Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 42
MINNINGAR
42 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bóndi er bústólpi
bú er landstólpi
Því skal hann virður vel.
(Jónas Hallgrímsson.)
Árni Pétur Lund er látinn. Þegar
ég, með þakklæti og trega, minnist
þessa ágæta mágs míns finnst mér að
líf hans hafi lengst af verið sem langur
og bjartur sólskinsdagur. Hann þurfti
vissulega að þola erfið veikindi síðasta
áratuginn og dvelja mikið á sjúkra-
stofnunum, en stórfjölskylda hans,
með einstaklega umhyggjusama eig-
inkonu hans í farabroddi, lét hann sí-
fellt finna hversu mikils virði hann var
fjölskyldunni. Það létti honum vita-
skuld mikið ævilokin.
Já, Árni Pétur var elskaður og það
var vakað yfir velferð hans. Það hlýt-
ur að vera hverjum manni lífsfylling
og hamingja að eiga því láni að fagna
að starfa heilshugar alla ævina að
brennandi áhugamáli sínu. Árni Pét-
ur var ræktunarmaður af lífi og sál –
sannur bóndi. Hann fór ungur til
náms á bændaskólann á Hólum. Eftir
fráfall föður síns, Maríusar Lund (d.
’36), gerðist Árni hægri hönd móður
sinnar, Rannveigar Lund, við bú-
reksturinn ásamt föðurbróður sínum,
Níelsi Lund, á Raufarhafnarbúinu.
Auðvitað hefur Árni Pétur mótast
mikið af uppeldinu í Lundshúsinu,
þar sem móðir hans stýrði búi af ann-
áluðum myndarskap og reisn. Árni
Pétur var stoltur af því að bera ætt-
arnafnið Lund. Um vorið 1945 kvænt-
ist hann mannkostamanneskjunni
Helgu S. Kristinsdóttur frá Nýhöfn á
Sléttu. Þar var brúðkaupið haldið
með pomp og prakt. Kristinn bóndi
var maður stórhuga og margir muna
enn þann dag í dag hve allt fór þar
fram af höfðingsskap, með brúðhjón-
in ungu og glæsilegu sem miðpunkt
veislunnar. Elsti sonurinn (Maríus) er
fæddur ári síðar á Raufarhöfn. Næstu
árin bjuggu ungu hjónin hjá Kristni
bónda og fjölskyldu í Nýhöfn. Þar
eignuðust þau tvo stráka, Kristin og
Níels. Á þessum árum hafði Kristinn
bóndi úthlutað sonum sínum og dótt-
ur (Helgu) hluta af Nýhafnarjörðinni.
Nú tók við tími jarðræktunar og hús-
bygginga. Árið 1950 fluttu ungu hjón-
in í nýbýlið Miðtún með þrjá unga
stráka og á þeim bæ eignuðust þau
þrjá í viðbót – Benedikt, Sveinbjörn
og Grím. Þessir myndarlegu, táp-
miklu strákar þóttu strax efnilegir.
Þeir eru hver öðrum betri og hafa
fengið það besta frá foreldrum sínum
í vöggugjöf; eðlisgreind, myndugleika
og atorkusemi. Já, eplin falla sjaldan
langt frá eikinni. Búskapurinn gekk
vel hjá Árna Pétri og Helgu og smám
saman urðu Miðtúnsstrákarnir dug-
legir vinnumenn. Miðtúnshjónin voru
ÁRNI PÉTUR
LUND
✝ Kristján ÁrniPétur Lund
fæddist á Raufar-
höfn 9. september
1919. Hann lést á
öldrunardeild
Sjúkrahúss Húsavík-
ur 1. mars síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Snartar-
staðakirkju 9. mars.
drjúg við að leyfa börn-
um og unglingum ætt-
ingja og vina að dvelja
hjá sér um skemmri eða
lengri tíma yfir sumar-
ið. Þetta sumaruppeldi
varð þessu unga fólki
eftirminnilegt og hollt.
