Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 30
LISTIR/KVIKMYNDIR 30 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ             Í KVIKMYNDINNI Showtime still- ir Robert De Niro, sem frægur er fyrir annað en gamanleik, sér við hlið Eddie Murphy, sem sumir segja að sé ókrýndur konungur gaman- leikara nú til dags. Þeir félagar leika ólíkar persónur. De Niro er skap- mikil lögga í lögregluliði Los Angel- es-borgar sem skipað er að vinna með sjónvarpsmanni, sem gerir þætti byggða á veruleika lögreglu- manna. De Niro leikur lögreglumanninn og skaphundinn Mitch Preston, sem vill aðeins fá að vera í friði við að vinna vinnuna sína á þann hátt sem hann hefur gert undanfarin 20 ár. Varðmaðurinn Trey Sellars, sem leikinn er af Eddie Murphy, er and- stæðan. Í stað þess að tilheyra lög- regluliðinu þar sem dagurinn fer í að elta uppi vasaþjófa, dreymir hann um að verða sjónvarpsleikari enda notar hann kvöldin í að æfa leikræn tilþrif fyrir framan spegil í von um að tækifærin bíði handan hornsins. Eitt kvöldið rekst hann af tilviljun inn í vel undirbúna aðgerð lögregl- unnar, grandalaus um að nú sé hann að koma í veg fyrir að Mitch komi böndum á flokk fíkniefnasmyglara. Nokkrum mínútum síðar birtist lið sjónvarpsfréttamanna með látum og kemur endanlega í veg fyrir að lög- regluaðgerðin heppnist. Í reiði sinni þegar hann uppgötvar að margra mánaða vinna er farin fyrir bí, skýt- ur Mitch af byssu sinni í átt að myndavélum fréttamannanna. Þessi fljóthuga ákvörðun, sem stjórnast hafði af tilfinningum augnabliksins, á eftir að draga dilk á eftir sér því daginn eftir er hann sjálfur orðinn aðalfréttaefni fjölmiðlanna og andlit hans á forsíðum flestra dagblaðanna. Til að sættast á málamiðlun og komast hjá brottrekstri, neyðist Mitch til að fallast á þá uppástungu sjónvarpsþáttaframleiðandans Chase Renzi (Rene Russo) að leyfa þáttagerðarmönnum að gera sjón- varpsmynd um dagleg störf lögregl- unnar. Renzi þykir óhugsandi að sitja uppi með geðvonda löggu sem í ofanálag veit lítið um leikræna til- burði, svo að til er kall- aður fjölmiðlavænni einstaklingur, Trey nokkur Sellars, sem er ekki lengi að taka til- boðinu þrátt fyrir að Mitch þoli hann ekki nálægt sér. Vinna við gerð sjónvarpsþáttar- ins hefst og stefnt er að því að gera þá að alvöru sjónvarpsstjörnum. Fyrir Mitch er þessi vinna lifandi helvíti, en fyrir Trey eru draumar hans um frægð og frama loksins að rætast. Framleiðendur myndarinnar eru Jorge Saralegui og Jane Rosenthal. Handrit skrifuðu Keith Sharon, Al- fred Gough og Miles Millar eftir sögu Jorge Saralegui. Leikstjórinn Tom Dey, sem lengst af hefur starf- að í auglýsingaiðnaðinum, flutti sig yfir í kvikmyndaiðnaðinn árið 1998 þegar hann var ráðinn af Disney og Spyglass Entertainment til að leik- stýra Shanghai Noon með Jackie Chan, Owen Wilson og Lucy Liu. Showtime er önnur kvikmyndin sem Dey leikstýrir. Leikarar: Eddie Murphy (Beverly Hills Cop, Dr. Doolittle, Bowfinger); Robert De Niro (Taxi Driver, Casino, Men of Honor); Rene Russo (In the Line of Fire, Get Shorty, Major League); William Shatner (The Intruder, Judgement at Nuremberg); Leikstjóri: Tom Dey. Stefnt á stjörnuhimin Sambíóin, Álfabakka, Kringlunni, Kefla- vík og á Akureyri frumsýna Showtime með Eddie Murphy, Robert De Niro, Rene Russo og William Shatner. Reuters Robert De Niro og Eddie Murphy í gaman- myndinni Showtime. NÝJASTA mynd hins umdeilda leik- stjóra David Lynch er Mulholland Drive, sem frumsýnd verður í dag, en fyrir hana var hann tilnefndur sem einn besti leikstjóri ársins. Lynch kom fyrst fram á sjónarsviðið með Eraser fyrir um aldarfjórðungi, en sló svo í gegn með sjónvarpsþáttunum um Twin Peaks, sem vinsælir urðu víða. Þessi nýjasta mynd Lynch ger- ist við Mulholland Drive í Los Angel- es þar sem