Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 3/3 –9/3
ERLENT
INNLENT
Félagsmálaráðherra
hefur lagt fram frumvarp
um breytingu á lögum um
kosningar til sveit-
arstjórna. Meðal helstu
breytinga er að allir er-
lendir ríkisborgarar fái
kosningarétt, hafi þeir átt
lögheimili hér á landi í
fimm ár. Norður-
landabúar þurfa þó aðeins
að hafa búið hér í þrjú til
þess að öðlast þennan
rétt.
KAUPMÁTTUR dag-
vinnulauna rýrnaði að
meðaltali um 2,3% milli
fjórða ársfjórðungs í
fyrra og árið á undan.
Dagvinnulaun hækkuðu
um 5,9% á tímabilinu en
vísitala neysluverðs hækk-
aði hins vegar um 8,4%.
GERT er ráð fyrir að
framkvæmdir á svoköll-
uðum Eimskipsreit í
Skuggahverfinu hefjist á
hausti komanda.
KOSTNAÐUR ríkisins
vegna launa fyrir setu í
nefndum, stjórnum og
ráðum á þess vegum nam
417 milljónum árið 2000
og er þá ekki meðtalinn
kostnaður vegna sér-
fræðiþjónustu. Ríkisend-
urskoðun gerði úttekt á
árangri nefnda á vegum
ríkisins og kannaði hvern-
ig starfi þeirra var hátt-
að. Í ljós kom að hátt í
fimmtungur nefndanna
störfuðu ekkert á árinu
og skiluðu engum ár-
angri.
NÚ ER um tíu senti-
metra jafnfallinn snjór í
Bláfjöllum og skíðafæri
gott en lítill sem enginn
snjór hefur verið þar til
nú.
Mál Árna Johnsen
til ríkissaksóknara
LÖGREGLURANNSÓKN í máli
Árna Johnsen, fyrrverandi alþingis-
manns og formanns byggingarnefndar
Þjóðleikhússins, er lokið. Í niðurstöð-
um hennar kemur fram að ætluð refsi-
verð háttsemi hafi átt sér stað í 32 til-
vikum en alls voru 74 einstaklingar
yfirheyrðir vegna þessara tilvika og
hafa tólf þeirra fengið réttarstöðu sak-
aðra manna. Brotin eru m.a. talin geta
varðað við ákvæði almennra hegning-
arlaga um mútur en eftir því sem næst
verður komist hefur slík ákæra ekki
áður verið gefin út á Íslandi.
Bankaráð Íslands-
banka heldur velli
SJÁLFKJÖRIÐ verður í bankaráð Ís-
landsbanka á aðalfundi félagsins á
mánudag þannig að núverandi meiri-
hluti mun halda velli.
Dregur úr við-
skiptahallanum
SAMKVÆMT bráðabirgðauppgjöri
Seðlabanka var viðskiptahallinn 33
milljarðar í fyrra en var 67,5 milljarðar
árið áður. Á föstu gengi minnkaði hall-
inn um 48 milljarða króna á milli ár-
anna 2000 og 2001. Á fjórða ársfjórð-
ungi í fyrra var 4,8 milljarða afgangur
á viðskiptum við útlönd.
Varðar ekki mikla fjár-
hagslega hagsmuni
LÖGMAÐUR Olíufélagsins hf. segir
ljóst að mál Samkeppnisstofnunar
gegn félaginu fyrir meint samráð við
hin olíufélögin varði óverulega pen-
ingalega hagsmuni félagsins. Kristinn
Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir
að ekki hafi verið tekin afstaða til þess
hvernig brugðist verður við yfirlýsingu
Olíufélagsins um samstarf við Sam-
keppnisstofnun.
ÍSRAELSHER hélt uppi hörðum og
blóðugum árásum á Palestínumenn
alla síðustu viku og liggja nú nokkrir
tugir manna í valnum. Í liðinni viku
féllu 112 Palestínumenn og 35 Ísrael-
ar. Eru blóðbaðið og harðlínustefna
Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísr-
aels, farin að valda ólgu víða og einnig í
Ísrael þar sem krafa um að Verka-
mannaflokkurinn segi sig úr stjórninni
verður æ háværari. Colin Powell, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna, gagn-
rýndi Sharon harkalega síðastliðinn
þriðjudag og sagði þá, að honum
skjátlaðist hrapallega ef hann héldi, að
lausnin fælist í því að drepa sem flesta
Palestínumenn. George W. Bush, for-
seti Bandaríkjanna, ákvað á fimmtu-
dag að senda fulltrúa sinn, Anthony
Zinni, aftur til Miðausturlanda og hef-
ur Sharon fagnað því. Sharon tilkynnti
á föstudag, að hann setti ekki lengur
það skilyrði fyrir friðarviðræðum við
Palestínumenn, að allt væri með kyrr-
um kjörum í viku, en Palestínumenn
segja það aðeins gert til að friða
Bandaríkjastjórn.
