Morgunblaðið - 27.02.2002, Síða 34

Morgunblaðið - 27.02.2002, Síða 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Guðrún ElísabetGísladóttir fædd- ist á Höfða í Dýra- firði 25. ágúst 1912. Hún lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 20. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Gísli Sighvatsson bóndi á Höfða og Jóna Elíasdóttir. Guðrún var sjötta í röð níu systkina. Hin eru: Guðjón, f. 1902, látinn; Jóhann, f. 1903, látinn; Jóna Elíasína, f. 1904, látin; Sighvatur, f. 1906, látinn; Guðmundur, f. 1910, búsettur á Þingeyri; Hall- grímur, f. 1914, látinn; Margrét, f. 1917, látin; og Þórarinn, f. 1921, búsettur í Reykjavík. Guð- rún giftist 24. júní 1946 Guðna Guðmundssyni frá Þingeyri í Dýrafirði, f. 25. júní 1908, d. 5.12. 1946. Sonur þeirra er Guðmund- ur Níels, f. 23.3. 1946. Kona hans er Kristín Heiðrún Bernharðsdóttir, f. 12.11. 1956. Börn hennar og stjúpbörn Guðmundar eru: 1) Kristrún Klara f. 22.6. 1973, börn hennar eru Hafdís Elva, f. 17.3. 1990, og Ástþór Rúnar, f. 5.12. 1996. 2) Hörð- ur Rúnar, f. 19.3. 1976, sambýliskona hans er Herdís Her- vinsdóttir, f. 2.9. 1975, dóttir þeirra er Margrét Heiðrún, f. 2.12. 2000. 3) Bern- harður Marzelíus, f. 21.8. 1980, sambýliskona hans er Sigríður Ólafsdóttir, f. 21.3. 1980. Fóst- ursonur Guðrúnar er Gísli Jón Helgason, f. 11.11. 1945. Útför Guðrúnar fer fram frá Garðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30 Elsku besta Gunna, lán mitt er og var mikið þegar ég kynntist syni þín- um Guðmundi, ekki bara fyrir mig heldur börnin mín líka. En að eignast einnig jafn frábæra, elskulega og vel- viljaða tengdamóður og ömmu er ekki sjálfgefið. Við viljum þakka þér allt það sem þú varst okkur. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Valdimar Briem.) Ég kveð þig með þakklæti í huga. Þín tengdadóttir og vinkona, Kristín Heiðrún Bernharðsdóttir. Elsku Gunna amma, nú ertu farin frá okkur og er ég þess fullviss að þú sért farin á betri stað. Ég veit það í hjarta mínu að þér líður vel núna og ert umkringd af ástvinum. Það má með sanni segja að ást og umhyggja hafi verið þín einkennisorð og hafa þau fylgt þér í gegnum ævina; þessi orð hafa endurspeglast í öllum þínum gjörðum. Núna um daginn, eftir að ég var búinn að kveðja þig í hinsta sinn og var fremur langt niðri, var ég spurður að því hvernig mér liði. Þá fannst mér eins og það birti til innra með mér og ég hætti að vera dapur því ég veit að það er nokkuð sem að þú hefðir ekki viljað. Ég rifjaði upp allar góðu stundirnar okkar saman og vissi að þú vildir að ég hugsaði um þær þegar ég hugsaði til þín. Þannig að svar mitt við spurningunni um hvernig mér liði var: Þakklæti. Já, þakklæti var sú til- finning sem að eftir lifði, ég er þess afar þakklátur fyrir að hafa haft þig í mínu lífi, þú varst alltaf til staðar þeg- ar að ég þarfnaðist einhvers, þú varst alltaf reiðubúin að hugsa um okkur systkinin og áttir mikinn þátt í að ala okkur bræðurna upp. Þú deildir með okkur herbergi, vaknaðir fyrir allar aldir og hafðir til morgunmat, sást til þess að okkur skorti ekkert. Það er kannski lýsandi fyrir þig að þú vakn- aðir fyrst á heimilinu og fórst síðust í háttinn en samt minnist ég þess ekki að hafa séð þig iðjulausa. Í þau fáu skipti sem þú tókst þér frí frá hinum ýmsu heimilisverkum og fékkst þér sæti varstu alltaf með eitthvað á milli handanna. Ég er þér þakklátur fyrir að hafa hleypt okkur systkinunum inn í líf þitt og