ekki verið lagt fram kauptilboð í eignarhlutinn. Stefán sagði að framhald málsins væri þó í höndum félagsfundar í Auðhumlu, sem haldinn verður fljót- lega. Auðhumla á þriðjungs hlut í Norðurmjólk og hefur forkaupsrétt á eignarhlut KEA. Nafnvirði hlutafjár félagsins er um 450 millj- ónir króna og eignarhlutur KEA því um 300 milljónir króna að nafnvirði. Stefán sagðist ekki vita hversu langan tíma matsferlið tæki en þetta væri spurning um einhverjar vikur. Auðhumla þyrfti þó áður að leggja fram ákveðnar tryggingar. „Þegar matsferlið er komið form- lega af stað, liggur jafnframt fyrir að Auðhumla muni kaupa eignar- hlut KEA. Þar af leiðandi væri hægt að ganga þannig frá málum að eigendaskipti gætu farið fram, þótt endanlegt kaupverð liggi ekki fyr- ir.“ Ekki er gert ráð fyrir því að Norðurmjólk verði alfarið í eigu Auðhumlu í framtíðinni. Kaupfélag Skagfirðinga, Mjólkurbú Flóa- manna, Mjólkursamsalan í Reykja- vík og Osta- og smjörsala munu einnig koma að félaginu. Að sögn Stefáns liggur ekki endanlega fyrir hversu stór eignarhlutur þessara fé- laga verður, eða hvernig aðkoma þeirra að Norðurmjólk verður ná- kvæmlega. Eins og áður hefur kom- ið fram er það vilji forsvarsmanna Auðhumlu að eiga stærri hlut en þriðjung í félaginu í framhaldinu. Auðhumla og KEA ná ekki saman um kaupverð á hlut KEA í Norðurmjólk Kaupverð verði ákveðið af utanaðkomandi aðilum FULLTRÚAR Auðhumlu, félags mjólkurframleiðenda í Eyjafirði og S-Þing- eyjarsýslu, hafa að undanförnu átt viðræður við fulltrúa Kaupfélags Eyfirð- inga um kaup á um 68% hlut KEA í Norðurmjólk. Að sögn Stefáns Magn- ússonar formanns stjórnar Auðhumlu hafa málsaðilar ekki náð saman um kaupverð og því stefnir í að í gang fari matsferli þar sem kaupverð verður ákveðið, eins og kveður á um í samkomulagi hluthafa Norðurmjólkur. TIGNARLEG stóð styttan af Nonna, Jóni Sveinssyni, fyrir utan Nonnahús við Aðalstræti á Ak- ureyri eftir duglega snjókomu í vikunni. Hávaxinn hatturinn sett svip sinn á Nonna og vetur konungur hefur bætt um betur og sveipað hann sínum hvíta trefli – sem fer honum bara býsna vel. Morgunblaðið/Kristján Nonni í kuldaklæðum NÁMSKEIÐ um kynferðislegt of- beldi gegn börnum, ætlað fagfólki í félags-, heilbrigðis- og skólaþjónustu svo og lögfræðingum og lögreglu, verður haldið á vegum símenntunar Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri 28. febrúar og 1. mars næstkomandi. Markmið námskeiðsins er að þátt- takendur öðlist þekkingu á eðli og umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum, kynnist aðferðum við könn- un, rannsókn og meðferð slíkra mála. Þekki málsmeðferð yfirvalda við meðferð og úrlausn málanna og bregðist rétt við ef þeir fá vitneskju um að barn sæti kynferðisofbeldi. Kennarar eru Vigdís Erlendsdótt- ir sálfræðingur, Sif Konráðsdóttir hrl. og Þóra Fischer kvensjúkdóma- læknir. Upplýsingar og skráning eru á skrifstofu RHA. Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum NOKKRAR breytingar hafa orðið á skipan framboðslista Sjálfstæð- isflokksins til sveitarstjórnarkosn- inga í vor frá síðustu kosningum árið 1998. Gengið var frá skipan framboðslistans á fundi fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna á Akur- eyri í fyrrakvöld. Kynjahlutfall er jafnt, ellefu konur og ellefu karlar skipa listann. Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri er í fyrsta sæti líkt og fyrir síðustu kosningar en Þóra Áka- dóttir hjúkrunarfræðingur skipar nú annað sæti. Hún var í sjötta sæti síðast. Þórarinn B. Jónsson útibússtjóri er í sama sæti og síð- ast, því þriðja, en Sigrún Björk Jakobsdóttir hótelrekstrarfræð- ingur kemur ný inn á listann og skipar fjórða sæti. Steingrímur Birgisson er í fimmta sæti en var í því sjöunda síðasta. Nýr frambjóð- andi, Laufey Petrea Magnúsdóttir, aðstoðarskólameistari Menntaskól- ans á Akureyri, er í sjötta sæti. Bjarni Jónasson efnafræðingur og Jóna Jónsdóttir markaðsfræðingur eru ein ný á lista flokksins, en þau skipa sjöunda og áttunda sæti hans. Páll Tómasson arkitekt og Guðmundur Jóhannsson þjónustu- stjóri eru í tíunda og ellefta sæti, en þeir voru báðir á lista flokksins fyrir síðustu kosningar, þá í átt- unda og níunda sæti. Sigurður J. Sigurðsson, sem set- ið hefur í bæjarstjón Akureyrar fyrir Sjálfstæðisflokkinn í 28 ár, stýrði sínum síðasta fundi bæjar- stjórnar í vikunni, en hann hefur verið ráðinn fjármálastjóri Norð- urorku. Valgerður Hrólfsdóttir, sem var í öðru sæti listans fyrir síðustu kosningar, lést síðasta sumar og Vilborg Gunnarsdóttir, sem var í fimmta sæti, flutti frá Akureyri síðasta haust. Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri Konur í efstu sætum listans SPARISJÓÐUR Norðlendinga hef- ur ákveðið að gefa leikskólum á Ak- ureyri og nágrenni margmiðl- unarleikinn Króni og Króna í Leikjalandi, sem hægt er að setja inn á tölvur skólanna. Leikurinn er byggður upp sem skemmtun og fræðsla. Börnin hafa möguleika á að fara á milli fimm mismunandi landa. Í Litalandi læra þau að þekkja litina og geta spreytt sig á að velja liti á dýr og hluti. Í Dýralandi fræðast þau um dýrin, í Stafalandi læra þau að þekkja staf- ina, í Talnalandi er farið yfir tölu- skólakennarar yngri nemenda lýst ánægju sinni með leikinn og sjá sér hag í að nýta hann í stærðfræði- og lestrarkennslu, segir í frétta- tilkynningu frá Sparisjóði Norð- lendinga. Gefur leik- skólum margmiðl- unarleik stafina og þau spreyta sig á léttum reikningsdæmum. Í Verslunarlandi kynnast þau gildi peninga og hvað þau geta keypt fyrir ákveðnar upp- hæðir. Nú þegar hafa kennarar og leik- Morgunblaðið/Kristján Jón Björnsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga, sýnir börnum á elstu deild leikskólans Iðavalla margmiðlunarleikinn. STJÓRN Eyþings hefur lýst yfir ánægju með nýframkomna tillögu til þingsáætlunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002 til 2005. „Framsetning tillögunnar ber með sér raunsætt mat og sýnir vilja til að nýta sóknarfærin í stað þess að eyða kröftunum í skipulegt undanhald,“ segir í bókun Ey- þings, Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum. Stjórnin mótmælir þeirri túlkun að sérstök áhersla á að efla Ak- ureyri sem mótvægi við höfuð- borgarsvæðið tákni að ekkert eigi að aðhafast til að styrkja önnur byggðarlög í landinu. Til vitnis um það séu fjölmörg áhersluatriði í til- lögunni. „Þó að beita eigi sérstök- um aðgerðum til að efla Akureyri þá dregur það ekki úr vægi ann- arra aðgerða sem tilgreindar eru til jöfnunar búsetuskilyrða og styrkingar landsbyggðarinnar. Þvert á móti felur það í sér raunsætt mat og um leið mögu- leika til eflingar Norður- og Aust- urlands,“ segir í bókuninni en í lokin er lýst yfir stuðningi við um- sókn bæjarstjórnar Húsavíkur um þátttöku í verkefninu „rafrænt samfélag“, og margt talið mæla með þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu. Stjórn Eyþings ánægð með nýja byggðaáætlun Sóknarfæri nýtt í stað skipulegs undanhalds MEISTARINN.IS Náttúrulegt fyrir konuna sími 462 2900 Blómin í bænum Urtasmiðjan STJÓRN Eyþings – sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum, samþykkti bókun á fundi sínum nýlega, þar sem mótmælt er áformum um að leggja niður embætti héraðslæknisins á Norðurlandi eystra, ef í þeim áformum felst að flytja verkefni hans til stofnana í Reykjavík og skerða þar með þjónustu við heilbrigðisstofnanir og íbúa á Norðurlandi. Í bókun Eyþings kemur fram að samkvæmt fjárlögum ársins 2002 falla niður fjárveit- ingar til héraðslæknisembætt- anna í landinu frá 1. júlí. Eng- in rök komi fram fyrir þessari breytingu né upplýsingar um hvert færa skuli þau verkefni sem embættin hafa sinnt. Að- eins komi fram að helstu raun- breytingar milli ára séu ann- ars vegar hækkað framlag til landlæknisembættisins og hins vegar 15 milljóna króna lækk- un framlaga til héraðslækna- embættanna vegna skipulags- breytinga. Eyþing bendir jafnframt á að héraðslæknirinn á Norður- landi eystra sé eini embætt- islæknirinn í fullu starfi utan Reykjavíkur. Héraðslæknis- embættið hafi gegnt mikil- vægu samræmingarhlutverki í heilbrigðisþjónustu landshlut- ans og verið mikilvægur tengi- liður við stjórnsýslu heilbrigð- ismála. Stjórn Eyþings Áformum um að leggja emb- ætti héraðs- læknis nið- ur mótmælt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.