Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
STJÓRNENDUR Búnaðarbankans
hafna því í yfirlýsingu í gær að bank-
inn hafi „sloppið fyrir horn“, vegna
„óskýrra laga“ eins og ráða megi af
umfjöllun fjölmiðla um niðurstöðu
rannsóknar efnahagsbrotadeildar
Ríkislögreglustjóra á meintum inn-
herjaviðskiptum stjórnenda bankans
með hlutabréf í Pharmaco. „Bankinn
hafnar þessu alfarið og telur að nið-
urstaða hefði orðið sú sama þótt
frumvarp viðskiptaráðherra um
breytingu á lögum hefði verið sam-
þykkt,“ segir í yfirlýsingunni.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær ákvað efnahagsbrota-
deild Ríkislögreglustjóra að hætta
rannsókn á ætluðum innherjavið-
skiptum stjórnenda bankans með
hlutabréf í Pharmaco.
,,Mikil ábyrgð að ákveða svona“
Árni Tómasson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, sagði niðurstöðu rann-
sóknar Ríkislögreglustjóra íhugunar-
efni þeim sem fóru af stað með málið
með tilliti til þeirrar ábyrgðar sem
þeir hafi í málinu. Árni sagði er hann
var spurður nánar um þessi ummæli
að það hefði verið Fjármálaeftirlitið
sem tók þá ákvörðun að senda málið
áfram til Ríkislögreglustjóra á sínum
tíma. „Þeir vita náttúrlega hvaða
áhrif slík ákvörðun hefur. Það hefur
gerst nokkuð oft að þeir hafa sent frá
sér mál og þau hafa fengið misjafnar
viðtökur,“ segir hann.
Árni segir að rannsóknin hafi haft
mikil áhrif á starfsfólk og viðskipta-
vini bankans. „Það er mjög mikil
ábyrgð að ákveða svona,“ segir Árni
og bendir á að nú þegar komið er á
daginn að engin ástæða hafi verið fyr-
ir þessari rannsókn þá biðji hann við-
komandi góðlátlega að íhuga þetta.
„Fjármálaeftirlitið gerði rétt í
að senda þetta áfram“
Páll Gunnar Pálsson, forstöðumað-
ur Fjármálaeftirlitsins, segir bréf
Ríkislögreglustjóra bera með sér að
rétt hafi verið af Fjármálaeftirlitinu
að beina málinu áfram til efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra.
„Fjármálaeftirlitið vísaði þessu
áfram og það er ríkislögreglustjóra að
ákveða um saksókn. Niðurstaðan
varð þessi, eins og útskýrt hefur ver-
ið, og þar er vísað til dómafordæma
sem síðar hafa komið upp en það er
ljóst af bréfi Ríkislögreglustjóra að
Fjármálaeftirlitið gerði rétt í að
senda þetta áfram,“ sagði Páll Gunn-
ar.
Vísa á bug samanburði við
málsatvik í Skeljungsmálinu
Í yfirlýsingu Búnaðarbankans í
gær segir m.a. að ekkert hafi komið
fram í þessu máli sem bendi til eða
staðfesti að upplýsingar yfirmanna
bankans og deilda á verðbréfasviði
um málefni Pharmaco hf. á umræddu
tímabili hafi borist til starfsmanna
sem höfðu með höndum verðbréfavið-
skipti. „Þá hefur verið upplýst að
bankinn og sjóðir í vörslu hans nýttu
sér ekki þessar upplýsingar í hagn-
aðarskyni eða til þess að forðast tap.
Ef þróun hlutabréfaverðs Pharma-
co á umræddu tímabili er skoðuð er
ljóst að ofangreindar upplýsingar
bárust ekki út fyrir þann hóp sem
vann að eða hafði vitneskju um mál-
efni Pharmaco á þessum tíma. Á öllu
þessu tímabili var hlutabréfaverð
Pharmaco hf. stöðugt á bilinu 13–14
eða á svipuðu róli og það hafði verið
frá upphafi ársins 1999. Fyrir liggur
að umrædd viðskipti bankans með
hlutabréf Pharmaco á þessu tímabili
voru mjög óveruleg og höfðu engin
áhrif á rekstur hans,“ segir í yfirlýs-
ingu bankans.
