Morgunblaðið - 12.04.2002, Side 14

Morgunblaðið - 12.04.2002, Side 14
SUÐURNES 14 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ HRAFNHILDUR Gróa Atladóttir, verkstjóri í handverki eldri borg- ara í Reykjanesbæ, hélt á dög- unum sína fyrstu einkasýningu. Á sýningunni voru 30 leirverk unnin úr steinleir með fornum aðferðum, en sýningin hefur nú verið sett upp á Bókasafni Reykjanesbæjar og stendur fram til 13. apríl. Morgunblaðið leit við í tómstunda- starfi eldri borgara í Reykjanesbæ þar sem Hrafnhildur var að leið- beina leirklúbbsmeðlimum í leir- listinni. Við inngönguna á verkstæðið blöstu við margir fallegir listmun- ir og ljóst er að tómstundastarfið er mjög gefandi bæði fyrir Hrafn- hildi og þátttakendur í starfinu, enda hrósar hún þeim í hástert og þau henni. „Ég hef starfað í fimm ár hjá tómstundastarfi eldri borg- ara og þetta hefur verið ynd- islegur tími. Mér hefur fundist mjög gefandi að fylgjast með þeim í þeirra listsköpun og sjá hversu miklum framförum þau hafa tekið. Ég hef leiðbeint þeim í leirlistinni frá haustinu 1999, en leiðbeini einnig í glerlist og keramik- málun,“ segir Hrafnhildur. Sjálf hefur Hrafnhildur unnið í leirlistinni frá árinum 1998 þegar hún fór á sitt fyrsta námskeið og fylltist strax áhuga. „Ég byrjaði að læra fornu aðferðirnar í leir- listinni, þ.e. að pulsa og þuma. Þá eru engin mót notuð, eins og tíðk- ast mikið í dag, heldur eingöngu hendurnar og puttarnir. Hlutirnir verða til með því að byggja ofan á þá smátt og smátt og forma þá síðan með höndunum. Þessar fornu aðferðir hef ég kennt eldri borgurum, ásamt nýju aðferðinni, að raða í gifsmót og í starfinu not- umst við bara við hendurnar, eng- an rennibekk eða þessháttar.“ Tómstundastarf eldri borgara, undir stjórn Jóhönnu Arngríms- dóttur, er mjög blómlegt og til marks um það eru um 800 þátttak- endur í hverjum mánuði. Auk þess að geta valið um leirlist, glerlist og keramikmálun er í boði almenn handavinna, silkimálun, útsaums- námskeið, bútasaumsnámskeið, myndlistarnámskeið, útskurður, tölvunámskeið og ýmsar íþrótta- greinar eins og boccia, leikfimi og snóker og bingó spila þau einu sinni í viku. Stefnan er sett á stór- sýningu í Selinu 26. maí og eru þau nú í óða önn að safna munum fyrir sýninguna. Guðmundur Maríasson, Áslaug Hilmarsdóttir, Jóhanna Guðjóns- dóttir, Hólmfríður Jóna Jóns- dóttir, Pálmi Guðmundsson og El- ín Þórðardóttir eru í leirklúbbnum og voru brosmild við iðju sína, enda sögðust þau alltaf hlakka til mánudagsins, en þá daga hittist klúbburinn. Flest þeirra hafa ver- ið í leirlistinni frá upphafi og eru orðin mjög leikin við leirinn, enda byggist klúbbastarfið á sjálfstæði. Sum þeirra vinna jafnvel heima líka en þeim sem eru styttra kom- in gefst kostur á að fara á nám- skeið hjá Hrafnhildi alla miðviku- daga. „Þetta er ótrúlega skemmtilegt,“ segir Áslaug og hin taka undir. „Við erum mjög hepp- in að hafa hana Hrafnhildi. Hún er frábær listamaður og líka svo þol- inmóð. Ekki spillir að hér ríkir mjög góður andi og okkur kemur svo vel saman,“ sögðu þau að lok- um og héldu áfram við iðju sína, en auk þess að vera að vinna muni fyrir sýninguna í maí sögðust þau gefa mikið af handverki sínu í ýmsar tækifærisgjafir. Hrafnhildur Gróa Atladóttir heldur sýningu og leiðbeinir í starfi eldri borgara