Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ GEIR H. Haarde fjármálaráðherra segir að ekki liggi fyrir hvernig stað- ið verði að gjaldtöku fyrir ríkis- ábyrgð á skuldabréfum að fjárhæð allt að 20 milljörðum króna vegna fjármögnunar Íslenskrar erfða- greiningar ehf. á lyfjaþróunarfyrir- tæki sem fyrirhugað er að verði hér á landi. Hann segir að ljóst sé að rík- ið muni innheimta áhættugjald en ekki verði hægt að svara því hvernig fyrr en Eftirlitsstofnun EFTA hefur farið yfir málið. Geir segir að gjaldtakan fari að hluta til eftir því hvernig verkefnið verður flokkað innan EES-regln- anna og gjaldtakan verði ákveðin með hliðsjón af því. Ríkið telji að þarna sé um rannsóknar- og þróun- arverkefni að ræða. Geir segir að haft hafi verið samband við ESA til að kynna verkefnið og mjög bráðlega verði það gert ítarlegar, samhliða því sem þingið vinnur í málinu. Hann getur ekki sagt til um hvort flokkun ESA muni liggja fyrir áður en atkvæði verða greidd um frum- varpið. „Ef þetta frumvarp verður að lögum er þar komin heimild til að ganga frá þessari ábyrgð, en henni verður ekki beitt nema að uppfyllt- um tilteknum skilyrðum. Það er ekk- ert um það að ræða að þetta gjald verði fellt niður,“ segir Geir. Til viðmiðunar má nefna að í lög- um um ríkisábyrgðir frá árinu 1997, sem víkja í þessu tilfelli, segir að ábyrgðarþegi skuli við ábyrgðarveit- ingu greiða áhættugjald í ríkissjóð sem nemi 0,25–4% af höfuðstól ábyrgðarskuldbindingar fyrir hvert ár lánstímans. Uppbygging hátæknisamfélags styrki efnahag þjóðarinnar Í athugasemdum við frumvarp til laga um ábyrgðina, sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Al- þingi, kemur m.a. fram að með því að greiða fyrir nýrri starfsemi ÍE og uppbyggingu hátæknisamfélags á Íslandi sem hafi mikla þjóðhagslega þýðingu styrki það efnahag þjóðar- innar þegar til lengri tíma sé litið. Fyrirtæki í Evrópu hafi dregist aft- ur úr á þessu sviði á undanförnum tíu árum og að mati framkvæmda- stjórnarinnar sé ekki hægt að breyta stöðunni án sýnilegrar þátttöku op- inberra aðila. Fram kemur að ís- lensk stjórnvöld telji að það að veita einfalda ríkisábyrgð á skuldabréfum gefnum út af deCODE til að styðja áætlanir ÍE um uppbyggingu á nýrri starfsemi skili mestum ávinningi fyr- ir báða aðila, m.a. með tilliti til áhættu, en verkefnið sé af þeirri stærðargráðu að eðlilegt sé að leitað sé eftir samstarfi við stjórnvöld. Tekið er fram að samkvæmt 61. gr. EES-samningsins og leiðbeining- arreglum eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um ríkisaðstoð sé stjórnvöld- um heimilt að veita ríkisaðstoð á sviði rannsóknar- og þróunarverk- efna og geti sú aðstoð ýmist verið í formi beinna fjárstyrkja, skattaíviln- ana eða ríkisábyrgða svo dæmi séu nefnd. Um sérstakar ríkisábyrgðir til rannsókna- og þróunarverkefna gildi almennt minni kröfur um greiðslu markaðsverðs (iðgjalds) og tryggingar fyrir ríkisábyrgðina en ef um almenna ríkisábyrgð væri að ræða. „Álitið er að ríkisábyrgð sú sem veitt er með frumvarpi þessu uppfylli skilyrði ríkisaðstoðar til rannsókna- og þróunarverkefnis, eins og þau eru tilgreind í leiðbein- ingarreglum ESA um ríkisaðstoð. Tilkynna þarf ríkisaðstoð af þessum toga til eftirlitsstofnunar EFTA og verður það gert samhliða frumvarpi þessu. Ríkisábyrgðin, sem frumvarpið kveður á um, getur jafnframt upp- fyllt skilyrði sem sett eru fyrir veit- ingu almennra ríkisábyrgða í leið- beiningarreglum ESA um ríkisaðstoð fari svo að ESA telji