Morgunblaðið - 10.03.2002, Page 18
18 SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
M
ARGIR muna
eflaust eftir
slagnum á
milli Sega og
Nintendo þar
sem brodd-
gölturinn
Sonic glímdi við píparann Mario og
Luigi bróður hans. Sega hafði betur
um tíma, en Nintendo var aldrei
langt undan. Þegar Sony kom svo á
markað með PlayStation-tölvu sína
lét Sega undan síga og gaf á end-
anum upp öndina, en Nintendo hélt
sínu. Síðan hefur Sony meðal annars
sent á markað nýja PlayStation-
tölvu, PlayStation 2, sem nýtur mik-
illa vinsælda, en sviptingar eru
framundan því bæði er Microsoft
búið að setja á markað nýja leikja-
tölvu, Xbox, sem er spáð vinsældum,
og svo er Nintendo á ferð með nýja
vél, Game Cube, sem kemur á mark-
að hér á landi í byrjun maí næst-
komandi.
Came Cube er ætlað að keppa við
helstu leikjatölvur á markaði í dag,
PlayStation 2 og Microsoft Xbox.
GameCube er öflugri en bæði Play-
Station 2 og Dreamcast en í hrárri
tækni hefur Xbox yfirburðina, þótt
auðvitað skipti forritun vélanna
miklu máli, en við fyrstu sýn virðist
sem GameCube nýti tæknina aðeins
betur.
Tæknilegar staðreyndir
GameCube er með 405 MHz IBM
Gekko-örgjörva á móti 733 MHz
Intel Pentium III örgjörva Xbox-
vélarinnar og 300 MHz Emotion
Engine PS2. Kubburinn er með 203
MHz ArtX Flipper-skjákort á með-
an Xbox státar af 250 MHz Nvidia-
skjákorti og PS2 af 147 MHz Sony
GS.
Xbox og PS2 nota venjulegt
vinnsluminni og slepptu öllu skjá-
kortsminni. Nintendo kaus að nota
24 MB vinnsluminni í GameCube, á
móti 64 MB Xboxins og 32 MB PS2-
vélarinnar, en bætti við 16 MB 100-
MHz DRAM og 3MB 1T-SRAM
fyrir grafíkörgjörvann.
Allar vélarnar státa af DVD-drifi
en GameCube getur þó aðeins spilað
svokallaða Mini-DVD diska þar sem
ekki er hægt að spila nema þriggja
þumlunga diska í vélinni.
Beint úr kassanum er hægt að
tengja bæði Xboxið og GameCube
við breiðbandsnettengingar og fara
að vafra um Netið eða spila leiki.
Xboxið er með innbyggðu mótaldi,
eins og Dreamcast-vél Sega á sínum
tíma, en bæði PS2- og GameCube-
eigendur þurfa að kaupa sérstakt
mótald sem kemur líklega ekki á
markað strax á Íslandi.
Leynd yfir hönnun
Ef bera á PS2 og GameCube sam-
an af alvöru verður að hugsa út í
margt. Tölvurnar eru gríðarlega
ólíkar í byggingu enda fór hönnun
þeirra fram í gríðarlegri leynd og
luma Nintendo og Sony á mjög
ólíkri tækni.
GameCube-vélin er, eins og áður
sagði, með 405 MHz örgjörva á móti
300 MHz Emotion Engine örgjörva
PS2. Í hreinum krafti á Cube án
vafa vinninginn þar, en ekki er allt
sem sýnist. PS2 er nefnilega byggð
með tveim Vector Units svoköll-
uðum; Vector units eru einskonar
grafíkörgjörvar sem skiptast niður í
VU1 (Vector Unit 1) og VU2.
