Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HANS-JOACHIM Schubert frá
Vín í Austurríki lætur ekki sjón-
depru aftra sér frá því að tefla á
Reykjavíkurskákmótinu, en þetta
er í fjórða sinn sem hann tekur
þátt í því. Kona hans, Enge, er
jafnan í för með honum þegar
hann teflir á mótum vítt og breitt
um Evrópu. Hans-Joachim segir
að hún hafi alls engan áhuga á
skák, kunni ekki einu sinni sjálf
að tefla, og noti því tímann til
þess að sauma eða skoða fuglana
á Tjörninni meðan hann situr að
tafli.
„Já, sjónin er heldur farin að
daprast og ég rétt grilli í menn-
ina á skákborðinu og veit svona
nokkurn veginn hvernig andstæð-
ingurinn lítur út. Ég átti að fara í
augnaðgerð í janúar en því miður
varð að fresta henni þar til í lok
þessa mánaðar. Ég sé hins vegar
ekki lengur á skákklukkuna.“
Hans-Joachim hlær þegar hann
er spurður hvernig hann fylgist
með tímamörkum og segist ein-
faldlega tefla það hratt að hann
lendi ekki í tímaþröng.
„Mér finnst gaman að koma og
tefla hér á Reykjavíkurskákmót-
um og hér et ég kappi við sterka
skákmenn. Okkur hjónunum hef-
ur líkað vel hér á Íslandi og höf-
um ferðast nokkuð um landið og
þegar séð það helsta. Sem betur
fer fyrir mig má eiginlega segja.“
Þótt sjónin sé ekki góð vann
Hans-Joachim Jóhann Ragn-
arsson í annarri umferðinni á
föstudaginn, en Jóhann er mun
ofar á skákstigalistanum en
Hans-Joachim: „Já, ég náði að
snúa á hann í endataflinu og
vinna,“ segir Hans Joachim af
hógværð.
Hans-Joachim segist alltaf taka
konu sína með þegar hann teflir
á mótum, það sé gott að hafa
hana með og hann detti ekki á
hausinn á götunum á meðan.
„Nei, ég er alls ekki skyldur
tónskáldinu Schubert og ég get
alls ekkert sungið. Þegar ég gekk
í skóla var strákur með mér í
bekk sem hét Caruso að eftir-
nafni og hann var raunverulega
skyldur söngvaranum Caruso.
Hann söng samt jafnilla og ég og
saman vorum við verstu söng-
menn skólans.“
Teflt og
saumað
Morgunblaðið/Kristinn
Þótt Hans-Joachim Schubert sjái ekki á skákklukkuna tókst honum eigi
að síður að leggja Jóhann Ragnarsson í endataflinu.
Enge Schubert situr við sauma á
meðan Hans-Joachim teflir.
DÁNARTÍÐNI hefur aldrei verið
jafnlág og nú. Hún var 6,0 á hverja
1.000 íbúa í fyrra en sambærilegt
hlutfall fyrir tíu árum var 7,0 á
hverja þúsund íbúa.
Þetta kemur fram í samantekt
Hagstofunnar um mannfjölda á Ís-
landi. Fram kemur að á síðasta ári
dóu 1.720 einstaklingar, 919 karlar
og 801 kona, sem er heldur færra
en árið áður þegar dóu 1.823 ein-
staklingar, 906 karlar og 917 kon-
ur.
Þá kemur fram að dánartíðni
barna á fyrsta ári hefur lækkað
undanfarinn áratug. Fyrir tíu ár-
um dóu 5,5 börn af hverjum þús-
und lifandi fæddum, en sambæri-
legt hlutfall var komið niður í 2,7 í
fyrra.
Alls fæddust 4.090 börn á Ís-
landi árið 2001, 2.095 drengir og
1.995 stúlkur. Vógu drengirnir að
meðaltali 3.728 grömm eða tæpar
15 merkur og voru að meðaltali 52
sentimetrar að lengd. Stúlkurnar
voru 100 grömmum léttari eða um
14,5 merkur að meðaltali og voru
að meðaltali 51,3 sentimetrar að
lengd.
