Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÍR-ingar áfram á sigurbraut í
handboltanum /B3
Búnir að brjóta samstöðu
norsku liðanna /B1
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
SIGURÐUR Þórðarson ríkisend-
urskoðandi segir að þeir sem telja
sig búa yfir upplýsingum um spill-
ingu eða mistök í stjórnsýslunni
geti komið þeim á framfæri við
Ríkisendurskoðun. Slíkar ábend-
ingar hafi borist stofnuninni og
þær séu kannaðar ef ástæða þyki
til.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði á Alþingi í fyrradag í um-
ræðum um starfsmann sem lak
upplýsingum frá Landssímanum til
DV, að starfsmaðurinn hefði getað
farið þá leið að ræða málið við for-
stjóra, stjórn eða Ríkisendurskoð-
un.
„Ég tel að þetta sé farvegur fyr-
ir menn ef aðra möguleika þrýtur
hjá þeim. Ég er sammála forsætis-
ráðherra um að menn eigi að byrja
á því að vekja athygli á því sem
þeir telja miður fara. Það liggur
líka fyrir að við fáum ýmiss konar
ábendingar með óformlegum
hætti.“
Sigurður sagði að það væri metið
í hvert eitt sinn hvort ábendingar
gæfu tilefni til sérstakra viðbragða.
„Oftast er það þannig að þegar við
förum og skoðum viðkomandi aðila
þá höfum þessar ábendingar í huga
og skoðum þetta þá sérstaklega.
Það er sjaldnast að við förum beint
í málið út frá svona ábendingum.
Það fer eftir eðli þeirra, en við
söfnum þessu saman og höfum
þetta í huga.“
Starfsmaður Landssímans sem
kom upplýsingum um greiðslur
Landssímans til fyrirtækis Frið-
riks Pálssonar, stjórnarformanns
og eiganda fyrirtækisins Góðráðs
ehf., hafði engar sannanir í hönd-
unum þegar DV bað hann um að
kanna viðskipti Símans við Góðráð
þó að orðrómur hefði verið uppi
um að slík viðskipti hefðu átt sér
stað. Hefðu grunsemdir hans ein-
hverju breytt þó að þeim hefði ver-
ið komið til Ríkisendurskoðunar?
„Menn verða aðeins að velta fyr-
ir sér hvaða hlutverk viðkomandi
starfsmaður eða starfsmenn hafa í
þessu máli. Ef hann hefur ekki yfir
upplýsingum að ráða og getur ekki
sjálfur sannað það fyrir sér að
þessi orðrómur sé réttur og þarf að
fara að brjóta starfsreglur til að
gera það, þá held ég að viðkomandi
maður ætti að íhuga stöðu sjálfs
sín,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagði að þrátt fyrir að
mikið væri rætt þessa daga um
spillingu og mistök í stjórnsýslunni
bærust ekkert frekar ábendingar
til Ríkisendurskoðunar þessa dag-
ana en aðra daga. „Ég held sjálfur
að það sé orðum aukið að það sé
mikil spilling í stjórnsýslunni þó að
þessi mál komi upp,“ sagði Sig-
urður.
Ábendingar um mistök í stjórnsýslu hafa borist Ríkisendurskoðun
Eðlilegur farvegur að
mati ríkisendurskoðanda
VATN er til margra hluta nýtilegt eins og alkunna er og
má meira að segja fara í útreiðartúra á því, eins og sést á
þessari mynd sem tekin var við Rauðavatn í gær. Það
þarf svo sem ekki kraftaverk til heldur dugar að fá
hressilegt frost og hefur verið nóg af því á höfuðborg-
arsvæðinu síðustu daga. Á sama tíma hellir sólin geislum
sínum yfir frostbitna jörð og varpar ljóma á spegilslétt
svellið, þar sem menn og dýr njóta samvistanna.
Morgunblaðið/RAX
Hestar á hálum ís
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
ákvað á þeim tíma er hann gegndi
störfum samgönguráðherra að fela
Sigurði Þórðarsyni ríkisendurskoð-
anda að meta hvort eðlilega hefði
verið staðið að sölu Landssímahúss-
ins við Austurvöll. Komst ríkisend-
urskoðandi að þeirri niðurstöðu að
salan hefði verið eðlileg. Davíð
greindi frá þessu í Kastljósi Ríkis-
sjónvarpsins í gærkvöldi.
Davíð sagðist hafa kallað ríkisend-
urskoðanda á sinn fund í tilefni fjöl-
miðlaumfjöllunar um söluverð á hús-
eign Landssímans. „Ég fór yfir
málið með honum og bað hann að
fara sérstaklega ofan í þennan þátt,
hvort þar væri eitthvað um óeðlilega
hluti að ræða. Hann hafði síðan sam-
band við mig tveimur eða þremur
dögum síðar og sagðist telja að þetta
hefðu verið góð kaup fyrir Símann
og það hefði verið ágætlega að þessu
staðið,“ sagði Davíð.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
Sala Lands-
símahúss-
ins eðlileg
♦ ♦ ♦
STARFSFÓLKI Múlalundar
verður ekki sagt upp störfum
sínum um mánaðamótin og útlit
er fyrir að ekki komi til upp-
sagna í framtíðinni. Þetta var
tilkynnt á fundi með starfs-
mönnunum í gær.
