Morgunblaðið - 12.04.2002, Blaðsíða 28
LISTIR
28 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
HVAÐ tekur ástfanginn maður til
bragðs sé honum meinað að eiga unn-
ustu sína? Stórt er spurt og svörin
ugglaust mörg. Eitt þeirra ráða sem
unnt er að grípa til er að kvænast
systur hennar, sem einnig býr á heim-
ilinu; þannig er nálægð við unnustuna
í það minnsta tryggð. En nær ástin að
blómstra? Og hvernig bregst unnust-
an við? Aftur er spurt stórt og svörin
líklega ekki færri en áður. Gætu farið
eftir því hvar í heiminum atburðurinn
á sér stað og eftir því hve vel viðkom-
andi er að sér í göldrum matargerð-
arlistarinnar.
Ást í meinum skipar stóran sess í
sýningu Leikfélags Reykjavíkur á
verkinu Kryddlegin hjörtu, sem
frumsýnt verður á Stóra sviðinu í
kvöld, einnig matargerðarlist og
frelsisbarátta. Um er að ræða leik-
gerð Guðrúnar Vilmundardóttur og
Hilmars Jónssonar, sem jafnframt er
leikstjóri, eftir bók mexíkönsku
skáldkonunnar Lauru Esquivel.
Ógleymanleg kvikmynd byggð á
sömu bók var sýnd hérlendis fyrir um
það bil áratug, en sagan hefur ekki
verið færð á leiksvið fyrr en nú, að það
gerist nánast á sama tíma á Íslandi og
í Finnlandi.
Uppskriftir, ást, húsráð
Framhaldssaga í mánaðarskömmt-
um, með uppskriftum, ástum og hús-
ráðum er undirtitill sögunnar.
„Níutíu prósent af öllum sögum eru
ástarsögur en þessi er sérstök fyrir
margra hluta sakir. Það er eitthvað
fallegt við það hvernig ástin inni á
heimilinu bindur fólkið saman í gegn-
um matargerðina og uppskriftirn-
ar...“ segir Hilmar leikstjóri við blaða-
mann eftir næst síðustu æfingu
verksins á miðvikudagskvöldið, og
Guðrún bætir við: „...þegar tilfinning-
ar sem fá ekki eðlilega útrás fá útrás í
gegnum matargerðina.“
Hilmar rifjar upp að bókin hafi ver-
ið mjög vinsæl á sínum tíma og kvik-
myndin einnig. „Það er ekki auðvelt
að færa svona verk á svið en skemmti-
legt og krefjandi verkefni.“
Fannst ykkur það trufla vinnuna að
hafa séð verkið á bíómynd? Hjálpar
það kannski frekar, eða skiptir ef til
vill engu máli?
„Fyrst gerð hefur verið bíómynd
hefur auðvitað átt sér stað ákveðin
dramatúrgísk vinna upp úr bókinni,
en við Gurra áttuðum okkur fljótt á
því að ekki er nokkur leið að flytja
kvikmyndahandritið upp á svið. Ef-
laust er einhver inspirasjón úr mynd-
inni í leikritinu en hún vann leik-
kgerðina algjörlega upp úr bókinni.“
Guðrún, sú sem leikstjórinn kallar
Gurru, bendir á að mögulegt sé að
segja söguna á ýmsa vegu. „Það sem
við eigum sameiginlegt með myndinni
er að við segjum hana í réttri tímaröð.
Í skáldsögunni er hins vegar notuð
allt önnur aðferð – hún er skrifuð eins
og dagbók og hlutir rifjaðir upp aftur í
tímann. Við erum því nær kvikmynd-
inni að þessu leyti en ekki efnislega.
Við leggjum áherslu á allt aðra hluti
en þar er gert.“
Þau taka svo til orða að fyrst sé að
ákveða hvað eigi að segja og síðan
hvernig eigi að fara að því.