Árið 1960 tengdist ég
svo Lundsættinni þegar
ég kvæntist Maríu
Önnu Lund, yngstu
systur Árna Péturs.
Hún ljómaði ávallt þeg-
ar á hann var minnst og
notaði ætíð orðið Stóri-
bróðir um hann. Ég
kynntist í kjölfarið Miðtúnsfjölskyld-
unni upp úr 1961 og orðið stór átti
vissulega við um það fólk.
Minningarnar frá árunum 1961
hrannast upp og vandi er að velja úr
þeim öllum í stuttu þakkarávarpi.
Hér á undan hefur verið stiklað á
stóru úr ævidegi Árna Péturs. Nú
skal reynt að lýsa líkamlegu og and-
legu atgervi þessa mæta manns. Árni
Pétur var dökkur á brún og brá, vel
meðalmaður á hæð, sviphreinn og
andlitið karlmannlegt. Hann var
sterkbyggður og prýðilega á sig kom-
inn. Karl með krafta í kögglum. Hann
var greindur vel, gæddur sköpunar-
gáfu náttúrubarnsins og útsjónar-
samur. Hann var hamhleypa til vinnu
og allir ágættu verk hans. Hann hafði
þann dug og áræði sem þarf til þess
að hlutirnir nái fram að ganga. Hon-
um var í blóð borin hjálpsemi, án
hugsunar um að fá goldið í sömu
mynt. Þau Árni Pétur og Helga
stunduðu búskap í Miðtúni allt fram
undir 1990 eða í fjörutíu ár. Af
skýrslum að dæma dró síst úr fram-
leiðni búsins síðasta áratuginn. Vissu-
lega má ekki gleyma framlagi son-
anna sex og annarra góðra manna, né
heldur að tíunda hversu dugmikill
sauðfjárræktarmaður Árni Pétur var.
Hann fékkst allan sinn búskap við
kynbætur á sauðfé og var annálaður
fyrir störf þar að lútandi. Loks skal
hér getið hve húsfreyjan í Miðtúni
stjórnaði af röggsemi innanhúss. Hún
þurfti oft að hækka röddina heldur
betur til þess að fá hljóð fyrir sex há-
værum Miðtúnsstrákum.
Mig langar að lokum að segja frá
tveimur minningabrotum úr safni
mínu um Árna Pétur Lund.
Fyrra: Á Raufinni (’62–’63). Á
Óðinsplaninu var allt að kaffærast í
síld og aftur síld. Kallaður var til
margþjálfaður beykir innan af Sléttu
til þess að koma skikk á hlutina. Skip-
stjóri einn, aflamaður og kjaftaskur
mikill, spyr: „Hvaða ábúðarmikli
maður slær svo ótt og títt að engu er
líkara en að fjórar séu hendur á lofti?“
Óli verkstjóri svarar spotzkur: „Hvað
er þetta maður! Þekkirðu ekki hann
Árna Pétur?“ – „Jú auðvitað. Fáir eru
hans jafningjar í hamhleypuskapn-
um,“ sagði skipperinn afsakandi.
Síðara: Man ég eitt lygnt júlíkvöld
eftir skínandi heiðríkju og sunnan-
golu. Þetta var einn af þessum dögum
sem gerast bestir og heitastir á
Sléttu. Ég kom gangandi til hans og
ætlaði að tala við hann um eitthvert
lítilræði. Hann stóð þarna í slægjunni,
grafkyrr og hafði tekið ofan alpahúf-
una sígóðu. Um sólbrennt andlitið lék
gljáandi sólsetursroðinn. Hann svar-
aði ekki heldur leit til hnígandi sólar í
vestri. Ég skildi strax að Miðtúns-
bóndinn væri að þakka skapara sín-
um fyrir afbragðsgóðan heyþurrkun-
ardag.
