Morgunblaðið - 03.03.2002, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MARS 2002 31
LEIKARARNIR Valur Freyr Ein-
arsson og Ásta Sighvats Ólafs-
dóttir hafa undanfarnar vikur unn-
ið að nýstárlegri sýningu sem
byggist á myndlist Ilmar Stef-
ánsdóttur. Sýningin verður flutt á
Litlasviði Borgarleikhússins í dag,
sunnudag, kl. 16.
Sýningin nefnist Paramyndir
Common Couple og er sjálfstætt
framhald sýningar Ilmar frá því í
nóvember sl. sem hét Common
Nonsense eða Heilbrigð vitleysa.
Að sögn Ilmar gefur þversögnin í
titlinum til kynna þemað sem hún
vinnur með, hvernig fólk getur
misskilið og mislesið umhverfi sitt
sem birtist síðan í óviðeigandi
hegðun eða óvenjulegri notkun á
tækjum.
Sýningin brýtur af sér hefð-
bundnar skilgreiningar leiklistar
og myndlistar og að sögn lista-
mannanna er það áhorfenda að
gera upp við sig hvort þetta sé
fremur eitt heldur en hitt. „Að svo
miklu leyti sem það skiptir máli,“
segir Valur Freyr.
„Þær hugmyndir sem við höfum
unnið með byggjast einmitt á
óvenjulegri notkun hluta,“ segir
Ásta. Hún nefnir sem dæmi að hár-
þurrka getur haft allt annað notk-
unargildi en flestir þekkja, t.a.m.
er í sýningunni barstóll með stórt
gat í setuna og þar undir er hár-
þurrka sem yljar þeim á rassinum
sem á stólinn sest. „Í kringum
þetta höfum við síðan spunnið
mynd um mann með Farbar, sem
er eins konar ferðabar byggður á
hugmyndum Breta um slöngur á
vatnskrönum. Hér eru þær settar á
flöskur sem maðurinn blandar síð-
an úr og býður vegfarendum
drykk og sæti á hlýjum stól.“
Valur Freyr segir að hugmyndir
Ilmar séu sóttar í ýmsar áttir en
hann nefnir kvikmyndir franska
leikstjórans Jacques Tati sem
dæmi þar sem meðaljóninn herra
Hulot er alltaf aðalpersónan og
lendir í ýmsum uppákomum með
ofurvenjulega hluti. „Þetta minnir
einnig á hina japönsku chindigu
sem eru samtök um tilgangslausar
uppfinningar.“
Heiti hinna leiknu mynda gefur
tóninn þar sem eru m.a. Til-Þrif,
Sólþurrka, Umferðarteppi, Reyk-
suga og Parsími.
Þau segja að þegar þau unnu að
verkefninu hafi þau sett sér
ákveðnar reglur t.a.m. þær að
spuninn sem þau lögðu upp með
yrði að vera án tals. „Við sáum að
samtölin myndu drepa þessu á
dreif. Við notum hreyfingar og
tónlist og fáum þannig fram
hreinni myndir. Þetta eru myndir
sem tengjast hver og ein
ákveðnum hlut eða hlutum. Þannig
er þetta kannski skyldara gjörn-
ingi en leiknum þáttum og ef geng-
ið er út frá því að Ilmur sé höfund-
urinn þá er þetta leikin myndlist,“
segir Valur.
Paramyndir eru hluti af vetrar-
hátíð Reykjavíkurborgar Ljós í
myrkri sem nú stendur sem hæst.
Ilmur er einnig höfundur verð-
launaverksins Stjörnuhrap sem
vígt var á Reykjavíkurtjörn sl.
fimmtudagskvöld og borgarbúar
geta virt fyrir sér næstu vikur.
Sýningin tekur rúman hálftíma í
flutningi og er ekki síður fyrir
börn en fullorðna. „Við hugsum
okkur að fólk geti komið með
börnin með sér rétt eins og al-
menna myndlistarsýningu í hefð-
bundnu galleríi. Aðgangseyrir er
stillt í hóf, 500 kr. fyrir fullorðna
og frítt fyrir börn yngri en 12 ára.“
Ásta Sighvats Ólafsdóttir og Valur Freyr Einarsson með Farbarinn.
Leikin myndlist
Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Rúss-
neska kvikmyndin Ástarjátning frá
árinu 1977 verður sýnd kl. 15. Leik-
stjóri er Ilja Averbach. Í upphafi
myndarinnar sést aldurhniginn rit-
höfundur heimsækja, ásamt barna-
barni sínu, konu sína og æskuást,
þar sem hún dvelst á heilsuhæli sér
til lækninga.
Rifjast þá upp atburðir liðinna ára.
Enskur texti.
MÍR hefur nú gefið út skrá yfir
kvikmyndir sem sýndar verða fram
á vor. Aðgangur að kvikmyndasýn-
ingum MÍR er ókeypis.
Mánudagur
Listaklúbbur
Leikhúskjallarans
Ástin í ýmsum
myndum er yfir-
skrift dagskrárinn-
ar í kvöld kl. 20.30.
Leikarar flytja ást-
arljóð, ástarsögur
og sungið verður
um ástina. Barbara
og Úlfar, leikararn-
ir Halldóra Geirharðsdóttir og Hall-
dór Gylfason, fjalla um ástina og
regnbogann og Geir Ólafsson söngv-
ari kemur í heimsókn.
Dagskráin er í umsjá Helgu E.
Jónsdóttur leikkonu.
Í DAG
Barbara