hafa tekið okkur svo opnum örmum sem raun bar vitni. Þakklátastur er ég þér þó mest fyrir þá himnasendingu sem að þú sendir fjölskyldu okkar í formi sonar þíns. Ef eitthvað er ber hann vitni um hve stórfengleg manneskja þú varst, betri mann en hann föður minn er ekki hægt að finna. Líf þitt endur- speglast í honum Mumma þínum og veit ég að þú lifir áfram í gegnum hann. Því segi ég við þig takk, takk Gunna amma fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og þann heiður að hafa kynnst þér. Ég lít á það sem eitt mitt stærsta lán. Ég kveð þig með ást og söknuð í hjarta. Þér mun ég aldrei gleyma. Ástarkveðja, Bernharður. GUÐRÚN ELÍSABET GÍSLADÓTTIR Verkakona á tíræðisaldri er fallin frá. Sólveig Sigurgeirsdóttir kveður síðust úr systkinahópnum frá Hömluholtum í Eyjahreppi. Hún var eina systirin af börnunum sem upp komust og varð þeirra langelst. Hún ólst upp við kröpp kjör og fermdist hjá hinum þjóðþekkta presti, séra Árna Þórarinssyni, sem nefndi sveit- ina hennar „hjá vondu fólki“. Eins og svo margir sótti Veiga til Reykjavíkur til að vinna fyrir sér. Hún fékkst alltaf við störf sem helst enginn vill vinna í dag en eru nauð- synleg, sennilega nauðsynlegri held- ur en störf í bólstruðum stólum með bíl í kaupbæti. Í mörg ár vann hún í þvottahúsi Hvítabandsins og bjó þá í húsi á Skólavörðuholtinu sem var rif- ið ásamt búslóð hennar til að rýma fyrir Iðnskólanum. Seinna skúraði hún slysavarðstofuna ásamt biðstofu sem nú er einhver önnur deild spít- alans með langa nafnið. Hún sagði mér einu sinni að það væri ögn betur borgað að skúra þau gólf en önnur. Eitt var það í fari Veigu sem eng- inn fór í grafgötur með. Það voru stjórnmálaskoðanir hennar sem voru rauðar eins og háralitur hennar var upphaflega. Hún stóð með sinni stétt, stolt af því að vera verkakona og vandaði ekki ráðamönnum kveðj- urnar þegar henni fannst níðst á verkalýðnum og það var oft. Hún býsnaðist yfir óheiðarleika og græðgi og hefði vafalaust sagt skoð- un sína umbúðalaust hefði hún náð að fylgjast með atburðum undanfar- ið. Séra Árni Þórarinsson segir í ævi- sögu sinni að „nei“ hafi verið eitt af SÓLVEIG SIGURGEIRSDÓTTIR ✝ Sólveig Sigur-geirsdóttir fædd- ist í Hömluholtum í Eyjahreppi 8. apríl 1909. Hún lést á hjúkrunarheimilinu í Skógarbæ 20. febr- úar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurgeir Þórarins- son, bóndi í Hömlu- holtum, f. 14. des. 1873, d. 7. feb. 1938, og kona hans, Jófríð- ur Jónsdóttir, f. 10. sept. 1872, d. 7. des. 1953. Bræður Sól- veigar voru Jón, f. 1901, d. 1946, Þórarinn, f. 1904, d. 1976, Krist- ján, f. 1907, d. 1974, Guðmundur, f. 1910, d. 1986, Gunnar, f. 1912, d. 1994, og Gísli, f. 1915, d. 1994. Sólveig var verkakona í Reykja- vík. Hún var ógift og barnlaus. Útför Sólveigar fer fram frá Ás- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. fyrstu orðunum sem börnin á Snæfellsnesi lærðu að segja. Veiga kunni að segja nei, hún var baráttukona sem vílaði ekki fyrir sér að standa uppi í hárinu á ráðamönnum. Hvort það skilaði henni nokkru skal ósagt látið, hún kunni nefnilega ekki að smjaðra. Þessi skyldurækna og sam- viskusama kona pass- aði alltaf upp á að laun væru rétt reiknuð bæði hjá sér og samstarfs- fólki sínu og hún kenndi yngri kyn- slóðinni í fjölskyldunni að láta ekki óprúttna vinnuveitendur hlunnfara sig. Nákvæm fyrirmæli Veigu um að lesa kjarasamninginn, halda utanum vinnustundir og mínútur báru árangur þegar ein bróðurdóttir hennar