Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Almennir stjórnmálafundir Þingmenn Sjálfstæðisflokksins funda í Norðvesturkjördæmi Vesturland Ólafsvík Þriðjud. 5. mars kl. 20.00 - Félagsheimilið Klif Einar Kristinn Guðfinnsson og Vilhjálmur Egilsson Grundarfj. Þriðjud. 5. mars kl. 20.00 - Kristján IX Einar Oddur Kristjánsson og Guðjón Guðmundsson Stykkishólmur Miðvikud. 6. mars kl. 20.00 - Hótel Stykkishólmur Einar Kristinn Guðfinnsson og Guðjón Guðmundsson Búðardalur Miðvikud. 6. mars kl. 20.00 - Dalabúð Vilhjálmur Egilsson og Einar Oddur Kristjánsson Akranes Mánud. 11. mars kl. 20.00 - Sjálfstæðissal Stillholti 16 Vilhjálmur Egilsson og Einar Oddur Kristjánsson Borgarnes Þriðjud. 12. mars kl. 20.30 - Sjálfstæðishúsið Einar Kristinn Guðfinnsson og Vilhjálmur Egilsson Vestfirðir PatreksfjörðurFimmtud. 7. mars kl. 20.00 - Félagsheimili Patreksfjarðar Sturla Böðvarsson og Vilhjálmur Egilsson Ísafjörður Föstud. 8. mars kl. 20.00 - Stjórnsýsluhúsið Sturla Böðvarsson og Guðjón Guðmundsson Hólmavík Miðvikud. 13. mars kl. 20.00 - Café Riis Guðjón Guðmundsson og Vilhjálmur Egilsson Bolungarvík Þriðjud. 19. mars kl. 20.00 - Finnabær Vilhjálmur Egilsson og Guðjón Guðmundsson Norðurland vestra Sauðárkrókur Laugard. 9. mars kl. 17.00 - Sæborg Sturla Böðvarsson og Einar Oddur Kristjánsson Blönduós Laugard. 9. mars kl. 17.00 - Við Árbakkann Einar Kristinn Guðfinnsson og Guðjón Guðmundsson Skagaströnd Sunnud. 10. mars kl. 17.00 - Hótel Dagsbrún Einar Oddur Kristjánsson og Guðjón Guðmundsson Hvammstangi Sunnud. 10. mars kl. 20.00 - Selið Sturla Böðvarsson og Einar Kristinn Guðfinnsson Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi SÍÐASTA ár var eitt það gjöf- ulasta í útgáfusögu Íslandsdjassins. Klif Jóels Pálssonar og 01 Agnars Más Magnússonar báru frjórri tón- hugsun glæsilegt vitni og á diski sín- um Djúpinu glímdi Sigurður Flosason við klassík af efnis- skrá djassmeist- aranna með frá- bærum árangri. Diskur Árna Heiðars Karls- sonar, Q, sem hann gaf út sjálf- ur, féll nokkuð í skuggann í des- ember, en á þó alla athygli skilda. Árni Heiðar hefur haft mörg járn í eldinum um dagana. Hann lærði djass í Tónlistarskóla FÍH og klassík í Tónlistarskólanum í Reykjavík og hefur stundað framhaldsnám í Hol- landi og Englandi. Ég held ég hafi heyrt Árna Heiðar fyrst þegar hann lék í húsbandinu á Sólon Íslandus 1993. Hann var ekki banginn við að koma fram þótt reynslan væri lítil. Síðan hefur hann þroskast og þróað sinn stíl en á samt nokkuð í land enn og kann að há honum að hann fer víða í tónlistinni. Verkin á þessum diski eru öll eftir Árna Heiðar, fyrir utan þjóðlagið Sofðu unga ástin mín, og samin á ár- unum 1996 til 2000 á Íslandi og í Hol- landi. Mörg þeirra heyrði ég hann flytja á tónleikum í djassklúbbnum Múlanum í maí í fyrra og þar hét tit- illag disksins ekki aðeins Q heldur Quality Street. Með því má raula You and the Night and the Music við sömbuskotinn hryninn. Á eftir þess- um skemmtilega upphafsópus leikur kvartettinn ballöðu, Fingurkoss, þarsem Jóel Pálsson blæs stórkost- lega einsog víðast á diskinum og Ein- ar Valur skreytir vel. Sorrý Stína er tíðindalítið nýbopp og klassískur blús ríkir í Esjugrjóti. Mig minnir að Horft um öxl hafi heitið Herðakistill á tónleikunum í maí en núverandi nafn hæfir mun betur, enda er þetta ljúf ballaða og Tómas sló strax með glæsibrag á þá strengi. Leðurfrakk- ar og gúmmísólar eru einhvers stað- ar á milli Blakey og Brubeck og Sál mér í sinni spangólar milli Add- erley-bræðra og Henrys Mancini. Síðasta lag plötunnar eftir Árna Heiðar, Eldur í sinu, er stórvel leikið af kvartettnum og Jóel afslappaður eins og meistarar svingsins. Árni Heiðar er fínn lagasmiður og heildarsvipur disksins hefði verið