Við undirrituð þessara minningar-
orða um Árna Pétur Lund þökkum
fyrir líf hans, tryggðina og vináttuna.
Það er ótalmargt sem við eigum
honum að þakka. Helgu okkar og ætt-
ingjum öllum sendum við innilegar
samúðarkveðjur. Blessuð sé minning
Árna Péturs Lunds, bónda frá Mið-
túni á Sléttu.
María Anna, Hákon og börn,
Halldóra, Gunnar og dætur.
Árni Pétur Lund, bóndi í Miðtúni á
Sléttu, er látinn á 83. aldursári, eftir
langa og atorkusama starfsævi. Hann
valdi sér bóndastöðu að lífsstarfi og
vildi vera hlutverki sínu trúr í hví-
vetna, að sjá vel fyrir sér og sínum og
standa í búskap til jafns við þá bestu í
sinni stétt, hvort sem var í heimahér-
aði eða landinu öllu. Hvorttveggja
tókst honum. Þannig fullnægði hann
starfsmetnaði sínum og hélt uppi
sæmd sinni.
Ég man þegar ég sá Árna Pétur
Lund fyrst og sé hann enn fyrir mér
eins og hann bar fyrir augu mér þá.
Þetta var á Raufarhöfn sumarið 1946.
Ég var þar í síldarvinnu eins og þá var
títt um menntaskólanema, en fjöldi
aðkominna manna var þarna í vinnu
ásamt flestum verkfærum heima-
mönnum. Hvað það snertir skar sig
einn maður úr: Árni Pétur í Lunds-
húsi. Hann hafði öðru að sinna. Ég
hafði heyrt þessa unga manns getið,
en ekki séð honum bregða fyrir fyrr
en einn daginn að ég lít vasklegan
mann koma stikandi með nokku fasi
eftir götunni frá Lundshúsinu. Hann
var klæddur bláum samfestingi með
belti um sig miðjan, skóaður fremur
lágum gúmmístígvélum með enska
húfu (sixpensara) á höfði. Hafi hann
ekki verið með svipu í hendi hafði
hann a.m.k. eitthvert prik meðferðis.
Mikla athygli mína vakti, hve vinnu-
fötin fóru honum vel, hrein og strokin,
og hversu markvisst hann stefndi
fram á við án þess að líta til hægri eða
vinstri. Ég vissi það ekki þá, en veit
það núna að þessi maður horfði til
heiða og var á þeirri leið. Árna Pétur
sá ég ekki aftur um sumarið, og þrett-
án ár liðu án þess að leiðir okkar
lægju saman. Þá tókust með okkur
góð kynni sem héldust síðan.
Ekki er að efa að Árni Pétur Lund
hafði snemma tekið þá ákvörðun að
verða bóndi. Á sextánda ári missti
hann föður sinn, Maríus Lund, bónda
á Raufarhöfn, sem hafði þar búið um
árabil góðu búi með konu sinni Rann-
veigu Laxdal. Árni Pétur gerðist þá
stoð og stytta móður sinnar og mun
áður en langt um leið hafa orðið að-
aldrifkraftur við búskap fjölskyldunn-
ar. Hann stundaði búnaðarnám á Hól-
um. Það færði hann sér vel í nyt í
bóndastarfi sínu ásamt þeirri prakt-
ísku búskaparreynslu sem hann hafði
aflað sér frá ungum aldri.
Um miðja öldina, upp úr heims-
styrjöldinni, vaknaði endurnýjaður
sóknarhugur um framfarir í landbún-
aði sem öðrum atvinnugreinum Ís-
lendinga. Sú skoðun var almennt
ríkjandi í landinu og setti mark sitt á
stjórnmál og framfarahugmyndir að
treysta ætti landbúnað sem mikil-
væga stoð atvinnulífs og eðlilegrar
nýtingar landgæða. Árni Pétur Lund
var í hópi þeirra sem sáu fyrir sér
bjarta framtíð sveitanna með jarð-
rækt og markvissri búfjárrækt, auk
bætts véla- og tækjakosts, sem uppi-
stöðu þróunar byggðanna, en þjón-
ustuiðnað, samgöngur og viðskipta-
starfsemi sem ívafið. Þannig settu
menn sér fyrir sjónir fjölþætt mannlíf
og viðgang í dreifðum sveitabyggðum
með góðum samskiptum við eflda
byggð við sjávarsíðuna.