lagði í að rexa yfir vitlaust út- reiknuðum launum og fékk leiðrétt- ingu. Veiga víkkaði sjóndeildarhring sinn í ferðalögum erlendis og trú köllun sinni og hugsjónum hélt hún í austurveg. Úr einni slíkri ferð færði hún foreldrum mínum vasa sem reyndist vera bjórkrús merkt „Karl- ovy Vari“ og enn á ég forláta tré- hulstur sem innihélt ilmvatnsglas frá Búlgaríu. Lengst komst þessi verka- kona, sem fæddist í torfbæ, til Ist- ambul löngu áður en íslenskur al- menningur lagðist í ferðalög til útlanda í tíma og ótíma. Kynslóðin sem fæddist í byrjun tuttugustu aldar og leitaði suður til að vinna skildi ekki svo auðveldlega við æskustöðvarnar þótt menn hefðu alist upp í fátækt á landlitlum jörð- um. Ég minnist þess að umræðuefni hennar og foreldra minna forðum voru æskuslóðirnar og sveitungarnir sem flestallir voru náskyldir, ef ekki þeim þá einhverjum öðrum. Jafnvel löngu felldir gæðingar og hvernig snæfellskir bændur sátu þá varð um- ræðuefni Veigu og bróður hennar. Ég þakka Veigu föðursystur minni samfylgdina og er þess fullviss að á nýjum slóðum muni hún láta þá finna til tevatnsins sem reyna að níð- ast á smælingjunum eða notfæra sér matarholurnar af gömlum vana. Lovísa Kristjánsdóttir. Fallin er í valinn verkakonan Sól- veig Sigurgeirsdóttir á níræðisaldri. Veiga, eins og hún var kölluð, gekk ein um lífsins veg og bar ekki mikið úr býtum af rúmu framlagi sínu, enda laun kvenna ekki hátt skrifuð, þótt eitthvað hafi þokast hin síðari ár. Veiga var alla tíð baráttukona og lét sig miklu varða kjara- og hús- næðismál. Að hennar mati voru þetta grundvallaratriði og gekk hún hnarrreist til atlögu gagnvart ríki og bæ til að standa á rétti sínum og hafði lengi vel betur. Veiga var höfðingi heim að sækja og veitti vel af hvers kyns góðgæti því ekki vildi hún sitja undir ámæli. Tók hún ástfóstri við flest systkina- barna sinna og kom oft færandi hendi á góðra vinafund. Óhætt er að segja að lífshlaup mitt hefði getað orðið annað ef Veiga hefði ekki tekið í stjórnartaumana á ögurstundu. Þannig var að þegar unnusta mín kom í borgina í fyrsta skipti eftir að við kynntumst átti hún að hitta mig heima hjá móður minni. Háttaði mál- um þannig að af óviðráðanlegum or- sökum gat ég ekki komið á mótstað á réttum tíma. En þá fór Sigga mín og hélt beint heim til föðursystur sinn- ar, hennar Veigu, sem sendi hana óð- ar til baka með leigubíl þar sem ég beið eftir henni í ofvæni. Þannig var Veiga, blátt áfram og vissi hvað til síns friðar heyrði. Ég á margar góðar minningar um Veigu en vil þakka henni, þótt seint sé, fyrir þennan lífsförunaut er ég eignaðist með hennar tilstilli. Lifðu heil í framlífi, kæra vina mín. Atli Hraunfjörð. 1         #         6 7  5 7%"  ,+ 89 :#;&#   "        &     2 &   & " / /0 ( % #*%%  +,;) ( %%  45 -%*+ %%  % ( %%  $ " ,;%  1+   ( %%%   & +  %  !""+ ( %%  ;5 * ' 6;)%%  6"  %%   & 1%%+  )**+,)  )**+,)' '       1  -  / # )"+%& 8< :#;&#            &   3 & 4#&   5 /66 %% ; -%& -%;%    1+"*+ %  1+"0    &%  -%&  &%   = %:%#' 1             > 1 !/ ,? #;*% : @9 #+:    3&   &      7    8      &   7#  &  0 /66 '        $   $  &     3 +   &  7# !:; 1+"*+ %  +  +%%  1+"*+ + '  +%%  &"+ -' :%  " ,;) '  +%%  ? >%*  ,,)' 1       !$ A7/ )+ + 6##+)+ 88 "   9           &     :  &   &" / /8 +  +"  +"+ 6' 5%%  -%& 6; ' 1                6' 4$/ >%+,+ B - &#   &     ,  & " / /0    %   %%   * >' %  * 45 %%  ,,)  ,,,)'

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.