sterkari ef Sofðu unga ástin mín hefði ekki skotið upp kollinum í lok- in, svona líka fallega hefðbundið í flutningi kvartettsins. Þarna hefði mátt fylgja dæmi Jóels Pálssonar á diski hans Prím, þarsem Það mælti mín móðir var leikin í fullkomnu samræmi við verk Jóels á diskinum og jók áhrifamátt þeirra. Q er um margt fínn diskur og skemmtilegur, hljóðfæraleikur allur fyrsta flokks en nokkuð vantar upp á að þeir félagar nái að leika saman eins og einn hugur, fjögur hjörtu og átta hendur. Það er afturá móti aðal kvartetts Sunnu Gunnlaugsdóttur á diski hennar Mindful. Þessi diskur hefði orðið mun betri hefði Árni get- að hljóðritað lögin að nýju eftir að hafa farið í tónleikaför með kvart- ettnum. SUNNA Gunnlaugsdóttir hefur búið í Bandaríkjunum um árabil og þar hefur henni tekist að lifa á djass- leik. Það er ærið afrek út af fyrir sig og þarf meira en tónlistarhæfileik- ana til í landi sölumennskunn- ar. En Sunna er þrautseig og kann að koma sér á framfæri og hefur hún fengið afbragðs dóma í hinum ólíkustu blöðum og tíma- ritum vestra; og þótt sum séu skrifin skringileg er ekki ónýtt að hafa fína gagnrýni úr Washington Post upp á vasann. Disk þennan gaf Sunna út á eigin vegum í hittifyrra, en í fyrra kom hann fyrst út opinberlega og er hon- um dreift hérlendis af Eddu – miðlun og útgáfu. Í mars 2000 kom Sunna með kvartettinn, sem á diskinum leikur, til Íslands og hélt hér nokkra tón- leika. Þetta var vel samspilaður hóp- ur og það sannast á diskinum að hann þekkir út og inn þá átta ópusa Sunnu sem á diskinum má finna. Þeir eru margir grípandi, s.s. Even- song og titillagið Mindful, listilega saman sett ballaða með rómantísk- um undirtóni en þó kraftmikil og krefjandi. Þar nær saxófónleikarinn Tony Malaby áhrifamiklum tökum á viðfangsefninu. Það er sterkari heildarsvipur á diski Sunnu en Árna Heiðars, og hún er persónulegri í pí- anóleik sínum, sem er ofinn úr þeim impressjóníska píanóstíl sem ríkt hefur í djassheiminum frá því á dög- um Bills Evans þótt Strayhorn hafi iðkað hann fyrr. Aftur á móti slær Árni Heiðar á fleiri strengi sem tón- skáld. Ópusar Sunnu eru stundum dálítið keimlíkir. Fyrir utan Mindful hreif Bad Seeds mig mest. Þar ríkir sá andblær sem maður þekkir vel frá Jan Garbarek og hefur verið kennd- ur við norræna heiðríkju, en er þó ekki síður suðrænnar ættar því að hann má gjarnan finna í verkum arg- entínska saxófónleikarans Gatos Barbieri en Garbarek hefur lært meira en margan grunar af meist- aranum argentínska. Scott McLe- more er traustur trommari og Drew Grass frábær bassaleikari. Þar fer ekkert úrskeiðis og ekki ónýtt fyrir Sunnu og Malaby að njóta þeirra þegar þau fara á kostum eins og í Waiting to Go, svo dæmi sé nefnt. Það kemur fátt á óvart á diski Sunnu en hann er fagmannlega unn- inn og ber hæfileikum hennar fagurt vitni. Um þessar mundir kemur hann út víða í Evrópu og er Sunna á leið í hljómleikaferð til að fylgja honum eftir. Kvartett hennar, sem hún og McLemore skipa, ásamt saxófónleik- aranum Ohad Talmor og bassistan- um Matt Pavolka, mun m.a. leika í Þýskalandi og Frakklandi, en gera áður stuttan stans á Íslandi. Djass Sunnu mun duna á Akureyri og Reykjavík þar sem kvartettinn leik- ur á opnunartónleikum Múlans í nýj- um höfuðstöðvum djassklúbbsins í Kaffileikhúsinu þann 7. mars nk. Bandarískt, íslenskt og seiðandi DJASS Geisladiskar Kvartett Árna Heiðars Karlssonar: Jóel Pálsson tenórsaxófónn, Árni Heiðar Karlsson píanó, Tómas R. Einarsson bassi og Einar Valur Scheving trommur. Hljóðritað í Ríkisútvarpinu 11. og 12. ágúst 2000. Útgefið af Verði ljós 2001. Dreifing: Edda – miðlun og útgáfa. Q Vernharður Linnet Kvartett Sunnu Gunnlaugsdóttur: Tony Malaby tenórsaxófónn, Sunna Gunn- laugsdóttir píanó, Drew Gress bassi og Scott McLemore trommur. Hljóðritað í New York 20. desember 1999. Gefið út af Sunny Sky Records. Dreifing Edda – miðlun og útgáfa 2001. MINDFUL Árni Heiðar Karlsson Sunna Gunnlaugs VETRARHÁTÍÐ Reykjavíkur, Ljós í myrkri lýkur í dag og er dagskráin eftirfarandi: Kl. 10: Grasagarðurinn, Garðskáli. Mynd- og veggspjaldasýningin Ekk- ert líf án ljóss. Til kl. 17. