Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 1
48. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 27. FEBRÚAR 2002
GYÐINGUR les Esterarbók í gamla
testamentinu í tilefni af púrímhá-
tíðinni sem var í gær. Gyðingar
halda hátíðina árlega til að minnast
þess að gyðingastúlkan Ester, sem
varð eiginkona Persakonungs,
bjargaði gyðingum frá útrýmingu í
Persaveldi á 5. öld fyrir Krist. Á bak
við gyðinginn er ísraelskur hermað-
ur við varðstöð á vegi milli gyð-
ingabyggðanna Efrat og Nokdim á
Vesturbakka Jórdanar.
Reuters
Gluggað í Esterarbók
SJÖ menn fórust og fimmtán slös-
uðust, þar af fjórir lífshættulega,
þegar tvær flutningalestir rákust
saman í þorpinu Wampersdorf ná-
lægt Vín í gær. Er þetta mann-
skæðasta lestarslys í Austurríki í
þrjátíu ár.
Flestir þeirra sem létu lífið eða
særðust voru ungverskir starfs-
menn lestar sem var á leið til Ung-
verjalands. Hin lestin var á leið
til Vínar og átti ekki að vera á
sama spori og ungverska lestin.
Slökkviliðsmenn fjarlægja hér
flak eins lestarvagnanna.
Reuters
Sjö menn farast í lestarslysi
FLÓTTAMANNAHJÁLP Sam-
einuðu þjóðanna, UNHCR, skýrði
frá því í gærkvöldi að rannsókn
hefði leitt í ljós að margir starfs-
menn hjálparstofnana hefðu gerst
sekir um að misnota kynferðislega
ungar stúlkur í flóttamannabúðum
í Vestur-Afríkuríkjunum Líberíu,
Sierra Leone og Gíneu.
Skýrsla um rannsóknina hefur
ekki enn verið gerð opinber en nið-
urstöður hennar hafa þó spurst út
og vakið hörð viðbrögð. Flótta-
mannahjálp Sameinuðu þjóðanna
og bresku góðgerðarsamtökin
Save the Children stóðu fyrir rann-
sókninni og hún bendir til þess að
starfsmenn meira en fjörutíu hjálp-
arstofnana hafi misnotað aðstöðu
sína til að svala kynþörf sinni.
Ungar stúlkur sögðu skýrsluhöf-
undunum að þær hefðu neyðst til
að hafa mök við hjálparstarfs-
mennina til að tryggja sér mat og
aðrar nauðsynjavörur.
Að sögn breska útvarpsins
BBC kemur fram að í langflestum
tilfellum er um að ræða hjálpar-
starfsmenn frá viðkomandi landi,
þ.e. heimamenn frá Líberíu,
Sierra Leone eða Gíneu. Nokkrar
stúlkur sögðu þó að þær hefðu
verið svívirtar af friðargæslulið-
um á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Fulltrúar Save the Children
segjast hafa í hyggju að nota upp-
lýsingarnar til að skera upp herör
gegn hegðun hjálparstarfsmann-
anna. Hafa samtökin sjálf þegar
rekið þrjá starfsmenn, sem unnið
höfðu að hjálparstörfum á þeirra
vegum.
Flóttabörn misnot-
uð kynferðislega
KEN Livingstone, borgarstjóri
London, tilkynnti í gær að bíl-
stjórum yrði gert að greiða 5
pund, andvirði 720 króna, á dag
fyrir að aka inn í miðborgina frá
17. febrúar á næsta ári.
Markmiðið með gjaldinu er að
draga úr loftmengun og minnka
umferðarþungann um 10–15%.
„Þetta er í fyrsta sinn sem reynt
er fyrir alvöru að taka á þrálátu
umferðaröngþveiti í miðborg
London,“ sagði Livingstone.
Ráðgert er að setja upp 230
myndavélar til að taka myndir af
bílnúmerum og athugað verður í
gagnabanka hvort bílstjórarnir
hafi greitt gjaldið. Þeir sem ekki
gera það verða sektaðir. Áætlað
er að tekjurnar af gjaldinu verði
andvirði 21,6 milljarða króna og
féð á nota til að bæta almenn-
ingssamgöngurnar.
Félag enskra bifreiðaeigenda
mótmælti áformunum og sagði
að lesta- og strætisvagnakerfið
réði ekki við álagið á almenn-
ingssamgöngurnar sem fylgdi
gjaldtökunni.
