Morgunblaðið - 27.02.2002, Page 39

Morgunblaðið - 27.02.2002, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. FEBRÚAR 2002 39 FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Stjórn Fiskeldis Eyjafjarðar hf. boðar til hluthafafundar sem haldinn verður á Hótel KEA fimmtu- daginn 28. febrúar 2002 klukkan 17:00 Á dagskrá fundarins verða tekin til afgreiðslu eftirtalin mál: 1. Tillaga um að staðfesta ákvörðun stjórnar félagsins um stofnun dótturfélags sem tekur yfir allan rekstur og rekstrarfjármuni félagsins. 2. Tillaga um breytingu á 3. grein samþykkta félagsins þannig að hún hljóði svo: Tilgangur félagsins er að starfa sem eign- arhaldsfélag um félög og fyrirtæki sem stunda eldi á fiski, rannsóknar- og þróun- arstarf í fiskeldi og skylda starfsemi. 3. Tillaga um breytingu á 4. grein samþykkta félagsins, þannig að heimilt verði að hækka hlutafé félagsins í allt að 1,3 milljarða króna með sölu nýrra hluta. 4. Önnur mál. Stjórnin. Til félagsmanna í Félagi fasteignasala AÐALFUNDIR 2002 Aðalfundir Félags fasteignasala, Ábyrgðarsjóðs Félags fasteignasala og Frumkvæðis ehf. verða haldnir fimmtudaginn 28. febrúar 2002 kl. 17.00 síðdegis í fundarsalnum Háteigi á 4. hæð á Grand Hóteli Reykjavík. Á dagskrá aðalfundar FF verða eftirtalin mál: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemina á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 3. Lagabreytingar. 4. Kosning stjórnar. 5. Kjör endurskoðenda. 6. Ákvörðun félagsgjalda. 7. Önnur mál. Athygli er vakin á 8. gr. laga FF, en þar segir að atkvæðisrétt og kjörgengi á aðalfundi hafi félagsmenn, sem skuldlausir eru við félagið. Á fundinum verða léttar veitingar að venju. Stjórnin. Handverksfólk athugið! Handverksmarkaður verður á Garða- torgi laugardaginn 2. mars. Vinsamlega staðfestið básapantanir í síma 692 6673 eða 861 4950. Hafnarfjarðarbær: Listaverkasamkeppni vegna nýja bókasafnsins Menningarmálanefnd Hafnarfjarðar efnir til samkeppni um listaverk í eða við nýtt húsnæði Bókasafns Hafnarfjarðar á Strandgötu 1. Auglýst er eftir tilbúnum verkum eða hug- myndum, hvort heldur að inni- eða úti- listaverkum. Verðlaunarverkið verður gjöf bæjarstjórnar Hafnarfjarðar til safnsins, en einnig er um að ræða hugsanleg kaup á öðrum verkum. Verðhugmyndir skulu fylgja tillögum. Miðað er við að heildarkostnaður verkefnisins fari ekki yfir 1 milljón. Sérskipuð dómnefnd mun meta verkin og skila áliti til bæjaryfirvalda. Menningarmálanefnd áskilur sér rétt til að kynna allar tillögur sem berast við opnun bókasafnsins þann 5. apríl nk. Teikningar af Strandgötu 1 er að finna á heima- síðu bókasafnsins, www.hafnarfj.is/bokasafn/ Tillögur merktar Listaverkasamkeppni skulu hafa borist á skrifstofu menningarmála á Vesturgötu 8 þann 18. mars nk. Menningarfulltrúi Hafnarfjarðar. menning@hafnarfjordur.is . Bjórvinafélag Íslands Stofnfundur Stofnfundur Bjórvinafélags Íslands verður haldinn 1. mars nk. Uppl. um markmið og starfsemi félagsins ásamt fundarstað er að finna á netinu: www.ismennt.is/not/keg/bjor Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulagsáætlunum fyrir eftirtalin svæði í Reykjavík: Öskjuhlíð, Leynimýri, duftkirkjugarður, breyting á deiliskipulagi. Tillagan tekur til svæðis er kallað hefur verið Leynimýri og er hluti deiliskipulags Öskjuhlíðar. Afmarkast það í grófum dráttum af lóðarmörkum húsanna við Vesturhlíð til suðurs, göngustígum sem liggja um svæðið til vesturs og norðurs og akveginum upp að Perlunni til austurs. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að í stað fjölnota grasflatar og hluta svæðis sem skipulagi var frestað á, skv. samþykktu skipulagi Öskjuhlíðar, verði heimilt að gera duftkirkjugarð. Þá gerir tillagan ráð fyrir færslu á legu göngustíga og 50 nýjum bílastæðum vegna garðsins vestan Vesturhlíðaskóla. Ekki er gert ráð fyrir húsbyggingum á svæðinu. Landnotkun hluta svæðisins breytist úr almennu útivistar- svæði í útivistarsvæði til sérstakra nota merktu K þ.e. kirkjugarð. Árbær, Hraunbær, Bæjarháls, Bæjarbraut, breyting á eldra skipulagi/nýtt deiliskipulag. Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Hraunbæ til suðurs og vesturs, Bæjarhálsi til norðurs og Bæjarbraut til austurs. Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið sem fella mun úr gildi eldra skipulag þess. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir óbreyttu ástandi á lóðinni nr. 107-107E nema hvað gert er ráð fyrir að lóðin stækki og bílastæðum fjölgi. Austan lóðarinnar nr. 107 er gert ráð fyrir tveimur nýjum lóðum fyrir félagslegt íbúðarhúsnæði. Þar rísi tvö tveggja hæða raðhús, syðst á hvorri lóð, með 6 íbúðum hvort. Nyrst á lóðunum rísi tvö fjölbýlishús, á þremur hæðum, með 22 íbúðum hvort. Þá gerir tillagan ráð fyrir tveimur lóðum austan þeirra. Á vestari lóðinni verði heimilt að reisa hús fyrir félagsstarfsemi á allt að tveimur hæðum. Á austustu lóðinni, sem liggur að Bæjarbraut, er gert ráð fyrir að byggð verði heilsugæslustöð eða hús fyrir aðra þjónustu á tveimur hæðum. Tillagan gerir því ráð fyrir að byggingarmagn á svæðinu vaxi um 19.000 m2. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 27. febrúar 2002 til 10. apríl 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 10. apríl 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 27. febrúar 2002. Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur. SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 18  1822278  9.0.*  Njörður 6002022719 I I.O.O.F. 7  1822277½  Br.  HELGAFELL 6002022719 IV/V  GLITNIR 6002022719 I Kjör Stm Hörgshlíð 12. Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. R A Ð A U G L Ý S I N G A R Flugmenn - flugáhugamenn Febrúarfundurinn um flugöryggismál verður haldinn fimmtudagskvöldið 28. febrúar á Hótel Loftleiðum kl. 20.00. Dagskrá: Arngrímur B. Jóhannsson, flugstjóri, ræðir hættur í listflugi. Unnur Ólafsdóttir, veðurfræðingur, ræðir flugveður og nýtt veðurtilkynnnga- kerfi á Íslandi. Kvikmyndasýning. Flugbjörgunarsveitirnar, Flugmálafélag Íslands, Flugmálastjórn, Öryggisnefnd FÍA.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.