Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ meistar inn. is GULL ER GJÖFIN Jurtaestrogen úr rauðsmára fyrir konur á breytingaskeiði. (ath. aðeins einn belgur á dag) Akureyri, sími 462 1889. Fæst m.a. í Nýkaupi og í Árnesapóteki Selfossi. www.islandia.is/~heilsuhorn Jurtaestrogen SENDUM Í PÓSTKRÖFU EINAR Hálfdánarson á Höfn hefur gefið Menningarmiðstöð Horna- fjarðar merkan fornbíl. Þetta er GAZ-M20 Pobeda sem er sovéskur eðalvagn árgerð 1955. Einn slíkur bíll er í toppstandi hér á landi og er hann í eigu Bifreiða og landbún- aðarvéla. Annar er geymdur í skemmu Fornbílaklúbbsins á Esju- melum og fleiri kynnu að leynast í skúrum landsins. Einar Hálfdánarson keypti bíl- inn ársgamlan í Reykjavík og keyrði hann austur á Hornafjörð. Ferðin tók tvær vikur enda þurfti að aka norður um land og margt að skoða á leiðinni. Einar lagði Pobedunni árið 1968 og hefur bíll- inn staðið inni í skúr þar til á dög- unum þegar hann var dreginn fram í dagsljósið. Bíllinn verður nú gerður upp og verður meðal safn- gripa Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar. Byrjað var að framleiða Pobeda- bílana árið 1945 en framleiðslunni var hætt árið 1958. Þá höfðu 235.997 bílar verið smíðaðir, þar af 4.220 blæjubílar. Pobedurnar feng- ust með fjórhjóladrifi en bíllinn á Höfn er þó aðeins með drifi á aft- urhjólum. Bílarnir eru fernra dyra, 4,7 m langir, 1,7 m á breidd og vega tómir 1.350 kg. Vélin er 2,1 lítra, 50 hestöfl og hámarks- hraðinn er 105 km. Menningarmiðstöð Hornafjarðar fær fornbíl að gjöf Sjald- séður sovéskur eðalvagn Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson Björn Arnarson safnvörður dustar rykið af Pobedunni sem staðið hafði inni í skúr í 34 ár. Einar Hálfdánarson fylgist með. Á sínum tíma tók það tvær vikur að aka bílnum frá Reykjavík til Hafnar. Hornafjörður KYNNINGARFUNDUR um snjó- flóðavarnir í Bolungarvík var haldinn í Víkurbæ sl. mánudag. Þar voru bæj- arbúum kynnt þau mannvirki sem ákveðið hefur verið að ráðast í að byggja til varnar byggðinni. Um eitt hundrað manns sótti fundinn og komu fram nokkuð skiptar skoðanir um þetta fyrirhugaða mannvirki. Framsögumenn á fundinum voru Már Erlingsson frá Framkvæmda- sýslu ríkisins, Ólafur Kristjánsson bæjarstjóri Bolungarvíkur, Tómas Jóhannesson frá Veðurstofu Íslands, Jón Skúli Indriðason frá Línuhönnun ehf., Jakob Gunnarsson frá Skipu- lagsstofnun og Þorleifur Eiríksson frá Náttúrustofu Vestfjarða. Garðurinn um 760 metra langur Fyrirhugaðar varnir verða í hlíðum Traðarhyrnu ofan við kaupstaðinn, frá skíðasvæðinu og út fyrir gatnamót Stigahlíðar og Hjallastrætis. Kaupa þarf upp 6 einbýlishús við Dísarland sem lenda undir varnargarðinum. Varnirnar samanstanda af tveimur gerðum mannvirkja, þ.e. tveimur bogadregnum görðum, sem koma saman í tvö hvöss horn og átta nöbb- um ofar í hlíðinni. Garðurinn verður u.þ.b. 760 m langur og verður stað- setning hans í um 20 til 50 m hæð yfir sjávarmáli. Miðhluti garðsins verður 22 metra hár en til endanna lækkar hann og fellur að núverandi landslagi. Garðurinn verður þriggja metra breiður í toppinn. Nabbarnir koma til með að standa í um 60 til 100 m yfir sjávarmáli og verða um 13 m háir, 15 m langir og 2 m breiðir efst. Garðurinn og nabbarnir verða byggðir úr jarðefnum sem fengin verða innan framkvæmdasvæðisins. Sú hlið garðsins sem snýr á móti fjall- inu verður byggð upp með netgirð- ingum samskonar þeim sem notast var við í varnarmannvirkjunum á Neskaupstað. Áætlaður kostnaður við varnar- garðinn er 420 milljónir króna. Við það bætist kostnaður vegna upp- kaupa sjö íbúðahúsa við Dísarland og Traðarland og kostnaður við gerð 8 nabba ofan við varnargarðinn. Framkvæmdaraðili mannvirkj- anna er Bolungarvíkurkaupstaður, en umsjónaraðili framkvæmdanna er Framkvæmdasýsla ríkisins. Verkfræðistofurnar Forverk og Línuhönnun hönnuðu mannvirkið og umsjón með mati á umhverfisáhrifum hefur Náttúrustofa Vestfjarða. Hafa áhyggjur af snjósöfnun innan garðanna Meðal þeirra sem til máls tóku í al- mennum umræðum var Benedikt Kristjánsson sem talaði