Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Birna Anna á sunnudegi JOHN F. Kennedy flug-völlur í New York.Þokkafull framakona (Jill) fer um borð í flug- vél á leið til San Francisco. Jill nýtur virðingar, er gull- falleg og á fullt af vinum, en samt er hún stundum ein- mana, sérstaklega um þessar mundir því kötturinn hennar er nýdáinn. Karlmenn fara yfirleitt í taugarnar á henni, sérstaklega þeir sem reyna of mikið og þeir sem eru illa lesnir. Myndarlegur maður (Jack) fer um borð í sömu flugvél. Jack heldur á pínu- litlu búri, sem hýsir örsmáan kettling. Hann sest í sætið við hliðina á Jill og tekur upp þvælt eintak af Stríði og friði. Lítur ekki á hana og byrjar að lesa. Klukkutíma eftir flugtak er hann enn nið- ursokkinn í bókina. Hún, sem er vön því að allir karl- menn reyni að minnsta kosti að reyna við hana, er orðin pínulítið forvitin, gefur lymskulega færi á samræð- um en án árangurs. Loks brýtur hún odd af oflæti sínu og hefur frumkvæði að sam- tali. Hann tekur vel í það og fer afar vel á með þeim. Jack og Jill byrja saman, verða ástfangin og gifta sig. ,,Já, stundum eru blessaðar ör- lagadísirnar manni hliðholl- ar,“ hugsar Jill. ,,Já, þetta var svo sannarlega pening- anna virði,“ hugsar Jack. Stefnumótabransinn í Bandaríkjunum er afar sér- stakt fyrirbæri. Flestir ógift- ir ,,deita“, eins og það er kallað og yfirleitt ,,deitar“ fólk hvort annað í marga mánuði áður en það segir orðin kærasta og kærasti. Mér er sagt að það gerist eftir að þau eiga ,,samtalið“, þar sem tekin er ákvörðun um að hitta engan nema hvort annað. Fram að því þykir ekkert nema sjálfsagt að báðir séu að ,,deita“ marga aðra. (Þetta er mjög ólíkt því sem við eigum að venjast á Íslandi þar sem fólk byrjar yfirleitt saman mjög hratt og örugglega, ef það þá gerir það á annað borð.) Hér gengur hins veg- ar allt út á umrædd stefnu- mót og í kringum þau vex öflugur iðnaður sem snýst um það að útvega fólki stefnumót. Kröftug sam- keppni ríkur um þann tug- milljóna manna markhóp sem einhleypir Bandaríkja- menn eru, því sérhæfa fyr- irtækin sig gjarnan og ný af- brigði ,,pörunarfyrirtækja“ spretta upp eins og gorkúl- ur. Sum sérhæfa sig í þjón- ustu við menntað fólk og fólk í góðum störfum, en eitt af þeim er fyrirtækið ,,borð fyr- ir sex“ sem er starfrækt hér á San Francisco-svæðinu. Þar eru þrjár konur og þrír karlar sett saman í hóp og með því er verið að gefa fólki þá tilfinningu að það geti ,,valið“, eða verið ,,val- ið“. Vilji fólk forðast slíka tímasóun er hægt að nota fyrirtækið ,,bara hádeg- isverður“, þar sem fólk er látið hittast stuttlega í há- deginu, ,,ertu orðin/n leið/ur á því að verja heilu kvöldi með einhverri/jum sem þú vissir eftir fyrsta korterið að var ekki fyrir þig?