Árni Pétur kvæntist ungur Helgu
Kristinsdóttur frá Nýhöfn sem er lög-
býli á Leirhafnartorfunni, skipt út úr
höfuðbólinu. Kristinn Kristjánsson,
faðir hennar, einn margra Leirhafn-
arbræðra, lét þeim í té land úr Ný-
höfn undir nýbýli sem þau kölluðu
Miðtún og varð í höndum þeirra álit-
leg bújörð, þótt ekki væri landsstærð-
inni fyrir að fara. Árni Pétur var vak-
inn og sofinn um jarðrækt og þá ekki
síður ræktun sauðfjár, sem hann náði
framúrskarandi góðum tökum á. Var
hann í fremstu röð íslenskra sauðfjár-
bænda og stundaði sauðfjárhaldið
með faglegum vinnubrögðum og
snyrtimennsku. Honum hlaut því að
búnast vel. Tíðarfar setti vissulega oft
strik í reikning bænda í nyrstu
byggðum á löngum búskaparferli
Miðtúnshjónanna. Kalárin milli 1960
og 1970 voru erfið og komu mjög við
bændur í Norður-Þingeyjarsýslu. Þá
taldi Árni Pétur það ekki eftir sér að
leita uppi slægjur, sem hann hafði að-
gang að og kunni að nýta. Þá kom í
ljós að hann var gæddur ótrúlegri
seiglu og útsjónarsemi að ráða fram
úr erfiðleikum við heyöflun, sem ís-
lenskir bændur hafa um aldir mátt
stríða við á hafísa- og kalárum, ekki
síst á norðanverðu landinu.
Árni Pétur Lund sigraðist á þess-
um erfiðleikum tíðarfarsins með að-
stoð sinnar góðu konu og traustu lið-
sinni sona sinna meðan þess varð
notið, því samheldni Miðtúnsfólks er
viðbrugðið og sambúð fjölskyldunnar
eins og best verður á kosið. Á heim-
ilinu ríkti glaðværð og gestrisni, sem
margir fengu að njóta. Með sanni var
gott að eiga Miðtúnshjón að vinum,
gestgjöfum og viðræðumönnum.
Árni í Miðtúni var jafnan heilsu-
hraustur um ævina og gæddur lík-
amsþreki. En upp úr sjötugu bilaði
heilsa hans, svo að hann varð að draga
saman seglin. Tók hann þá að búa sig
undir starfslok og það gerði hann af
fyrirhyggju og raunsæi. Sýnt var að
ekki yrði búið sjálfstætt í Miðtúni að
svo komnu, en í næsta nágrenni í
Leirhafnarhverfinu býr frændi
Helgu, Kristinn Steinarsson í Reist-
arnesi. Hann keypti sauðfjárbúið í
Miðtúni, og nýtur þannig hins farsæla
ræktunar- og kynbótastarfs Árna
bónda um áratugi.
Þannig lauk Árni Pétur Lund bú-
skap sínum með fullum skilum til
framtíðarinnar. Hann hafði ekki unn-
ið til ónýtis um dagana, þótt vænt-
ingar hans og annarra bjartsýnna
manna fyrir hálfri öld um almenna
þróun landbúnaðar og byggðastefnu
hafi ekki ræst. En hann fékk notið
starfsgleði hins vinnufúsa manns og
farsældar í einkalífi og varð vitni að
góðu gengi sona sinna og fjölskyldna
þeirra. Hvað sem líður misgengi tím-
anna, skeikulum framtíðarspám og
framreikningum bjartsýnismanna
var Árni bóndi í Miðtúni lánsmaður
og skilur eftir sig góða minningu sem
sannur íslenskur bóndi, sómi sinnar
stéttar.