ekkert er eins og það virð- ist vera á glansandi yfirborðinu. Ung kona að nafni Betty, sem leik- in er af Naomi Watts, kemur til Los Angeles í leit að kvikmyndahlutverki. Þar hittir hún fyrir Ritu, sem leikin er af Lauru Harring og er heldur betur dularfull enda þjáist hún af minnis- leysi. Myndin er sögð sveipuð mikilli dulúð og erótík og er blanda af Twin Peaks og Blue Velvet, sem er ein þekktasta mynd Lynch til þessa. Hér er um spennumynd frá Uni- versal að ræða. Framleiðendur henn- ar eru Mark Sweeny og Alain Sarde. Kvikmyndahandritið var unnið af Joyce Eliason og David Lynch, sem segir myndina fjalla um sakleysi og spillingu, ást og einsemd og allt það sem fyrirfinnst í stórborg eins og Los Angeles. Leikarar: Justin Theroux (Zoolander, The District, American Psycho); Naomi Watts (Down, Strange Planet, Ellie Parker); Laura Harring (John Q, New Shoes, Derailed); Robert Forster (Human Nat- ure, Strange Hearts, Diamond Men). Leikstjóri: David Lynch. Dulúð og erótík Naomi Watts og Laura Harring í hlutverkum sínum í kvikmynd- inni Mulholland Drive. Háskólabíó frumsýnir Mulholland Drive með Justin Theroux, Naomi Watts, Laura Harring, Ann Miller og Robert Forster. KVIKMYNDIN Kate & Leopold er rómantísk gamanmynd í anda Sleep- less in Seattle með stórstjörnunni Meg Ryan og Hugh Jackman í aðal- hlutverkum. Bæði búa þau í New York en ekki á sama tíma, en ef svo væri væru þau fullkomin fyrir hvort annað. Hún er kona á framabraut og lifir á tuttugustu og fyrstu öldinni en hann er herramaður, sem uppi er ár- ið 1870. Þau hittast samt þar sem um lítið tímaop er að ræða á Brooklyn- brúnni sem gamall unnusti Kate, Stuart að nafni sem leikinn er af Live Schreiber, uppgötvar. Ekki er auðvelt fyrir herramann frá nítjándu öld að aðlagast New York á 21. öld- inni og því koma oft upp spaugileg atvik í samskiptum Kate og Leopold. Það á þó sérstaklega við þegar kem- ur að tilhugalífinu. Leikstjóri myndarinnar er James Mangold, sem er jafnframt handrits- höfundur ásamt Steven Rogers, en Mangold leikstýrði einnig Girl Int- errupted og Cop Land. Framleið- andi er Cathy Konrad, sem fram- leiddi einnig Scream, Girl Inter- rupted og The Sweetest Thing, sem frumsýnd verður innan skamms með Cameron Diaz. Kate & Leopold er mynd tveggja heima í sömu borg, segir leikstjór- inn, „en allt frá því að við byrjuðum tökur vildi ég eftir megni fanga New York í þátíð og nútíð á sem nútíma- legastan hátt. Ég forðaðist að lenda í því að draga aðeins upp fallega mynd af gamla tímanum og ljóta mynd af nútímanum. Í staðinn vildi ég að Leopold sæi með eigin augum fegurð borgar, sem við tökum í daglegu lífi sem sjálfsögðum og eðlilegum hlut með öllum þeim þægindum, sem nú- tímamaðurinn býr við, svo sem ný- tísku íbúðir, brauðristar og mynd- senditæki svo ekki sé talað um vegakerfið og brýrnar, tignarlega skýjakljúfa með tilheyrandi lyftu- búnaði og rúllustigum,“ segir James Mangold um vinnu sína. Leikarar: Meg Ryan (Proof of Life, City of Angels, French Kiss); Hugh Jackman (X-Men, Swordfish, Someone Like You); Liev Schreiber (Hurricane, A Walk on the Moon, Scream); Breckin Meyer (Rat Race, Road Trip, Go, Josie and the Pussycats); Natasha Lyonne (Slums of Beverly Hills, American Pie 2, But I’m a Cheerleader). Leikstjóri: James Man- gold. Rómantík í tímaopi Meg Ryan og Hugh Jackman í rómantísku gamanmyndinni Kate og Leopold. Smárabíó frumsýnir Kate & Leopold með Meg Ryan, Hugh Jackman, Live Schreiber, Breckin Meyer og Natasha Lyonne. ÞEIR Wesley Snipes og Kris Krist- offerson fara með aðalhlutverkin í Blade 2, sem frumsýnd verður í dag, en hér er á ferð- inni framhald samnefndrar myndar sem frumsýnd var ár- ið 1998. Leik- stjórn annaðist Guillermo del Toro, sem fæddur er í Mexíkó árið 1964, en hann hefur að mestu unnið sem