Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ spretta margra þjóðsagna. Sonja tók þessu tali létt og ekki hvarflaði að henni að leiðrétta slíkar sögusagnir. Hún var yfir það hafin á sama hátt og það var neðan við virðingu hennar að tala illa um fólk. Aldrei lagði hún illt til nokkurs manns og það versta sem ég heyrði hana segja um nokkrar mannverur var að nasistarnir hefðu verið bjánar. Nánir vinir hennar eru á sama máli hvað þetta varðar og ekki er óalgeng einkunn að lýsa henni sem einstaklega hjartahlýrri og vamm- lausri konu sem aðeins sá það góða í fólki. Mörgum kom hún til hjálpar á New York-árum sínum þegar hún sat í stjórn Thors Thors-sjóðsins. Sá sjóður styrkti gjarnan efnalitla náms- menn frá Íslandi og oftar en ekki kom Sonja þar að málum. Þá styrkti hún annan sjóð, Skandinavíska sjóðinn, árlega með veglegum hætti. Síðast en ekki síst hjálpaði hún vinum sínum og ættingjum í Wiesbaden í Þýskalandi á árunum eftir stríð. Með reglulegum hætti sendi Sonja bláfátæku fólki mat og peninga og víst er talið að manns- lífum hafi verið bjargað þar. Ævi Sonju er einstök. Hún var gjarnan á þeim slóðum sem heims- sagan gerðist. Vettvangur lífs hennar var miðja heimsins. Með bros á vör og geislandi persónutöfra bræddi hún hjörtu og sópaði að sér vinum sem margir hverjir bundu við hana tryggð ævilangt. Hjá mörgum er höggvið stórt skarð í vinahópinn en minningin um stórkostlega konu lifir. Mörgum verður eflaust hugsað til lagsins sem Sonja spilaði gjarnan í veislum sínum: „We’ll meet again, don’t know where, don’t know when…“ Og margir vilja trúa því að aðeins sé tímaspursmál hvenær Sonja veiti þeim aftur ráðgjöf í amstri lífsins og lyfti tilverunni á æðra plan með hnyttnum athugasemdum um allt milli himins og jarðar. Síðustu mán- uði velti hún gjarnan fyrir sér dauð- anum og hvað tæki við. Aðdáunarvert var að hlusta á hana tala um vænt- anlegt andlát sem sjálfsagðan hlut. Ótti var ekki til í hennar huga en ein- göngu forvitni um hið ókomna. Sonja hafði af því stærstar áhyggjur að hug- ur hennar myndi bila. Henni varð tíð- rætt um örlög Ástu systur sinnar sem í áratug var á hjúkrunarheimili án þess að þekkja sína nánustu. „Held- urðu að það sé að fara eins fyrir mér?“ spurði hún oft. Þegar hún var full- vissuð um að minni hennar, sérstak- lega frá fyrrihluta síðustu aldar, væri kristaltært og engar vísbendingar væri að merkja um heilabilun létti henni. Það mátti heyra á henni síðustu mánuðina að henni fannst vera tíma- bært að kveðja. Hún hafði allt frá unglingsaldri staðið á eigin fótum og verið sjálfri sér næg. Nú virtist komið að þeim tímapunkti að hún þyrfti dag- lega umönnun á hjúkrunarheimili og því fór fjarri að henni hugnaðist að hafa fólk stöðugt inni á gafli hjá sér. Eftir að hún dó læddist að sá grunur að hún hefði verið búin að ákveða innra með sér að veislunni væri lokið. Flestir gömlu vinanna voru horfnir og sjálf var hún orðin of veikburða til að lifa sjálfstæðu lífi. Óvænt slokknaði lífsljós Sonju og með sama glæsibrag og einkenndi líf hennar kvaddi hún þessa jarðvist. Hún slökkti ljósið og leið út úr þessu tilverustigi. Átakalaust sofnaði hún og tryggði það sem henni var alla tíð mikilvæg- ast. Hún var ekki upp á aðra komin. Heimskona er horfin og hún hefur væntanlega fengið þau svör sem