Þriðjungur barna
fæddur í hjónabandi
Þetta eru nokkru færri börn en
fæddust árið 2000, en þá fæddust
4.315 börn, 2.192 drengir og 2.123
stúlkur. Fæðingartíðni lækkaði
þess vegna og hefur ekki verið
jafnlág frá árinu 1985. Hún var
1,947 í fyrra, en var 2,076 árið áð-
ur.
Þá kemur fram hjá Hagstofunni
að meðalaldur mæðra hefur hækk-
að síðasta áratuginn. Hann var 29
ár í fyrra og hafði hækkað um 0,7
ár á tíu árum. Meðalaldur mæðra
sem voru að eignast sitt fyrsta
barn hækkaði meira eða um 1,2 ár,
úr 24,4 árum fyrir tíu árum í 25,6
ár í fyrra.
Fram kemur að börn hjóna og
fólks í sambúð voru 3.466 í fyrra.
Foreldrar 1.509 barna voru giftir
og foreldrar 1.957 barna voru í
sambúð og mæður 624 barna
bjuggu ekki með barnsföður sín-
um. Hlutfall barna utan hjóna-
bands hefur farið hækkandi síð-
asta aldarfjórðunginn. Árið 1975
voru tveir þriðju hlutar allra barna
fæddir innan hjónabands, en í
fyrra var hlutfallið komið niður í
þriðjung.
Dánartíðni aldrei
verið jafnlág og nú
HEILDARTEKJUR þjóðarinnar
af komu erlendra ferðamanna til
landsins voru 37,7 milljarðar sam-
anlagt í fyrra, en voru 30,5 millj-
arðar árið 2000.
Ferðakostnaður innanlands
hækkar úr 17.967 milljónum króna
árið 2000 í 22.881 milljón króna árið
2001, að því er fram kemur í tölum
Seðlabankans um tekjur af erlend-
um ferðamönnum. Um er að ræða
27,35% aukningu milli ára. Sé tekið
tillit til verðlagsþróunar innanlands
má ætla að þetta sé um 20% raun-
aukning á eyðslu erlendra ferða-
manna, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Samtökum
ferðaþjónustunnar.
Fargjaldatekjur jukust hins veg-
ar minna, eða úr 12.492 milljónum í
14.839 milljónir, sem er um 18%
aukning. Að teknu tilliti til verð-
lagsþróunar er það um 12% aukn-
ing.
Tekjukönnun SAF meðal hótela
styður upplýsingar um að megin-
fjölgunin hafi orðið utan háanna-
tíma. „Veikari staða íslensku krón-
unnar, sem lækkaði að meðaltali
um 16,7% á árinu 2001, veldur því
að ferðamenn upplifa verslun á Ís-
landi sem hagkvæma og spennandi
og því verður þeim eflaust lausara
um aurinn í hinum fjölbreyttu
verslunum, veitingahúsum og af-
þreyingarmöguleikum sem standa
þeim til boða,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Samtök ferðaþjónustunnar segj-
ast fagna því að nú skuli nýlega
vera aftur hafin talning ferðamanna
eftir þjóðerni í Leifsstöð, en henni
var hætt í upphafi ársins 2001
vegna breyttra aðstæðna í flugstöð-
inni við tilkomu Schengen-sam-
komulagsins. „Íslendingar eiga
heimildir um fjölda ferðamanna eft-
ir þjóðerni síðustu u.þ.b. 50 árin og
er það sjaldgæft meðal þjóða, en á
Íslandi er einstök aðstaða til að
safna slíkum upplýsingum. Megin-
kostur talningar eftir þjóðerni er að
meta viðbrögð við markaðsstarfi og
hefur verið sérstaklega bagalegt að
hafa ekki þessar upplýsingar síð-
asta árið vegna mikilla sviptinga á
ferðamörkuðum. Fylgst er nú með
fjölda þeirra 15 þjóða sem eru
helstu markaðir íslenskrar ferða-
þjónustu,“ segir í fréttatilkynningu.