Handverk með fornum aðferðum Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Guðmundur Maríasson og Áslaug Hilmarsdóttir voru langt komin með könnurnar sínar en við gerð þeirra nota þau gömlu aðferðirnar. Bak við þau sést Elín Þórðardóttir sem var að búa sig undir næsta verk. Hljóðfærin hennar Hrafnhildar hafa vakið mikla lukku sýningargesta. Reykjanesbær KOSNINGASKRIFSTOFA Fram- sóknarflokksins í Reykjanesbæ verður í Framsóknarhúsinu, Hafn- argötu 62 í Keflavík. Skrifstofan verður opnuð í dag klukkan 17 og eru bæjarbúar boðnir velkomnir, að því er fram kemur í frétt frá flokkn- um. Framsóknar- menn opna skrifstofu Reykjanesbær MARÍA Anna Eiríksdóttir hrepps- nefndarmaður skipar fyrsta sætið á lista sjálfstæðismanna og annarra frjálslyndra kjós- enda, H-listan- um, í Gerða- hreppi við komandi sveitar- stjórnarkosning- ar. Nýr fram- bjóðandi, Hrafnhildur S. Sigurðardóttir, er í öðru sætinu og Finnbogi Björnsson, fyrr- verandi oddviti, skipar það þriðja. Fái H-listinn nægilegt fylgi mun verða leitað eftir því við Ellert Ei- ríksson, sem lætur af störfum bæj- arstjóra Reykjanesbæjar í sumar, að hann taki að sér starf sveit- arstjóra í Garði á nýjan leik. H-listinn á nú tvo hreppsnefnd- armenn af sjö og er í minnihluta, Finnboga Björnsson, sem verið hefur í hreppsnefnd í 23 ár og Mar- íu Önnu Eiríksdóttur, sem þar hef- ur setið í 8 ár. Við næstu kosningar verður listinn þannig skipaður: 1. María Anna Eiríksdóttir sjúkraliði, 2. Hrafnhildur S. Sigurðardóttir af- greiðslustjóri, 3. Finnbogi Björns- son framkvæmdastjóri, 4. Árni Árnason stjórnmálafræðinemi, 5. Þorsteinn Eyjólfsson rafvirki, 6. Laufey Erlendsdótttir íþróttakenn- ari, 7. Magnús Torfason vörubif- reiðastjóri, 8. Þorsteinn Jóhanns- son verkstjóri, 9. Guðmundur Einarsson afgreiðslumaður, 10. Ingvar Jón Gissurarson bifvéla- virki, 11. Björgvin Þ. Björgvinsson rafvirkjanemi, 12. Karl Njálsson forstjóri, 13. Dagmar Árnadóttir húsmóðir og 14. Þorvaldur Hall- dórsson útgerðarmaður. Vilja Ellert sem sveitarstjóra H-listinn mun beita sér fyrir framgangi í menntamálum í Garð- inum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu, ljúka við bygg- ingar við Gerðaskóla og íbúða fyrir aldraða, endurskoða þarfir leik- skólans Gefnarborgar, huga að um- hverfismálum, endurnýja götur og leggja slitlag. Ekki síst mun verða lögð mikil áhersla á að ljúka gang- stéttum og auka þannig öryggi íbú- anna og bæta um leið útlit byggð- arlagsins. Fram kemur að mikil verkefni bíða Garðmanna í frá- veitumálum og að lögð verði áhersla á að ná á ný sambandi við atvinnulífið og efla íþrótta- og heilsuræktariðkun yngri og eldri íbúa. Fram kemur í fréttatilkynningu að forystumenn listans hafi rætt við Ellert Eiríksson, fráfarandi bæjarstjóra Reykjanesbæjar, um að koma til starfa sem sveitarstjóri í Garðinum, en því starfi gegndi hann um átta ára skeið, áður en hann var ráðinn bæjarstjóri í Keflavík. Tilgangur þess er að nýta sem best fjármagn hreppsins enda hafi Ellert sýnt trausta fram- kvæmda- og fjármálastjórn. „H- listinn mun því, fái hann til þess nægilegt fylgi, leita eftir því að ráða Ellert og mun það verða heillaákvörðun fyrir byggðarlagið og íbúa þess,“ segir í tilkynningu listans. María Anna skip- ar efsta sætið Garður H-listinn vill Ellert sem sveitarstjóra Anna María