Síðasta vígi
al-Qaeda að falla
HÖRÐ átök hafa staðið alla síðustu
viku um síðasta vígi al-Qaeda í fjöll-
unum í Austur-Afganistan. Talið er, að
liðsmenn hryðjuverkasamtakanna þar
hafi verið um 1.000 en hugsanlega er
meira en helmingur þeirra fallinn.
Sækir að þeim 2.000 manna lið, um
1.200 bandarískir hermenn, um 200
hermenn frá Ástralíu, Kanada og Evr-
ópuríkjunum og afganskar sveitir.
Miklar loftárásir hafa verið gerðar á
al-Qaeda-liða en þeir hafa samt veitt
mikla mótspyrnu. Bandaríkjamenn
segja, að það hilli undir endalokin fyrir
al-Qaeda í átökunum, en sumir telja
hugsanlegt, að einhverjir forystumenn
samtakanna séu þarna niðurkomnir.
Blóðugar árásir
Ísraelshers SÚ ákvörðun George
W. Bush Bandaríkja-
forseta að setja 30%
verndartoll á mestallan
innflutning á stáli hefur
verið fordæmd víða um
heim og margir óttast, að í
uppsiglingu sé alvarlegt
viðskiptastríð. Hafa Evr-
ópusambandsríkin og
fleiri kært málið til
Heimsviðskiptastofnunar-
innar, WTO, og hugs-
anlegt þykir, að víða verði
gripið til beinna mót-
aðgerða.
BUSH Bandaríkja-
forseti kynnti á fimmtu-
dag drög að nýjum
reglum, sem eiga að auka
persónulega ábyrgð
stjórnenda í fyrirtækjum
og tryggja hluthöfum
áreiðanlegar upplýsingar
um rekstrarstöðuna.
Stefnt er að því að gera
stjórnendurna sjálfa
ábyrga fyrir upplýsing-
unum og lagt er til, að þeir
stjórnendur, sem misnotað
hafa aðstöðu sína, fái ekki
oftar að gegna slíku starfi.
ÝMISLEGT bendir til,
að hagvöxtur sé aftur að
aukast í Bandaríkjunum,
en þar jókst framleiðni
fyrirtækja um 5,2% á síð-
asta fjórðungi liðins árs.
Hefur Alan Greenspan
seðlabankastjóri ekki
lengi verið jafn bjartsýnn
á framvinduna og nú.
ÍRAR höfnuðu í þjóðar-
atkvæðagreiðslu breyt-
ingu á stjórnarskrá, sem
leitt hefði til hertra reglna
um fóstureyðingar. Er
niðurstaðan áfall fyrir
stjórnina og kaþólsku
kirkjuna.
KAUPFÉLAG Eyfirðinga svf.,
Samherji hf. og Lífeyrissjóður
Norðurlands hafa gert með sér
samkomulag um að stórefla fjár-
festingarfélagið Kaldbak hf., sem
um síðustu áramót tók við öllum
eignum og skuldbindingum KEA.
Fram mun fara hlutafjáraukning í
Kaldbaki þar sem Samherji og Líf-
eyrissjóður Norðurlands koma inn
sem kjölfestufjárfestar á móti
KEA.
Núverandi eigendur Kaldbaks
eru KEA, sem á 71,6% hlut, fyrr-
verandi hluthafar í B-stofnsjóði
KEA, sem eiga 14,2% hlut og fé-
lagsmenn KEA, sem eiga 14,2%.
Samtals eru þetta um 8.000 hlut-
hafar og má geta þess að í þeim
hópi er Lífeyrissjóður Norðurlands
sem á nú 3,92% hlut í Kaldbaki.
Stærstu eignir Kaldbaks liggja í
Samherja hf., Samkaupum hf.,
lyfjaverslanakeðjunni Lyfjum og
heilsu, Norðurmjólk ehf., Norð-
lenska ehf. og fleiri félögum sem áð-
ur voru í eigu KEA
1,3 milljarðar króna
inn í Kaldbak
Á næstunni verður boðað til hlut-
hafafundar í Kaldbaki og lögð fram
tillaga um heimild til allt að 500
milljóna króna hlutafjáraukningar.
Af því munu Samherji og Lífeyr-
issjóður Norðurlands í þessari lotu
kaupa 371 milljón króna og verður
hlutur Samherja 227 milljónir
króna að nafnverði og Lífeyrissjóðs
Norðurlands 144 milljónir króna að
nafnverði. Miðað er við að hlutaféð
verði keypt á genginu 3,5 en sérstök
matsnefnd allra aðila hefur farið yf-
ir og staðfest samningsgengið. Með
öðrum orðum þýðir innkoma Sam-
herja og aukinn hlutur Lífeyris-
sjóðs Norðurlands að inn í Kaldbak
kemur nýtt hlutafé að upphæð tæp-
lega 1,3 milljarðar króna.