Ferðaþjónustan skilaði
37,7 milljarða tekjum
SLÖKKVILIÐI höfuðborgarsvæð-
isins barst tilkynning um kl. 10 í
gærmorgun um að kviknað væri í
þvottavél í fjölbýlishúsi við Fálka-
götu í Reykjavík. Talið er að kvikn-
að hafi í út frá rafmagni.
Segja húsráðanda
hafa brugðist hárrétt við
Samkvæmt upplýsingum slökkvi-
liðsins brást húsráðandi hárrétt
við, lokaði inn í þvottahúsið og tók
rafmagnið af íbúðinni. Slökkviliðið
kom á vettvang skömmu síðar,
slökkti eldinn með handslökkvitæki
og reykræsti íbúðina.
Töluverðar sótskemmdir
Þvottavélin er mikið skemmd, að
öllum líkindum handónýt, og einnig
eru töluverðar sótskemmdir í
þvottahúsi. Það þykir þó vel slopp-
ið í tilviki sem þessu. Samkvæmt
upplýsingum slökkviliðsins kemur
það fyrir nokkrum sinnum á ári
hverju að það kviknar í þvottavél-
um.
Eldur í
þvottavél
RÁÐIST var að vegfaranda fyrir ut-
an veitingastað í Keflavík aðfaranótt
laugardags. Árásin var tilkynnt lög-
reglu klukkan 4.44 eftir að þolandinn
leitaði læknis. Meiðsl hans reyndust
minniháttar en árásarmaðurinn náð-
ist ekki.
Líkamsárás
í Keflavík
ÞAÐ kannast margir, sem eiga
börn, við það að oft eru þessar
elskur heldur lengur á leið heim
úr skóla í snjókomu en ella.
Ástæðan er kannski meðal annars
sú að það er svo gaman að hnoða
snjóbolta og jafnvel fá sér smá-
bita af ísköldum nýföllnum snjón-
um. Þá virðist sem tíminn stöðvist
þegar snjókornin falla í logninu
og hugurinn reikar. Þessi ungi
maður er ekki aðeins áhugamað-
ur um knattspyrnu, eins og sjá má
á úlpunni sem hann klæðist, held-
ur einnig um að tröppurnar fyrir
framan húsið séu snjólausar. Það
er líka öllum í hag, ungum jafnt
sem öldnum.
Morgunblaðið/Ásdís
Snjókorn falla …
SEKTARBOÐUM hjá lögregl-
unni í Borgarnesi fjölgaði um
meira en helming á síðasta ári.
Sektirnar vegna umferðarlaga-
brota voru 1.864 en voru 791 ár-
ið á undan. Mikil aukning á
sektarboðum varð einnig hjá
lögreglunni í Kópavogi, en þar
voru sendar út 3.462 sektir í
fyrra en 2.529 árið á undan.
Dæmi eru einnig um að lög-
reglumenn í smærri lögreglu-
umdæmum hafi aukið umferð-
areftirlit með því að skrifa út
fleiri sektir. Þannig sendi lög-
reglan í Búðardal út 112 sektir í
fyrra, en þær voru 25 árið á
undan og ein árið 1999.
Lögreglan í Reykjavík sendi
út 12.374 sektarboð í fyrra sem
er nánast sami fjöldi og árið á
undan. Lögreglan á Akureyri
sendi út 2.677 sektarboð, sem
er mikil fækkun frá árinu 2000
þegar send voru út 3.795 boð.
Samtals sendu lögregluum-
dæmin út 38.182 sektarboð í
fyrra. Þar af innheimtust
30.560 eða 80%. Hæsta inn-
heimtuhlutfallið var á Siglufirði
(93%), en lægst var það í Kefla-
vík (72%) og Hafnarfirði og
Kópavogi (75%).
Fleiri
sektaðir í
Borgar-
nesi og
Kópavogi
♦ ♦ ♦