Einarsdóttir BÆJARSTJÓRN Sandgerðis hefur ítrekað áskorun sína til Landsbanka Íslands um að lengja aftur afgreiðslutíma úti- búsins á staðnum en jafnframt ákveðið að óska eftir upplýsing- um frá Sparisjóðnum í Kefla- vík. Fulltrúar bæjarstjórnar áttu á dögunum í samskiptum við Landsbankann þegar ákveðið var að stytta afgreiðslutíma útibúsins í Sandgerði. Málið var tekið aftur upp á fundi bæj- arstjórnar í vikunni, í ljósi reynslunnar og þeirra upplýs- inga sem nú liggja fyrir. Í bók- un bæjarstjórnar er það harm- að að ekki skuli vera komið meira til móts við þær almennu óskir bæjarbúa og bæjarstjórn- ar að hafa opið frá til dæmis klukkan 9 til 16 alla daga vik- unnar, það sé lágmarksaf- greiðslutími að mati bæjar- stjórnar. Jafnframt er minnt á skyldur sem bankinn hafi tekið á sig við að gegna almennri póstþjónustu í bæjarfélaginu. Bókað er að í ljósi framkom- inna upplýsinga og reynslunn- ar af skertri þjónustu „skorar bæjarstjórn enn á Landsbanka Íslands að endurskoða af- greiðslutíma bankans nú þeg- ar.“ Bæjarstjóra var falið að ræða við Íslandspóst hf. um breytingar á þjónustu og kalla eftir upplýsingum frá Spari- sjóðnum í Keflavík en á aðal- fundi hans á dögunum kom fram að hugsanlegt væri að opna afgreiðslu í Sandgerði ef réttar aðstæður sköpuðust til þess. Ítreka áskorun til Lands- bankans Sandgerði ÞÆR Kristjana Helgadóttir og Berglind María Tómasdóttir, flautu- leikarar, og Júlíana Rún Indriða- dóttir, píanóleikari, ætla að herja á landsbyggðina með fjölbreyttri tón- listardagskrá og fyrstir fá Sand- gerðingar að njóta hæfileika þeirra. Tónleikarnir verða í Safnaðarheim- ilinu í Sandgerði í kvöld og hefjast kl. 20. „Dagskráin er efnismikil og skemmtileg og um klukkustund að lengd,“ segir Berglind. „Okkur langaði að setja saman dagskrá sem er áheyrileg. Það er mjög gaman að spila þessi verk og þá vonandi gam- an að hlusta líka! Við höfum spilað talsvert saman, en við höfum aldrei áður spilað þrjár saman í einu.“ Fyrst munu þær leika verk eftir J. S. Bach, Tríósónötu fyrir tvær flautur og fylgirödd, þá Dialogo angelico, fyrir tvær flautur eftir G. Petrassi, síðan leika þær Tríó ungu Ísmaelítanna eftir Berlioz. Eftir hlé leika þær Kristjana og Berglind sitt einleiksverkið hvor ásamt Júliönu en tónleikadagskráin endar með verki eftir Roussel. Aðgangseyrir er 1.000 krónur, en 500 krónur fyrir námsfólk og ellilíf- eyrisþega. Fjölbreyttir tón- leikar í kvöld Morgunblaðið/RAX Kristjana, Berglind og Júlíana æfa fyrir tónleikana í Safnaðarheimilinu. Sandgerði BÆJARRÁÐ Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum í gær að veita Hnefaleikafélagi Reykjaness styrk að fjárhæð 1,3 milljónir kr. til kaupa á færanlegum hnefa- leikahring. Hnefaleikafélag Reykjaness hafði óskað eftir aðstoð Reykja- nesbæjar. Tillaga um stuðninginn var samþykkt með þremur at- kvæðum meirihlutans í bæjarráði en fulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá. Jóhann Geirdal, oddviti minni- hlutans, lét bóka að hann lýsti undrun sinni á ákvörðun meiri- hlutans sem hann sagði geðþótta- ákvörðun og algjörlega á skjön við þær vinnuhefðir sem ríkt hefðu. Kristmundur Ásmundsson taldi að Tómstunda- og íþróttaráð hefði átt að fjalla um málið. Bærinn kaup- ir boxhring Reykjanesbær ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.