fyrir hönd íbúðaeigenda sem búa í námunda við fyrirhuguð mannvirki og hafa á fyrri stigum þessa máls gert athugasemdir við þá skipulagsbreytingu sem miðaði að því að fella 6 íbúðahús við Dísar- land undir garðinn. Benedikt gerði grein fyrir ýmsum athugasemdum sem þessir íbúar hefðu við þetta mannvirki að athuga. Hann sagði í samtali að meðal þess sem þeir telja ástæðu til að hafa áhyggjur af er snjósöfnun innan við væntanlega garða. Í skýrslunni sem kynnt var á fundinum er bent á að gera megi ráð fyrir aukinni snjósöfn- un. Jafnframt segir þar að erfitt sé að gera grein fyrir breytingum á veður- fari og snjóalögum vegna garðanna. Benedikt sagði að snjósöfnun innan við fyrirhugaða garða væri verulegt áhyggjuefni íbúanna sem næst varn- argörðunum munu búa, en fjarlægð þeirra húsa sem næst verða garðinum er 15 til 30 metrar. Þá benti Benedikt á að fram komi í skýrslunni að ekki verði hægt að þekja brattasta hluta garðanna með jarðvegslagi og því megi búast við einhverju jarðvegsrofi og áfoki fyrstu árin. Slíkt sé óviðunandi. Þá benti hann á að leiksvæði barna væri á þessu svæði og væri full ástæða til að hafa áhyggjur af þeirri slysahættu sem skapast þar sem garðurinn er hæstur og myndar 22 m þverhnípi á þeirri hlið sem snýr að fjallinu og að hluta til þeim megin sem snýr að byggðinni. Að lokum lagði Benedikt áherslu á að ekki væri einhugur um þessar fyr- irhuguðu framkvæmdir og að grund- vallarsjónarmiðið verði að vera, að með vörnum sé þess gætt að byggð sé ekki eytt í Bolungarvík. Flestir þeirra sem til máls tóku munu hafa verið á svipaðri skoðun og höfðu ýmislegt við þessa lausn á snjó- flóðavörnum fyrir Bolungarvík að at- huga. Framsögumenn svöruðu fram- komnum fyrirspurnum og vísuðu til reynslu af görðunum á Flateyri, Siglufirði og Neskaupstað. Aðspurður eftir fundinn kvaðst Ólafur Kristjánsson vera ánægður með fundinn sem hafi verið málefna- legur og eðlilegt að bæjarbúar hefðu skiptar skoðanir á þörf varna, stærð mannvirkisins, legu þess og staðsetn- ingu. Eðlilegt að taka tillit til ábendinga Varðandi áhyggjur manna af hugs- anlegri snjósöfnun í krika garðsins eða neðan við hann sagði Ólafur það vera mál framtíðarinnar að meta allar aðstæður og sagði hann það sína skoðun að ríkisvaldinu og sveitarfé- laginu væri siðferðilega skylt að taka upp viðræður við eigendur þeirra fasteigna sem byggju við rætur garðsins ef þessi framkvæmd reynist valda því að óbúandi væri í mikilli ná- lægð við mannvirkið. Hann sagði að svigrúm bæjar- stjórnar og bæjarbúa til að breyta frá því sem nú væri lagt til væri afskap- lega þröngt. Lagarammi að hönnunar- forsendum væri í raun forskrift að gerð mannvirkisins og staðsetningu. Það væri hinsvegar eðlilegt að taka til- lit til þeirra ábendinga sem fram komu á fundinum og sagðist hann vona að það yrði gert svo sem kostur væri. Ólafur sagði að áður en hægt væri að ganga til útboðs á gerð mannvirkj- anna þyrfti að ljúka við að ná sam- komulagi við eigendur þeirra húsa sem færu undir væntanlegan varnar- garð. Skiptar skoðanir um snjóflóða- mannvirki meðal bæjarbúa Bolungarvík TRÉSMIÐJAN Vík ehf. á Húsavík er um þessar mundir að hefja smíði á brú yfir Lónsós í Kelduhverfi. Brúin, sem verður 100 metra löng, er hluti af nýjum vegarkafla á þjóðvegi 85, norðausturvegi. Nýi vegurinn mun liggja frá Bangastöðum um Fjalla- höfn að Víkingavatni. Verktaki við vegagerðina er Ístak hf. Að sögn Björns Sigtryggssonar hjá Vík ehf. munu um 10–12 manns koma að brúarsmíðinni hjá fyrirtæk- inu. Búið er að vinna ákveðna for- vinnu á verkstæði fyrirtækisins og nú er einungis beðið eftir því að veg- urinn að brúarstæðinu verði tilbú- inn. Þá fyrst er hægt að komast á staðinn með þann útbúnað og tæki sem þarf til þessa verkefnis og hefj- ast handa. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Þessir steinstaurar sem settir voru niður í haust af Vegagerð ríkisins eru fyrstu verklegu merki þess að brúarsmíði sé fyr- irhuguð við Lónsós. Byggir brú yfir Lónsós í Kelduhverfi Húsavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.