Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 5
Námið er byggt á þeirri hugmyndafræði að mannauðsstjórnun sé
tæki til að hámarka framleiðni og árangur fyrirtækja og stofnana.
Ef þú vilt vera í hópi þeirra sem búa yfir nýjustu þekkingu á þessu
sviði og vera reiðubúin(n) að gegna leiðtogahlutverki þá er MBA
nám með áherslu á mannauðsstjórnun góð fjárfesting.
Opinn kynningarfundur um námið verður
haldinn miðvikudaginn 13. mars kl. 17:15
í Háskólanum í Reykjavík.
Á fundinum verður fjallað um framtíðaráhrif mannauðsstjórnunar
á íslenskt atvinnulíf, kynntar nýjar hugmyndir um stefnumiðaða
mannauðsstjórnun og gerð nánari grein fyrir fyrirkomulagi
námsins.
Hefur þú metnað til að ná lengra?
Vilt þú skapa þér sérstöðu sem stjórnandi?
Ert þú tilbúin(n) að fjárfesta í þekkingu?
MBA nám
með áherslu á mannauðsstjórnun
„Leiðandi fyrirtæki einkennast af því að þar starfar
samstilltur hópur að sameiginlegu markmiði. Hlutverk
mannauðsstjórnunar er m.a. að viðhalda réttu
þekkingar- og reynslustigi fyrirtækis til að heildargeta
hópsins verði meiri en summan af getu allra
starfsmanna.“
Bogi Pálsson, forstjóri P. Samúlesson hf.
og í ráðgjafahópi MBA-HRM náms Háskólans í Reykjavík.
„Íslensk fyrirtæki eiga mörg sóknarfæri á sviði betri
nýtingar mannauðs og aukinnar framleiðni. Betri
menntun, bæði starfsmannastjóra og annarra stjórn-
enda, er forsenda þess að okkur takist að nýta þau
sóknarfæri.“
Jensína K. Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri
viðskiptaþróunar IMG
„Mannauðsstjórnun hefur það að markmiði að stýra
og þróa uppbyggingu mannauðs og þekkingarverð-
mæta sem nauðsynleg eru til að fyrirtækið eigi
ánægða viðskiptavini og skili sem mestum fjárhags-
legum ávinningi.“
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja
„Sú framleiðniaukning sem orðið
hefur í Bandaríkjunum síðustu ár
er ekki síður að þakka umbótum
í stjórnun en aukinni tölvutækni.“
(McKinsey Institute, 2001)
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
IR
17
08
3
03
/2
00
2
Allar nánari upplýsingar á www.ru.is/hrm
mannauðsstjórnun
mba nám
með áherslu á