„Fyrst spjöllum við um hvað er at-
hyglisverðast við verkið og hverju
okkur langar að koma til skila. Svo
þéttist ramminn utan um þessar aðal-
persónur, ástarsögu Titu og Pedros,
samskipti Titu við móður sína og
hvernig matargerðin og galdurinn í
kringum hana tvinnar þetta allt sam-
an. Þannig komum við þessari ástar-
sögu – og í raun frelsisbaráttu Titu –
til skila,“ segir Hilmar.
Minnugur kvikmyndarinnar þorði
blaðamaður ekki að fylgjast með æf-
ingu verksins á fastandi maga, og sá
ekki eftir því að borða vel áður en
haldið var í leikhúsið. Nefnir að senni-
lega sé ekki gott að koma svangur á
sýninguna og jafnvel ástæða til að
vara fólk sérstaklega við því!
Viðbrögð Hilmars eru þau að upp-
lýsa að margir hafa gefið sig á tal við
leikstjórann undanfarið og rifjað upp
hve girnilegur maturinn var í kvik-
myndinni. „Menn hafa verið forvitnir
hvað við gerum í sambandi við mat-
inn. Í leikhúsi getum við ekki verið
með nærmyndir af mat eins og í
myndinni. Þar var hann hrikalega
girnilegur og fallegur. Við erum líka
með alvörumat, leikararnir borða, en
við leggjum meiri áherslu á þau áhrif
sem maturinn hefur á þá sem neyta
hans en neysluna sjálfa eða hvernig
hann lítur út.“
Hann nefnir eitt sterkasta atriði
sýningarinnar; þegar Tita lagar rósa-
blaðasósu, og hver áhrif hún hefur á
þá sem leggja sér hana til munns.
„Það eru frekar áhrifin sem gera
mann hungraðan en maturinn sjálf-
ur.“
Að laga rétt af mikilli ást
Mexíkönsk kona var aðstandend-
um verksins innan handar við und-
irbúninginn. „Hún var mjög áhuga-
söm, hjálpaði okkur og gaf ákveðin
ráð um heimaland sitt,“ segir Hilmar.
Í hinum vestræna heimi þykir
mörgum sérstakt hvernig fjallað er
um mat í verkinu; að ekki þýði að elda
mat í vondu skapi því þá fái allir í
magann! Í Mexíkó þykir þetta bein-
línis sjálfsagt og ef til vill þess vegna
varð bókin aldrei sérlega vinsæl þar í
landi, segir Hilmar. „Setningar eins
og Þennan rétt þarf að laga af mikilli
ást er eðlilegt. Öðruvísi gerir réttur-
inn sig ekki!“
Leikritið gerist í Mexíkó á fyrstu
áratugum tuttugustu aldar. „Margt
var fært til betri vegar í landinu eftir
að byltingin sigraði; uppreisnarmenn
unnu. Tita lendur dálítið á milli kyn-
slóða; hún er fórnarlamb gamalla siða
en önnur systir hennar, sem fer á
brott með uppreisnarmönnunum,
getur verið tákn frelsisins. Boðskap-
urinn er því eiginlega sá – ef menn
vilja endilega lesa einhvern boðskap
út úr verkinu – að menn verði að taka
ábyrgð á lífi sínu. Það tekur enginn
ábyrgð á lífi manns nema maður sjálf-
ur.
