Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 39 ætti. Þetta júpt í ætt- t að Jónas safirði, er sta sjálfur raunar að ma en það ðurkennir kki að ég Ég reikna ð sanni að dum mín- rmest.“ egist hafa list: „Það egja, sem nars vegar áldin sem g sem eru g þá Bach g Mozart.“ innig hafa tónlist og taklega og Stravinskí, v. „Og síð- r þessum, tónskáld- lok 19. og ndi. Þessi tamikil en em höfðar nulífið óttir borg- ndum ríkt á að fjár- enningar- ein eyðsla ar- og ráð- stefnuhúsið muni skipta sköpum, ekki bara fyrir þróun menningarlífs- ins heldur einnig fyrir atvinnulífið í borginni á komandi árum. „Atvinnulífið í borgarsamfélaginu er að breytast mjög mikið,“ segir borgarstjóri, „og í borgarsamfélagi 21. aldarinnar mun menningarfram- leiðsla vega æ þyngra. Og ég held líka að ferðaþjónustan muni vega þyngra og hún mun sækja mikið til menningarinnar og þetta tvennt verður að fara saman.“ Ingibjörg Sólrún bendir á að nú séu menn að markaðssetja menning- artengda ferðaþjónustu heilmikið og þá verði menn einnig að hafa þá starfsemi og aðstöðu í borginni sem þessi þjónusta byggist á. „Ég held líka að öflugt menningarlíf skipti sköpum þegar fyrirtæki eru að velta fyrir sér hvar þau ætli að setja sig niður með starfsemi sína.“ Ingibjörg Sólrún kýs að líkja þessu verkefni við hafnarfram- kvæmdirnar í upphafi síðustu aldar: „Það var nauðsynlegt þá að opinber- ir aðilar einhentu sér í hafnarfram- kvæmdir og það var líka nauðsyn- legt að opinberir aðilar einhentu sér í virkjunarframkvæmdir um miðja síðustu öld til þess að renna styrkari stoðum undir atvinnulífið og ég held að það sé nauðsynlegt núna með sama hætti að fjárfesta í tónlistar- og ráðstefnuhúsi fyrir atvinnulíf framtíðarinnar.“ Borgarstjóri segir að miðborg Reykjavíkur eigi að vera miðstöð menningar- og mannlífs í borginni: „þar er Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, aðalsafn Borgarbóka- safnsins, þar eru gallerí, veitinga- hús, skemmtistaðir og svo bætist tónlistar- og ráðstefnuhús við og auðvitað vildi ég líka sjá Listahá- skólann í miðborginni. Þar verður því hin menningarlega deigla sem er svo mikilvæg fyrir borgarsamfélagið og eins hitt að gestir sem heimsækja okkur muni fari beint í miðborgina og upplifa bæði andblæ miðborgar- innar, gömlu Reykjavík og svo þessa nýju kraftmiklu Reykjavík.“ Miklar kröfur gerðar til salarins Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra, segir að með samkomulagi ríkis og borgar um byggingu tónlistarhúss sé miklum og tímabærum áfanga náð miðað við það langa ferli sem málið hefur verið í. „Ég setti þetta af stað 1996, og það hefur verið unnið skipulega að því að skilgreina bæði þarfirnar og finna lóðina. Nú er komið samkomulag um fjármögnunina sem lá reyndar fyrir áður en ég hætti sem ráðherra. Nú er verið að staðfesta samkomulagið, þannig að fyrir mig er þetta ákaflega stór dagur og spennandi að sjá þessa nýju vídd vera að skapast hér í borg- arlífinu og lífi allrar þjóðarinnar. Við erum hér að leggja grunn að því að Ísland verði samkeppnisfært að því er varðar flutning tónlistar. Kröf- urnar sem við gerum til tónlistarsal- arins eru svo strangar að hann verð- ur í fremstu röð í Evrópu og á heimsvísu þegar upp verður staðið, ef þessum kröfum verður fullnægt. Þetta snýst ekki bara um þessi mannvirki, heldur verða menn líka að líta á það hve miklar kröfur hafa verið gerðar á öllu hönnunarferlinu til þess að gæta hagsmuna þeirra sem eiga eftir að hlusta á tónlist og starfa í þessum sal.