Vísar bankinn því á bug að máls-
atvik í þessu máli séu sambærileg
málsatvikum í svonefndu Skeljungs-
máli. „Af þeim sökum var að mati
bankans alger óþarfi að tefja rann-
sókn Pharmacomálsins hjá ríkislög-
reglustjóra meðan beðið var niður-
stöðu Héraðsdóms Reykjavíkur í
Skeljungsmálinu eins og gert var,“
segir að lokum í yfirlýsingu bankans.
Búnaðarbankinn gagnrýnir umfjöllun um rannsókn Ríkislögreglustjóra
Hafna því að bankinn
hafi „sloppið fyrir horn“
GUÐMUNDUR Guðmundsson,
forstöðumaður fyrirtækjasviðs
Búnaðarbanka Íslands, sagði að
sér hefði þótt eðlilegra að fram
hefði komið í sölulýsingu Lands-
símans, að stjórnarformaður fyrir-
tækisins hefði fengið greitt frá
Símanum fyrir ráðgjafastörf.
Í Morgunblaðinu í gær er haft
eftir Halldóri Erni Egilssyni, fyrr-
verandi starfsmanni Landssímans,
að PricewaterhouseCoopers hafi
brotið trúnað við fjárfesta í Síman-
um með því að láta þess ekki getið í
sölulýsingu að Friðrik Pálsson,
stjórnarformaður Landssímans,
hafi í gegnum fyrirtæki sitt, Góð-
ráð ehf., fengið greiddar rúmar
fimm milljónir króna á árinu 2001
fyrir ráðgjafastörf. Hann sakar
jafnframt Óskar Jósefsson, starf-
andi forstjóra Landssímans, um að
vera ábyrgur fyrir þessu broti, en
hann er starfsmaður PWC.
Óskar sagði að þarna væri um
misskilning að ræða. Búnaðarbank-
inn en ekki PWC hefði unnið sölu-
lýsinguna og bæri ábyrgð á henni.
Hann vildi aðspurður ekki tjá sig
um hvort hann væri þeirrar skoð-
unar að þessar upplýsingar hefðu
átt að koma fram í sölulýsingunni.
Í sölulýsingunni sem er frá því í
september á síðasta ári segir: „Á
fyrri hluta 2001 námu heildarlaun
til stjórnar 3 m.kr. og heildarlaun
framkvæmdastjórnar 28 m.kr.
Ekki er um að ræða óvenjuleg
viðskipti né nokkurs konar lánveit-
ingar, framvirka samninga, kaup-
réttarsamninga né ábyrgðir félags-
ins til stjórnar, stjórnenda eða
endurskoðenda félagsins.“
Búnaðarbankinn vissi ekki um
viðskiptin við Góðráð
Guðmundur sagði að sölulýsingin
hefði verið unnin á þann hátt að
spurningalistar hefðu verið sendir
til tengiliða Búnaðarbankans innan
Landssímans. Upplýsingar í sölu-
lýsingu væru unnar upp úr svörum
sem hefðu borist við spurningun-
um. Hann sagði að bankinn kann-
aði svör Símans ef ástæða þætti til,
en bankinn hefði ekki talið ástæða
til að kanna sérstaklega svör um
laun til stjórnarmanna. Búnaðar-
bankanum hefði því ekki verið
kunnugt um þessar greiðslur til
fyrirtækis Friðriks Pálssonar, Góð-
ráðs.
Telur þú að þessar upplýsingar
hefðu átt að vera í sölulýsingunni?
„Mér hefði þótt eðlilegra að
þessar upplýsingar hefðu komið
þarna fram. Það er hins vegar
spurning hversu stór hluti af þess-
um greiðslum var vegna stjórnar-
starfa og hve stór hluti var vegna
annarra starfa fyrir Símann,“ sagði
Guðmundur.
Guðmundur Guðmundsson forstöðumaður fyrirtækjasviðs Búnaðarbankans
Eðlilegt að upplýsingar um
Góðráð væru í sölulýsingu
AUSTFIRÐINGAR hafa fengið dá-
góðan skerf af snjó eins og sjá má af
þessari mynd sem tekin var á Egils-
stöðum á mánudag. Ekkert lát virð-
ist vera á vetrarríkinu því mjöllinni
kyngir sífellt niður svo að hávaxin
tré og þakskegg skrýðast hvítum
vetrarskrúða. Er vissara fyrir
mannfólkið að gera slíkt hið sama
til að forðast beittar tennur kulda-
bola þótt vissulega sé ekki skilyrði
að klæðin mannanna séu hvít.
