Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
E
INS og dæmin sanna
standa lagadeildir við
háskóla gjarnan á
gömlum merg og fá
tækifæri hafa myndast
til að móta slíkar deild-
ir frá grunni í seinni
tíð. Eins og vonlegt er vakti því at-
hygli þegar háskólaráð Háskólans í
Reykjavík tók ákvörðun um að
stofna lagadeild við skólann hinn 1.
júní sl. Þórður S. Gunnarsson, ný-
ráðinn forseti lagadeildarinnar,
segir að í bókun ráðsins komi fram
að við skipulag deildarinnar eigi að
leggja áherslu á að námið endur-
spegli þær breytingar sem orðið
hafi í íslensku atvinnulífi á undan-
förnum árum og taki eftir því sem
unnt er mið af þörfum íslensks at-
vinnulífs fyrir lögfræðimenntaða
stjórnendur og ráðgjafa.
Háskólaráðið lagði ennfremur
áherslu á að innan deildarinnar yrði
m.a. boðið upp á námsleiðir þar sem
nemendum gæfist kostur á að sam-
tvinna lögfræði, viðskiptafræði,
tölvunarfræði og aðrar greinar er
að gagni geta komið við störf í at-
vinnulífinu. Þá lagði ráðið verulega
áherslu á að deildin menntaði nem-
endur til hefðbundinna lögfræði-
starfa á sviði málflutnings- og
dómsstarfa. „Hlutverk Háskólans í
Reykjavík er að auka samkeppnis-
hæfni íslensks atvinnulífs. Þetta
markmið hefur vísað okkur leiðina
við undirbúning laganámsins en
auk þess hafa leiðarljós skólans ný-
sköpun, tölvu- og tækniþróun og al-
þjóðavæðing vísað okkur veginn,“
segir Þórður í upphafi.
Víða leitað
fyrirmynda
Þórður segir að við skipulagn-
ingu laganámsins hafi víða verið
leitað fyrirmynda. „Við höfum skoð-
að fyrirkomulag laganáms bæði í
Bandaríkjunum og í Evrópu þ.á m.
á Norðurlöndunum. Laganámið
okkar verður ekki sniðið eftir einni
ákveðinni fyrirmynd en við munum
vissulega notfæra okkur það besta
sem við höfum fundið í þeim skólum
sem við höfum skoðað.“
Hvernig verður formlegri skipu-
lagningu námsins háttað?
„Laganámið við HR skiptist ann-
ars vegar í 3 ára grunnnám til BA-
gráðu í lögfræði og hins vegar í
framhaldsnám/meistaranám til
meistaragráðu. Í 90 eininga grunn-
námi verða kenndar helstu megin-
greinar lögfræðinnar. Auk þeirra
greina sem nú eru kenndar sem
skyldugreinar við lagadeild Há-
skóla Íslands munum við kenna
greinar eins og félagarétt, sam-
keppnisrétt, höfunda- og einka-
leyfarétt, Evrópurétt, skattarétt,
vinnumarkaðsrétt, tölvulögfræði og
verðbréfaviðskiptarétt. Þessu til
viðbótar er rétt að nefna að við
munum leggja verulega áherslu á
að tengja námið við raunhæf úr-
lausnarefni eða verkefni, t.d. verja
nemendur þremur vikum af skóla-
tíma sínum á hverri vorönn í raun-
hæf verkefni undir leiðsögn kenn-
ara eða annarra sérfræðinga.“
Sérhæfing
byrjar í grunnnámi
Með hvaða hætti verður stuðlað
að sérhæfingu í náminu?
„Við skipulagningu námsins höf-
um við lagt áherslu á að nemendum
gefist kostur á sérhæfingu þegar
innan grunnnámsins. Nemendum
verður gefinn kostur á að velja sér
námsgreinar á síðustu önn í grunn-
náminu hvort heldur er innan lög-
fræði, viðskipta- og/eða tölvunar-
fræði. Ekki verður sett að skilyrði
að nemendur sæki námið aðeins
innan HR, t.d. er ekkert því til fyr-
irstöðu að sótt sé til annarra inn-
lendra eða jafnvel erlendra Há-
skóla.
