Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Í GÆRMORGUN undirrituðuTómas Ingi Olrich mennta-málaráðherra, Ingibjörg Sól-rún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, Geir H. Haarde fjár- málaráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra samkomulag milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um byggingu tónlistarhúss og ráð- stefnumiðstöðvar. Undirritunin fór fram í Háskólabíói að viðstöddum Vladimir Ashkenazy, sem stjórnar hljómsveitinni á tónleikum í kvöld, og hefur eindregið stutt byggingu hússins, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kór íslensku óperunnar. Meðal gesta við undirritunina var forseti Íslands, Björn Bjarnason, fyrrver- andi menntamálaráðherra, sem átti stóran þátt í undirbúningi sam- komulagsins. Verkið í heild felur í sér byggingu tónlistarhúss, ráðstefnumiðstöðvar og hótels ásamt bílastæðum. Í tengslum við tónlistar- og ráðstefnu- húsið er gert ráð fyrir 250 herbergja fyrsta flokks hóteli sem reist verður af einkaaðilum samkvæmt alþjóð- legum stöðlum. Stefnt er að einka- framkvæmdarútboði í lok þessa árs og að framkvæmdir geti hafist í árs- byrjun 2004. Áætlaður heildarkostn- aður hússins er tæpir sex milljarðar króna. Kostnaður skiptist þannig að ríki greiðir 54% vegna hlutdeildar sinnar í verkinu og Reykjavíkurborg 46%. Ekki verið að ákveða tilteknar fjárhæðir Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir að svokallað einkafram- kvæmdarútboð þýði að einkaaðili, innlendur eða erlendur – því það þurfi að bjóða verkefnið út á Evr- ópska efnahagssvæðinu – muni taka að sér byggingu hússins og annast rekstur þess gegn gjaldi sem myndi þá skiptast í umsömdum hlutföllum milli ríkis og borgarinnar. Geir segir að menn hafi ekki verið að ákveða tilteknar fjárveitingar nú þótt auðvitað verði þeir aðilar sem að samningnum standa að borga húsið þegar upp verður staðið. „Þetta er tilraun með svona verkefni í þessu formi en við vitum það auð- vitað ekki fyrir víst að slíkir einkaað- ilar muni gefa sig fram á viðunandi kjörum en þá er ákvæði í samningn- um um að menn muni væntanlega leita hefðbundnari leiða. En út- gangspunkturinn er þessi og inn í þetta spilar hugmyndin um að reisa þarna alþjóðlegt hótel og þá vænt- anlega í samstarfi við einhverjar al- þjóðlegar hótelkeðjur. Það er að sjálfsögðu einnig óvissa um þetta at- riði þótt menn hafi eitthvað verið að ræða við slíka aðila.“ Geir dregur ekki dul á að það sé óvissa með hvernig fjármögnunin verði. „En,“ tekur Geir fram, „aðal- atriðið á þessu stigi málsins er að koma málinu á það stig að það sé hægt að fara í þessi útboð. Geir leggur áherslu á að þarna sé um að ræða miklu meira en tónlist- arhús, þótt það hafi verið ein af grundvallarforsendunum. „Ég held að í þessu húsi verði að finna fram- tíðartækifæri fyrir ferðaþjónustuna til þess að geta haldið hér stórar al- þjóðlegar ráðstefnur sem kalla á sér- hæft rými og mjög góða hótelað- stöðu og sem standa jafnvel yfir vikum saman. Við sjáum það af NATO-fundinum, sem verður hald- inn hér eftir mánuð, að það þarf að ráðast í fjárfrekar framkvæmdir til þess að skapa aðstöðu fyrir slíka fundi en þeir myndu í framtíðinni geta rúmast þarna.“ Það eru ekki aðeins fjármunirnir sem fara eiga í byggingu hússins sem eiga hug ráðherrans: „Já, ég hef mjög mikinn áhuga á tónlist. Ég hlusta á klassíska tónlist og hef gert frá því ég var barn. Það eru mörg tónskáld sem ég held upp á og of langt mál að nefna þau öll. En það hefur að vísu ekki gefist mikill tími til þess síðustu misserin að hlusta á eitthvað nýtt. Ég get þó nefnt að ég er mjög hrifinn af óperum og Verdi hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér.“ Náttúra og menning horn- steinar ferðaþjónustunnar Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra segir þetta vera mikilvæg- an áfanga sem undirstriki í raun þær áherslur sem ríkisstjórnin leggi í menningar- og atvinnumálum. „Þetta er mjög mikilvægur liður í því að styrkja ferðaþjónustuna, sem er mesta vaxtargreinin á Íslandi. Og menningarstarfsemin er líka einn mesti vaxtabroddurinn í íslensku þjóðlífi og þetta tvennt mun koma saman í þessu húsi.