Morgunblaðið - 10.03.2002, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 27
Hún er búin að búa í Svíþjóð frá 7
ára aldri. Fædd í Reykjavík 1949
og fluttist með foreldrum sínum,
Ernu Sigurleifsdóttur leikkonu
og Árna Ársælssyni lækni, til Færeyja 1954 og það-
an til Strömstad í Svíþjóð 1956 og hefur búið í Sví-
þjóð síðan. Hún er leikkona eins og móðir hennar
en man ekki eftir að hafa séð móður sína á leiksviði.
Hún heitir Bergljót Árnadóttir og er þekkt leik-
kona í Svíþjóð, flestir Svíar þekkja hana sem Alice,
eina aðalpersónuna í sjónvarpsþáttaröðinni Skilda
Värdar sem gengið hefur vikulega á TV 4 und-
anfarin þrjú ár. Hún er núna að leika hlutverk
Mörtu í Hver er hræddur við Wirginiu Woolf í
Borgarleikhúsinu í Hälsingborg. Í janúar var frum-
sýnt í Rialto leikhúsinu í Kaupmannahöfn hennar
fyrsta leikrit, Massakre. Bergljót er því ein af Ís-
landsdætrum sem óhætt er að telja með þegar
römm taug þjóðernishyggjunnar bærist í brjóstinu.
Móðir hennar Erna Sigurleifsdóttir var ein
skærasta stjarna Leikfélags Reykjavíkur frá 1950
fram til 1954 og þótti eiga glæsta framtíð fyrir sér á
leiksviðinu. Hún batt þó skjótan endi á feril sinn og
flutti með fjölskylduna til Svíþjóðar. Erna fluttist
aftur til Íslands árið 1970 en tók ekki upp þráðinn
aftur þar sem honum hafði sleppt 15 árum fyrr. „Ég
vildi ekki flytja með þeim til Íslands, enda var ég þá
búin að fá inngöngu í
Leiklistarháskólann í
Stokkhólmi,“ segir
Bergljót. Hún útskrif-
aðist árið 1974 og hef-
ur starfað óslitið sem
leikkona síðan. Erna
Sigurleifsdóttir lést
þann 7. febrúar síðast-
liðinn en Árni maður
hennar lést árið 1993.
Bróðir Bergljótar er
Vihjálmur Árni flug-
maður.
Fráfall Ernu varð
Jóni Viðari Jónssyni
tilefni til að rifja upp
feril hennar í grein sem hann skrifaði í Morgun-
blaðið 2. 3. sl. Þar segir hann m.a: „Ég býst við að
fáir leikarar, ef nokkrir, sem neyðast til að kveðja
sviðið eftir jafn glæsta byrjun og Erna átti, verði
nokkurn tímann innst inni alveg sáttir við örlög sín.
Ekki fann ég þó annað en hún liti beiskjulaust aftur
til þessa tíma í lífi sínu, enda átti hún margar
ánægjulegar minningar frá honum. Hún fór góðum
orðum um samstarfsmenn sína, þá sem hún á annað
borð vildi tala um; lét sér í hæsta lagi nægja kank-
víslega glettni ef eitthvað annað bjó undir.“
Bergljót segir að hún minnist þess ekki að mikið
hafa verið talað um leikferil móður sinnar og hún
hafi ekki alist upp við að líta á hana sem leikkonu.
„En það var alltaf mikill áhugi á leikhúsi og bók-
menntum á heimili foreldra minna og ég fékk þann
áhuga í veganesti.“ Ekki þarf heldur að draga í efa
að hún hafi fengið sinn skerf af leikhæfileikum móð-
ur sinnar í vöggugjöf.
„Ég á tvær minningar um leiklistarferil móður
minnar. Fyrri minningin er frá kvikmyndinni Síð-
asti bærinn í dalnum þar sem mamma lék álfkon-
una. Mér þótti mikið til þeirrar myndar koma. Síð-
an man ég eftir að hafa fylgt mömmu dyggilega við
æfingar á Músum og mönnum í Þórshöfn í Fær-
eyjum en hún setti leikritið upp þar. Ég held að ég
hafi stundum verið dálítið fyrir leikurunum. Þá hef
ég verið 5 ára.“
Erna hafði skömmu áður leikið konu Charleys í
sama leikriti við mikla hrifningu í í Iðnó og þekkti
því leikritið mætavel. Þetta mun þó hafa verið í eina
skiptið sem hún lagði fyrir sig leikstjórn.