að ekki sé unnt að líta á ríkisábyrgðina sem sérstaka ríkisaðstoð til rann- sóknar- og þróunarverkefnis. Eru þau almennu skilyrði sambærileg þeim sem kveðið er á um í lögum nr. 121/1997, um ríkisábyrgðir. Ákvörð- un um gjaldtöku fyrir ríkisábyrgðina mun m.a. ráðast af því hvers eðlis ríkisaðstoðin sem í frumvarpinu felst verður talin vera,“ segir m.a. í at- hugasemdunum. Eigið fé deCODE 17,5 millj- arðar í árslok 2001 Greint er frá því að við undirbún- ing frumvarpsins hafi verið höfð hlið- sjón af ákvæðum 2.gr. ríkisábyrgð- arlaga þar sem kveðið sé á um að í frumvarpi um veitingu ríkisábyrgða skuli liggja fyrir umsögn á greiðslu- hæfi skuldara, afskriftarþörf vegna áhættu af ábyrgðum, framlögðum tryggingum vegna ábyrgðarinnar og áhrifum ríkisábyrgða á samkeppni á viðkomandi sviði. „Varðandi greiðsluhæfi skuldara má benda á að eigið fé deCODE var í lok árs 2001 rúmlega 17,5 milljarðar króna. Hvað varðar afskriftarþörf vegna áhættu er, með hliðsjón af sterkri eiginfjár- stöðu skuldara, ekki talin þörf á sér- stöku framlagi á afskriftareikning á þessu stigi. Áskilnaður um trygging- ar tengist fyrst og fremst almennum ríkisábyrgðum en ekki sérstakri rík- isaðstoð í formi ríkisábyrgðar til rannsókna- og þróunarverkefna. Þar sem talið er að ríkisábyrgð sam- kvæmt frumvarpinu uppfylli skilyrði ríkisaðstoðar á sviði rannsókna- og þróunar hefur ekki þótt ástæða til að leggja mat á sérstakar tryggingar vegna ábyrgðarinnar.“ Ríkisábyrgð á 20 milljarða króna láni vegna uppbyggingar lyfjaþróunarfyrirtækis á Íslandi Gjaldtaka ræðst af eðli aðstoðarinnar MEÐALLESTUR á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu hefur aukist sam- kvæmt nýrri fjölmiðlakönnun sem Gallup gerði í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa og helstu fjölmiðla landsins. Samkvæmt könn- uninni minnkaði meðallestur á DV milli kannana. Áhorf á sjónvarp eykst frá síðustu könnun en hlustun á útvarp minnkar. Könnunin var gerð í mars og náði til 1.499 manna á aldrinum 12–80 ára alls staðar af landinu. 1.015 svöruðu sem þýðir að svarhlutfall var 68%. Meðallestur á Morgunblaðinu var hæstur eða 60%, en hlutfallið var 58,9% í síðustu könnun sem gerð var í október. Meðallestur á Frétta- blaðinu var 44,4%, en var 38,3% í október. Meðallestur á DV mældist 31,5% en var 36,8% í októberkönn- uninni. Meðallestur Morgunblaðsins í Reykjavík og Reykjanesi var 66,1%. Meðallestur á Fréttablaðið á höfuð- borgarsvæðinu var 60,7%, en meðal- lestur á DV í þessum landshluta var 29,2%. Hafsteinn Már Einarsson, for- stöðumaður Gallup, sagði þegar könnunin var kynnt að nauðsynlegt væri að taka fram varðandi lestur á DV að minna hefði verið um frídreif- ingu á DV í mars en verið hefði. Sam- drátturinn væri 3,5 prósentustig sem skýrði að hluta til þá lækkun sem hefði orðið á meðallestri á DV. Hann sagðist telja jákvætt að blaðið dragi úr frídreifingu þar sem hún hefði oft verið óeðlilega mikil. Af þeim sem lásu eitthvert dagblað í könnunarvikunni lásu 78,7% Morg- unblaðið (77% í síðustu könnun). 61,5% lásu Fréttablaðið (56,6%) og 55,9% lásu DV (62,7%). Mest notkun á mbl.is 82,6% svarenda sögðust vera með aðgang að Netinu, en hlutfallið var 78,2% í síðustu könnun og 68% fyrir tveimur árum. Af þeim vefsíðum sem spurt var um skoðuðu flestir mbl.is eða 3,1 sinnum í viku (2,8 sinnum í síðustu könnun). Næst á eftir kom leit.is með 2,5 sinnum í viku. Vefsíðan var ekki með í síðustu könnun en fyr- ir ári skoðuðu svarendur hana að meðaltali 1,6 sinnum í viku. Þeir sem skoðuðu visir.is gerðu það að með- altali 2,2 sinnum í viku, en 2 sinnum fyrir einu ári. Þeir sem skoðuðu simaskra.is gerðu það 1,3 sinnum í viku (1,2 sinnum í síðustu könnun). 