Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 25
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 25 Stýrimannaskólinn í Reykjavík Kynningardagur Stýrimannaskólans laugardaginn 13. apríl 2002 frá kl. 13.00–16.30 „Siglingar og sjósókn eru nauðsyn og undirstaða þjóðarbúsins“ Dagskrá: Kl. 13.00. Húsið opnað. Starfsemi skólans, ásamt tækjum og kennslugögnum, kynnt. Fyrirtæki og stofnanir í þágu sjávarútvegs og siglinga kynna starfsemi sína og þjónustu. Kl. 14.00 Björgunarþyrla Landhelgisgæslunnar kemur á svæðið ef veður leyfir. Dagskrá í hátíðarsal Sjómannaskólans. Ávörp, Þingeyingakórinn syngur, Jazzhljómsveit leikur, framlag úr björgunarsjóði Stýrimannaskólans - þyrlusjóði afhent þyrlusveit Landhelgisgæslunnar. Kl. 15.00. Nemendur reyna með sér í „vírasplæsingum“. Kvenfélögin Hrönn og Keðjan verða allan daginn með kaffiveitingar og frábærar kökur og tertur í matsal Sjómannaskólans. Allir velkomnir STÝRIMANNASKÓLINN Í REYKJAVÍK. VIÐSKIPTARÁÐHERRA Japans, Takeo Hiranuma, hótaði því í gær að Japanir grípu til hefndaraðgerða gegn tollum sem Bandaríkjamenn setja á stál, ef ekki yrði orðið við kröfum um bætur. Kom þetta fram eftir fund ráðherrans með viðskipta- fulltrúa Bandaríkjanna, Robert Zoellick, í Tókýó í gær. Hiranuma krafðist þess að Banda- ríkjamenn bættu Japönum upp tap- aðar útflutningstekjur af stáli til Bandaríkjanna, t.d. með því að lækka tolla á japanskar myndbands- tökuvélar, úr og aðrar vörur. „Ef ekki verður brugðist jákvætt við verðum við að búa okkur undir að grípa til gagnaðgerða,“ sagði Hir- anuma við Zoellnick. Þær aðgerðir gætu m.a. falist í hækkun tolla á bandarískar vörur sem Japanir flytja inn. Í byrjun mars tilkynnti George W. Bush Bandaríkjaforseti að ætlunin væri að setja átta til þrjátíu prósenta tolla á stál sem flutt væri inn frá löndum öðrum en Kanada og Mexíkó, sem eru í fríverslunarsam- bandi við Bandaríkin. Þegar stáltoll- arnir voru settir á 20. mars varð uppi fótur og fit víðs vegar í heiminum og sex aðildarríki Heimsviðskiptastofn- unarinnar (WTO) lögðu fram form- lega kæru hjá stofnuninni. Zoellnick gaf Hiranuma ekki af- dráttarlaust svar á fundinum í Tókýó í gær, en varaði við því að gripið yrði til hefndaraðgerða. Það væri ekki rétt að eitthvert eitt ríki gripi til ein- hliða aðgerða, án samráðs við WTO. Slíkt myndi koma illa niður á stofn- uninni til lengri tíma litið. Japanir hóta hefnd- um vegna stáltolla Tókýó. AFP. 10,4 milljónir barna víða um heim voru munaðarlausar í fyrra vegna alnæmisfaraldursins en talan gæti tvöfaldast fyrir árið 2010, að sögn Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna, UNICEF. Allt að 2,3 milljónir manna undir 15 ára aldri misstu annaðhvort móður sína eða báða foreldra árið 2000, að því er fram kemur í ný- legri skýrslu frá UNICEF. Þorri barnanna er í Afríku sunnan Sah- ara. Í lok ársins 1999 voru 970.000 börn munaðarlaus vegna alnæmis- faraldursins í Nígeríu, 900.000 í Eþíópíu og 623.000 í Zimbabve. Alþjóðaheilbrigðismálastofnun- in, WHO, áætlar að meira en 40 milljónir manna séu með alnæm- isveiruna og mikill meirihluti þeirra býr í Afríku sunnan Sahara. Fimm milljónir manna fengu sjúk- dóminn í fyrra og þrjár milljónir al- næmissjúklinga dóu. Stjórnvöld í Kína áætla að 850.000 Kínverja hafi fengið al- næmisveiruna fyrir lok síðasta árs. Fyrir ári var áætlað að 600.000 Kínverjar væru með veiruna. Þetta þýðir þó ekki að 250.000 Kínverjar hafi fengið veiruna í fyrra því líklegra er að með nýja matinu séu kínversk stjórnvöld að fikra sig nær mati sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna, sem telja að allt að 1,5 milljónir Kínverja hafi smitast af alnæmisveirunni. Að sögn kínversku fréttastof- unnar Xinhua er áætlað að meira en 100.000 Kínverjar hafi dáið af völdum alnæmis. Ný skýrsla um alnæmisfaraldurinn í heiminum Meira en 10 milljónir barna munaðarlausar Genf, Paking. AFP. ATVINNA mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.