Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 27.02.2002, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra kynnti nýtt frumvarp til laga um stjórn fiskveiða á fundi með blaðamönnum í gærmorgun og var frumvarpinu dreift á Alþingi í gær. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar tóku málið þegar upp við upphaf þingfund- ar og fór ekki á milli mála að þungt var í þeim hljóðið. Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinnar, sagði þannig að segja mætti að í frum- varpinu fælist óskadraumur LÍÚ og stórútgerðarinnar og að með því væri endanlega staðfest að stjórnarand- staðan vildi ná sáttum en ríkisstjórnin vilji greinilega ófrið. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, tók undir þetta og sagði ráðherra kasta stríðshanska inn í þingið. Engin sátt yrði um efni frumvarpsins og þá leið sem væri farin með því, heldur bullandi ófriður. Lofað að stefna að sátt Formaður Samfylkingarinnar rifj- aði upp að stjórnarflokkarnir hefðu lofað því hástöfum fyrir síðustu kosn- ingar að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að ná sátt um stjórnun fiskveiða. „Það verður að segjast eins og er að maður hélt að stjórnarflokkarnir væru að stíga raunhæft skref til þess með tillögum auðlindanefndar, því í henni var að finna vísi að sátt sem við í stjórnarandstöðunni hefðum getað tekið þátt í. Nú liggur hins vegar fyrir að það er ekkert rætt við stjórnarand- stöðuna. Stjórnarandstaðan lagði eigi að síður fram hér þingmál um það hvernig hún taldi að ætti að reyna að ná sátt um þetta mál. Við vildum leggja fram hugmynd að nefnd þar sem hver þingflokkur ætti fulltrúa þar sem yrði reynt að ná sátt á grund- velli þess að afnema gjafakvótann í gegnum fyrningu,“ sagði hann og benti á að umrædd tillaga hefði verið lögð fram í ljósi þess að við blasi að meirihluti sé fyrir því í landinu að fara þá leið. Össur gagnrýndi harkalega að ráð- herra skyldi nú ekki einu sinni hafa haft fyrir því að ræða við stjórnarand- stöðuna, heldur ætlaði hann „að knýja hér í gegn frumvarp sem byggðist fyrst og fremst á óskadraumum LÍÚ og stórútgerðarinnar“ og alveg ljóst væri að stjórnarandstæðan tæki fast á móti í þessu máli. „Við munum ekki láta valta yfir okkur og vilja þjóðarinnar í þessu mikilvæga máli. Við viljum sátt í mál- inu en ríkisstjórnin vill greinilega ófrið,“ sagði Össur og líkti sjávarút- vegsráðherra við smækkaða útgáfu af Kristjáni Ragnarssyni, formanni LÍÚ. Framkoma ríkisstjórnarinnar með endemum Steingrímur J. Sigfússon tók undir gagnrýnina og sagði að framkoma ríkisstjórnarinnar í þessu máli væri með endemum. Hann sagði að sú mikla sáttagjörð sem lofað hafi verið í málinu fyrir síðustu alþingiskosning- ar væri væntanlega fólgin í því frum- varpi sem nú verði „hent hér inn á þingið“, eins og hann orðaði það. Hann sagði tillögu stjórnarandstöð- unnar, um að reyna að sætta sjónar- mið í þessu máli, hafa legið fyrir þinginu um mánaða skeið, en það hefði verið einskis metið, ekki tekið undir það einu orði og tillagan reynd- ar ekki enn komin til umræðu. Steingrímur sagði hér um að ræða í aðalatriðum tillögu Sjálfstæðisflokks- ins og embættismanna í svonefndri endurskoðunarnefnd. „Auðvitað má segja að það veki spurningar um það hvort Sjáflstæðisflokkurinn meti það svo nú að það sé honum hagstæðara að reyna að beina umræðunni inn í deilur um sjávarútvegsmál og frá þeim spillingarmálum sem mjög eru tengd flokknum og mjög eru til um- ræðu þessa dagana. Þess vegna allt í einu komi þessi stríðshanski hér flat- ur inn í þingið.“ Sagði formaður VG að allir vissu að engin sátt yrði um frumvarp sjávarút- vegsráðherra, hvorki inni á þingi né úti í þjóðfélaginu. „Það er allt logandi í ófriði í kringum þessi mál og í raun veru er það mjög áleitin spurning hvað sjávarútvegsráðherra og Sjálf- stæðisflokknum gengur til að standa svona að verki,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon. Ráðherra að gera að gamni sínu? Svanfríður Jónasdóttir (S) sagði að ef málið væri ekki jafn alvarlegt og raun bæri vitni, mætti halda að sjáv- arútvegsráðherra væri fyrst og fremst að gera að gamni sínu. „Sáttagjörðin sem hér er boðuð felst aðallega í því að breyta um nafn á þeim kostnaðargreiðslum