Leikjahönnuðir eru aðeins farnir að
skilja hvernig VU virka, en hönn-
uðir fyrirtækisins Naughty Dog,
sem teljast með fremstu hönnuðum
á þessu sviði, halda því fram að
vinnslu á fjölhliðungum úr leik sem
tekur 100% af örgjörvanum megi
minnka niður í 1–10 prósent með
réttri notkun á VU-flögunum. Ef
rétt reynist mun PS2 gjörsamlega
jarða bæði GameCube og
Xbox á næstu ár-
um því leikja-
hönnuðir
verða þá
aðeins
farnir að
nota 30–
40 pró-
sent af
hæfi-
leikum
vélar-
innar.
Umbreytingar og lýsingar
Allar aðgerðirnar sem VU1 og
VU2 sjá um á PS2, eins og umbreyt-
ingar og lýsingar, fara í gegnum
Flipper-örgjörva GameCube. Auk-
inn örgjörvahraði GameCube vegur
upp á móti þessu en 16 MB DRAM-
kubbsins gætu skipt töluvert meira
máli. PS2 hefur nefnilega aðeins 4
MB DRAM sem þýðir að hönnuðir
þurfa að grípa til mikið þjappaðrar
áferðar sem gæti hægt töluvert á
Emotion-örgjörva PS2.
Þar að auki vinnur GameCube
mun gáfulegar úr fjölhliðungsáferð
en PS2, kubburinn „renderar“ allt
að átta gerðir áferðar í einu (grunn-
áferð eins og Bump Map, Noise og
Reflection auk flóknari aðgerða eins
og Radiosity Light Map og fleiri ef-
fekta) á meðan PlayStation gerir
bara eina slíka áferð í einu. Þetta
þýðir að á meðan GameCube „rend-
erar“ þúsund fjölhliðunga einu sinni
gerir PlayStation það átta sinnum á
nokkuð lengri tíma. Þetta hefur þó
fyrst og fremst áhrif á hleðslutíma
en ætti ekki að hægja á leikjum í
gangi nema þeim sem nota tölvuna
til að „rendera“ umhverfi jafnóðum.
Leikirnir geta skipt höfuðmáli
Vélbúnaður hefur vitanlega sitt
að segja en það er margsannað að ef
nógu skemmtilegur leikur er í boði
skiptir vélin sjálf ekki eins miklu
máli. Fjölmörg dæmi eru um það að
vinsæll leikur hafi gert leikjatölvu
vinsæla og þannig náði Sega til að
mynda langt á Sonic á sínum tíma,
en Nintendo aftur á móti á Mario,
svo dæmi séu tekin. Þegar Play-
Station kom á markað náði Sony
miklum árangri með því að mark-
aðssetja tölvuna rétt, lagði ekki síst
áherslu á að hún væri fyrir eldri
krakka en þá sem lékju sér með
Nintendo og Sega og náði þannig til
þeirra sem voru vaxnir uppúr Sonic
og Mario. Með PlayStation 2 kom
líka talsvert af spennandi leikjum
sem ýttu enn frekar undir söluna.
Þegar PlayStation 2 kom á markað
var leikjaúrval allgott auk þess sem
hægt var að spila gömlu Play-
Station-leikina í henni.
Leikjaúrval GameCube er ekki
jafn glæsilegt og hjá PS2 en upp-
hafsleikirnir fyrir Nintendo ein-
kenndust af barnaleikjum, nokkuð
sem olli töluverðum áhyggjum í Jap-
an og Bandaríkjunum þar sem
meirihluti leikjakaupenda er fólk á
aldrinum 12–22 ára, og nenna fáir á
þessum aldri að spila leiki eins og
Super Monkey Ball og Donald
Duck. Barnaleikir hafa reyndar allt-
af verið sterkasta hlið Nintendo í
gegnum árin og fyrirtækið hefur
þannig skorið sig úr með því að
sleppa ofbeldis- og hryllingsleikjum.