Að sögn Steinars Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra
Múlalundar, er enn þá verið að
skoða reksturinn en von er á
endanlegri niðurstöðu í þessari
viku. „Það er ráðgjafi hérna,
kostaður af ráðuneytinu, sem er
að taka út staðinn og hann er
ekki kominn með sínar tillögur á
blað en það sem hann er búinn
að láta okkur í té munnlega
bendir til þess að starfsemin
muni halda áfram. Það er ekki
komin endanleg staðfesting á
því en það er von á henni í vik-
unni.“
Múlalundur verður að taka
til og hagræða í rekstri
Hann segir ljóst að Múlalund-
ur verði að taka til og hagræða í
rekstrinum. „Ég reikna með að
ráðuneytið komi þá til móts við
okkur og uppfylli betur þennan
þjónustusamning sem við höf-
um verið með.“ Hann segir um-
ræddan samning hafa verið
gerðan til tveggja ára árið 1998
en ekkert hafi orðið úr því að
endurnýja hann þar sem Múla-
lundur fór fram á breytingar.
Hins vegar hafi stjórnvöld
greitt áfram samkvæmt gamla
samningnum en nú sé stefnt að
því að gera nýjan samning.
Steinar segir því ekkert
benda til þess að starfsmönnum
verði sagt upp. „Þeir eru búnir
að vera eins og hengdir upp á
þráð og hafa kviðið fyrir þessu
allan mánuðinn þannig að vissu-
lega er þetta léttir fyrir þá,“
segir hann.
Ekki
uppsagn-
ir hjá
Múla-
lundi
LÖGREGLA handtók tvo menn sem
voru staðnir að verki við að stela úr
yfirhöfnum í safnaðarhúsi Fíladelfíu-
safnaðarins, Hátúni 2, í gær. Höfðu
mennirnir þá áður látið greipar sópa
um yfirhafnir í íþróttahúsi fatlaðra í
Hátúni 14 en þýfi, sem var upprunnið
úr vösum fólks sem þar hafði verið
statt, fannst í poka sem mennirnir
báru með sér.
Að sögn lögreglu voru þeir færðir
til yfirheyrslu þar sem til stóð að
kanna hvort þeir væru viðriðnir stuld
úr fleiri húsum í nágrenninu. Þeir eru
báðir á 18. aldursári að sögn lögreglu.
Stálu úr vösum
safnaðarfólks
RÍKISSAKSÓKNARI hefur gefið út ákæru á
hendur fimm mönnum vegna alvarlegra átaka sem
urðu á bifreiðastæði við íþróttahús ÍR við Skóg-
arsel í Reykjavík í fyrravor. Málið var þingfest í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og játaði einn
mannanna sök. Mennirnir eru á aldrinum 24 til 32
ára, en brotin fela í sér líkamsárásir, þar sem með-
al annars var beitt skotvopnum og bifreiðir not-
aðar til að aka menn niður.
Einum mannanna er gefið að sök að hafa slegið
annan með krepptum hnefa í andlit svo hann
missti meðvitund, féll í götuna og fékk heilahrist-
ing. Játaði hann sök sína.
Öðrum er gefið að sök að hafa slegið með
steypustyrktarjárni í framrúðu bifreiðar sem var
á ferð með tveimur mönnum innanborðs þannig að
framrúðan sprakk. Hann neitaði sök.
Þeim þriðja er gefið að sök að hafa slegið með
felgulykli í framrúðu annarrar bifreiðar. Hann var
fjarverandi þingfestingu málsins.
Sá fjórði er sakaður um sérstaklega hættulega
líkamsárás með því að hafa ekið bifreið á annan
mann sem tókst að stökkva upp á vélarhlíf bifreið-
arinnar þar sem hann kastaðist á framrúðuna og
þaðan upp á þak bifreiðarinnar og féll að lokum í
götuna fyrir aftan bifreiðina. Hann neitaði sök.
Í ákæru er síðan fimmta manninum gefið að sök
að hafa skotið átta skotum úr hálfsjálfvirkri
skammbyssu á bifreið á ferð, en tveir menn sátu í
framsætum bifreiðarinnar. Í ákæru er því lýst að
tvö skot hafi lent í vélarhlífinni, þrjú skot í hægri
afturhurð og þrjú í afturstuðara bifreiðarinnar.
Fram kemur að samtals voru tíu menn á fjórum
bifreiðunum á bifreiðastæðinu og sátu þeir ýmist
inni í bifreiðunum eða voru fyrir utan þær. Ákærði
hélt því fram fyrir dómi að skotin hefðu ekki verið
eins mörg og lýst er í ákæru og neitaði að hafa
stefnt lífi annarra í hættu.
Aðalmeðferð í málinu verður 4. apríl.
Fimm menn ákærðir vegna
alvarlegra átaka í fyrravor