“ Stefán P. Eggertsson, formaður Samtaka um byggingu tónlistar- húss, segir daginn mikinn gleðidag sem lengi hafi verið beðið eftir. „Við í samtökunum lítum nú reyndar svo á að þegar ríkisstjórn og borgarráð samþykktu í janúar 1999 að beita sér fyrir byggingu tónlistarhúss og ráð- stefnumiðstöðvar, þá væru menn búnir að taka hina formlegu ákvörð- un. Með þessum samningi er þeim áfanga lokið og hægt að leggja í næsta skref. Það hefur verið hlut- verk samtakanna í þessi tuttugu ár til þessa dags, að halda hugmyndinni um tónlistarhús lifandi og nú verður það kannski okkar að fylgja því eftir að tónlistarhúsið verði eins og tón- listarmenn hafa séð það fyrir sér og aðstoða þá sem vinna að hönnun þess að skilgreina þarfir og vera vettvangur og samstarfaðili þeirra og tengiliður við tónlistarfólk og tón- listarlífið.“ Aðspurður hvort hann vilji spá um það hvenær fyrstu tón- arnir hljómi í tónlistarhúsinu segir Stefán vel geta spáð um það. „Eigum við ekki að segja að það geti orðið í árslok 2006 eða ársbyrjun 2007.“ Samkomulagið mun hvetja Sinfóníuhljómsveitina til dáða „Þetta er gríðarlega stór dagur og langþráður,“ segir Þorkell Helga- son, stjórnarformaður Sinfóníu- hljómsveitar Íslands. „Ég er búinn að fylgjast með þessu sem tónlistar- áhugamaður í áratugi, alveg frá því ég fyrst man eftir mér nánast, og auðvitað höfum við beðið eftir þessu húsi og þráð það. En nú verður ekki aftur snúið. Auðvitað kunna að verða einhver ljón á veginum, en þau verða ekki það stór að þau hindri framför- ina á neinn hátt. Þetta samkomulag mun hvetja Sinfóníuhljómsveit Ís- lands til dáða og eins og fram- kvæmdastjóri hljómsveitarinnar sagði á sviðinu hér áðan þarf að fara að æfa fyrir opnunartónleikana. Og þótt hann hafi ekki verið að tala um ákveðin verk, þá er það rétt að nú fara menn að æfa sig í huganum og gera enn betur, þannig að hljóm- sveitin verði með þeim bestu í heim- inum þegar að opnuninni kemur. Hún er þegar orðin mjög góð, en það má alltaf gera betur. “ Þorkell vill ekki spá fyrir um hve- nær hljómsveitin leikur sinn fyrsta tón í tónlistarhúsinu. „Svona lagað tekur allt sinn tíma og það er betra að tryggja það að það náist sem mest samstaða og að allir séu ánægðir með fyrirkomulag, fjármögnun og hönnun hússins þótt það kunni að kosta einhverjar tafir. Það verður ekki stórt mál, við erum búin að bíða eftir þessu húsi áratugum saman, og hvort það kemur árinu fyrr eða síðar héðan af skiptir varla máli. Ég vona bara að ég lifi það.“ Þröstur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, kveðst ákaflega glaður yfir því að samkomulagið skuli vera í höfn. „Það er ýmislegt sem breytist strax í okkar skipulagningu þegar þetta samkomulag liggur fyrir. Starf okk- ar er þannig að það þarf að skipu- leggja það mörg ár fram í tímann. Nú liggur það fyrir að við getum átt von á því að fara í nýtt hús árið 2006 eða 7, og þetta er það skammt undan að við hljótum að taka mið af því þegar við leggjum drög að skipu- lagningu þeirra ára að við viljum gera eitthvað sérstakt; – fá hingað sérstaka listamenn til að vera með okkur fyrsta árið í nýja húsinu. Við munum að sjálfsögðu ráðgast um það við okkar nýja heiðursstjórn- anda, Vladimir Ashkenazy, því hann hefur sjálfur mikinn áhuga á að taka þátt í þeirri skipulagningu. Það hefur verið beðið eftir tónlist- arhúsi í að minnsta kosti fjörutíu ár. Fyrir rúmlega ári fór ég út og talaði við Daniel Barenboim og bað hann að koma hingað til að stjórna eða leika. Hann spurði mig strax: Eruð þið enn þá í bíóinu? Ég sagði: já, því miður, og hann svaraði strax: nei, takk! Hljómsveitin hefur búið hér við mjög slæman aðbúnað ef svo má segja. Aðbúnaður hljómsveitarinar í kjallaranum, aðbúnaður okkar á skrifstofunni og hljómburðurinn í húsinu er langt fyrir neðan það sem er bjóðandi á 21. öld. Þess vegna er það svo ákaflega gleðilegt að menn skuli hafa drifið sig í þetta, loksins, loksins, loksins! “ Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Í samkomulagi ríkis og borgar er gert ráð fyrir að hönnun taki mið af því að tónlistarhúsið og ráðstefnu- miðstöðin muni rúma eftirfarandi: a) Sérhannaðan tónleikasal í háum gæðaflokki fyrir um 1.500 áheyrendur, þar af 200 fyrir aftan svið. Þau sæti verði einnig unnt að nýta fyrir kór og mun salurinn þá rúma 1.300 áheyrendur. b) Sérhannaðan sal til ráðstefnu- halds sem rúmi um 500 manns í „skólastofu-uppröðun“ en um 750 manns í „bíóuppröðun.