leit- uðu á hana síðustu mánuðina. Ég votta eftirlifandi ættingjum hennar mína dýpstu samúð og efst í huga er þakklæti til Sonju fyrir þau forréttindi að hafa fengið að njóta visku hennar, trausts og vináttu. Reynir Traustason. Kær vinkona, Sonja W. Benjamíns- son de Zorilla, er fallin frá. Segja má að með Sonju ljúki ákveðnu tímabili – tímabili hefðarkvenna, eða svo- nefndra „Grand Ladies“. Sonja var sannkölluð heimskona, Grand Lady, örsmá og fíngerð, en ofurstór í huga og hjarta, með óborganlega kímni- gáfu og leiftrandi gáfur. Hún gat komið mér til þess að hlæja að nóttu sem degi – oftast var það þó að nóttu, því tímaskyn Sonju var aldrei upp á marga fiska þegar hún var að hafa símasamband við vini sína hér heima úr íbúð sinni við Park Avenue í New York. Það gerði hún einatt síðla kvölds í New York, sem þýddi auðvitað hánótt á Fróni. En aldrei komu slíkir smámunir að sök þegar símtal frá Sonju var annars vegar. Oftast hófst símtalið eitthvað á þessa leið, þegar Snja spurði með sinni flauelismjúku, djúpu röddu, þar sem dillandi hláturinn var alltaf skammt undan: My little one. Did I wake you up? Og þegar hún heyrði svefndrukkð svarið sagði hún bara: Hvað er klukkan eiginlega heima? Þessi inngangur nægði til þess að ég var glaðvöknuð og klár í að minnsta kosti hálftíma Sonjuspjall – það var algjört lágmark. Eftir gott samtal, sem einatt leiftraði af hinum sérstaka Sonju-húmor, fór ég einfaldlega aftur að sofa, léttari í lund. Það voru sameiginlegir vinir okkar Sonju, þau Marshall og Pamela Brement, sem kynntu okkur þegar ég var við framhaldsnám í Bandaríkjun- um upp úr miðjum níunda áratugn- um. Þrátt fyrir þrjátíu og sex ára ald- ursmun (Sonja var jafnaldra móður minnar) urðum við ótrúlega góðar vinkonur strax á okkar fyrsta fundi, í Newport á Rhode Island í Bandaríkj- unum, og náðum saman á einhvern þann hátt sem mér er erfitt að lýsa. Það var eiginlega eins og við hefðum alltaf þekkst og aldursmunur skipti engu máli. Allar götur síðan, í rúm- lega einn og hálfan áratug, höfum við haft skemmtilegt og afar sérstakt samband okkar á milli. Hún bauð mér gjarnan að gista hjá sér í New York ef ég átti leið um heimsborgina og þær heimsóknir verða mér ætíð hjart- fólgnar í minningunni. Þeir sem þekktu Sonju vita að hún fór ávallt sínar eigin leiðir og þær voru ekki troðnar slóðirnar sem hún fetaði. Þegar ég kom til hennar í fyrsta sinn á Park Avenue hafði hún sent limósínu eftir mér út á flugvöll. Mér varð eiginlega um og ó þegar ein- kennisklæddur dyravörðurinn í hús- inu hennar tók á móti mér, leiddi mig að lyftunni, hringdi upp til Madame Sonju de Zorilla og sagði henni að gestur hennar væri á leiðinni upp. En um-ið mitt og ó-ið var fljótt að hverfa þegar við vorum sestar í eldhúsið, búnar að fá okkur te og Sonja hóf inn- leiðingu lífsreglnanna fyrir gest sinn. Hún sagði einfaldlega eitthvað á þessa leið: Litla mín. Þú ert nú svo kjút og bóhem eins og ég. Því treysti ég mér til þess að hafa þig hjá mér þegar þú kemur hingað. Það eru fáar húsreglur, en þú verður að virða þær. Þú mátt ekki kveikja ljósið í íbúðinni á morgnana fyrr en ég er sjálf búin að kveikja. Þú mátt ekki vera með há- vaða eftir að ég er farin að sofa og þú mátt ekki koma með neina gesti hing- að. Það var lítið mál að fara að hús- reglum