Ekkju hans, frú Helgu Kristins-
dóttur, sonum þeirra og öðru vensla-
fólki sendi ég hugheila samúðar-
kveðju.
Ingvar Gíslason.
Í dag er borinn til grafar Árni Pét-
ur Lund bóndi í Miðtúni.
Mín kynni af Árna Pétri hófust fyr-
ir um 30 árum. Árið 1971 átti ég því
láni að fagna að vera sendur í sveit
norður í Miðtún, þá 9 ára gamall.
Ekki hvarflaði að mér þá að ég ætti
eftir að vera þar 7 sumur. Allar götur
hefur mér verið tekið sem einum í
fjölskyldunni og ég mætti strax mik-
illi hlýju og skilningi frá þeim í Mið-
túni, Árna Pétri, eftirlifandi konu
hans, Helgu Kristinsdóttur, og sonum
þeirra. Gömul bréf sem ég skrifaði til
foreldra minna um þetta leyti eru líka
til vitnis um það að mér leið vel en þar
stendur: „Héðan er allt gott að frétta
og mér leiðist ekki neitt.“
Á þessum árum var búið á öllum
bæjum á Leirhafnartorfunni. Árni
Pétur og Helga reistu árið 1950 bæ-
inn Miðtún á holtinu eins og Helga
nefndi það. Bærinn stendur að vestan
verðu við Leirhafnarvatn. Fyrir ung-
an dreng, fæddan og uppalinn í
Reykjavík var staðurinn sem paradís
á jörð enda umgjörðin engu lík. Leir-
hafnarfjöllin liggja að austanverðu við
vatnið þar sem Gefla stendur í miðju
og blasir víða við. Í norðri er Rauði-
núpur og í suðri Snartarstaðarnúpur.
Fjaran og hafið í kring meitla um-
gjörð staðarins í þeirri dýrð og
ánægju sem ábúendur nutu góðs af.
Hlý orð Árna Péturs í minn garð
strax við fyrstu komu mína norður
treystu órjúfanlega vináttu okkar síð-
an er hann sagði: „Þennan dreng
verður gott að hafa.“ Síðan liðu sumr-
in hvert af öðru. Fyrsta ferðin var far-
in með Ninna sem þá hafði verið í
námi í Reykjavík og leigði herbergi
hjá langömmu minni og afa í Safa-
mýrinni. Ferðin tók um 15 tíma. Síðan
flaug ég norður og tók ýmist póstflug
á Kópasker eða flug til Raufarhafnar.
Ég var alltaf mættur snemma á vorin
norður. Árni Pétur og Grímur, yngsti
sonurinn, komu að sækja mig. Þá var
mikið skrafað á leiðinni til baka heim í
Miðtún þar sem Helga tók á móti okk-
ur með útbreiddan faðminn.
Uppvaxtarár mín sem þarna fóru í
hönd hafa haft mikil áhrif á mig æ síð-
an. Árni Pétur var snillingur í að finna
alltaf eitthvað fyrir okkur Grím að
gera. Ég held ég geti líka sagt að hon-
um hafi aldrei leiðst að hafa okkur hjá
sér. Við fylgdum honum hvert fótmál
og vorum farnir að þekkja vel inná
hver annan. Það var orðið nóg fyrir
Árna Pétur að tjá sig með líkams-
hreyfingum úr órafjarlægð og vissum
við strax að þá vantaði tóbak í pípuna
og við hlupum til. Sumrin voru fljót að
líða og hvert verkefnið á fætur öðru
var leist af hendi skilmerkilega. Auk
hefðbundinna starfa í sveitinni sem
allir tóku þátt í komst ég í tæri við
ýmis verkefni. Í fjörunni var töluverð-
ur reki og þegar tími gafst til var
hann rifinn niður í girðingarstaura.