förðunarmeistari í kvik- myndageiranum til þessa. Óvenjuleg stökkbreyting hefur átt sér stað innan vampírusamfélagsins. Komin er fram ný vampírutegund, sem er svo blóðþyrst að hún leggst ekki aðeins á mannfólkið, heldur hin- ar hefðbundnu blóðsugur líka og fórnarlömbin, sem eru svo óheppin að lifa af árásir þessarar nýju teg- undar, umbreytastast sjálf í þessar blóðþyrstu vampírur. Illþýðinu fjölg- ar hratt og innan skamms verður ekki nóg af mennsku blóði í boði fyrir sælkerana. Skuggaráðið svokallaða kallar til fundar gamalkunna félaga ásamt vopnasérfræðingi sem taka höndum saman við hópinn Blood- pack sem samanstendur af sérþjálf- uðum bardagavampírum. Þetta sam- einaða hernaðarbandalag er eina vonin gegn þessari miklu ógn, sem við er að etja og þurrkað gæti út mann- og vampírukyn jarðar. Myndin, sem kemur frá New Line Cinema, er framleidd af Peter Frankfurt, Wesley Snipes og Pat- rick Palmer, en kvikmyndahandritið skrifaði David S. Goyer. Leikarar:Wesley Snipes (Demolition Man, Sugar Hill); Kris Kristofferson (A Star is Born, Payback, Planet of the Apes); Ron Perlman (In the Name of the Rose, Alien: Resurrection, Happy Tex- as); Luke Goss (Two Days and Nine Liv- es, Love Lives, Nine Tenths); Leonor Varela (The Tailor of Panama, Texas Rangers); Matt Schulze (Blade, The Fast and the Furious); Norman Reedus (Mimic, I’m Loosing You, Dark Harbor). Leikstjóri: Guillermo del Toro. Vampíruveiðar Wesley Snipes í Blade II. Laugarásbíó, Regnboginn og Borgarbíó á Akureyri frumsýna Blade 2 með Wesl- ey Snipes, Kris Kristofferson, Ron Perl- man, Luke Goss, Leonor Varela, Matt Schulze og Norman Reedus. TEIKNIMYNDIN um snillinginn Jimmy Neutron fjallar um lítinn strák, sem er mörgum ljósárum á undan jafn- öldrum sínum í hugsun enda er hann snillingur á ýmsum sviðum, en þó ekki öllum. Hér er á ferðinni einföld saga um strák og hundinn hans sem saman heyja ýmsa hildi. Þegar vin- um hans og foreldrum þeirra er rænt af geimverum, kem- ur til kasta Jimmy litla og það er hann sem fer fremstur í flokki mik- ils leiðangurs þeim til bjargar. Þeg- ar upp er staðið stendur Jimmy litli uppi sem mikil hetja. Jimmy Neutron býr í ímynduð- um bæ að nafni Retroville, þar sem hús eru máluð í pastellitum og garðar eru vel snyrtir. Íbúarnir í þessu rólegheita úthverfi búa ýmist í nútíðinni, fortíðinnii eða framtíð- inni og stundum í algjörum draumaheimi. Jimmy er við fyrstu sýn ósköp venjulegur drengur, en þegar á reynir getur hann gert allt sem venjulega krakka dreymir stundum um, en geta ekki gert. Hann getur til dæmis flogið, farið aftur til fortíðar og gert sig ósýni- legan, en fyrir getur komið að hlut- irnir fari ekki alltaf eins og áætl- anir hans gera ráð fyrir. Með aðalhlutverk fara Patrick Stewart, Martin Short, Debi Derryberry og Rob Paulsen, en ís- lenskar leikraddir eiga Sigríður Eyrún Friðriks- dóttir, Friðrik Frið- riksson, Björk Jak- obsdóttir, Gunnar Hansson, Ólafur Egilsson, Jóhanna Jónas, Esther Talia Casey, Bragi Þór Hinriksson, Örn Árnason, Lára Sveinsdóttir, Guðfinna Rúnarsdóttir og Davíð Þór Jónsson. Leikstjóri talsetningarinnar var Jakob Þór Einarsson og tæknistjóri var Gunnar Árnason. Leikstjóri mynd- arinnar er John A. Davis sem jafn- framt skrifaði kvikmyndahandritið ásamt þeim David N. Wiess, J. David Stem og Steve Oedekerk. Framleið- endur voru Steve Oedekerk, John A. Davis og Albie Hecht. Tónlistarstjórn var í höndum John Debney, en tónlist- arflutningur er sóttur til fjölmargra listamanna, svo sem Britney Spears, Aaron Carter, Go-Go’s og The Ramon- es svo nokkrir séu nefndir. Jimmy Neutron kemur til bjargar Úr teiknimyndinni Jimmy Neutron. Sambíóin og Laugarásbíó frumsýna teiknimyndina Jimmy Neutron: Boy Gen- ius með íslenskri talsetningu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.