“ Salnum verði unnt að skipta í tvo minni sali. c) Æfinga- og tónleikasal þar sem gert er ráð fyrir aðstöðu til æfinga fyrir stóra sinfóníuhljómsveit og kór, samtals um 240 manns. Salur- inn rúmi um 450 áheyrendur á kammertónleikum. Salurinn geti auk þess nýst til ráðstefnuhalds. d) Aðstöðu listamanna og skrif- stofur Sinfóníuhljómsveitar Íslands. e) Um 16 smærri funda- og ráð- stefnurými sem samanlagt taki um 400–500 manns í sæti. f) Þjónustu-, stoð- og tæknirými sem tilheyra tónlistarhúsi og ráð- stefnumiðstöð af þessari stærð. Reiknað er með að samanlögð stærð tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðv- ar verði um 15.000 m². urla Böðvarsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Tómas Ingi Olrich við undirritun samkomulagsins í Háskólabíói í gær. éð úr lofti. Tjörnin er fremst fyrir miðri mynd. Verðlaunahugmynd um ytra skipulag Tónlistar- og ráðstefnuhúss. arnorg@mbl.is og begga@mbl.is Morgunblaðið/Þorkell VIÐ undirritun samkomulags ríkis og borgar um byggingu tónlistarhúss, greindi Þröstur Ólafsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, jafnframt frá því, að Vladimir Ashkenazy hefði fallist á að gerast heiðursstjórnandi Sin- fóníuhljómsveitar Íslands. Um er að ræða fyrstu heiðursstjórn- andanafnbót sem hljómsveitin veitir og að sögn Þrastar Ólafs- sonar, framkvæmdastjóra hljómsveitarinnar, er það henni mikill heiður að Ashkenazy hafi samþykkt að taka þessu boði. Fyrir Sinfóníuhljómsveit Ís- lands þýðir þetta að hún verður tengdari Ashkenazy en áður og setur henni á herðar frekari skyldur um listræna landvinn- inga og skapandi túlkun. Vla- dimir Ashkenazy er án efa sá ís- lenski ríkisborgari sem hvað þekktastur er í heimi sígildrar tónlistar í dag. Ferill hans hefur verið mjög fjölbreyttur; fyrst lagði hann heiminn að fótum sér sem einn mesti píanóleikari okkar daga, en á síðari árum hefur hann lagt meiri áherslu á hljómsveitarstjórn, og hefur stjórnað mörgum fremstu hljómsveitum heims við góðan orðstír. Ashkenazy var einn helsti hvatamaður að stofnun Listahátíðar í Reykjavík og hef- ur komið þar fram oftar en nokkur annar listamaður. Hann var gerður að heiðursforseta hátíðarinnar árið 1982. Þröst- ur Ólafsson segir að unnið hafi verið að því í rúmt ár að veita Ashkenazy þessa heið- ursnafnbót. „Þessir tveir stóru atburðir dagsins tengjast ekki að öðru leyti en því, að þegar ljóst var að í hvort tveggja stefndi á svipuðum tíma, var unnið að því að hægt yrði að tilkynna um þetta á sama tíma og samkomulagið um tónlistar- húsið yrði undirritað. Fyrir hljómsveitina þýðir það að Ashkenazy gefur hljómsveit- inni sitt heiðursnafn að menn sem sjá að hann er okkar heið- ursstjórnandi munu líta hljóm- sveitina öðrum augum en áður. Ég lít þó sérstakaklega til þess að það sé hvatning fyrir hljóm- sveitina að vera tengd þessu nafni til þess að taka á og gera betur. En þótt þessir stóru at- burðir tengist ekki beint verð- ur ekki hjá því horft að nafn Ashkenazys hefur vegið þungt í umræðunni um byggingu tón- listarhúss. Frá því hann byrj- aði að móta Listahátíð hér hef- ur hann lagt inn orð, talað við ráðamenn og bent þeim á þörf- ina fyrir tónlistarhús. Í nánast hvert einasta skipti sem hann hefur komið hingað eða hitt ís- lenskan ráðamann hefur hann spurt um húsið. Og þegar svona maður spyr, þá spyrja menn sig auðvitað: af hverju ekki?“ Morgunblaðið/Þorkell „Fólk spyr: Hvað er þessi kall með prikið eiginlega að gera þarna?“ Vladimir Ashkenazy þakkar þann heiður sem honum er sýndur með nafnbót heiðurshljómsveitarstjóra. Ashkenazy heið- ursstjórnandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.