Sonju, því ég hafði frammi mitt eigið herbergi með baðherbergi og þurfti ekki að ónáða hana, auk þess varð égþess aldrei vör að hún færi að sofa, því ég var alltaf komin í háttinn löngu á undan fjármálaspekúlantin- um Sonju, en þegar hún hafði tíma og nennu var auðvitað langskemmtileg- ast að fá að vera í hennar félagsskap, sitja og spjalla við hana, hlusta á hana rifja upp hreint ótrúlega viðburða- ríkt, litríkt og ævintýralegt lífshlaup; fræðast um það hversu stórkostlegur tangódansari Alberto hafði verið; fá sögu ýmissa listaverka í íbúðinni, sem voru óheyrilega mörg, uppi um alla veggi og jafnvel í stöflum meðfram ákveðnum veggjum; heyra sögur af ferðalögum Sonju um allan heim; fræðast um vináttu hennar við Onass- is og fleiri stórbokka; skoða gamlar myndir af glæsidísinni Sonju með fræga fólkinu; heyra hana hallmæla Norðmönnum, sem henni þótti fyrir einhverjar sakir óheyrilega „púkó“; hlusta á hana bregða fyrir sig frönsk- unni og dönskunni í bland við ís-ensk- una, sem var einstök hjá henni. Dæmi: My, little one, how is your love life these days?! Eru engir kjút karlar eftir heima á Íslandi? Æ, þeir voru nú kannski aldrei neitt svo kjút. Þeir eru annars voða kjút – voða sætir, er það ekki, ritstjórarnir þínir? (Hér átti Sonja að sjálfsögðu við þá Matthías Johannessen og Styrmi Gunnarsson. Það gerist ekki á hverj- um degi að blaðamaður á Morgun- blaðinu heyri talað um virðulega rit- stjóra blaðsins með þessum hætti, svo mikið er víst!) Þegar þessi gállinn var á Sonju hafði ég hægt um mig og hafði alls engar meiningar um fegurð og kynþokka þeirra karla sem hún vildi fá álit mitt á. En Sonja var ekki alltaf eins og gáskafullur stelpugopi. Hún var einn- ig þjóðfélagsrýnir og fróðleiksfús með afbrigðum. Þótt hún hefði alla þessa áratugi búið fjarri Íslandi fylgdist hún ótrúlega vel með gangi mála hér heima. Hún spurði mig oft grannt út í pólitíkina á Íslandi og ekki síður út í þróun efnahags- og atvinnu- mála. Það var kapítuli út af fyrir sig að fara út að borða með Sonju, hvort sem var hér heima eða í New York. The Grand Lady naut þess að vera gest- gjafi og var hún sannarlega stórbrot- in og rausnarleg í því hlutverki. Hótel Holt var hennar veitingastaður hér heima. Hún var alltaf ánægð þar, enda fékk hún ávallt það sem ég kall- aði konunglega þjónustu. Hún sagði bara: Litla mín. Þeir eru svona við alla hérna á Holtinu. Þetta var hóg- værðin hennar Sonju, því auðvitað voru þeir ekki svona við alla. Sonja var líka eins og heima hjá sér á Holt- inu. Keypti þar reyktan lax og grafinn til þess að taka með sér aftur til New York – sérvalda bita, sem hún og þjónarnir meðhöndluðu og grand- skoðuðu eins og um gersemar væri að ræða. Ég man ekki til þess að hafa nokkurn tíma borðað með henni ann- ars staðar en þar, hér heima, utan einu sinni þegar við snæddum í Skíða- skálanum í Hveradölum eftir að hafa skroppið í bíltúr austur í Ölfus, þar sem verið var að reisa húsið hennar á Núpum. Jú, svo var það einu sinni fyr- ir margt löngu þegar Pamela vinkona okkar kom í heimsókn til Íslands og við Pamela fórum í tíu daga hestaferð yfir hálendið, sem Sonja ákvað að halda okkur Pamelu kvöldverðarhóf á Hótel Valhöll á Þingvöllum þegar við komum aftur heim úr hestaferðinni. Þegar þetta var, haustið 1988, átti Sonja ennþá