sem út- gerðin greiðir þegar,“ sagði Svanfríð- ur og benti á að sjávarútvegsráðherra hefði haldið því fram að í góðu ári geti upphæð veiðigjalds farið yfir 2 millj- arða króna. Hins vegar hefði ekki fylgt sögunni að þá ætti eftir að taka tillit til þess að á móti eigi að falla nið- ur veiðieftirlitsgjald upp á 250 millj- ónir og þróunarsjóðsgjald upp á að minnsta kosti 600 milljónir. „Þá er nú heldur lítið eftir, eða hvað? Rúmur milljarður er það, og það er allt og sumt. Þetta er einungis hluti þess kostnaðar sem skattgreið- endur greiða í dag með útgerðinni. Ef allt er reiknað eru það að minnsta kosti 3 milljarðar sem þar eru til kostnaðar og ef að þessar tillögur verða að veruleika er kannski verið að innheimta um það bil þriðjunginn af þessum kostnaðargreiðslum og kalla veiðigjald.“ Svanfríður sagði frumvarpið í engu hrófla við því kerfi sem nú er við lýði. „Það er verið að auka kostnaðar- greiðslur útgerðarinnar mjög lítillega og kalla veiðigjald, en það er ekki ver- ið að fara fram á að útgerðin greiði fyrir aðgang að auðlindinni. Áfram verður það svo að þeir sem verða að kaupa veiðiheimildir þurfa að leita á náðir þeirra sem ríkið afhendir þær án endurgjalds,“ sagði hún. Málflutningur stjórnarandstöðu kom ráðherra ekki á óvart Árni M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra sagði málflutning stjórnar- andstæðunnar ekki koma sér sérstak- lega á óvart. Hann sagði þingmenn Samfylkingarinnar hafa ýjað að því um nokkra hríð að þeir myndu leggj- ast gegn veiðigjaldsfrumvarpi ríkis- stjórnarinnar. „Einhvern veginn hef- ur maður haft það á tilfinningunni að það skipti nánast engu máli hvernig það frumvarp yrði, Samfylkingin myndi leggjast gegn því,“ sagði hann. Ráðherra sagði það leiðinlegt að Samfylkingin hefði að engu afstöðu þriggja þingmanna flokksins í auð- lindanefndinni þar sem þeir hafi tekið höndum saman ásamt öðrum um sátt í atvinnugreininni. Það kæmi sér þó ekki mjög á óvart. „Ég verð að segja að mér þykir af- ar leiðinlegt að þetta skuli vera af- staða þessa stjórnmálaflokks, að það skuli vera niðurstaða þeirra að standa ekki við það sem undir var ritað en eins og ég segi kemur það ekki alveg á óvart.“ Um gagnrýni formanns VG sagði ráðherrann að Steingrímur J. Sigfús- son minnti sig helst þjálfarann í kapp- liðinu sem ekki vildi einungis ráða því hverjir væru í hans eigin liði heldur líka hverjir væru í liði andstæðings- ins. Steingrímur vildi þannig ekki ein- asta ráða eigin málflutningi heldur annarra líka.Lúðvík Bergvinsson (S), sem sæti átti í nefndri auðlindanefnd, sagði af þessu tilefni að það væri frá- leitt að tala nú sem svo að frumvarp ráðherra væri byggt á tillögum eða vinnu auðlindanefndar. „Það er alveg ljóst, eins og margir héldu fram í aðdraganda síðustu al- þingiskosninga, að auðlindanefnd var aðeins sett á laggirnar í því skyni að tefja umræðu um málið á meðan þær kosningar gengu yfir. Það er alveg ljóst af þeim hugmyndum sem hér eru lagðar fram að það er algerlega litið framhjá meginhugmyndum auð- lindanefndarinnar. Mér finnst algjör- lega fráleitt af sjávarútvegsráðherra að leggja það upp með þeim hætti að þær hugmyndir sem nú hafa verið kynntar hafi nokkuð með hugmyndir auðlindanefndar að gera. Og mér finnst það vera útúrsnúningur af bestu gerð, þær hugmyndir sem þar voru lagðar fram gengu fyrst og fremst út á það að skapa ákveðið jafn- vægi í greininni, gefa öllum tækifæri. Það voru grundvallaratriði. Ekki að leggja litla skatta á greinina með þeim hætti sem hér um ræðir,“ sagði þingmaðurinn og bætti því við að frumvarpið væri fyrst og fremst „árás á minni útgerðir í landinu“. Allt tal um sættir blekkingar einar Sverrir Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði menn ekki þurfa að reka upp stór augu yfir þeirri málafærslu sem ráðherra stæði nú fyrir. „Frá upphafi þessa máls lá fyrir að allt tal um sættir var blekkingar ein- ar, settar fram til að telja þjóðinni trú um að þannig stæðu mál og undir þennan áróður gengust flestallir fjöl- miðlar,“ sagði hann. „Auðlindanefnd var til þess skipuð á sínum tíma að fá nokkurn veginn þá niðurstöðu sem yrði svo hægt að halda áfram að túlka eftir pólitískum leiðum. Auðlindagjald, þetta þykj- ustugjald, sem á