Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Stórsigur Njarðvíkinga á Keflvíkingum/C2 Viggó stýrir Haukum næstu þrjú árin/C1 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR  Hárinu haldið í skefjum/B1  Sorg er ekki sjúkdómur/B2  Örvhentir gera það gott/B3  . . .og þær ilma af dulúð og sól/B4  Allt önnur sýn/B6  Auðlesið efni/B8 Sérblöð í dag Á ANNAÐ hundrað íslenskra lög- reglumanna hafa á undanförnum vikum sótt námskeið hjá Lögreglu- skóla ríkisins til undirbúnings ör- yggisgæslu á vorfundi utanríkisráð- herra aðildarríkja NATO í Reykjavík 13.–15. maí nk. Nám- skeiðin fóru fram í febrúar og mars, annars vegar í mannfjöldastjórnun og hins vegar í öryggisgæslu, þar sem mönnum voru kennd atriði í gæslu fyrirmenna. Hvort námskeið stóð yfir í viku fyrir tiltekinn fjölda þátttakenda hverju sinni. Lögreglustjórar sendu menn á námskeiðin að frumkvæði ríkislög- reglustjóra og voru skilyrðin m.a. þau að þátttakendur væru vel á sig komnir líkamlega og á hentugum aldri. Ofangreind námskeið hafa ekki verið haldin með þessum hætti áður og þóttust takast vel þrátt fyrir nokkur meiðsli þátttakenda. Kennsl- una önnuðust menn frá lögregluskól- anum og úr sérsveit ríkislögreglu- stjóra. Misalvarleg meiðsli lögreglumannanna Að sögn Eiríks Hreins Helgason- ar yfirlögregluþjóns var um mjög líkamlega krefjandi námskeið að ræða, þótt ekki megi rekja meiðsli þátttakenda einvörðungu til þeirrar staðreyndar. Alls voru átta meiðsli skráð á meðan námskeiðin stóðu yf- ir, misalvarleg, allt frá því að menn jöfnuðu sig á nokkrum mínútum upp í útlimabrot. Eitt alvarlegasta tilvik- ið varðaði meiðsli á lögreglumanni sem braut bein í olnboga á örygg- isgæslunámskeiðinu eftir að hafa lent illa í öryggistaki. Annar varð fyrir því í upphitun á sama nám- skeiði að kálfavöðvi slitnaði. Að sögn Eiríks voru umrædd átta meiðsli einkum rakin til þess að menn mis- stigu sig, duttu í hálku og þess hátt- ar, en einn lögreglumaður hlaut meiðsli við að fá högg á óvarinn stað á líkamanum frá æfingafélaga. „Ég held að rétt sé að setjast yfir málin og kanna hvort meiðslin á námskeiðunum hafi verið of mikil eða alvarleg. Við höfum ekki mikinn samanburð enda hafa þessi nám- skeið ekki verið haldin áður. Það er ekki gott að segja til um hvað olli þessum meiðslum, hvort mönnum hafi hlaupið kapp í kinn eða hvort aðrar ástæður liggi að baki. Það ligg- ur þó fyrir að almennt hlutu menn ekki meiðsli sín af því að lenda í hörku átökum á námskeiðunum. En engu að síður finnst mér rétt að ganga úr skugga um hvers vegna svona fór,“ segir Eiríkur. Tildrög einna meiðslanna voru rakin til þess að lögreglumanni var falið að leika „óeirðasegg“ með því að hlaupa á varnarlínu sem félagar hans mynduðu með lögregluskjöld- um. Þegar óeirðaseggurinn lenti á varnarlínunni kom hann illa niður á jörðina og mun hafa lent á steinvölu, svo liðband í fæti varð fyrir hnjaski. Fundurinn er stærsta alþjóðaráð- stefna sem haldin hefur verið á Ís- landi en alls er búist við um eitt þús- und þátttakendum auk fjölda blaða- og fréttamanna. Þetta verður í þriðja sinn sem utanríkisráðherrafundur NATO er haldinn hérlendis en vor- fundirnir eru ávallt haldnir í ein- hverju aðildarríkjanna. Áætlaður kostnaður Íslands vegna fundar- haldanna er um 200 milljónir. Átta skráð meiðsli á krefjandi námskeiðum lögreglumanna vegna NATO-fundar í Reykjavík Grafist verður fyrir um orsak- ir meiðsla lögreglumannanna LÚÐVÍK Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar á Suðurlandi, mun leiða framboð Vestmannaeyja- listans í bæjar- stjórnarkosning- unum í vor. