Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.02.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ Austurríkismaðurinn Stephan Eberharter sigraði í stórsvigi / C2 Rússar mættu ekki til leiks í boðgöngu kvenna / C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR  Hlutir af öðrum efnisheimi/B1  Matarveislan mikla/B2  Varðeldur kynslóðanna/B4  Í trúnaði/B6  Ólíkt að mynda hér og þar/B7  Auðlesið efni/B8 Sérblöð í dag EMBÆTTI ríkissaksóknara sendi í gær bréf til Ríkisendurskoðunar og fór fram á greinargerðir stofnunar- innar vegna endurskoðunar á fjár- reiðum Þjóðmenningarhúss og Þjóð- skjalasafns. Bogi Nilsson ríkis- saksóknari segir að embættið hafi farið fram á að fá þessi gögn í hendur í framhaldi af frétt Morgunblaðsins í gærmorgun. Kannað verður hvort ástæða sé til að fara fram á lögreglu- rannsókn vegna málsins. Bréf forsætisráðherra er ekki formleg áminning Guðmundi Magnússyni, forstöðu- manni Þjóðmenningarhúss, er ekki veitt formleg áminning samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins með því bréfi sem Davíð Oddsson forsætisráðherra sendi Guðmundi vegna athugasemda Ríkisendurskoðunar. Bréfið felur á hinn bóginn í sér óformlegar ávítur á Guðmund Magnússon vegna þeirra atriða sem um getur í skýrslu Rík- isendurskoðunar, samkvæmt upplýs- ingum sem Morgunblaðið fékk í for- sætisráðuneytinu í gær. Eins og fram kom í blaðinu sendi Davíð Oddsson Guðmundi umrætt bréf 7. febrúar sl., þar sem tekið er undir athugasemdir Ríkisendurskoð- unar og að í mörgum tilvikum sé um ámælisverða framkvæmd að ræða. ,,Leggur ráðuneytið áherslu á að úr öllum þessum annmörkum verði þegar bætt og mannahaldi og ákvörð- unum um greiðslur til einstaklinga fyrir einstök verk verði hagað þannig að hafið sé yfir allan vafa og verði ekki til þess fallnar að vekja tor- tryggni. Verður mælst til þess við Ríkisendurskoðun að vendilega og venju fremur verði með því fylgst að ný og bætt vinnubrögð verði upp tek- in,“ sagði m.a. í bréfi forsætisráð- herra til forstöðumanns Þjóðmenn- ingarhúss. Björn Bjarnason menntamálaráð- herra sendi Ólafi Ásgeirssyni þjóð- skjalaverði bréf 18. febrúar, vegna at- hugasemda Ríkisendurskoðunar, eins og fram kom í blaðinu í gær. Þar átelur ráðuneytið vinnubrögð þjóð- skjalavarðar sem um er fjallað í at- hugasemdum Ríkisendurskoðunar og er ráðuneytið sammála því áliti Rík- isendurskoðunar að Ólafi beri að end- urgreiða tilgreindar akstursgreiðslur og mælist til þess að hann geri það. Menntamálaráðherra hafa ekki borist svör frá þjóðskjalaverði Jafnframt lagði ráðherra áherslu á í bréfinu að þjóðskjalavörður bregðist þegar við ábendingum Ríkisendur- skoðunar og geri ráðuneytinu grein fyrir því hvernig það verði gert. Sam- kvæmt upplýsingum Björns Bjarna- sonar í gær höfðu ráðuneytinu ekki borist svör frá Ólafi. Að öðru leyti vís- aði ráðherra til bréfsins sem hann sendi Ólafi. Ráðherra veitti forstöðumanni Þjóðmenningarhúss óformlegar ávítur Ríkissaksókn- ari vill fá greinargerðir HÆSTIRÉTTUR telur að dómsmálaráðuneytinu sé heim- ilt að framselja Letta, sem handtekinn var á Dalvík á síð- asta ári, til heimalands hans, en yfirvöld þar í landi óskuðu eftir framsali hans vegna þriggja manndrápa sem hann er sakað- ur um. Felldi Hæstiréttur því úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði úrskurð- að að hann yrði ekki sendur úr landi. Lettinn hefur verið í gæslu- varðhaldi hér á landi frá því í lok nóvember sl. eða frá því ríkis- lögreglustjóra barst tilkynning frá Interpol í Ríga í Lettlandi um að eftirlýstur lettneskur rík- isborgari, Jurijs Eglitis að nafni, væri á Dalvík. Lettinn var hand- tekinn daginn eftir og úrskurð- aður í gæsluvarðhald. Í niðurstöðum Hæstaréttar segir meðal annars að í málinu liggi engin gögn fyrir í þá veru að lettnesk yfirvöld muni ekki virða rétt varnaraðila sam- kvæmt 6. gr. mannréttindasátt- mála Evrópu. „Þá hafa heldur ekki verið lögð fram nein hald- bær gögn um bágborinn aðbún- að fanga í þarlendum fangels- um. Verður framsali varnaraðila því ekki hafnað af þessum sök- um,“ segir í úrskurði Hæsta- réttar. Málið dæmdu hæstaréttar- dómararnir Gunnlaugur Claess- en, Árni Kolbeinsson og Ingi- björg Benediktsdóttir. Málið sótti Bogi Nilsson ríkissaksókn- ari en verjandi Lettans var Karl Georg Sigurbjörnsson hdl. Heimilt