Morgunblaðið/Steinunn
Vetrarríki á Egilsstöðum
HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ-
Landmat gerði mistök við úrvinnslu
gagna þegar unnið var að greiningu á
starfsemi miðborgarinnar sem leiddi
til rangra niðurstaðna um fjölda fyr-
irtækja í veitingarekstri í Kvosinni.
Þetta leiddi svo aftur til þess að um-
ræða um stöðu mála í miðborginni
hefur verið á röngum forsendum.
Þetta kom fram á fundi borgarráðs
í gær þar sem lögð voru fram bréf
Landmats og framkvæmdastjóra
miðborgar um málið. Segir í bréfi
framkvæmdastjóra miðborgar að í
umræðunni hafi m.a. verið dregið
fram að veitingahúsum í Kvos hafi
fækkað um 24 prósent en við athugun
hafi komið í ljós að þetta var rangt. Í
raun hafi veitingahúsum í Kvos fjölg-
að um tvö en ekki fækkað milli áranna
2000 og 2001. Í bréfi Landmats kem-
ur fram að úrvinnslu á grunngögnum
hafi verið verulega ábótavant og
harmar fyrirtækið mistökin.
Í bókun borgarráðs um málið segir:
„Mistökin hafa m.a. leitt til þess að
umræða að undanförnu um stöðu
mála í miðborginni hefur verið á röng-
um forsendum og ályktanir dregnar
um hnignum starfsemi sem ekki eiga
við rök að styðjast. Slíkt hefur nei-
kvæð áhrif á ímynd miðborgarinnar
og getur skaðað viðskiptahagsmuni
fyrirtækja sem þar starfa.“ Er farið
fram á að fyrirtækið leiðrétti mistökin
og sjái til þess að „aðferðafræði við
söfnun og úrvinnslu gagna sé hafin yf-
ir alla gagnrýni og hægt sé að treysta
niðurstöðunum“, eins og segir í bókun
borgarráðs.
Umræða um hnignun miðborgar
byggð á röngum forsendum
Rangar upplýs-
ingar í skýrslu
um miðborgina
STUÐNINGUR við virkjun Kára-
hnjúka hefur aukist frá því sem var
á síðasta ári ef marka má niður-
stöðu könnunar Gallup í janúar/
febrúar nú sem skýrt er frá á vef
Kárahnjúkavirkjunar.
Nú eru 47% aðspurðra annað-
hvort mjög hlynnt eða frekar
hlynnt virkjun en síðastliðið vor var
sambærileg tala 41%. Frekar eða
mjög andvígt virkjun er nú 31% en
síðastliðið ár var það 36,1%. Þá
voru 23% nú hvorki hlynnt né and-
víg virkjun sem er svipaður fjöldi
og síðastliðið vor.
Könnunin var framkvæmd 23.
jan. til 6. feb. og var stuðst við
1.155 manna úrtak. Svarhlutfall var
69,4%. Spurt var: „Ertu hlynnt(ur)
eða andvíg(ur) byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar?“
Fram kemur að stuðningur við
virkjun hefur aukist bæði meðal
karla og kvenna og í Reykjavík og
á landsbyggðinni og einnig hefur
stuðningur meðal fólks á aldrinum
45–54 ára aukist verulega.
Skoðanakönnun Gallup
Stuðningur
eykst við
Kárahnjúka-
virkjun
Smokkar
með am-
fetamíni
á salerni
SMOKKAR sem innihéldu samtals
um 250 grömm af amfetamíni fundust
á kvennasalerni á Keflavíkurflugvelli
á laugardag.
Hafði smokkunum verið hent í
ruslafötu sem alla jafna er ætluð fyrir
notuð dömubindi. Líklegast þykir að
sú sem henti smokkunum hafi ætlað
að smygla fíkniefninu innvortis til
landsins en guggnað af einhverjum
orsökum.
Alþekkt er að fíkniefnasmyglarar
beiti þessari aðferð við iðju sína.
Komið hefur fyrir að smokkarnir
bráðni meðan þeir eru í líkama smygl-
arans en slíkt stofnar lífi viðkomandi í
stórhættu en mun einnig vera afar
sársaukafullt.
Tollgæslan og lögreglan á Keflavík-
urflugvelli vinna að rannsókn málsins.