“ segir í auglýsingu þeirra. ,,Bara há- degisverður“ býður líka upp á skyndi-hádegisverði þar sem fólk hittist eingöngu í korter og er þá hægt að hitta nokkra í röð í einu há- degishléi. Þarna er nátt- úrlega verið að strípa blind stefnumót niður í sína ber- ustu mynd og þá opinberast það sem sumum finnst vera kolómögulegt við þau, það er að segja að þau séu eins og atvinnuviðtal. Auðvelt er þannig að ímynda sér að sumum gæti þótt óþægilegt að fara á stefnumót sem er skipulagt af öðrum (hvað þá af til þess gerðu fyrirtæki), vitandi að manneskjan sem verið er að hitta veit að mann langar það mikið í kærasta/kærustu að notuð er sérstök þjónusta til að reyna að uppfylla þá löngun, auk þess sem hin manneskjan er í nákvæmlega sömu sporum. Hvað er eiginlega að henni? Þannig er ljóst að margir gætu ekki hugsað sér, stolts- ins vegna, að fara á blint stefnumót sem skipulagt er af fyrirtæki. En ástariðn- aðurinn hefur fundið lausn við þessu. Og heiðurinn af henni á einmitt pörunarfyr- irtækið sem hann Jack vinur okkar í flugvélinni notaði, co- incidencedesign.com, eða ,,tilviljanahönnun“. Þetta er þjónusta sérsniðin fyrir karl- menn sem vilja ná sér í kon- ur sem ,,myndu aldrei nota stefnumótafyrirtæki“, eins og segir á heimasíðu þeirra. Þetta gengur þannig fyrir sig að viðskiptavinurinn bendir fyrirtækinu á ákveðna konu sem hann hef- ur í huga. Það getur til dæmis verið kona sem hann hefur séð úti á götu eða í verslun, en er ,,þannig kona“ að það er alltaf verið að reyna við hana og því duga engin venjuleg ráð. Þá stundar fyrirtækið persónu- njósnir um viðkomandi konu í nokkrar vikur og jafnvel mánuði þar sem það safnar saman upplýsingum um per- sónulega hagi hennar, dag- lega rútínu ofl. Þegar nægar upplýsingar hafa fengist er tilviljanakenndur fundur ,,hannaður“. Fólk er látið lenda hlið við hlið í flugvél, saman í lyftu sem bilar, eða á ráðstefnu í New York og svo stuttu seinna í kokkt- eilboði í LA, o.s.frv. Þegar þarna er komið sögu á við- skiptavinurinn að hafa undir höndum nægar upplýsingar til að geta hagað sér þannig að viðfangið fái áhuga á hon- um. Að sögn fyrirtækisins koma margir starfsmenn að lausn hvers verkefnis og státar það af fjölda ánægðra viðskiptavina. Fyrir þessa þjónustu þarf að reiða fram um 80.000 dollara, sem jafn- gildir um átta milljónum króna. Þeir mæla því með að mönnum sé alvara – hér í landi merkir það að þeir stefni að hjónabandi, ,,þú eyðir ekki svona upphæð í að útvega þér ,,deit“ fyrir næsta laugardagskvöld“, segja þeir. Já, ástariðnaður- inn lætur sannarlega ekki að sér hæða og ég dáist að vissu leyti að ímyndunarafli þeirra, sem að honum standa. Ég vona samt af öllu hjarta að hlutir eins og frumkvæði, tilviljanir og blessaðar örlagadísirnar lifi iðnvæðinguna af. Blómlegur ástariðnaður II Morgunblaðið/Ásdís H ÚN segist vera hætt að standa í þessu. Búin að fara á hausinn nokkrum sinnum í nafni listarinnar og nenni því ekki oftar. „Leifur sagði stundum að Rossini hafi farið sjö sinnum á hausinn. Ég sagði við Leif að ég væri ekki Rossini.“ Það er Inga Bjarnason leikstjóri sem vitnar í eiginmann sinn tón- skáldið Leif Þórarinsson (d. 1999) og er greinilega orðin þreytt á því að stofna til leiksýninga í eigin nafni og axla fjárhagsbaggann að auki. „Ég er orðin fimmtug. Það hefur enginn staðið í þessu jafnlengi og ég enda er ég stórskrýtin. Það er eina skýr- ingin.