sumarbústaðinn sinn niðri við Þingvallavatn, en þangað fórum við að loknum kvöldverðinum. Þetta kvöld varð eitt af þessum ógleymanlegu kvöldum, þar sem hlátrasköllin ómuðu út í haustfeg- urðina á Þingvöllum og þess á milli skiptust þær Sonja og Pamela á um að heilla gesti með hnyttnum skemmtisögum og skondnum tilsvör- um. Í New York höfðum við annan hátt á þegar Sonja bauð mér út að borða. Þá var alltaf farið í dinner, en hér heima var það frekar lunch, eins og Sonja orðaði það alltaf. Í New York fannst Sonju það vera „púkalegt" að tvær konur (two ladies) færu saman í kvöldverð, sem hjá Sonju hét alltaf „dinner“, og því bauð hún gjarnan vinum sínum til að fylgja okkur og vera borðherrar. Þvílík heimskona! Allar götur frá því ég kynntist Sonju reyndi ég að fá hana til þess að kynn- ast börnunum mínum, Sunnu og Sindra. Þau langaði alltaf til þess að fá að hitta þessa konu sem mömmu þeirra fannst svo skemmtileg og sagði þeim svo margar sögur af. Ósk um fund okkar fjögurra setti ég fram, bæði okkar vegna og hennar. Hún sagði alltaf eitthvað í þessa veru: Litla mín. Ég er svo lítið fyrir börn, eins og þú veist. Ég er viss um að börnin þín eru ágæt – þú hlýtur að eiga fín börn. En ég vil að þau nái fullorðinsaldri áð- ur en ég nenni að hitta þau. Ég sagði henni alltaf að hún færi mikils á mis og þau líka. Þau kynntust henni að vísu allnokkuð í gegnum frásagnir mínar og af símasamtölum við hana þegar ég var ekki heima og langaði alltaf mikið til þess að hitta hana, þótt þau hafi bæði verið sár, þegar þau voru yngri, yfir því að mamma þeirra ætti vinkonu sem vildi ekki hitta þau. Nú í janúarbyrjun var það komið á dagskrá hjá okkur að hittast. Sonja var búin að samþykkja að hitta okkur öll og þóttist raunar talsvert spennt fyrir því, laust eftir áramót, þótt ég vissi auðvitað innst inni að þetta voru dæmigerð ólíkindalæti í Sonju, því hún var hætt að fara út og hitta fólk þegar þetta var. Sennilega hefur það bara kveikt í hinni síungu Sonju þeg- ar ég gaf henni skýrslu um skíðaferð okkar þremenninganna til Ítalíu um jól og áramót. Nokkrum dögum áður hafði Sonja hitt á Sindra þegar hún hringdi og ég var að vinna. Næst þeg- ar hún talaði við mig sagði hún: En hvað hann sonur þinn er með elsku- lega framkomu og svo hljómaði hann bara eins og fullorðinn karlmaður þegar ég talaði við hann í síma. Þá settum við Sonja það á dagskrá að hittast brátt öll í hádegisverði. Það verður ekki í þessu lífi. En minningin um stórbrotna konu, kæra vinkonu, heimskonu, mun ylja okkur um ókomna tíð. Agnes Bragadóttir. Það var gaman að þekkja Sonju de Zorilla. Hún varð ógleymanleg öllum sem kynntust henni, gullfalleg kona, með þykkt slegið hár niður á herðar, ætíð búin glæsilegum tískufatnaði meðan hún ræktaði samkvæmislífið, röddin djúp og seiðandi og hljómaði eins og örlaði á niðurbældum hlátri. Hún var heimskona í orðsins fyllstu merkingu, hafði ferðast um í glæsisöl- um og umgengist efnaðasta fólk ver- aldar þar sem hún bjó í New York. Hún var skarpgreind og athugul, gerði skondnar athugasemdir við ólíklegustu tækifæri en var jafnframt umtalsfróm svo af bar. Félli henni ekki við einhvern var bara ekkert á þann minnst. Hún vissi allt um Dow Jones og Nasdaq á verðbréfamark- aðinum í New York og skemmti sér við að leika á þann markað