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn. Fjölbreytt dagskrá til kl. 20. Kl. 11: Æskulýðsdagur þjóðkirkj- unnar. Messur í kirkjum borgarinnar þar sem þemað verður ljós og myrk- ur. Nemendur 7. bekkjar grunnskóla taka þátt í messunni. Kl. 13: Elliðaárdalur. Rafheimar Orkuveitunnar opnir almenningi í fyrsta sinn. Til kl. 20. Kl. 14: Reykjavíkurtorg Borgar- bókasafns. Guðjón Friðriksson fjallar um Einar Benediktsson og myrkrið og Viðar Hreinsson flytur erindið Að vita myrkrið svart, hugleiðing sprott- in af kvæðinu Siggasýn eftir Stephan G. Stephansson. Kristin Schram fjallar um skógarnytjar sem orku- gjafa og menningarlega uppsprettu og Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor flytur erindið Hvað er ljós. Júlía Mo- gensen leikur á sello milli fyrirlestra. Nemandi í Tónlistardeild LHÍ flytur verk eftir Bach milli fyrirlestra. Kl. 15. Súfistinn, Bókabúð Máls og menningar. Hljómsveitin Rússibanar flytur m.a. tónlist úr uppfærslu Þjóð- leikhússins á Cyrano. Kl. 16: Borgarleikhúsið. Common couple – Paramyndir. Leikin mynd- listarsýning. Kl. 16: Ráðhús Reykjavíkur. Stór- sveit Reykjavíkur. Kl. 17: Norræna húsið. Sænski slagverksleikarinn Jonas Larsson frumflytur m.a. verk eftir Áskel Más- son, norræn og amerísk tónlist í brennidepli. Kl. 19: Laugardalslaug. Vígsla á nýju listaverki. Kl. 20: Hallgrímskirkja. Kvöld- vaka í tengslum við æskulýðsdag þjóðkirkjunnar. Páll Rósinkrans syngur, hópur frá Listsansskóla Ís- lands dansar, tónlistaratriði, upplest- ur o.fl. Kl. 20: Aðalstræti 6. Myndverkinu Sjáðu, upplifun barnsins af töfrum ljóssins eftir Þorvald Þorsteinsson varpað á framhlið hússins. Til kl. 24. Elliðaárdalur. Lokahátíð. Ljósaleikir, dans leikhús og flugeldasýning. 21.30: Gaukur á Stöng. Hljóm- sveitin Nova. Ráðhús Reykjavíkur. Myndlistar- sýning Þuríðar Sigurðardóttur. Gallerí i8, Klapparstíg 33: Sýning Helenu Hietanen. Gallerí Reykjavík: Guðfinna Ey- dal, Ingibjörg Klemenzdóttir, Guð- mundur Björgvinsson. Listasalurinn Man: Glerlistarsýn- ingin Birta. Verkin eru eftir þær Ingi- björgu Hjartardóttur, Kristínu J. Guðmundsdóttur og Rebekku Gunn- arsdóttur. Ljós í myrkri – lokadagur ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, afhenti á föstudag verðlaun í smásagna- og ljóða- keppni barnablaðsins Æskunnar 2001. Komu fyrstu verðlaun í hlut Tönju Þorsteinsdóttur frá Hofsósi fyrir söguna Ævintýralykilinn. Önnur verðlaun hreppti Hrafn- hildur Lúthersdóttir, Hafnarfirði, fyrir ljóðið Þrír strákar. Fimm- tán höfundar skiptu með sér þriðju verðlaunum. Þá fengu tutt- ugu höfundar sérstaka við- urkenningu. Þátttaka var góð en rúmlega 1.200 höfundar sendu inn efni, margir bæði ljóð og sögu eða nokkur ljóð og sögur. Fyrstu verðlaun eru ferð fyrir höfund og foreldri til Algarve í Portúgal og dvöl þar í viku á vegum Terra Nova-Sólar. Formaður dómnefndar var Gunnar Stefánsson dagskrárgerð- armaður en með honum í nefnd- inni voru Helgi Árnason skóla- stjóri, Helgi Seljan fyrrverandi alþingismaður og Ásgerður Ingi- marsdóttir fyrrverandi fram- kvæmdastjóri. Keppnin var haldin í samvinnu við Terra Nova-Sól, Ríkisútvarpið og Flugleiðahótel. Smásagna- og ljóðakeppni barnablaðsins Æskunnar Morgunblaðið/Sverrir Tanja Þorsteinsdóttir tekur við verðlaunum sínum úr hendi forseta Íslands. 1.200 höfundar sendu efni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.