“ Tómas segir sér það rétt og skylt að þakka fyrir það mikla starf sem hafi verið unnið í tengslum við þetta verkefni af fyrrverandi menntamála- ráðherra, Birni Bjarnasyni. Hann hafi tekið þetta verkefni upp á sína arma og fylgt því eftir af mikilli sannfæringu. „Jú, það er alveg rétt að þetta kostar mikla peninga og það er alveg ástæðulaust að horfa fram hjá því,“ segir ráðherra. „En sú ákvörðun að byggja ferðaþjónustuna í meira mæli á menningarstarfsemi kallar á fjárfestingu. Sú fjárfesting mun skila sér í framtíðinni í því með hvaða hætti við löðum fólk til lands- ins.“ Tómas Ingi tekur einnig fram að menn verði að hugsa um það að ekki sé æskilegt að íþyngja náttúrunni of mikið með ferðamannastraumi og þess vegna sé það líka að vissu leyti náttúruverndarmál að beina ferða- mönnum hingað á nýjum forsendum, þ.e. á forsendum menningarinnar. „Já, minn tónlistaráhugi byggist á því að ég er alinn upp af fjölskyldu sem hafði mikið dálæti á tónlist og flestir í henni voru raunar tónlistar- menn með einhverjum hæ stendur reyndar nokkuð dj inni og þannig get ég nefnt Tómasson, tónskáld frá Ís ömmubróðir minn. Ég hlus mikið á tónlist og reyndi r læra á hljóðfæri á sínum tím fékk bráðan endi. En,“ við ráðherra, „ég neita því ek svona gutla á hljóðfæri. É með því að ég geti sagt með af því sem ég ver tómstund um í er tónlistin fyrirferðar Menntamálaráðherra se ákveðnar skoðanir á tónl eru tvö svið, ef svo má se hafa heillað mig mest. Ann eru það klassísku tónská maður losnar aldrei við og hluti af manni sjálfum, og alveg sérstaklega og einnig Tómas Ingi Olrich segist ei mikinn áhuga á rússneskri þá orkestrasjón alveg sérst nefnir í því sambandi S Sjostakovits og Prokofijev an er ég mjög veikur fyrir að mörgu leyti afkastalitlu um, sem voru uppi undir l fram á 20. öldina í Frakkla tónskáld voru ekki afkast eftir þau liggur tónlist se mjög til mín.“ Mikilvægt fyrir atvinn Ingibjörg Sólrún Gísladó arstjóri segir að það sé stun viðhorf hjá fólki að líta svo festing í menningu og me mannvirkjum sé nánast hre á fé. En hún telji að tónlista „Loksins, loksins, loksins!“ Samningur um byggingu tónlistarhúss og ráðstefnumiðstöðvar var undirritaður af fulltrúum ríkis og borgar í gær. Arnór Gísli Ólafsson og Bergþóra Jónsdóttir voru viðstödd undirritunina, sem fór fram á æfingu Sinfóníuhljómsveitar í Háskóla- bíói undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Geir H. Haarde, Stu Verðlaunahugmyndin sé SAMKOMULAG UM TÓNLIST- AR- OG RÁÐSTEFNUHÚS Undirbúningsvinnu sem fariðhefur fram af hálfu ríkis ogborgar lauk formlega í gær þegar Tómas Ingi Olrich mennta- málaráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra undirrituðu samkomulag um bygg- ingu tónlistarhúss og ráðstefnumið- stöðvar við Reykjavíkurhöfn. Samtök um byggingu tónlistarhúss hafa átt drjúgan þátt í því að halda hugmyndinni um þetta viðamikla verkefni á lofti undanfarin tuttugu ár, en íslenska þjóðin stendur einnig í mikilli þakkarskuld við píanóleikar- ann og hljómsveitarstjórann Vladimir Ashkenazy, sem stutt hefur framgang þess með ráðum og dáð, allt frá árinu 1996 er þáverandi menntamálaráð- herra, Björn Bjarnason, skipaði nefnd um málið. Framkvæmd þessi getur orðið mikil lyftistöng fyrir þróun miðborgar Reykjavíkur og menninguna í land- inu. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra segir hér í blaðinu í dag að þetta sé mikilvægur áfangi sem undir- striki í raun þær áherslur sem rík- isstjórnin leggi í atvinnumálum. „Þetta er því mjög mikilvægur liður í því að styrkja ferðaþjónustuna, sem er mesta vaxtargreinin á Íslandi, og byggja betur undir arðsemi í þeirri grein. Og menningarstarfsemin er líka einn mesti vaxtarbroddurinn í ís- lensku þjóðlífi og þetta tvennt mun koma saman í þessu húsi.