eins og hvert annað hljóðfæri. Henni var ekki gefið um kennitölukerfið á Íslandi. Fannst það hnýsið og ekki beinlínis til framdráttar unglegum eldri dömum. Við Sonja eignuðumst einlæga gagnkvæma vináttu fyrir dálæti okk- ar beggja á íslenskri náttúru og ís- lenskri tungu. Fyrir aldarfjórðungi fór hugur hennar að leita meir og meir til Íslands, hún festi sér eignir hér, íbúð og sumarhús, og kom eins oft og kostur var. Eftir að maður hennar féll frá á 9. áratugnum, en hann var Alfredo de Zorilla, glæsileg- ur ólympíumethafi og óviðjafnanleg- ur tangódansari frá Argentínu, urðu komur hennar enn tíðari heim til ættjarðarinnar og að lokum flutti hún alkomin heim fyrir nokkrum ár- um. Þá ákvörðun hefði hún sennilega aldrei tekið hefði hún ekki fundið „týnda soninn“ og komist í síðbúin kynni við ungan frænda sinn, Guð- mund Birgisson, „Gumma frænda“, sem eftir að þau kynntust reyndist henni sem besti sonur og veitti henni það öryggi og umhyggju sem öllum er kærkomið á öllum aldri. Við deildum saman stað í fallegri vík á Þingvöllum, Sonja de Zorilla og ég. Þar sat hún við gluggann löngum stundum og horfði út á vatnið, á blæ- brigðin í dansandi litadýrðinni eða á úfna skugga þegar vatnið tók að bylgjast í eftirmiðdagsgjólunni. Ég hafði það oft á tilfinningunni að hún væri í huganum að mála vatnið og umhverfi þess, en hún var í listmál- aranámi í París fyrir margt löngu og var einatt að hugsa um myndlist. Við ókum oft saman austur og þá var það í löngu spjalli svo iðulega ljóst hvernig hún fléttaði saman hughrifin af land- inu og íslenzka tungu. En það bar líka margt annað á góma sem flotið hafði á fjörur okkar í lífinu. Þess vegna kann ég margar skemmtilegar sögur af Sonju Benjamínsson de Zorilla. Mér finnst lífið litlausara að henni genginni. Hún var afar litríkur og skemmtilegur persónuleiki sem ég minnist með mikilli hlýju. Vigdís Finnbogadóttir. Sonja Wendel var alveg sérstakur persónuleiki, engin hversdagsmann- eskja. Hún var það sem kallað er heims- kona í orðsins bestu merkingu. Hún var glæsileg í útliti, andlitsfríð með fallegt hár og hafði aðlaðandi og frjálslega framkomu, með fallega og hljómþýða rödd, t.d. hljómuðu öll er- lend mál sem hún talaði einstaklega vel í hennar munni og framburður fal- legur á þeim mörgu málum sem hún talaði. Sonja hafði farið víða og menntast í mörgum löndum og var skemmtilegum gáfum gædd, ritfær mjög og hafði skemmtilegan stíl. Listasmekkur Sonju var ótrúlega öruggur, hún lagði fyrir sig nám í málaralist um tíma og hafði á því sviði mikla hæfileika, sem hún því miður notaði aldrei sem skyldi. Hún átti í fórum sínum töluvert safn mynda og málverka sem hún hafði málað á ár- um áður, sérstaklega báru andlits- myndir (portrett) hennar vott um hæfileika hennar. Sonja og maður hennar, Alberto, höfðu bæði næmt og listrænt auga fyrir alls konar list og bar fallegt heimili þeirra á 580 Park Avenue í New York þess glöggt merki. Söfnuðu þau smám saman fjölda listaverka, aðallega málverkum en líka skúlptúrum, og áttu þau orðið merkilegt safn, m.a. Picasso, Roy Lichtenstein o.fl. Á seinni árum eign- aðist Sonja líka verk íslenskra lista- manna og voru þau hjón mjög sam- hent í söfnun listaverka. Alberto Zorilla, maður Sonju, var frá Argent- ínu og hafði unnið til gullverðlauna fyrir