Eftir áðurnefnda hlutafjáraukn-
ingu mun KEA eiga 52,2% hlutafjár
í Kaldbaki, Samherji 16,6%, Lífeyr-
issjóður Norðurlands 13,4% og aðr-
ir aðilar, sem eru um 8.000 talsins
sem fyrr segir, eiga 17,8%. Kald-
bakur mun síðan kaupa eigin bréf,
sem nema allt að 10% af heildar-
hlutafé eftir aukningu af KEA, á
genginu 4,0 og við það lækkar eign-
arhlutur KEA niður í 46,9% og þar
með verður enginn einn aðili meiri-
hlutaeigandi.
Þá er í samkomulaginu yfirlýsing
frá KEA þess efnis að stefna KEA
sé að lækka eignarhlut sinn enn
frekar þannig að hann verði í fram-
tíðinni ekki hærri en 35%. Stefnt er
að því að fá fleiri fjárfesta að Kald-
baki hf. m.a. með sölu á eigin bréf-
um sem og með útgáfu nýrra hluta-
bréfa.
Upphaf nýrrar sóknar
Eiríkur S. Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, segir að í
sínum huga marki samkomulagið
mikil tímamót. „Ég lít bæði á þetta
sem ákveðinn endapunkt þeirra
viðamiklu breytinga sem staðið hafa
yfir á KEA undanfarin ár en jafn-
framt upphaf nýrrar sóknar Kald-
baks sem eins öflugasta fjárfest-
ingafélags landsins. Mótun fjár-
festingastefnu verður í höndum
nýrrar stjórnar en félagið verður að
sjálfsögðu rekið á þeim grunni að
það skili eigendum sínum arði,“
segir Eiríkur. Í frétt frá KEA segir
að eignabreytingin á Kaldbaki og
kaup Kaldbaks á eigin hlutabréfum
af KEA geri það að verkum að KEA
fái til ráðstöfunar röskan hálfan
milljarð króna til að taka þátt í nýj-
um verkefnum á félagssvæðinu og
sé því í stakk búið til að takast á við
nýtt hlutverk mun fyrr en búist var
við.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson
lætur af formennsku í KEA
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
sem hefur verið formaður stjórna
Kaupfélags Eyfirðinga og Kaldbaks
hf., hefur ákveðið að láta af stjórn-
arformennsku í KEA svf., en hins
vegar gefur hann kost á sér til
áframhaldandi stjórnarformennsku
í Kaldbaki hf.
„Til þess að undirstrika aðskilnað
KEA svf. og Kaldbaks hf. tel ég rétt
á þessum tímapunkti að láta af
starfi stjórnarformanns í samvinnu-
félaginu. Í mínum huga stendur fé-
lagið á tímamótum, nú hefur það
með afgerandi hætti fengið nýtt
hlutverk sem byggðafestufélag hér
á félagssvæðinu,“ segir Jóhannes
Geir Sigurgeirsson, meðal annars í
tilefni þessa.
Samherji og Lífeyris-
sjóður Norðurlands
kaupa í Kaldbaki
KEA fær um
hálfan milljarð til
ráðstöfunar í ný
verkefni
Morgunblaðið/Kristján
Jóhannes Geir Sigurgeirsson hættir sem stjórnarformaður KEA en
gefur kost á sér til áframhaldandi stjórnarformennsku í Kaldbaki.
LJÓSMYND Gunnars Gunn-
arssonar, ljósmyndara hjá
Fróða, af Ármanni Reynissyni
var valin mynd ársins 2001 og
portrett ársins á ljósmyndasýn-
ingu blaðaljósmyndara og
Ljósmyndarafélagsins sem var
opnuð í Gerðarsafni í Kópavogi í
gær. Í áliti dómnefndar segir að
myndin sé einstaklega sterk
portrettmynd „þar sem um-
hverfi, fatnaður, öll smáatriði og
myndbygging ná að skapa öfl-
uga heild. Myndin nær að end-
urspegla persónuleika mannsins
á raunsæjan hátt“.
Auk hinnar árlegu ljós-
myndasýningar var einnig opn-
uð sérstök gestasýning ljós-
myndarans Sigurðar Jökuls sem
ber yfirskriftina „Leitin að
enska sjentilmanninum“. Sýning-
arnar standa til 30. mars en á
þeim eru á þriðja hundrað ljós-
myndir.
Bjarni Eiríksson, lögmaður og
ljósmyndari, var formaður dóm-
nefndar en auk hans sátu í dóm-
nefndinni þeir Odd Stefán og
Grímur Bjarnason, ljósmyndarar
og Valgarður Gunnarsson,
myndlistarmaður. Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Ljósmynd Gunnars Gunnars-
sonar valin mynd ársins 2001