Tita og Pedro eru ung í byrjun og
ég held að Pedro greyið trúi því í al-
vöru að það að giftast systur elskunn-
ar sinnar sé málið. Svo þróast hlut-
irnir allt öðruvísi en hann reiknaði
með þegar á hólminn er komið.“
Verkið er tilfinningaþrungið og
leikstjórinn tekur svo til orða að þeg-
ar best lætur gráti jafnvel hann pínu-
lítið. „Gömul sorg verður að nýrri í
brjóstinu,“ segir hann. „Eftir að hafa
horft á þetta aftur og aftur verður
maður meira að segja stundum að
bíta á jaxlinn þegar vel tekst til hjá
leikurum! Það er þessi magík; þegar
samspil innihalds, umgjarðar og leik-
ara gengur fullkomnlega upp gerist
svo dásamlegur galdur í leikhúsinu að
engrar undankomu er auðið.“
Mikið hefur gengið á í Borgarleik-
húsinu undanfarið því hvorki meira
né minna en hátt í tíu tonn af sandi
eru hluti leikmyndar Kryddleginna
hjarta. Leikið er í sandi. Og sandur-
inn er borinn út af sviðinu þegar aðrir
þurfa að nýta rýmið. „Þetta er ekki
lítið mál en við erum fullkomnlega
sannfærð um að erfiðið er þess virði í
þessu samhengi. Auðvitað er það
ákveðin stílísering að hafa mublurnar
í sandinum, en það er okkar leið til að
ná Mexíkó. Okkur finnst það suð-
rænt.“
Hilmar segist ekki þekkja marga
Suður-Ameríkubúa og einhverjum
þeirra kunni að finnast manneskjurn-
ar í verkinu miklir Íslendingar. Hver
veit?
Hann segir ekki heppilegt að gefa
sér eitthvað fyrirfram; þau hafi til
dæmis ætlað að nota tómata í stórum
stíl, en fyrrnefnd kona frá Mexíkó
hafi slegið á þær hugmyndir. „Sagði
bara nei, nei...“ Þar með komumst við
að því að tómatar eru ekki ríkjandi í
mexíkanskri matargerð. Okkur hafði
fundist það suðrænt! Svo voru ein-
hverjar aðrar ranghugmyndir. Þetta
er kannski eins og að fara til Mexíkó
og sjá Sjálfstætt fólk, þar sem þeir
myndu steikja skyrið!
Við viljum ekki lenda í því.“
Svo hlær Hilmar og segir: „Við bið-
um eftir því á tímabili að hún færi
fram á að við hættum við sandinn! En
sem betur fer gerði hún það ekki.“
Matarlist, ást
og matarlyst
Morgunblaðið/Þorkell
Systurnar þrjár og vinnustúlkan Chencha á heimili þeirra. Frá vinstri: Edda Björg Eyjólfsdóttir (Chencha), Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir (Gertrudis), Katla Margrét Þorgeirsdóttir (Rosaura) og Nína Dögg Filippusdóttir (Tita).
Morgunblaðið/Þorkell
Edda Heiðrún Backman í hlut-
verki Elenu, móður systranna.
Leikritið Kryddlegin hjörtu verður frum-
sýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld.
Skapti Hallgrímsson fékk sér vel að borða,
fylgdist síðan með æfingu og rabbaði á eftir
við leikstjórann og höfund leikgerðarinnar.
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1500 og www.utilif.is
20% afsláttur
af öllum NIKE íflróttaskóm
Um
helgina
Opi›: Smáralind mán. - föst. kl. 11-19 • lau. kl. 11-18 • sun. 13-18ÍSL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
74
51
04
/2
00
2
Glæsibæ mán. - föst. kl. 10-18 • lau. kl. 10-16
Eftir Lauru Esquivel
Leikarar: Edda Heiðrún Back-
man, Nína Dögg Filippusdóttir,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir,
Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
Gísli Örn Garðarsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Edda
Björg Eyjólfsdóttir, Jóhann G.
Jóhannsson, Björn Ingi Hilm-
arsson, Halla Margrét Jóhann-
esdóttir, Pétur Einarsson, Theo-
dór Júlíusson og Hanna María
Karlsdóttir.
Tónlist: Jóhann Jóhannsson.
Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen.
Lýsing: Lárus Björnsson.
Leikgervi: Sigríður Rósa
Bjarnadóttir.
Búningar: Þórunn María Jóns-
dóttir.
Leikmynd: Finnur Arnar Arn-
arsson.
Leikgerð: Guðrún Vilmund-
ardóttir og Hilmar Jónsson.
Leikstjóri: Hilmar Jónsson.
KRYDDLEGIN HJÖRTU