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri bendir á að það sé stundum ríkt viðhorf hjá fólki að líta svo á að fjárfesting í menningu og menningar- mannvirkjum sé nánast hrein eyðsla á fé. Sjálf hefur hún líkt mikilvægi þessa verkefnis fyrir atvinnulíf fram- tíðarinnar við hafnarframkvæmdir og virkjunarframkvæmdir síðustu aldar sem opinberir aðilar „einhentu sér í […] til þess að renna styrkari stoðum undir atvinnulífið“. Það er því miður ekki oft sem mik- ilvægi menningarinnar sem frumafls í atvinnulífi þjóðarinnar er dregið fram með þessum hætti og því afar ánægju- legt að finna fyrir vaxandi vitund ráðamanna um þýðingu hennar í tengslum við þessa miklu fram- kvæmd. Tónlistar-ráðstefnuhús á án efa eftir að hafa farsæl áhrif á mótun nýs hlutverks höfuðborgarinnar í framtíðinni og því full ástæða til að fagna þessu fyrsta skrefi á þeirri braut. SKIPTAR SKOÐANIR Skoðanir hafa verið töluvert skiptarum þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja til við Alþingi að heimilt verði að veita 20 milljarða ríkisábyrgð vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar lyfjaþró- unardeildar á vegum Íslenzkrar erfða- greiningar. Andstaða við þessi áform hefur þó verið takmarkaðri á Alþingi en búast mátti við. Hins vegar hefur hin fyrir- hugaða ríkisábyrgð verið gagnrýnd bæði af aðilum á fjármálamarkaðnum og víðar. Megingagnrýnin er sú, að þær rík- isstjórnir, sem hér hafa setið frá árinu 1991, hafi markvisst unnið að því að út- rýma slíkum sértækum aðgerðum til stuðnings einstökum atvinnufyrirtækj- um, m.a. vegna þess, að slíkar aðgerðir skekki allar samkeppnisforsendur í at- vinnulífinu. Þessi gagnrýni er að sjálfsögðu byggð á sterkum rökum. Á hinn bóginn er ljóst, að um það eru nokkur skýr dæmi úr atvinnusögu síðustu áratuga, að ívilnanir af ýmsu tagi hafa verið veittar af hálfu stjórnvalda til þess að tryggja, að ákveðinn atvinnurekstur komi inn í landið. Þetta á ekki sízt við um stóriðjufyrirtækin. Rökin fyrir því að stjórnvöld beiti í undantekningartil- vikum sérstökum aðgerðum í þessu skyni eru ekki síður sterk og ljóst að at- vinnulíf landsmanna væri mun fá- breyttara ef það hefði ekki verið gert. Því er líka haldið fram, að erfitt verði að mæla gegn ríkisábyrgð fyrir önnur fyrirtæki, ef ríkisábyrgð verður veitt í þessu tiltekna tilfelli. Í þessu sambandi er ljóst að hugmyndir Íslenzkrar erfða- greiningar um uppbyggingu lyfjaþró- unardeildar njóta algerrar sérstöðu. Þar er um að ræða að þróa upp ný lyf, sem geta skipt sköpum og lagt grund- völl að enn víðtækari lyfjaframleiðslu á Íslandi en við nú þekkjum. Líkurnar á því að margar slíkar hugmyndir verði settar fram af aðilum, sem hafa unnið stórvirki í uppbyggingu nýrrar at- vinnugreinar á Íslandi, eru mjög litlar. Greining Íslandsbanka segir um þetta mál í fyrradag: „Að mati Grein- ingar er um neikvætt fordæmi að ræða og ekki í samræmi við stefnu ríkis- stjórnarinnar um minnkun ríkisaf- skipta af atvinnulífinu. Líklegt verður að telja, að fleiri fyrirtæki feti í fótspor deCode og byggi beiðnir sínar á jafn- ræðissjónarmiðum.“ Í þessum ummælum er í raun lagður sami mælikvarði á Íslenzka erfðagrein- ingu og áform þess og önnur atvinnu- fyrirtæki landsmanna. Er það hægt? Er hægt að finna nokkur hliðstæð dæmi um hugmynd sem verður að veruleika með glæsilegum hætti í atvinnusögu okkar Íslendinga síðustu 100 árin nema ef vera skyldi stórrekstur í togaraút- gerð snemma á tuttugustu öldinni? Íslenzk erfðagreining hefur ekki far- ið fram á þessa ríkisábyrgð. Fyrirtækið hefur heldur ekki sagt að hún sé for- senda fyrir því að lyfjaþróunardeildin verði sett upp. Málið snýst um það að staðsetning í Bandaríkjunum er fjárhagslega hag- kvæmari fyrir Íslenzka erfðagreiningu en staðsetning á Íslandi ef ekki kæmi fleira til. Með tillögu um ríkisábyrgð er verið að jafna þennan mun. Þeir sérfræðingar á fjármálamark- aði, í atvinnulífi og á vettvangi Háskóla Íslands, sem hafa mælt gegn því að rík- isábyrgðin verði veitt, ættu að hugleiða það að stundum eru mál svo stór í snið- um að það er réttlætanlegt að víkja frá meginsjónarmiðum til þess að tryggja framgang þeirra. Uppbygging Íslenzkrar erfðagrein- ingar í 600 manna rannsóknarfyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði er ævintýri lík- ust. Með því að setja á stofn lyfjaþróun- ardeild á vegum fyrirtækisins á Íslandi er verið að stíga skref, sem getur leitt til þess að lyfjaiðnaður verði blómstr- andi atvinnugrein á nýrri öld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.