Sérhæfingin heldur áfram að
dýpka eftir BA-gráðuna. Á fyrstu
önn í meistaranámi velja nemendur
5 greinar úr ákveðnum fjölda val-
greina. Á annarri önninni tekur við
rannsóknarnám í tengslum við eitt
af þremur meginsviðum meistara-
námsins. Þessi svið eru alþjóðasvið
með áherslu á alþjóðalög og -við-
skipti, viðskiptalögfræðisvið með
áherslu á samþættar greinar á sviði
viðskipta- og lögfræði og málflutn-
ings- og dómssvið þar sem áhersla
verður lögð á þær greinar lögfræð-
innar sem einkum reynir á í störf-
um lögmanna og dómara. Eftir
fimm ára nám er nemandi því búinn
að verja samtals 75 einingum í sér-
hæfingu, þ.e. um helmingi náms-
tímans.“
Hátt brottfall áfellisdómur
Ráðgert er að taka allt að 75
nemendur inn í deildina næsta
haust.
Þórður segir að inntökuskilyrði í
námið verði stúdentspróf eða sam-
bærilegt próf. „Stefna HR hefur
verið og er að þeir nemendur sem
inngöngu fá í skólann standist þær
kröfur sem skólinn gerir til nem-
enda. Við lítum svo á að hlutverk
okkar sé að aðstoða nemendur á all-
an mögulegan hátt til að svo geti
orðið. Nemendurnir eru okkar við-
skiptavinir og samstarfsmenn! Þá
vil ég að gefnu tilefni undirstrika að
síst verða gerðar minni kröfur til
nemenda en gerður eru við aðra há-
skóla hér á landi.“
Er búist við að brottfall hjá ykk-
ur verði svipað og verið hefur í al-
mennri lögfræði við lagadeild HÍ?
„Í mínum huga er hátt brottfall í
háskóla mikill áfellisdómur sem
kallar á gagnrýna endurskoðun á
kennslu og vinnubrögðum nem-
enda. Við sem störfum við laga-
deildina munum leggja okkur öll
fram í þjónustu okkar við nemend-
ur og ég er þess fullviss að nem-
endur okkar munu leggja sig alla
fram eins og nemendur við aðrar
deildir skólans hafa gert. Ég óttast
því ekki mikið brotfall.“
Hvaðan telur þú að nemendur í
lagadeildina komi?
„Ég geri ráð fyrir að meirihluti
nemenda við lagadeildina komi
beint úr framhaldskólunum. Ákjós-
anlegt væri að við fengjum einnig
nemendur með starfsreynslu eftir
framhaldsskóla eða háskólapróf í
öðrum greinum. Reynslan verður
að skera úr því. Skólagjöld við laga-
deildina verða þau sömu og við aðr-
ar deildir skólans, þ.e. viðskipta- og
tölvunarfræðideildir, og eru láns-
hæf hjá Lánasjóði íslenskra náms-
manna. Skólagjöld á fyrstu önn
verða 89.000 kr.“
Gagnrýnt hefur verið að laga-
nemar við HÍ hafi ekki fengið nægi-
lega staðgóða menntun í bókhaldi
og tölvunotkun. Hvernig verður því
háttað í lagadeild HR?
„Vanþekking lögfræðinga á
grundvallaratriðum reikningshalds
og lestri ársreikninga hefur staðið
þeim verulega fyrir þrifum í störf-
um þeirra sem ráðgjafar og stjórn-
endur í fyrirtækjum og löngu orðið
tímabært að bæta þar úr. Meðal
kennslugreina á fyrstu önn verða
námskeið þar sem tekið verður á
þessum þáttum. Nemendum verður
kennd notkun rafrænna miðla í
námi og starfi, tölvulögfræði verður
skyldugrein og verkefnavinna verð-
ur að stórum hluta unninn í gegnum
tölvur.
Bókasafnið okkar er að hluta raf-
rænt og tölvur eru í vinnuumhverfi
HR jafn sjálfsagðar og penninn var
áður fyrr.“
Tvær rannsóknastofnanir
í haust
Hver er framtíðarsýn lagadeild-
arinnar í tengslum við rannsóknir?
