Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 31 Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir: Sumarnámskeiðin 2002 í Húsabakkaskóla í Svarfaðardal. Fyrra tímabil 5.-13. júní: Laus pláss eru á eftirtalið námskeið: Leikarinn sem skapandi listamaður, kennari Rúnar Guðbrandsson. Seinna tímabil 18.-23. júní: Laus pláss eru á eftirtalin námskeið: Leikritun, kennari Karl Ágúst Úlfsson. Lýsing í leikhúsi, kennari Árni Jón Baldvinsson. Leikhúsförðun, kennari Gréta Boða. Nánari upplýsingar á vefslóðinni www.leiklist.is og hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga, Laugavegi 96, 101 Reykjavík, sími 551 6974, netfang: info@leiklist.is . Skráningarfrestur er til 15. apríl 2002. KATE Winslet og Judi Dench fara með hlutverk Írisar í samnefndri kvikmynd í leikstjórn Bretans Richard Eyre. Myndin er byggð á ævi breska rithöfundarins Iris Murdoch sem á efri árum þjáðist af Alzheimer-sjúkdómnum. Iris Murdoch naut heimsfrægðar sem rithöfundur enda þótti hún miklum gáfum gædd, en færri vissu um sjálfa persónuna, sem sótti jafnt til karla og kvenna í ástarmálum. Eiginmaður hennar til 43 ára var óframfærinn hæglætismaður að nafni John Bayley, sem fylgdi henni í blíðu og stríðu þar til yfir lauk árið 1999. Murdoch veiktist af sjúkdómi sínum árið 1995 sem dró hana svo til dauða fjórum árum síðar og var á þeim tímapunkti allt gleymt í huga hennar ef undan er skilið nafn eiginmannsins, sem gætti hennar allt fram á síðasta dag. Þeir Jim Broadbent og Hugh Bonneville fara með hlutverk eig- inmannsins og fékk sá fyrrnefndi Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Myndin fjallar ekki síst um afar sérstaka ástarsögu milli rithöfundarins Irisar og eigin- mannsins sem hófst á námsárum þeirra í Oxford og lauk ekki fyrr en með dauða Irisar rúmum 40 ár- um síðar. Kvikmyndahandritið skrifuðu þeir Charles Wood og leikstjórinn Richard Eyre upp úr minningabrotum, sem John Bayley skrifaði um konu sína Irisi, en framleiðendur myndarinnar eru Robert Fox og Scott Rudin. Rihöfundurinn og heimspeking- urinn Iris Murdoch fæddist í Dubl- in árið 1919 og hlaut menntun sína í skólum í Englandi. Á meðan seinni heimsstyrjöldin gekk yfir, vann hún í þjónustu hins opinbera og var við nám og kennslu í Oxford frá 1948 til 1963. Fyrsta skáldsaga Irisar, Under The Net, kom út þegar hún var 35 ára gömul. Tveimur árum síðar giftist hún John Bayley, háskólakennara sem hún hafði þekkt í þrjú ár, sem varð síðan mjög virtur bókmennta- gagnrýnandi. Eftir Irisi liggja 25 skáldsögur. Þekktastar eru: The Bell, A Severed Head, The Nice and The Good, The Italian Girl, The Black Prince, The Unicorn, The Sea The Sea, A Word Child og The Philosopher’s Pupil. Bækur hennar fjalla oftar en ekki um lögreglusögur með sál- fræðilegum undirtón og draga fram flókin og margbrotin kynferð- issambönd. Hún átti auðvelt með að flétta saman gamni og alvöru þar sem ráðabruggin einkennast af ógnvekjandi atburðum með kóm- ískum augnablikum í bland. Leikarar: Judi Dench (Mrs. Brown, Chocolat, Shakespeare In Love); Kate Winslet (Titanic, Enigma, Quills, Holy Smoke); Jim Broadbent (The Borrow- ers, Bridget Jones’s Diary, Moulin Rouge); Hugh Bonneville (My Napo- leon, High Heels and Low Lifes, Nott- ing Hill); Penelope Wilton (The French Lieutenant’s Woman, Cry Freedom, King Lear) Leikstjóri: Rich- ard Eyre. Ljúfsár ástarsaga Sambíóin frumsýna Iris með Judi Dench, Kate Winslet, Jim Broadbent, Hugh Bonneville og Penelope Wilton. Reuters Breska leikkonan Dame Judi Dench í kvikmyndinni Iris. FINNSKI kvikmyndagerðarmaður- inn Seppo Renvall sýnir verk sitt Film 1999 við lifandi tónlist í Nýlista- safninu, Vatnsstíg 3b (bakhúsi), í kvöld kl. 20. Gestum er boðið að sýna stutt myndbandsverk og geta lagt þau fram í VHS eða DVD. Að auki verða sýnd verk eftir finnsku listamennina Markus Renv- all, Alli Savolainen, Gun Holström, Mi Duncker og Sino Hianen. Rafræn tónlist og plötusnúðar: Darri Lor- enzen, dj Musician. Aðgangur er ókeypis. Finnskt kvöld í Nýló NÚ stendur yfir sýning á vatnslita- myndum Sigurbjörns Eldons Loga- sonar í Eden í Hveragerði. Þetta er 12. einkasýning Sigurbjörns og stendur hún til 22. apríl. Vatnslita- myndir í Eden
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.