Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Við sæmum þig hér með æðstu beljurassaorðu Íslands fyrir frækilega björgun Búkollu. Kynning á skurðhjúkrun Lítil endurnýj- un í stéttinni Hjúkrunarfræðingará skurðstofuLandspítala – há- skólasjúkrahúss við Hring- braut standa fyrir opnu húsi í tengslum við kynn- ingu á skurðhjúkrun og átaksverkefni í mönnun deildanna hinn 19. apríl nk. Hjúkrunarfræðingum sem starfa á Landspítalanum við Hringbraut og útskrift- arnemum í hjúkrunarfræði við HÍ verður boðið að koma og kynna sér störf hjúkrunarfræðinga og skoða skurðstofurnar. Arn- fríður Gísladóttir hjúkrun- arfræðingur er í forsvari fyrir þetta verkefni hjúkr- unarfræðinganna og hún svaraði nokkrum spurn- ingum. – Hver er kveikjan að þessu verkefni? „Kveikjan er sú staðreynd að viðvarandi skortur hefur verið á skurðhjúkrunarfræðingum og stöndum við nú frammi fyrir því að lítil endurnýjun hefur átt sér stað í stéttinni og erfitt hefur reynst að fá hjúkrunarfræðinga til starfa á skurðstofum. Einnig er það áhyggjuefni að sífellt færri nemar innrita sig í nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands.“ – Hvað telur þú að valdi þessum skorti? „Hjúkrun á skurðstofu fer fram fyrir luktum dyrum og hefur því ekki verið eins sýnileg og hún er á legu- og þjónustudeildum. Skurð- hjúkrun er að mínu mati alls ekki nægilega vel kynnt á nematímabili og sem dæmi má nefna að nemar í hjúkrunarfræði við HÍ eru einung- is fjóra daga á skurðstofunum á öllu námstímabilinu sem er fjögur ár. Það hefur einnig verið algeng- ur misskilningur að skurðhjúkrun- arfræðingar vinni fyrst og fremst við að aðstoða lækna við aðgerðir og sinni aðeins að litlu leyti beinni hjúkrun og getur það haft þau áhrif að hjúkrunarfræðingar sækj- ast ekki eftir að starfa á skurð- stofu. Einnig hafa margir hjúkr- unarfræðingar haldið að nám í skurðhjúkrun sé sett sem skilyrði fyrir ráðningu á skurðstofu en svo er ekki. Þennan misskilning viljum við leiðrétta með því meðal annars að opna vinnustaðinn og vinna markvisst að kynningu á skurð- hjúkrun í þeim tilgangi að laða að nýja hjúkrunarfræðinga.“ – Hvernig lýsir þú starfinu í stuttu máli? „Það sem gerir skurðhjúkrun áhugaverða eru fjölbreytt og krefjandi viðfangsefni. Sjúklinga- hópurinn er frá nýburum upp í aldraða einstaklinga og sérgreinar innan skurðlækninga margar. Ör- ar breytingar og framfarir í tækni og vísindum hafa mikil áhrif á störf okkar, gera þau ögrandi og spenn- andi og krefjast símenntunar. Starfið byggist á teymisvinnu þar sem margar starfsstéttir vinna að sama markmiðinu. Markmið hjúkrunar á skurðstofu er að veita öllum sjúk- lingum árangursríka einstaklingshæfða hjúkrun í samræmi við gæðastaðla stofnunar- innar, tryggja öryggi þeirra og velferð á aðgerðarferlinu, koma í veg fyrir fylgikvilla og stuðla að já- kvæðum árangri aðgerðarinnar. Hjúkrunarfræðingar á skurðstofu nýta sér hjúkrunarferlið við skipu- lagningu, stjórnun og framkvæmd hjúkrunar til að mæta einstak- lingsmiðuðum þörfum sjúklings sem vegna tímabundins ástands síns er ekki fær um að nýta varn- arviðbrögð sín á meðan hann dvel- ur á skurðstofu. – Hvernig hefur greinin verið kynnt? „Í febrúar sl. var gerð könnun á skurðstofum Landspítala – há- skólasjúkrahúss með það að mark- miði að varpa ljósi á þá þætti sem hjúkrunarfræðingar á skurðstofu telja mikilvæga og hafa haft áhrif á val þeirra á vinnustað og stöðug- leika í starf. Niðurstöður könnun- arinnar voru nýttar í kynningu á skurðhjúkrun fyrir annars og þriðja árs nemendur í hjúkrunar- fræði á „opnu húsi“ á skurðstofum í Fossvogi. Þar var einnig dreift kynningarriti um skurðhjúkrun sem gefið var út af Landspítala – háskólasjúkrahúsi í mars sl. Nið- urstöður könnunarinnar hafa einnig verið birtar á heimasíðu Landspítalans. Hjúkrunarfræði- nemunum á öðru og þriðja ári hafa auk þess verið boðin sumarstörf á báðum deildunum þar sem þeir geta kynnst skurðhjúkrun betur og fengið að vera virkir þátttak- endur í þeirri mikilvægu hjúkrun sem þar fer fram. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er með kynn- ingarátak á hjúkrun og hefur feng- ið hinar ýmsu fagdeildir til að kynna störf sín á vefsíðu félagsins Hjúkrun.is og þar hefur verið sett inn sérstök kynning á skurðhjúkr- un.“ – Eitthvað um könnunina? „Hún var skrifleg og náði til hjúkrunarfræðinga með að minnsta kosti tveggja ára starfs- reynslu og sem voru í starfi á öllum skurðstof- um Landspítala – há- skólasjúkrahúss dagana 20.2. til 27.2. 2002. Af 54 sem spurðir voru svöruðu 42 eða 77%. Niðurstöður voru ýmsar, m.a. var leitt í ljós að meðalstarfsaldur þeirra á skurð- stofu er 17,5 ár og að 60% að- spurðra hafa unnið lengur en 15 ár við skurðhjúkrun. Margt fleira mætti nefna, en allir sem vilja geta kynnt sér efnið nánar á opnu húsi hjá okkur 19. apríl næstkomandi.“ Arnfríður Gísladóttir  Arnfríður Gísladóttir fæddist 1953, ólst upp á Akureyri. Út- skrifuð úr Hjúkrunarskóla Ís- lands 1975, sérnámi í hjúkrun lýtalækninga- og brunasjúklinga 1978, viðbótarnámi í skurð- hjúkrun 1996 og sérskipulögðu BS prófi frá HÍ 1999. Hefur starfað við hjúkrun á sjúkra- húsum á Akureyri, Reykjavík, Danmörku og Skotlandi. Er nú skurðhjúkrunarfræðingur á skurðstofu Landspítala – há- skólasjúkrahúss við Hringbraut. Maki er Páll Gíslason verkfræð- ingur og eiga þau börnin Her- vöru og Gísla. 60% starfað lengur en 15 ár í greininni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.