Markaðurinn fyrir slíka leiki er aft-
ur á móti stór og því
kemur ekki á
óvart að á næst-
unni eru vænt-
anlegir nokkrir
slíkir leikir, þar á
meðal hryllingsleik-
urinn Resident Evil
1 og 2, en einnig
kemur víst fljótlega
Tony Hawk’s Pro
Skater fyrir Game-
Cube og ævintýraleik-
urinn Zelda sem hefur
verið gríðarlega vin-
sæll í Nintendo-tölvur
lengur en elstu menn
muna. Þegar tölvan svo
kemur á markað í Evr-
ópu í maí má búast við að
leikjaúrvalið verði orðið
töluvert betra.
Fyrstu leik-
irnir sem
greinarhöf-
undur fékk
að spila voru
alveg ágætir.
Luigi’s Mans-
ion, sem fylgir
líklegast
með
sér-
stökum
eintök-
um
tölv-
unnar,
var
ágætur,
staðlaður
krakkaleikur þar sem Luigi á að
bjarga Mario úr draugakastala
(fyrsta skiptið sem Nintendo notar
ekki Mario sem aðalpersónu í út-
gáfuleik), og Wave Race: Blue
Storm, sem er fínn sjóskíðaleikur
með öllu tilheyrandi. Báðir leikirnir
litu mjög vel út og eru til dæmis
miklu flottari en fyrstu PlayStation
2 leikirnir sem komu á markað.
Skemmtilega lítil og nett
Vélin er skemmtilega lítil og nett
og kom á óvart hversu létt hún er,
miðað við PlayStation 2 og Xboxið
er hún dvergvaxin en Nintendo
fórnaði venjulegu DVD-drifi fyrir
aukinn stíl og aukið höfundarrétt-
aröryggi því erfitt mun reynast að
afrita diska vélarinnar.
Smæð diskanna hefur einmitt
vakið nokkra athygli og þá sér-
staklega í ljósi fyrri yfirlýsinga
Nintendo um ágæti leikjahylkjanna
gömlu. Leikjahylkin segja
Nintendo-menn endingarbetri og
fljótari að hlaða og halda því fram að
þrátt fyrir takmarkað minnispláss
séu leikirnir flottari þannig. Nú hafa
þeir hinsvegar skipt yfir í minnstu
geisladiskana á markaðnum, svo-
kallaða Mini DVD diska. Einn af
títtnefndum kostum hylkjanna á
sínum tíma var hvað þau voru sterk-
byggð, en diskarnir eru það alls ekki
og ólíklegt að litlir krakkar geti
lengi átt fullt af pínulitlum plast-
hringjum sem þurfa ekki nema eina
litla rispu til að verða óspilanlegir.
Mistök að sleppa DVD-drifi?
Að mínu mati eru það mistök hjá
Nintendo að hafa sleppt DVD-
drifinu, enda auglýsa bæði Play-
Station og Xbox það sem ómissandi
hluta tölvunnar og vissulega er
nokkuð skemmtilegt að fá DVD-drif
með í kaupbæti. Ef Mini DVD disk-
arnir verða vinsælir á næstu árum
gæti þetta aftur á móti orðið plús
fyrir GameCube, en ógerningur
virðist að finna Mini DVD myndir,
enn sem komið er að minnsta kosti.
Enn er of snemmt til að segja til
um hvort GameCube verði tölvuris-
anum Nintendo að falli eða til fram-
dráttar. Misjafnar viðtökur vél-
arinnar um allan heim segja í raun
ekki jafnmikið og maður gæti haldið
í þessum óútreiknanlega geira. Svo
er bara að bíða eftir stóra deginum
þegar vélin kemur út í Evrópu og
vona að við verðum heppnari með
leikjaúrvalið en Japanir og Banda-
ríkjamenn.
Rimman á leikjatölvumarkaðnum harðnar þar sem Nintendo og Microsoft sækja að Sony.
Ingvi Matthías Árnason kynnti sér tromp Nintendo, leikteninginn svokallaða.
Game Cube. Eins og sjá má er hægt
að tengja GameBoy Advance-leikja-
tölvu við teninginn.
Teningnum er kastað