“ Sýningarnar eru orðnar allnokkrar og öll eru verkin eftir höfunda í heimsklassanum, Shakespeare, Evr- ípídes, Pinter og Strindberg svo nokkrir séu nefndir. Inga hefur aldrei ver- ið þekkt fyrir að ráðast til upp- göngu á garðinn þar sem hann er lægstur. „Heldurðu að ég nenni að fórna geðheilsunni fyr- ir stundargaman og skrípaleiki?“ Inga Bjarnason hóf feril sinn í Kaupmannahöfn fyrir þrjátíu árum. Hún stofnaði leikhóp ásamt leik- aranum og leikstjóranum Nigel Wat- son í Bretlandi. Þau sviðsettu og léku víðsvegar um Bretland og meginland Evrópu tilraunasýningar á leikritum Shakespeares og Inga segir að þessi tími hafi verið hennar besti skóli. „Nigel er einn besti Shakespeare- fræðingur sem ég þekki og af honum lærði ég mikið og síðar af Helga Hálf- danarsyni.“ Heim komin til Íslands hóf Inga feril sinn sem leikstjóri fyrir alvöru og setti upp minnisstæðar sýningar á vegum Alþýðuleikhússins á verkum breskra nútímahöfunda s.s. Klassapí- ur (1984) eftir Caryl Churchill, Eins konar Alaska og Kveðjuskál (1987) eftir Harold Pinter og síðan réðst hún í uppsetningu á Makbeð eftir Shake- speare árið (1989) með Erling Gísla- son í titilhlutverkinu. „Það hefur allt- af verið mín mesta gæfa að starfa með fólki sem kann meira en ég,“ segir hún. „Erlingur er einn af þeim. Kunnáttan í leikhúsinu flyst á milli kynslóða með þeim hætti. Þeir eldri og reyndari miðla þekkingu sinni og kunnáttu til hinna yngri. Þannig hef- ur það verið gegnum aldirnar. Á þessu hefur orðið nokkur misbrestur finnst mér á seinustu árum. Barn- ungir og óreyndir leikstjórar hafa verið settir í að leikstýra höf- uðverkum íslenskra og erlendra höf- unda. Árangurinn er eftir því. Þeir hafa ekki reynslu til að skilja hvað höfundarnir eru að fara í list sinni og úr verður ein allsherjar vitleysa.“ Íhaust lágu leiðir þeirra Ingu ogErlings saman að nýju er húnsviðsetti Dauðadansinn eftirStrindberg á Litlasviði Borg- arleikhússins. Erlingur hlaut mikið lof fyrir túlkun sína á kafteininum og sýningunni var hrósað af gagnrýn- endum. Það kom þó ekki veg fyrir að sýningum var fljótlega hætt vegna lít- illar aðsóknar. „Það er orðið þannig að ekkert gengur í leikhúsunum leng- ur nema það sé auglýst í bak og fyrir. Til að ná upp aðsókn þarf að hafa gríðarlega sterkt kynningarapparat á bakvið sig og nóg af peningum til að auglýsa. Það felst einhver furðuleg mótsögn í því að sjálfstæðir leikhópar sem vinna af hugsjón og vilja setja upp sýningar, sem eru öðruvísi en þær sem stóru leikhúsin eru að sýna, séu einu leiksýningarnar sem krafist er að standi undir sér fjárhagslega. Við höfum látið draga úr okkur tenn- urnar með stæl á undanförnum árum. Nú á sér lítil nýsköpun stað því fáir geta leyft sér þennan „lúxus“. Fyrir 30 árum datt engum annað í hug en leikhóparnir væru vaxtarbroddurinn og þar lægi frumkvæðið.