Morgunblaðið - 10.03.2002, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. MARS 2002 53
DAGBÓK
Fermingamyndatökur
Hverfisgötu 50,
sími 552 2690
• NÝTT 277 fm einbýlishús.
• 32 fm innbyggður bílskúr.
• Klætt með maghony og zinki.
• Mikil lofthæð – hiti í gólfum.
• Maghony gluggar.
• Stórkostlega víðfeðmt útsýni.
• MJÖG ÁHUGAVERT HÚS!
Nánari uppl. í síma 699 1179
GLÆSIEIGN Í VESTURBÆ KÓPAVOGS
Enskunám í Englandi fyrir 13-15 ára
Í samvinnu við Kent School of English
býður Enskuskóli Erlu Ara upp á þessar
vinsælu þriggja vikna námsferðir í sumar.
Íslenskir hópstjórar með í för allan tímann.
Upplýsingar og skráning í síma 891 7576
Skoðið myndir af starfssemi skólans á
simnet.is/erlaara
Akureyri
Námskeið um meðvirkni, samskipti, tjáskipti og
tilfinningar verður haldið föstudagskvöldið
15. mars og laugardaginn 16. mars í Glerárkirkju.
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Skráning hjá Halldóru Bergmann,
sálfræðingi, í síma 847 1418
og Stefáni Jóhannssyni í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Með morgunkaffinu
Fyrirgefðu að
ég kom svona
seint. Ég beið
eftir að það
stytti upp.
Heimatilbúin eggjakaka jafnast nú ekki á við
nautasteikina mína síðast.
Ég er kominn
niður í eina
sígarettu
á dag.
FJÖGUR ungmennalið
tóku þátt í sýningarleikun-
um í Salt Lake City, tvö frá
Evrópu og tvö frá Norður-
Ameríku. Danskt par var í
öðru Evrópuliðinu – Mart-
in Schaltz og Andreas
Marquardsen. Martin var
við stýrið í spili dagsins:
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ G65
♥ K53
♦ G75
♣KD62
Vestur Austur
♠ K1083 ♠ D97
♥ 4 ♥ ÁD1087
♦ K109632 ♦ 8
♣83 ♣10974
Suður
♠ Á42
♥ G962
♦ ÁD4
♣ÁG5
Sömu spil voru notuð í
öllum flokkum. Í þessu spili
var þrjú grönd algengur
samningur, en Martin var
eini sagnhafinn sem klóraði
í níu slagi. Við hans borð
gengu sagnir þannig:
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 lauf
Pass 1 tígull * 1 hjarta 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Martin fékk út tígulsexu
og stakk upp gosa blinds.
Spilaði svo smáu hjarta úr
borði á níuna heima og aft-
ur hjarta á kónginn og ás
austurs.
Austur skipti yfir í spaða
og vestur fékk þann slag á
kónginn. Vestur spilaði
spaðatíu, en Martin dúkk-
aði aftur og fékk næsta slag
á spaðaás. Tók síðan fjóra
slagi á lauf og henti tígul-
drottningu heima. Loks
spilaði hann hjarta úr borði
að gosanum og fékk þar ní-
unda slaginn.
Segja má að innákoma
austurs á einu hjarta sé
lykillinn að spilamennsku
Martins. Pólverjinn Balicki
hafði ekki sömu upplýsing-
ar og lét því lítinn tígul úr
borði í upphafi og tók á
drottninguna heima. Eftir
þessa byrjun er spilið
óvinnandi því það vantar
innkomu í borð til að vinna
tvo slagi úr hjartalitnum.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
LJÓÐABROT
STÖKUR
Eygló skær frá Ægi leið,
upp reis blærinn varmi.
Bára tær úr beði skreið,
blundinn þvær af hvarmi.
Sigurður Pálsson, Brenniborg.
Ægir gljár við ljósbjart land;
leikur már um dranga.
Faðmar bára svartan sand
með silfurtár á vanga.