að breyta gjöldunum sem útgerð stendur núna undir, án þess að bæta þar nokkru við sem nemur, verður ekki til að ná sáttum í þessu máli,“ sagði hann. Sverrir benti á að íslensk útgerð njóti nú, að því er talið er, fyrir- greiðslu hins opinbera sem svari til 6 milljarða og engu að síður gengju menn um „ríki veraldar“ og skori á menn að leggja af styrki við sjávar- útveg, enda þótt við förum þar fremstir í flokki. „Ég hef áður spurt, margsinnis: Skortir skattalagaákvæði í íslensk skattalög til að leggja útsvar eða skatta á útgerð eins og hún þolir og sanngjarnt er? Ég hef ekki fengið svör við því. Þetta er málamyndaað- ferð til að reyna að skjóta skildi fyrir þá staðreynd málsins að hér á að ganga erinda útgerðarauðvaldsins í einu og öllu,“ sagði formaður Frjáls- lynda flokksins. Hörð gagnrýni stjórnarandstöðu vegna frumvarps til laga um stjórn fiskveiða Sjávarútvegsráðherra sagður kasta stríðshanska Morgunblaðið/Golli Össur Skarphéðinsson og Svanfríður Jónasdóttir gagnrýndu sjávarútvegsráðherra harðlega í gær. Stjórnarandstaðan á Al- þingi deildi hart á sjáv- arútvegsráðherra í gær fyrir að kynna frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða án nokkurs samráðs við sig. Þingflokkur VG um Kárahnjúkavirkjun Vill aflétta leynd af raforku- verði ÖGMUNDUR Jónasson, þing- flokksformaður Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs, kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar á Al- þingi í gær og gerði grein fyrir sam- þykkt þingflokksins vegna umfjöll- unar þingsins og þingnefnda um frumvarp um Kárahnjúkavirkjun og þá kröfu Landsvirkjunar að farið verði með upplýsingar um raforku- verð frá hinni fyrirhuguðu virkjun sem trúnaðarmál. „Þingflokkur Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs hefur rætt kröfu Landsvirkjunar um að leynt verði farið með upplýsingar um raf- orkuverð frá fyrirhugaðri Kára- hnjúkavirkjun. Þingflokkurinn hafn- ar að taka við slíkum upplýsingum undir þeim formerkjum og mun gera allt sem í hans valdi stendur til að knýja á um að upplýsingarnar verði gerðar opinberar. Almennir orku- notendur og allur almenningur á skýlausa kröfu á þessum upplýsing- um sem og þingmenn sem eiga að taka afstöðu til málsins á þingi. Fulltrúi þingflokksins í iðnaðar- nefnd mun að sjálfsögðu virða trún- að varðandi upplýsingar sem fram hafa komið í nefndinni. Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs mun á næstunni kanna og eftir atvikum láta reyna á mögulegar leiðir til að svipta leynd af þessum upplýsingum,“ sagði Ögmundur. Hart deilt um byggðamál VALGERÐUR Sverrisdóttir iðn- aðar- og viðskiptaráðherra mælti í gær á Alþingi fyrir tillögu til þingsályktunar um stefnu í byggðamálum fyrir árin 2002– 2005. Töluverð umræða hefur skapast um tillögurnar undanfarna daga og umræða um þær tók allan dag- inn í gær á þingi og þegar fundi var frestað í gærkvöldi voru enn fjölmargir ræðumenn á mælenda- skrá. Nokkuð bar á þeirri gagnrýni í garð tillögunnar að í henni væri of almennt fjallað um stefnu stjórn- valda í byggðamálum en minna beinlínis sagt til um hvernig eigi að haga framkvæmdum. Þingmenn stjórnarandstöðu voru ekki einir um að gagnrýna tillöguna, hörð gagnrýni kom einn- ig fram hjá þeim Einari Oddi Kristjánssyni og Einari K. Guð- finnssyni, þingmönnum Sjálfstæð- isflokksins á Vestfjörðum. Sagði Einar Oddur t.d. að gera þyrfti gagngerar breytingar á efni tillög- unnar í nefnd, ætti hún að njóta stuðnings hans. Ráðherra sagði hins vegar að mikilvægt nýmæli fælist í því að eitt ráðuneyti kæmi nú að málinu og hefði eftirlit með því að fram- kvæmd væri í anda tillagnanna og í því skyni að treysta byggð í land- inu. „Ég vænti þess að sú tillaga sem hér hefur verið lögð fram geti orð- ið liður í því að skapa meiri skiln- ing í þjóðfélaginu á því að við þurf- um rétt eins og aðrar þjóðir að reka öfluga byggðastefnu. Slík stefna á ekki að byggjast á því að viðhalda tilteknu ástandi. Slík stefna á að miða að því að skapa jöfn skilyrði og vinna með fólki og fyrirtækjum að því að örva frum- kvæði og nýsköpun og aðstoða það við útfærslu hugmynda sinna.“ Umræðan um byggðamál stóð langt fram eftir kvöldi á Alþingi í gær. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.