„Eftir að ég lauk leiklistarnáminu hef ég verið í
lausamennsku í leikhúsum víða í Svíþjóð. Ég hef
leikið talsvert í Borgarleikhúsinu í Stokkhólmi, líka
á Dramaten og einnig verið í mörgum sýningum
hjá Riksteatern. Það eru sýningar sem farið er með
í leikferðir um Svíþjóð og mjög gaman að taka þátt í
því. Svo hef ég leikið mikið í sjónvarpi og ráðið mig í
einstök verkefni í leikhúsunum eins og gengur. Í
vetur er ég ráðin við Borgarleikhúsið í Hälsingborg
en ég hef verið hérna áður, veturinn 1997-98, þá lék
ég mömmuna í leikriti Nicky Silver Feitir menn í
pilsum. Síðustu þrjú árin hef ég einnig verið að
leika Alice í sjónvarpsþáttunum Skilda Värdar.
Þetta er afskaplega kát kona sem kemur frá Am-
eríku og vill hjálpa öllum og gera öllum gott. Mér
finnst þetta mjög skemmtilegt og sérstaklega hef
ég gaman af taka upp í stúdíói með þriggja véla
tækni. Þessir þættir eru að hluta teknir þannig en
það er líka tekið talsvert úti. En nú er búið að
ákveða að þættirnir hætti í vor og við kláruðum að
taka upp í nóvember. Það er ágætt að hætta eftir
þennan tíma því að svigrúmið til að þróa persónur í
svona þáttum er mjög lítið. Framleiðendurnir vilja
hafa þær eins frá upphafi til enda svo áhorfendur
geti fylgst með þó þeir missi þætti úr á milli.“
Það fer auðvitað ekki hjá því að á 28 ára löngum
ferli verði sum hlutverk öðrum minnistæðara.
Bergljótu vefst þó tunga um tönn þegar ég bið hana
að nefna einhver slík. „Mér finnst óskaplega gaman
að leika Mörtu í Hver er hræddur við Virginiu
Woolf og það segi ég ekki bara af því að ég er að
leika hlutverkið núna. Mér finnst það skemmtilegt
og fyrir leikkonu á mínum aldri er þetta óskahlut-
verk. Þetta er svo vel skrifað leikrit og gefur leik-
urunum mjög mikið. Af öðrum hlutverkum er mér
minnistætt hlutverk Clytemnestru í Ifigeníu eftir
Evrípídes sem ég lék í Borgarleikhúsinu í Stokk-
hólmi fyrir nokkrum árum. Ég hafði líka gaman af
að leika þar 1986 hlutverk ungrar stúlku Betsheb í
áströlsku leikriti The Golden Age. Það fjallaði um
stúlku sem finnst í óbyggðum Ástralíu og getur
ekki tjáð sig nema takmarkað með orðum. Það var
mjög spennandi hlutverk. Ég hafði líka mikla
ánægju af að leika í Hanjo eftir japanska skáldið
Yukio Mishima á Dramatiska Institutet í Stokk-
hólmi 1985. Þetta er nú það sem ég man eftir í svip-
inn. Kannski vegna þess að þetta voru svolítið öðru-
vísi hlutverk.“
Skriftirnar hafa fylgt Bergljótu um langa hríð.
Hún segist þó hafa verið mjög feimin við að sýna
öðrum árangurinn og ekki hafi sjálfstraustið aukist
þegar sex útgefendur höfnuðu handriti að ljóðabók
sem hún sendi þeim. „Það var svolítið erfitt að taka
því,“ segir hún. „En mér þykir svo gaman að skrifa
að ég hugsaði að þessir útgefendur réðu því ekkert
hvort ég gerði það eða ekki. Ég byrjaði að skrifa
leikritið Massakre þegar ég var að æfa Ifigeniu við
Borgarleikhúsið í Stokkhólmi. Leikstjórinn var
grískur, Yannis Ouvardas, og hann benti mér á
ákveðna hluti varðandi Klýtemnestru sem urðu til
þess að ég byrjaði að skrifa leikritið. Aðalpersónan í
leikritinu mínu er einhvers konar Klýtemnestra.
Ég setti leikritið svo bara ofan í skúffu og þar lá það
heillengi.“
Hvað varð til þess að þú tókst það upp úr skúff-
unni?