Sigurjón Friðjónsson
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0-0 b5 6. Bb3
Bc5 7. a4 Hb8 8. c3 d6 9. d4
Bb6 10. axb5 axb5 11. Ra3
0-0 12. Rxb5 Bg4 13. Bc2 h6
14. dxe5 Rxe5
15. Rbd4 d5
16. exd5 Dxd5
17. h3 Bh5 18.
g4 Rfxg4 19.
Rxe5 Rxe5 20.
Dxh5 Bxd4 21.
Df5 Rf3+ 22.
Kh1 Dxf5 23.
Bxf5 Bf6 24.
Ha7 c5 25. Be4
Re5 26. Hd1
Rc4 27. Bb7
Bg5 28. Bxg5
hxg5 29. b3
Re5 30. Hd5
Hfe8 31. Hxc5
He7 32. Hb5
Rd3
Staðan kom
upp á ofurmótinu sem lauk
fyrir skömmu í Cannes. Ves-
elin Topalov (2.739) hafði
hvítt gegn Alexender Mor-
ozevich (2.742). 33. Be4! og
svartur gafst upp. 4. umferð
Reykjavíkurmótsins hefst
kl. 17 í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. Áhorfendur eru vel-
komnir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Hugmynda- og tilfinningarík,
einkar viðkvæm og skilnings-
rík. Þetta verður besta ár þitt
í meira en áratug. Gerðu ráð
fyrir kraftaverki.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag færðu tækifæri til að láta
fjölskyldumeðlimi eða aðra í
nánasta umhverfi þínu gleðj-
ast. Það er tækifæri sem þú
skalt ekki láta þér renna úr
greipum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Drífðu þig út úr húsi og njóttu
líkamlegrar áreynslu með öðr-
um í dag. Þú býrð yfir heilmik-
illi orku og fjöri sem þarf að fá
útrás.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Hvort sem þú mætir til vinnu í
dag eður ei áttu möguleika á
að stórauka tekjur þínar.
Veittu slíkum tækifærum at-
hygli og ræddu hugmyndir
þínar við aðra.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú nýtur kumpánlegra sam-
skipta við vini þína í dag.
Leggðu það á þig að hafa sam-
band við fólk og eiga samvistir
við það, það veitir þér ánægju.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Heppilegur dagur til hvers
konar viðskiptaákvarðana.
Einkum og sér í lagi þar sem
þér er óvenju ljós markmið þín
og tilgangur um þessar mund-
ir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það sem þú ákveður að gera í
dag munt þú leysa mjög vel úr
hendi. Leiftrandi bjartsýni þín
smitar aðra í kringum þig og
jákvæð orka þín kemur bæði
þér og þeim til góða.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Mjög heppilegur dagur til að
eiga við yfirvald og yfirboðara
því þeir eru opnir fyrir hug-
myndum þínum og tillögum í
dag. Lagaleg álitaefni leysast
ánægjulega.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú sýnir öðrum samstarfs-
vilja muntu koma ótrúlega
miklu í verk. Fólk býst við
miklu af sjálfu sér í dag, sama
hvað það tekur sér fyrir hend-
ur.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Sérhver hreyfing sem gerir
þig móðan mun borga sig í
dag. Þú munt bæta heilsuna
með því að leggja svolítið á þig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Upplagður dagur til að hafa
ofan af fyrir öðrum og gleðjast
með fólki á öllum aldri. Menn
vilja skemmta sér í dag.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Fólk er reiðubúið að rétta þér
hjálparhönd til að ljúka ein-
hverju verkefni heima fyrir.
Þiggðu alltaf hjálp þegar hún
stendur til boða, það stuðlar að
vellíðan en höfnun hefur önd-
verð áhrif.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Líkamsorka þín er tiltölulega
mikil og vellíðan til líkama og
sálar verður ríkjandi í dag. Þú
munt njóta hvers konar sam-
skipta við aðra.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
FÓLK Í FRÉTTUM