Trilluútgerð var einnig stunduð frá
Nýhöfn, hver bær hafði sinn bát og
var siglt út á miðin við Rauðanúp og
veiddur þorskur á handfæri. Ef vel
veiddist var aflinn seldur í frysthúsið
á Kópaskeri annars var hann til
heimabrúks og þorskurinn oftast
verkaður siginn. Þarna hófust ég
einnig mín fyrstu spor í hesta-
mennsku því Árni Pétur átti góðan
hest sem hét Skuggi. Vorum við
Grímur óspart notaðir í að þjálfa hann
fyrir göngurnar. Verkstjórn Árna
Péturs kom sér vel í þessu sem og
öðrum verkum enda var hann úr-
ræðagóður og gekk í það að leysa
hlutina.
Fjárhúsin voru hins vegar sá stað-
ur sem Árni Pétur dvaldi lengstum. Á
veturna þurfti að gefa ánum og allar
ær báru inni yfir sauðburðinn. Árni
Pétur var annálaður fyrir að eiga góð-
an fjárstofn sem var ræktaður af heil-
indum. Ég var því glaður eitt haustið
þegar mér var gefin kind að skilnaði
áður en ég hélt til Reykjavíkur. Að
sjálfsögðu varð kindin síðan tvílembd
vorið á eftir.
Á sumrin var oft gestkvæmt í Mið-
túni. Því var oft glatt á hjalla enda þau
hjón annáluð fyrir mikla gestrisni. Þó
var reynt hvert sumar að fara í ferða-
lag. Land-Roverinn var þá gerður
klár í ferðalagið og þeyst var af stað
með heimasmurt nesti. Á þessum
ferðalögum kynntist ég landinu enn
betur og hlustaði hugfanginn á þau
hjón segja frá ýmsum staðháttum.
Í heyskapartíð eitt sinn fórum við
Grímur til Raufarhafnar í bíó. Seint
var komið heim um kvöldið og morg-
uninn eftir vaknaði ég við það að
Helga og Árni Pétur voru að ræða
hvort ekki ætti að vekja drengina. Ég
man að Árna Pétri fannst undarleg
tímasetning á þessari bíóferð í miðri
heyskapartíð. „Leyfðu drengjunum
að sofa, Baddi minn,“ sagði Helga.
Árni Pétur gaf sig með það enda vissi
hann að það var lítið gagn í þreyttum
og svöngum drengjum til vinnu.
Eftir að ég hætti að dvelja sum-
arlangt í Miðtúni hafa heimsóknir
þangað tekið við og verið tíðar. Ég og
Þura höfum notið þess að fara með
okkar börn í heimsókn í Miðtún.
Þangað erum við velkomin og alltaf er
tekið vel á móti okkur. Fyrir nokkr-
um árum brugðu Helga og Árni Pétur
búi og nú allra síðustu ár hefur Árni
Pétur dvalið á Sjúkrahúsinu á Húsa-
vík og notið þar góðrar aðhlynningar.
Elsku Árni Pétur. Ég kveð þig að
endingu með ljóði eftir Valdimar
Hólm Hallstað:
Þig, sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur
og fagrar vonir tengdir líf mitt við,
minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar,
er horfnum stundum ljúfum dvel ég hjá.
Heyrirðu ei, hvern hjartað kallar á,
heyrirðu storminn kveðju mína ber?
Þú fagra minning eftir skildir eina,
sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er.
Öllum ættingjum votta ég mína
dýpstu samúð.
Hvíl í friði.
Valdimar K. Guðlaugsson.
! "
! !!"
#
$
#$
" % & '$
()* (*! +'$ , ' - )) .)
%"))!
* +.)
%
'&- /)+'$ , 0 )'.)
%) !
* +.) , " )) $1 ))'$
.
2)) - )) ) ) .)' 3!
)0'&3
.% & )