„Lagadeildin leggur verulega
áherslu á rannsóknir. Lögfræðileg-
ar rannsóknar verða hluti af námi
nemenda strax í grunnnáminu, þ.e.
verkefnavinna og sérstaklega BA-
verkefni. Þá liggur fyrir að fram-
haldsnámið verður rannsóknarnám.
Með hliðsjón að því má því gera ráð
fyrir að innan meistaranámsins
verði mjög öflugar rannsóknir á
sviði lögfræði.
Tvær rannsóknarstofnanir verða
settar á fót við deildina strax næsta
haust. Önnur verður á sviði tölvu-
lögfræði og hin á sviði Evrópurétt-
ar. Kennarar við deildina munu
starfa við þessar stofnanir en auk
þess má gera ráð fyrir að nemendur
í meistaranámi muni vinna að sín-
um verkefnum a.m.k. að hluta til
innan þessara stofnana. Fyrsti pró-
fessorinn, Jón Steinar Gunnlaugs-
son hæstaréttarlögmaður, hefur
þegar verið ráðinn til deildarinnar.
Rannsóknir verða verulegur þáttur
í störfum hans. Þó er rétt að taka
fram að auk rannsókna mun hann
sinna kennslu, m.a. á fyrstu önn.
Rannsóknir verða að sjálfsögðu
verulegur þáttur í störfum allra
kennara við deildina enda ætlum
við okkur stóran þátt í lögfræði-
rannsóknum.
Auk Jóns Steinars er þegar búið
að ganga frá ráðningu Ragnhildar
Helgadóttur, lögfræðings og dokt-
orsnema, sem kennara við deildina.
Aðalkennslugreinar hennar verða á
sviði stjórnskipunar- og stjórn-
sýsluréttar. Sjálfur ætla ég að
kenna réttarheimildafræði á fyrstu
önn. Fastráðnir kennarar verða í
upphafi 4 til 5. Ráðning Jóns Stein-
ars og Ragnhildar sem bæði eru
framúrskarandi lögfræðingar end-
urspeglar þá stefnu deildarinnar að
bjóða eingöngu þá bestu kennara
sem völ er á hverju sinni. Í þeim
efnum verður engin málamiðlun.
Ráðning Jóns Steinars og Ragn-
hildar undirstrikar ennfremur þá
áherslu að kennarar við deildina
hafi bæði verulega reynslu og
traustan akademískan bakgrunn.
Með því sköpum við eftirsóknar-
verða breidd í kennaraliðið.“
Fullgilt
laganám
Gefur námið nemendum réttindi
til að starfa sem dómarar og lög-
menn?
„Þessi spurning hefur vaknað og
er mjög eðlileg. Í núgildandi lögum
um dómstóla og lögmenn er hvað
menntunarskilyrði varðar fyrst og
fremst vísað til svonefnds embætt-
isprófs frá lagadeild HÍ. Reyndar
er í báðum tilvikum heimilt með
ákveðnum skilyrðum að leggja að
jöfnu háskólapróf í lögfræði frá öðr-
um háskólum. Þessi ákvæði eru að
sjálfsögðu barn síns tíma og ljóst að
þeim verður breytt til samræmis
við þær breytingar sem nú eru að
verða á laganámi á Íslandi. Nám við
lagadeild HR verður fullgilt laga-
nám og óhætt að staðhæfa að þeir
sem ljúka meistaraprófi frá laga-
deild HR munu hafa næga menntun
Háskólinn í Reykjavík hefur laganám í haust
Samkeppni og samvinna geta
Með stofnun laga-
deildar við Háskólann
í Reykjavík hefur
verið brotið blað í
sögu lögfræðimennt-
unar á Íslandi. Í
samtali Önnu G.
Ólafsdóttur við Þórð
S. Gunnarsson, forseta
lagadeildarinnar,
kom fram að hann er
þess fullviss að út-
skrifaðir nemendur
fái réttindi til að starfa
sem lögmenn og/eða
dómarar. Þórður
segir núgildandi lög
barn síns tíma. Aðeins
sé tímaspursmál
hvenær gerðar verði
nauðsynlegar laga-
breytingar.
Þórður S. Gunnarsson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík: „Nemendurnir eru okkar viðskiptavinir og samstarfsmenn!“