86,4% svarenda sögðust hafa að- gang að textavarpi, en þetta hlutfall var 83,8% í síðustu könnun. Meðal- notkun á textavarpinu var 4,9 sinnum í viku. Að meðaltali stilltu 67% svarenda á Ríkissjónvarpið á virkum dögum (68% í síðustu könnun). 56% stilltu á Stöð 2 (47%). 37% stilltu á Skjá 1 (37%) og 10% stilltu á Sýn (11%). Ef horft er á tölur um meðaláhorf um helgar hækkar Ríkissjónvarpið úr 68% í 75%, Stöð 2 fer úr 48% í 53%, Skjár 1 fer úr 30% í 29% og Sýn fer úr 13% í 14%. Meðaláhorf á fréttir Ríkissjón- varpsins er 42,8%, en meðaláhorf á fréttir Stöðvar 2 er 29,7% sem er hækkun frá síðustu mælingu. Meðalhlustun á Rás tvö á virkum dögum fer úr 35,9% í 31,3%. Með- alhlustun á Rás 1 fer úr 29,5% í 29,9% og meðalhlustun á Bylgjuna fer úr 24,8% í 25,2%. Um helgar fer með- alhlustun á Rás 1 upp fyrir Rás 2. Fjölmiðlakönnun Gallup frá því í mars Lestur á Morgunblaðinu eykst frá síðustu könnun                                      !"  #!!##   "#  ! ""  " ! ##  ###  #   !               # !!! !  !"#!! ! ""!                !     "   "  #$  "  "  "   !" # #$$ "% "! #$ &$ #!" $ #!' &$ #' &$( #(' &( "' &( "% &! #$ &&& %    &&  '  ( )*   &+   , & -& . + )*&    ! ( ( ($ (" !# ! ((($ !' !!( $$( $($!      0   1 0 $      KRAFA aðstandenda fegurðarsam- keppninnar Ungfrú Íslands.is um að hnekkt verði úrskurði sýslumanns- ins í Reykjavík um að setja ekki lög- bann á sýningu heimildarmyndar- innar „Í skóm drekans“ var þingfest í gær. Farið er fram á að dómurinn ógildi ákvörðun sýslumanns og feli honum að setja lögbann á sýningu myndarinnar. Áætlað er að frumsýna myndina í kvikmyndahúsum 26. apríl nk. og má gera ráð fyrir að meðferð máls- ins verði hraðað eftir mætti. Krafan er sett fram í nafni fyr- irtækisins Ungfrú Ísland ehf. og nokkurra keppenda í fegurðarsam- keppninni árið 2000 og beinist gegn Hrönn Sveinsdóttur og fleirum sem standa að gerð myndarinnar. Hrönn var ein keppenda árið 2000 og tók hún þá upp myndefnið sem notað verður í myndinni. Lögbannskrafan snýst einkum um þrennt. Í fyrsta lagi hvort hver sem væri hefði heimild til að taka myndir án samþykkis viðkomandi, og það á vettvangi sem annar aðili hefði einkarétt á. Í öðru lagi hvort heimilt væri að birta myndir af fólki án þess að það samþykkti myndbirt- inguna. Í þriðja lagi væri um brot á höfundarrétti að ræða, þar sem Stöð 2 hefði einkarétt á sýningu frá keppninni. Ráðgert að sýna myndina í næstu viku Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl., lögmaður Ungfrú Íslands.is, ítrek- aði í gær óskir um að sóknaraðilar fengju að sjá myndina, í það minnsta það myndefni sem kvik- myndagerðarmennirnir hefðu sýnt öðrum aðilum. Erla S. Árnadóttir hrl., lögmaður varnaraðila, sagðist ætla að ræða þetta við sína umbjóð- endur en sjálf vissi hún ekki betur en að myndinni væri ekki lokið. Í viðtali við fréttavef Morgun- blaðsins í gær sagði Böðvar Bjarki Pétursson, framleiðandi myndarinn- ar að ráðgert væri að aðstandendum Ungfrú Ísland.is yrði boðið að sjá myndina í næstu viku ásamt fulltrú- um fjölmiðla og fleirum. Vonast hann til að að forsvarsmenn keppn- innar og keppendur muni þá láta af málssókninni. Fyrirhugað að frumsýna „Í skóm drekans“ 26. apríl Krafa um lögbann þingfest í héraðsdómi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.