að framselja Lettann FRYSTITOGARINN Júlíus Geirmundsson ÍS kom til Ísafjarðar í gær eftir 10 daga túr með um 207 tonn upp úr sjó að verðmæti um 46 milljónir króna. Gunnar Arnórsson skipstjóri og áhöfn hans voru einkum að veiðum á Hampiðjutorginu og er grálúða uppistaða aflans. Togarinn kom til hafn- ar vegna þess að umbúðirnar um borð voru bún- ar, en mjög gott hal fékkst skömmu áður en lagt var af stað í land og stóð aðgerð yfir á leiðinni heim. Unnið var við löndun úr togaranum í Ísa- fjarðarhöfn í gær. Aflaverðmætið um 46 millj. eft- ir 10 daga túr Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson ÓSKAR Jósefsson, starfandi for- stjóri Símans, er starfsmaður PricewaterhouseCoopers en gerð- ur var sérstakur verktakasamning- ur á milli Landssímans og Price- waterhouseCoopers (PC) vegna starfa Óskars fyrir Símann. Greiðir Síminn PC 2,5 milljónir á mánuði með virðisaukaskatti eða liðlega tvær milljónir án virðisaukaskatts fyrir störf Óskars en tekið skal fram að PC stendur straum af öll- um kostnaði vegna Óskars, þ.e. greiðir orlof og launatengd gjöld o.s.frv. auk þess sem hann hefur bifreið til umráða sem PC greiðir fyrir. Friðrik Pálsson, stjórnarformað- ur Símans, segir slíkan samning hvorki vera óeðlilegan né heldur nokkurt nýmæli: „Menn hafa oft gert slíka samninga áður. Reynir Kristinsson, forstjóri PC, var að ég held um tíma forstjóri Landspít- alans, bæjarstjórinn á Sauðárkróki er frá PricewaterhouseCoopers og ég held að þetta sé töluvert al- gengt, ekki síst þegar um tíma- bundið ástand er að ræða. Af okkar hálfu hvílir engin leynd yfir þess- um samningi.“ Mikið vinnuálag á forstjóra Reynir Kristinsson, forstjóri PricewaterhouseCoopers, segir það reglu að gefa upp upphæðir vegna slíkra ráðninga ef viðskiptavinur- inn hafi ekkert við það að athuga. Hann staðfestir að PC fái greiddar 2,5 milljónir á mánuði samkvæmt samningi við Landssímann en ekki séu ákvæði um að forstjórinn skili tilteknum fjölda tíma. Staðreyndin sé hins vegar sú að þegar menn gangi inn í svona starf neyðist menn til þess að vinna mjög mikið, ekki sé óeðlilegt að ætla að menn skili sjötíu tímum á viku eða jafnvel meira. „Þetta er ein greiðsla fyrir allt, þ.e. laun og launatengd gjöld, bifreið, síma o.s.frv. og þau tæki sem hann þarf að nota.“ Reynir segir að PC hafi oft leigt út stjórnendur tímabundið með þessum hætti. „Útleiga“ á stjórn- endum hafi þekkst um nokkurra ára skeið. „Stundum skapast þau skilyrði í fyrirtækjum að það vant- ar inn stjórnanda tímabundið af ýmsum ástæðum og þá getur verið erfittt að ráða menn því fæstir eru tilbúnir að hlaupa í svona stöður í fáa mánuði.“ Aðspurður segir Reynir að ekki hafi verið ljóst hve lengi Síminn þyrfti á Óskari að halda. Forstjóri Símans í láni frá PricewaterhouseCoopers Heildargreiðsla 2,5 milljónir á mánuði JÓNÍNA Bjartmarz, alþingismaður og annar tveggja fulltrúa Framsókn- arflokksins í stjórn Landssíma Ís- lands, hefur ákveðið að leggja til að aðalfundur Landssímans verði boð- aður og segist hún aðspurð ekki reikna með að gefa kost á sér til áframhaldandi setu í stjórninni. Mun hún leggja þetta til á stjórnarfundi í Landssímanum sem væntanlega verður haldinn í næstu viku og gerir hún ráð fyrir að aðalfundurinn geti farið fram snemma í mars. Aðspurð segir hún að ástæðan séu atburðir tengdir Landssímanum undanfarnar vikur og mánuði. Þá sé stjórnin ekki fullskipuð enda hafi tveir stjórnarmenn sagt af sér. „Í ljósi þess sem gengið hefur á þá finnst mér ekki að annað komi til greina en að aðalfundur komi saman enda fer hann með æðsta vald í mál- efnum félagsins. Þá reynir á endur- nýjun umboðs þeirra sem gefa kost á sér áfram,“ segir Jónína. Hún vilji þó axla ábyrgð sem stjórnarmaður þangað til vegna hagsmuna fyrir- tækisins og starfsmanna þess. „Ég hef ekki brotið neinn trúnað og því tel ég ekki ástæðu til að segja af mér stjórnarstörfum,“ bætir hún við. Jónína hefur kynnt stjórnarfor- manni Landssímans afstöðu sína. Gerir hún ráð fyrir að Magnús Stef- ánsson, hinn fulltrúi Framsóknar- flokksins í stjórn Landssímans, sé sama sinnis um að ekki sé eftir neinu að bíða með að boða til aðalfundar. Jónína Bjartmarz, annar fulltrúi Fram- sóknarflokksins í stjórn Landssímans Leggur til að aðalfundur verði boðaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.