Morgunblaðið - 12.04.2002, Síða 19
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 19
Fyrstirkoma,
fyrstir
Verslun Kringlunni
Ericsson T20
Ódýr WAP sími, einfaldur og þægilegur í notkun.
9.990 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SS
1
74
59
04
/2
00
2
fá
Ericsson T65 GPRS
Nettur og fullkominn GPRS sími á frábæru verði.
26.990 kr.
Þú hringir
Úr eða sólgleraugu í kaupbæti
frítt í 4
Komdu í Kjarnaáskrift,
áskriftarleið þar sem við skipta -
vinum býðst að hringja frítt úr
símanum sínum í fjögur
símanúmer innan kerfis og á
þjónustu svæði Íslandssíma.
Fyrstu 50 sem kaupa T20 eða T65 með
áskrift í verslun Íslandssíma fá að auki
vönduð sólgleraugu eða glæsilegt
Skagen úr frá Ericsson.
KOSIÐ verður til stjórnar í Lyfja-
verslun Íslands hf. með svonefndri
margfeldiskosningu á aðalfundi fé-
lagsins 18. apríl nk. Ósk þar að lút-
andi frá Hróbjarti Jónatanssyni, lög-
manni, barst félaginu í gær fyrir
hönd hluthafanna Jóhanns Óla Guð-
mundssonar og Attert Holding S.A.
Samtals eiga þessir tveir hlutahafar
meira en þau 10% hlutafjár sem
áskilið er til að verða þurfi við slíkri
ósk þegar hluthafar eru 200 eða fleiri.
Í margfeldiskosningu felst að kosið
er til stjórnar á milli einstaklinga til
að þeir sem eiga mikið hlutafé í fyr-
irtæki, en þó ekki í meirihluta, geti
haft áhrif á stjórnarkjör. Með meiri-
hlutakosningu ráða handhafar meiri-
hluta hlutafjár alfarið skipun stjórn-
arinnar. Í margfeldiskosningu er
gildi hvers atkvæðis margfaldað með
fjölda þeirra stjórnarmanna sem
kjósa skal. Þá má hluthafi skipta at-
kvæði sínu í þau hlutföll sem hann
vill. Séu stjórnarmenn t.d. 5 fær hver
hluthafi í raun fimmfalt atkvæði en
atkvæðavægi hans gagnvart öðrum
hluthöfum breytist hinsvegar ekki
því vægi annarra hluthafa eykst
jafnt.
Hróbjartur segir að Jóhann Óli
Guðmundsson og Attert Holding
S.A. eigi samtals um 18% hlutafjár í
Lyfjaverslun Íslands og farið hafi
verið fram á margfeldiskosningu til
að tryggja áhrif atkvæðavægis þess-
ara hluthafa á stjórnarkjörið.
Lyfjaverslun Íslands hf.
Kosið í
stjórn með
margfeldis-
kosningu
HLUTABRÉF í Arcadia Group,
sem er að fimmtungi í eigu Baugs
hf., hækkuðu um 4,01% í kauphöll-
inni í London í gær og var lokagengi
þeirra 364 pens en var 349 daginn
áður. Hefur það hækkað um tæp
42% frá því að yfirtökuviðræðum við
Baug var slitið um mánaðamót jan-
úar og febrúar.
Markaðsverðmæti fyrirtækisins
nemur samkvæmt þessu 688 millj-
ónum punda sem svarar til 97 millj-
arða króna. Verðmæti hlutar Baugs
nemur 138 milljónum punda eða 19,5
milljörðum króna.
Gengi Arcadia
í 364 pens
TILLAGA sem félagi í Lífeyris-
sjóðnum Einingu, Óttar Yngvason,
hefur lagt fram um breytingar á
samþykktum sjóðsins og sagði frá í
Morgunblaðinu í gær, verða bornar
undir atkvæði sjóðfélaga á ársfundi
félagsins hinn 23. apríl nk. Talsmenn
Kaupþings kusu að tjá sig ekki að
svo stöddu um þær athugasemdir
Óttars sem fram komu í blaðinu í
gær.
Kosið um
tillögu Óttars
á ársfundi
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