Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 58
FÓLK Í FRÉTTUM 58 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tækifæri á síðustu sætunum til Benidorm 27. mars í 2 vikur á einn vinsælasta sólarstaðinn við Miðjarðarhafið. Þú bókar núna og 3 dögum fyrir brottför segjum við þér hvar þú gistir og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Síðustu 17 sætin Stökktu til Benidorm um páskana frá kr. 49.862 Verð á kr. 59.950 Verð p.mann miðað við 2 í íbúð, 2 vikur, flug, gisting, skattar. Verð á kr. 49.862 Verð p.mann miðað við hjón með 2 börn, 2 – 11 ára, flug, gisting, skattar, 27. mars, 2 vikur NEIL Gaiman skrifaði mynda- söguseríuna Sandman fyrir nokkr- um árum. Auk þess að setja mynda- sögum nýja og hærri gæðastaðla með þeirri sögu ruddi hann brautina fyrir fleiri sögur sem áttu sér upphaf í Sandman. Meðal þeirra persóna sem þá öðl- uðust endurnýjun lífdaga í mynda- sögum voru martröðin Corinthian (eitt af sköpunarverkum Morpheus- ar, aðalsöguhetju Sandman), Dauði (systir Morpheusar) og Lúsifer Morgunstjarna eða djöfullinn, eins og hann er kallaður í daglegu tali. Samskipti þeirra enduðu með þeim hætti að Lúsifer ákvað að yfirgefa helvíti vegna starfsleiða og lét Morp- heusi í té lykilinn að ríki sínu til að nota eins og honum sýndist. Að sjálf- sögðu var hér um bjarnargreiða að ræða frá hinum Illa enda kom á dag- inn að sú atburðarás sem hófst í kjöl- far gjafarinnar leiddi að endingu til dauða Morpheusar. Lúsifer á hinn bóginn settist að í borg englanna, Los Angeles, klæddi sig upp í smók- ing og stofnaði þar næturklúbb. Children and Monsters er annað bindið í sögu Lúsifers eftir að hann yfirgefur helvíti. Þrátt fyrir að vera sestur í helgan stein virðast örlögin ekki geta látið hann í friði. Honum hefur áskotnast hinn dýrmætasti hlutur; hliðið að hinu óskapaða tómi, stað sem gefur endalausa möguleika á sköpun nýrra heima án pirrandi íhlutunar Guðs almáttugs og hans siðferðisviðmiða. Það er því til mikils að vinna að halda þessu hliði opnu og í sinni eigu. Það reynist hins vegar ekki auðvelt því aðrir ásælast hliðið góða og fara þar fremstir í flokki her- skarar himins; englar sem vilja sölsa undir sig tómið og bæta við ríki Guðs. Lúsifer leggur því í ferðalag til að auka vald sitt svo hann geti haldið hliðinu. Fyrsti áfangastaðurinn er Eftirheimurinn þar sem Izanami rík- ir en hún geymir vængina sem Lús- ifer varð að láta af hendi þegar hann gaf eftir stjórnvölinn í helvíti. Maður hefði nú haldið að persóna/guð eins og Lúsifer fengi sínu framgengt nokkuð auðveldlega en samkvæmt Carey hefur guðabransinn sínar reglur og sína pólitík sem verður að fylgja. Já, stundum er það að vera al- máttugur bara ekki nóg í baráttunni við skriffinnskuna. Eins og persón- unni sæmir sýnir Lúsifer mikla út- sjónarsemi og býr svo um hnútana að lokum að hann stendur einn gegn englum him- ins til varnar hliðinu. Í mismunandi mynd- um hefur Djöfullinn ver- ið nokkuð vinsæl auka- persóna í myndasögum í gegn um tíðina og má þar nefna sögur á borð við Spawn, Dardevil og Hellblazer svo ekki sé nú talað um þjóðsögurn- ar þar sem hann virðist nánast daglegur gestur. Ég verð þó að segja að þessi eini andstæðingur Guðs almáttugs hefur aldrei beinlínis borið með sér neina tiltölu- lega ógn í þessum blöð- um og sögum. Menn af holdi og blóði hafa ávallt getað snúið á þennan mikla vágest með merkilega léttum leik. Í þessari bók færir Carey söguna á annað plan þar sem frumforsendur góðs og ills takast á og gerir hann það mun betur en ég hef séð gert hingað til í myndasögum (fyrir utan meðferð Neil Gaimans á Lúsifer sem er sönn snilld). Sögufléttan er ákaf- lega skemmtileg og það flókin að bókin krefst tveggja lesninga til að lesandinn nái „plottinu“ almennilega. Mönnum ber að varast að sjá söguna sem annað en hreina fantasíu því annars gæti svo farið að síðhærðir englar með mittislinda og spjót verði svolítið hjákátlegir. Lusifer:Children and Monsters hefur ekki að geyma neina djöfladýrkun heldur einungis skemmtilegt ævintýri um eina áhugaverðustu sögupersónu heims- bókmentanna. MYNDASAGA VIKUNNAR Guðabransinn Myndasaga vikunnar er Lucifer: Children and Monsters eftir Mike Carey (texti) og Peter Gross, Ryan Kelly og Dean Orm- ston (teikningar). Vertigo gefur út, 2001. Bókin fæst í myndasöguversluninni Nex- us. Andskotinn sjálfur. Heimir Snorrason heimirs@mbl.is alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.