“ Ingu er talsvert mikið niðri fyrir og lítinn bilbug á henni að finna þrátt fyrir að hún hafi staðið í þessari bar- áttu lengur en flestir aðrir. Hún hefur oftast staðið utan stofnananna og segir það vera vegna þess að hún hafi aldrei viljað binda sig á bás og þurfa að setja upp alls kyns leikrit sem hún hafi kannski alls engan áhuga á. „ En konur eiga líka almennt erfiðara upp- dráttar inn leikhússins. Ég get ekki skapað sýningu ef ég hef engan áhuga á verkefninu. Ég get ekki verið bara í vinnunni. Þetta verður að vera mér spurning um líf og dauða.“ Leikhúsin sem byggja starf-semi sína á samfelldustarfi og stöðugu framboðinýrra sýninga geta að sjálfsögðu ekki verið háð því að lista- mennirnir séu svo gagnrýnir á verk- efni sín að hvert og eitt þeirra sé spurning um líf og dauða. Oftar en ekki er þetta spurning um að hafa til hnífs og skeiðar. Líf og dauði í öðru samhengi. „Já, það er alveg rétt. En þetta er kannski líka ástæðan fyrir því að margt af því sem gert er í stofnanaleikhúsunum er ekkert sér- staklega spennandi. Verkefnið brenn- ur ekki á neinum.“ Inga nefnir Bríeti Héðinsdóttur sem annan lærimeistara sinn í leik- listinni. „Við vorum góðar vinkonur og unnum saman að Trójudætrunum eftir Evrípídes (1994, þýð. Helgi Hálfdanarsson). Það var mér mjög dýrmætt að Bríet skyldi taka að sér hlutverk Hekúbu. Bríet var einstakur listamaður og dró alveg skýra línu á milli þess að vera leikari og leikstjóri. Ef maður leitaði til hennar var hún alltaf reiðubúin að gefa góð ráð.“ Þegar leitað er eftir því hverskonar leikstjóri IngaBjarnason sé verða svörinflóknari. Hún segir að sér láti best að fá hugmyndirnar til að kvikna í vinnunni með leikurunum. „Forsendan er auðvitað að þekkja leikritið sem unnið er með út í æsar en ég skipulegg ekki uppsetninguna í smáatriðum. Sýningin verður að fá að verða til á æfingum.“ Sumir af fyrri samstarfsmönnum Ingu segja þetta vilja verða nokkuð öfgakennt á köfl- um og hún sé óskipulögð í vinnu- brögðum. „Það getur vel verið að leikarinn upplifi það stundum en list- in er kaótísk og maður verður lifa og hrærast í augnablikinu. Ég vakna alltaf um sex á morgnana og byrja á að skipuleggja daginn, enda hef ég ekki trú á „yfirleikstjórn“ þannig að öll sköpun og frumkvæði leikarans sé drepin í fæðingu. En auðvitað hef ég ákveðið „konsept“ í huga og vinn það í nánu samstarfi við leikmyndahönn- uð og tónskáld.“ Inga fórnar höndum og segir með stórum áherslum. „Á ferlinum hef ég stofnað ásamt mörgu góðu fólki átta leikhópa í þremur löndum. En við nú- verandi skilyrði er ekki raunhæft að reka slíka starfsemi. Ég gefst upp vegna peningaleysis og lítils áhuga í samfélaginu á alvarlegum leikritum sígildu höfundanna. Það er líka óvið- unandi að geta ekki staðið í skilum við mína góðu samstarfsmenn sem ég hef dregið með mér út í óvissuna.“ Inga Bjarnason hefur örugglega ekki sagt sitt síðasta orð á velli sjálf- stæðra leikhúsa þótt hún noti nú tím- ann og sleiki sárin eftir síðustu orra- hríð. Hún mun vígbúast að nýju þegar höfuðskáldin knýja dyra henn- ar á nýjan leik. Valkyrja slíðrar sverðið Morgunblaðið/Golli Helga Jónsdóttir, Sigurður Karlsson og Erlingur Gíslason í Dauðadansi eftir A. Strindberg í leikstjórn Ingu Bjarnason. AF LISTUM Eftir Hávar Sigurjónsson havar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.