„Ég veit það ekki. Ég opnaði skúffuna einhvern
tíma til að athuga hvernig leikritinu liði. Þá datt
mér í huga að láta umboðsmanninn minn hafa það.“
Það varð til þess að Ulla Gottlieb, leikhússtjórinn
á Rialto í Kaupmannahöfn, fékk leikritið í hendur
og ákvað að setja það upp. Frumsýningin var 17.
janúar sl. og danskir gagnrýnendur tóku verkinu
misjafnlega. Sumir fundu því ýmislegt til forráttu
en aðrir töldu það vel skrifað og athyglisvert. Per-
sónur verksins eru tvær, sonur og móðir og Berg-
ljót segir að atburðarásin hefjist þegar sonurinn
kemur heim fullorðinn og vill fá skýringar á und-
arlegri hegðun móður sinnar þegar hann var að
alast upp. Faðir hans liggur að sögn móðurinnar
fárveikur á sjúkrahúsi. Móðirin er drykkfelld og
samskipti þeirra mæðgina hafa alla tíð mótast af
því en í lok verksins hafa þau þó náð að sameinast
yfir kvöldverði sem móðirn hefur útbúið. Þegar í
ljós kemur hvað hún hefur matreitt verður gleði
sonarins hins vegar blendin.
Bergljót er ógift og barnlaus og segist aldrei hafa
fundið hjá sér neina sérstaka þörf til að eignast
börn. „Það er álitið ósköp eðlilegt hér í Svíþjóð að
haga lífi sínu á þennan hátt en ég finn fyrir því þeg-
ar ég kem til Íslands að fólki finnst þetta svolítið
skrýtið. Það verður bara hver að haga lífi sínu eins
og hann vill,“ segir hún og kveðst ekki vita hvað
taki við eftir að sýningum á Virginíu Woolf lýkur
þann 28. mars. „Þá fer ég aftur heim til Stokk-
hólms. Kannski skrifa ég annað leikrit. Kannski
ekki.“
„Kannski skrifa ég annað
leikrit. Kannski ekki…“
Eftir
Hávar
Sigurjónsson
BERGLJÓT leikur þessar vikurnar Mörtu í Hver er
hræddur við Virginíu Woolf í Borgarleikhúsinu í
Hälsingborg. Með henni á myndinni eru Torbjörn
Lindström og Annika Kofoed.
havar@mbl.is
BERGLJÓT Árnadóttir.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til að
dveljast við frábærar aðstæður á suðurströnd
Spánar í 3 eða 4 vikur á ótrúlegum kjörum. Beint
flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem þú
nýtur þjónustu fararstjóra Heimsferða allan
tímann og getur valið um spennandi kynnisferðir
á meðan á dvölinni stendur. Í ferðina 7. apríl til
Costa del Sol býður Sigurður Guðmundsson upp
á sína vinsælu dagskrá og þú nýtur fegursta tíma
ársins í frábæru veðri. Við bjóðum þér okkar
bestu íbúðarhótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega. Glæsileg
dagskrá fyrir eldri borgara:
Glæsileg vorferð
Heimsferða til
Costa del Sol
með Sigurði Guðmundssyni 7. apríl
frá kr. 69.000
Verð frá kr. 37.400
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
Flugsæti eingöngu.
Almennt verð kr. 39.270.
Verð frá kr. 41.000
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára El
Faro, 2 vikur, 8. maí með 10.000 kr.
afslætti. Alm. verð kr. 43.155.
Verð frá kr. 56.100
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, El
Faro, 10. apríl, 4 vikur með 10.000
kr. afslætti. Alm. verð kr. 58.905
Verð kr. 76.900
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 4 vikur,
10. apríl með 10.000 kr. afslætti.
Skattar kr. 3.350, ekki innifaldir.
Alm. verð kr. 80.745.
Verð frá kr. 51.900
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, El
Pinar, 3 vikur, 7. apríl með 8.000 kr.
afslætti. Skattar ekki innifaldir.
Almennt verð kr. 54.495.
Verð kr. 69.000
M.v. 2 í stúdíó, Timor Sol, 7. apríl, 3
vikur, með 8.000 kr. afslætti. Völ
um aukaviku. Skattar, kr. 3.350, ekki
innifaldir. Almennt verð kr. 72.450.
• Leikfimi • kvöldvökur • út að borða • spilakvöld • minigolf
Costa del Sol
7. apríl
Benidorm
10. apríl
Steinsteypt 240 fermetra einbýlishús á bökkum Laxár
í Aðaldal er til sölu eða leigu. Húsið er mikið endurnýjað
að utan sem innan. Hitaveita. Í húsinu eru fimm svefnherbergi.
Nánari upplýsingar hjá
fasteignasölunni Eignaþing Sími 464 2545
Einstakt tækifæri
EINBÝLISHÚS
Á BÖKKUM LAXÁR Í AÐALDAL
T I L S Ö L U E Ð A L E I G U