Gjald lagt á
akstur í
miðborginni
London. AFP, AP.
hringdi í hann til að þakka honum
fyrir að beita sér fyrir friðarviðræð-
um. Evrópusambandið hefur einnig
fagnað tillögunum.
Solana ræðir við krónprinsinn
Javier Solana sagði Sharon vilja
„ræða við hvaða fulltrúa sádi-arab-
ískra stjórnvalda sem er“. „Hann lét í
ljósi mikinn hug á að fá frekari upp-
lýsingar um hugmyndina.“
Solana ákvað að breyta ferðaáætl-
un sinni til að ræða friðartillögurnar
við krónprinsinn í sádi-arabísku
hafnarborginni Jeddah í dag.
Binyamin Ben-Eliezer, varnar-
málaráðherra Ísraels, sagði í gær að
Ísraelar ættu ekki að hafna friðartil-
lögunum. Shimon Peres, utanríkis-
ráðherra Ísraels, hefur sagt að hug-
myndir krónprinsins séu
„áhugaverðar og hrífandi“ en ráð-
gjafar Sharons segja að þær séu enn
óljósar.
Áhrifamikið dagblað í Ísrael,
Haaretz, hvatti Sharon til að taka
friðartillögurnar til vandlegrar at-
hugunar. „Með áætlun Sáda gefst
okkur tækifæri til að undirrita frið-
arsamning við mestallan arabaheim-
inn (fyrir utan lönd eins og Líbýu og
Írak), meðal annars Palestínumenn,“
sagði blaðið í forystugrein.
Ísraelskir, palestínskir og banda-
rískir embættismenn komu saman í
Tel Aviv í gær til að hefja að nýju við-
ræður um samstarf í öryggismálum.
Palestínumenn slitu viðræðunum um
helgina eftir að Ísraelsstjórn neitaði
að heimila Yasser Arafat, leiðtoga
þeirra, að fara frá Ramallah á Vest-
urbakkanum þar sem hann hefur
verið í herkví frá því í byrjun desem-
ber.
ARIEL Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, er tilbúinn að ræða við leið-
toga Sádi-Arabíu um nýjar friðartil-
lögur þeirra, að sögn Javiers Solana,
æðsta embættismanns Evrópusam-
bandsins í utanríkismálum, sem
ræddi við Sharon í Jerúsalem í gær.
Krónprins Sádi-Arabíu, Abdullah
bin Abdul Aziz, lagði tillögurnar fram
nýlega og hafa þær vakið vonir um að
stjórn Ísraels hefji friðarviðræður að
nýju við Palestínumenn. Tillögurnar
fela í sér að arabaríkin taki upp vin-
samlegri samskipti við Ísrael gegn
því að Ísraelar dragi allt herlið sitt
frá svæðunum sem þeir hernámu
1967. Tillögunum hefur verið vel tek-
ið í heimastjórn Palestínumanna,
Egyptalandi, Jórdaníu, Líbanon og
arabaríkjum við Persaflóa.
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti fagnaði tillögum krónprinsins og
Sharon vill ræða við
leiðtoga Sádi-Arabíu
Bush fagnar friðarhugmyndum Sáda
Jerúsalem. AFP, AP.
HUGO Chávez, forseti Venesúela,
sagði í viðtali sem birt var í gær að
engin hætta væri á valdaráni í land-
inu þótt hann yrði ekki við þeirri
kröfu fjögurra yfirforingja í hernum
að hann segði af sér. Bandarískur
embættismaður sagði hins vegar að
herforingjar í Venesúela hefðu rætt
þann möguleika að taka völdin í sín-
ar hendur.
Chávez sagði í viðtali við franska
dagblaðið Le Monde að líkurnar á
valdaráni væru „engar“ því stjórnin
nyti stuðnings almennings.
Embættismaður í Washington
sagði að herforingjar í Venesúela
hefðu innt bandaríska stjórnarerind-
reka eftir því hvernig Bandaríkja-
stjórn myndi bregðast við valdaráni.
Þeim hefði verið sagt að stjórnin
væri andvíg hvers konar aðgerðum
sem græfu undan lýðræðinu.
Valdarán í
Venesúela?
Endalokin/20
Caracas. AP.