Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 20 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ OPINBERIR aðilar veita fyrirtækj- um í hugbúnaðargeira óeðlilega samkeppni að sögn Ara Edwald, framkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins. Hann sagði í setningar- ræðu á ráðstefnu sem TölvuMyndir hf. gengust fyrir í gær um ávinning upplýsingatækninnar, að gera verði þá kröfu til hins opinbera að það keppi ekki við einkafyrirtæki á hug- búnaðarsviðinu en fjöldi opinberra stofnana og fyrirtækja starfræki sína eigin hugbúnaðarþjónustu. Friðrik Sigurðsson, forstjóri TölvuMynda, sagði í erindi sem hann flutti á ráðstefnunni, að langstærsti hluti veltunnar í upplýsingatækni- geiranum hér á landi sé endursala og þjónusta á erlendum hugbúnaði. Hann spáði því að útflutningstekjur í þessari atvinnugrein myndu dragast saman á þessu áru, rekstur fyrir- tækjanna verði erfiðari en afkoman muni batna. Útflutningsverðmæti minna en í nágrannalöndunum Yfirskrift ráðstefnu TölvuMynda var „Hver er ávinningur upplýsinga- tækninnar?“ Ari Edwald rakti í setn- ingarræðu sinni hvernig umfang þessa geira hefur aukist á umliðnum árum og nefndi í því sambandi að hlutdeild hans í þjóðarframleiðsl- unni hefði aukist úr 3,2% árið 1996 í 4,9% árið 2000. Hann sagði að út- flutningsverðmæti upplýsingatækni- nnar, mælt sem hlutfall af heildar- útflutningi, sé þó mun minna en á Norðurlöndunum og í Bretlandi. Ljóst sé þó að upplýsingatækniiðn- aðurinn sé grein sem bjóði upp á gríðarleg sóknarfæri og verðmæta- sköpun. Sjö blokkir eða samstæður Friðrik Sigurðsson rakti þær breytingar sem átt hafa sér stað í hugbúnaðargeiranum. Hann sagði að mikill vöxtur í veltu þessa geira stafi fyrst og fremst af hugarfars- breytingu sem átt hefði sér stað. Af- koma greinarinnar hefði verið með þeim hætti að hún hefði skilað hagn- aði í upphafi síðasta áratugar, lítils- háttar tapi um miðbikið en stórkost- legu tapi í fyrra. Þá sagði hann að að því muni koma að hér á landi verði sjö blokkir eða samstæður á þessu sviði, sem muni standa undir lang- stærstum hluta greinarinnar. Fyrir utan það muni 4 til 5 fyrirtæki velta meira en 100 milljónum en einungis nokkur fyrirtæki muni selja hugbún- að erlendis undir eigin vörumerki. Friðrik sagði að mikið væri til af hugbúnaðarfyrirtækjum í heimin- um, lítið væri til af vörum og enn færri alþjóðleg fyrirtæki. Tækifærin væru hins vegar fjölmörg. Góður undirbúningur lykilatriði Þorkell Sigurlaugsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim- skips og stjórnarformaður Tölvu- Mynda, sagði í erindi sem hann flutti að ýmsar atvinnugreinar hér á landi hefðu náð árangri með upplýsinga- tækninni. Hann nefndi þar sérstak- lega smávöruverslun, ferðaþjónustu, fjármálastofnanir, fjarskiptafyrir- tæki og sjávarútveginn að hluta. Hann sagði hins vegar að til að mynda landbúnaðurinn og opinber rekstur að hluta hefði ekki náð sama árangri. Að sögn Þorkels er lykilatriði fyrir fyrirtæki til að ná góðum árangri af upplýsingatækninni góð undirbún- ingsvinna og áhættumat. Þá skipti máli að skilgreina tilætlaðan árang- ur, aðlögun ferla að stöðluðum bún- aði, framtíðarskipulag upplýsinga- mála, rekstur kerfa og góð stjórnun breytinga. Helstu ástæður þess að verkefni á þessu sviði mistakist séu hins vegar léleg verkefnastjórnun, ekki nægur stuðningur og þátttaka frá æðstu stjórnendum og veik skil- greining á árangri og þörfum strax í upphafi og illa skilgreind markmið. Ráðstefna TölvuMynda hf. um ávinning upplýsingatækni Óeðlileg samkeppni opinberra aðila Morgunblaðið/Ásdís Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði á ráðstefnu TölvuMynda hf. um ávinning upplýsingatækninnar, að gera yrði þá kröfu til hins opinbera að það keppti ekki við einkafyrirtæki á hugbúnaðarsviðinu. HINN árlegi Kynningardagur Stýrimannaskólans í Reykjavík og Skrúfudagur Vélskóla Íslands verð- ur haldinn laugardaginn 13. apríl nk. í Sjómannaskóla Íslands á Rauðárholti við Háteigsveg. Dag- skráin hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.30. Skrúfudagur Vélskóla Íslands og Kynningardagur Stýrimannaskól- ans í Reykjavík eiga sér orðið langa hefð og eru haldnir hvert ár. Á þess- um kynningardegi gefst öllum þeim sem hafa áhuga á skipstjórnar- og vélstjórnarmenntun tækifæri til að kynna sér hvað skólarnir hafa upp á að bjóða. Auk starfa til sjós veitir nám í þessum skólum góð tækifæri á störfum í virkjunum, véla- umboðum, skipaskoðun og störf á Siglingastofnun Íslands, hafnar- stjórn og fleiri störf, sem tengjast sjávarútvegi, siglingum og nýjustu tækni. Nám úr skólunum veitir einnig rétt til framhaldsnáms í tækniskól- um og háskólum og hefur þar með ígildi stúdentsprófs. Skipstjórnar- og vélstjórnanám var á s.l. vetri tekið út af Siglinga- stofnun Íslands og borið saman við kröfur, sem Alþjóðasiglingamála- stofnunin hefur sett fram í sam- þykkt um menntun, þjálfun, skír- teini og vaktir sjómanna (STCW). Skólarnir stóðust prýðilega þessa úttekt, en aðild Íslands að sam- þykktinni þýðir að skólarnir gefa út alþjóðleg prófskírteini, sem að upp- fylltum öðrum skilyrðum eins og siglingatíma, heilbrigðisvottorði o.fl. veitir nemanda rétt til atvinnuskír- teinis, sem gildir um allan heim og Siglingastofnun Íslands gefur út. Að venju verður boðið upp á ým- islegt til skemmtunar á Kynningar- og Skrúfudegi, þyrla frá Landhelg- isgæslunni kemur á svæðið, nem- endur Vélskólans gangsetja glóðar- hausvél fortíðar og efnarafala framtíðar, en nemendur Stýri- mannaskólans sigla í sjónsiglinga- tæki og keppa í vírasplæsingum á lóðinni fyrir framan Sjómannaskól- ann. Kvenfélög skipstjórnarmanna á farskipum og vélstjóra, Hrönn og Keðjan, verða með kaffiveitingar gegn vægu verði í mötuneyti Sjó- mannaskólans. Kynning á vélstjórnar- og skipstjórnarnámi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.