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Bæjarmálafélags Vestmannaeyja- listans í gær- kvöldi, sem sam- þykkti V-listann einum rómi. Í viðtali við flokksblað sem dreift var í öll hús í Vestmannaeyjum í gærkvöldi segir Lúðvík, spurður um ástæður þess að hann bauð sig fram, að hann hafi miklar áhyggjur af þróun mála í Eyj- um undanfarin ár. Fólki hafi fækkað og verð á fasteignum lækkað. Hann segir fjármál bæjarins í ólestri, bæj- arsjóður sé í sérstakri skoðun félagsmálaráðuneytisins og ekki sé sami baráttuandinn í Eyjum og áður. Lúðvík telur núverandi meirihluta sjálfstæðismanna í bæjarstjórn bera þarna alla ábyrgð og hann vilji leggja sitt lóð á vogarskálarnar til að snúa „þessari óheillaþróun“ við. Ætlar að vera áfram á þingi Lúðvík stefnir að því að halda áfram á Alþingi, þrátt fyrir framboð á V-listanum, og ætlar að „vera í framvarðasveit þegar kemur að næstu alþingiskosningum“. Hann segir að vel sé hægt að samræma starf í bæjarstjórn og þingsetu. Lúðvík Bergvinsson í bæjarmálin Leiðir framboð V-listans í Eyjum Lúðvík Bergvinsson Barn fann notaða fíkniefnasprautu BARN af leikskólanum Sæborgu við Starhaga fann notaða fíkni- efnasprautu á lóð leikskólans fyr- ir fáeinum dögum, án þess þó að stinga sig á nálinni við að taka hana upp. Atvikið varð þegar móðir barnsins var að sækja það í leikskólann. Þegar atvikið uppgötvaðist var sprautunni komið til Sorpu. Þetta er í fyrsta skipti sem sprauta finnst við leikskólann en nokkuð hefur kveðið að þessu vandamáli við aðra leikskóla. Þó hafa fundist hasspípur við Sæ- borg. Þetta hefur orðið til þess að starfsfólk leikskólans leggur æ meiri áherslu á að leita að fíkniefnatækjum á lóðinni, bæði á vorin og eins eftir helgarnar. Soffía Þorsteinsdóttir leik- skólastjóri segir að ekki sé hægt að horfa framhjá því að vöktun með þessum óæskilegu hlutum sé orðinn liður í starfi leikskól- ans. ALLAR lyftur í Skálafelli og Blá- fjöllum voru opnar í gær og nægur snjór í brautum að sögn starfs- manna. Á Hengilssvæðinu voru tvær lyftur í gangi frá kl. 16–21. Kolbrún Gunnarsdóttir, starfs- maður í Bláfjöllum, segir að sann- kallað „páskaveður“ hafi verið í fjöllunum í gær og allmargir skíða- menn á ferð um brekkurnar. Þeim fjölgaði enn síðdegis þegar vinnu- degi lauk og hefði enginn átt að vera svikinn af færinu. Í Skálafelli voru frekar fáir fyrri- hluta dags. Theodóra Geirsdóttir veitingasali sagðist varla geta sagt að það væri mikill snjór í fjallinu en nægur snjór í brautum. Morgunblaðið/RAX Páskaveður á skíðasvæðum Ákærður fyrir manndráp RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært Ásbjörn Leví Grétarsson fyrir manndráp á heimili sínu í Bakkaseli í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 27. október 2001. Ásbjörn Leví er ákærður fyrir að hafa ráðist að manni og orðið honum að bana með „mörgum hnífsstungum í brjóstkassa, bak og háls og auk þess skorið hann margsinnis með hnífi á háls, höfuð og líkama og slegið hann margsinnis með hafnarbolta- kylfu í höfuð og líkama“. Í frétt Morgunblaðsins af atburð- inum er haft eftir lögreglu að fórn- arlambið hafi verið borið út úr íbúð- inni og komið fyrir í nærliggjandi garði. Ásbjörn er einnig ákærður fyrir kynferðisbrot en hann er sakaður um að hafa haft í vörslum sínum 291 ljósmynd sem sýnir börn á kynferð- islegan og klámfenginn hátt. Málið verður þingfest í dag fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. NORÐURLJÓS hafa óskað eftir því við fjármálaráðherra að hann beiti sér fyrir því að lög verði samþykkt á Alþingi sem heimili íslenska ríkinu að ábyrgjast 15 ára skuldabréf að fjárhæð 8 milljarðar íslenskra króna fyrir Norðurljós. „Fjármuni þessa mun félagið nota með tvennum hætti, annars vegar til að endurskipuleggja fjárhag sinn, greiða upp eldri óhagstæð lán og hins vegar til að standa straum af kostnaði við þróun stafræns útvarps, sem er afar fjárfrek framkvæmd,“ segir í bréfi sem Sigurður G. Guð- jónsson, forstjóri Norðurljósa, hefur sent fjármálaráðherra. Í bréfinu segir Sigurður rík rök fyrir því að Norðurljósum verði veitt ríkisábyrgð. Í fyrsta lagi ábyrgist ríkið algjörlega rekstur Ríkisút- varpsins, sem eigi í fullri samkeppni við einkareknar útvarpsstöðvar. Eigendum viðtækja sé skylt að greiða Ríkisútvarpinu afnotagjald og stofnuninni sé jafnframt heimilt að afla sér tekna með auglýsingum og kostun. Þetta tvennt skekki sam- keppnisstöðu einkarekinna útvarps- fyrirtækja. Félagið reki fjölda út- varps- og sjónvarpsstöðva og hjá því starfi á þriðja hundrað manns. Norðurljós fara fram á 8 milljarða ríkisábyrgð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.