sund á ólympíuleikum fyrir all- löngu. Alberto var einstaklega ljúfur maður með mikið og gott skopskyn. Sonja sagði einu sinni um Alberto að hann væri einn allra besti tangódans- ari og unun var að sjá hann dansa enda argentínskur, frá landi tangó- sins. Í síðasta skipti sem ég hitti Al- berto steig hann fyrir okkur tangó- spor og ég reyndi að fylgja honum eftir án árangurs. Þetta var á Flórída á Key Largo. Ég minnist þess um leið að eitt sinn fórum við Sonja á tangó- tónleika Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Var þar kominn argentínskur hljómsveitarstjóri og var efnisskráin byggð á tangó. Alberto lést árið 1986 og voru síð- ustu árin hans honum erfið því miður þar sem hann þjáðist af sjóndepru. Það er af mörgu að taka ef lýsa ætti ævi Sonju að einhverju gagni en hér er aðeins stiklað á stóru. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því við hitt- umst fyrst í New York í lok síðustu heimsstyrjaldar þar sem ég vann á skrifstofu aðalræðismanns Íslands, sem þá var dr. Helgi P. Briem. Sonja hafði þá komið fyrir nokkru frá Evr- ópu til New York þar sem hún síðan bjó mestalla sína ævi. Seinna meir þegar ég fór að koma oft til New York með manni mínum, Hans G. Ander- sen, þá oftast á þing Sameinuðu þjóð- anna, en þangað átti hann oft erindi vegna baráttunnar í landhelgismálum Íslendinga, fórum við Sonja að hittast oftar og kynnast betur. Það var svo 1986 að við hjónin fluttumst til Wash- ington DC þar sem Hans tók við sendiherraembætti. Varð sú dvöl löng og oft lá leiðin til New York og nutum við þá gestrisni Sonju. Hún hafði mikla ánægju af að bjóða fólki út á góða veitingastaði og áttum við þar margar ánægjustundir, þá oft í há- degismat á einhverjum af uppáhalds- stöðum Sonju eins og t.d. Côte Basq- ue eða Le Cirque, svo eitthvað sé nefnt. Sonja átti skemmtilega íbúð í Quoque nálægt East Hampton. Þá íbúð seldi hún er hún ákvað að kaupa sér vetrardvalarstað í Flórída, þ.e. „Key Largo Ocean Reef Club“. Þar dvaldi svo Sonja um sex mánuði á ári hverju. Þetta var dásamlegur staður og dvöldum við hjónin þar oftar en einu sinni. Þetta voru tvær notalegar íbúðir og bauð hún mörgum vina sinna að dveljast þar hjá sér. Seinna eignaðist Sonja yndislegan sumarbú- stað við Þingvallavatn sem hún átti í mörg ár eða þangað til hún hóf bygg- ingu á miklu og fallegu húsi á Núpum í Ölfusi. Um tíma stundaði Sonja lax- veiðar, þá oftast í Laxá í Kjós en einn- ig í Hoffjarðará og fór ég með henni tvær slíkar veiði- og skemmtiferðir og fékk mína fyrstu laxa þá þótt ekki væri ég mikill veiðimaður. Sonja var tryggur vinur, gleymdi aldrei vinum sínum og hafði gott sam- band, sérstaklega í síma, við fjölda fólks. Það verða margir sem minnast Sonju í dag, þessarar einstöku og eft- irminnilegu konu sem engum var lík. Sjálf á ég ótæmandi minningar um vináttu okkar og samfundi á liðinni tíð. Ég vil svo að lokum votta mági Sonju, Grosvinar Murrey, manni Ástu systur hennar, sem lést sl. vetur, og börnum þeirra, Ólafi og Margréti, mína dýpstu samúð. Einnig Einari, frænda Sonju, og Guðmundi Birgis- syni á Núpum sem var henni stoð og stytta síðustu árin eftir að hún fluttist alkomin til Íslands. Guð blessi minningu Sonju og Al- berto Zorilla. Ástríður H. Andersen.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.