Morgunblaðið - 12.04.2002, Page 35

Morgunblaðið - 12.04.2002, Page 35
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 35 Bæjarstjórinn í Hafnarfirði sakar mig um dylgjur þegar ég skýri frá staðreyndum um fjármál bæjarins. En sannleikanum er hver sárreiðastur. Hann hefur verið iðinn við að búa til sýndar- veruleika um fjárhags- stöðu Hafnarfjarðar- bæjar sem á ekkert skylt við raunveruleik- ann. Veruleikafirring bæjarstjórans er slík að hann sendi frá sér um síðustu helgi fréttatilkynningu und- ir fyrirsögninni: ,,Góð afkoma bæjarsjóðs Hafnarfjarðar skv. ársreikningi 2001“. Þar mátti lesa að skuldir bæjarsjóðs hafi auk- ist um 1.558 milljónir kr. á árinu, eða um 22%. Hvað er þá slæm af- koma? Síðast liðin fjögur ár hefur rekstrarhalli bæjarsjóðs Hafnar- fjarðar numið nálægt fjórum millj- örðum kr. eða um milljarði á ári að jafnaði. Viðlíka hallarekstur hefur aldrei þekkst í sögu Hafnarfjarð- arbæjar og þó víðar væri leitað. Í bæjarstjóratíð Magnúsar Gunnars- sonar hafa heildarskuldir bæjar- sjóðs hækkað úr um 4.9 milljörðum, framreiknað frá 15. júní 1998, í rúmlega 8,7 milljarða um síðustu áramót. Þar fyrir utan eru allar ,,einkaframkvæmdaskuldbinding- arnar“ en þær eru ekki sýnilegar þar sem þær eru ekki færðar í efna- hagsreikningi bæjarsjóðs. Bæjar- stjóri vill meta þær á þrjá milljarða, sem ég tel reyndar allt of lága tölu, en samkvæmt mati hans hafa skuld- ir bæjarins aukist í um 12 milljarða á kjörtímabilinu, eða um 240%. Lygar eða blekkingar? En hvernig má það vera að á sama tíma og glórulaus hallarekstur er á bænum skuli bæjarstjórinn halda því fram að peningaleg staða bæjarsjóðs sé að batna? Er hann að ljúga? Nei, en hann er að blekkja. Hvernig má vera að peningaleg staða bæjarins batni um 665 milljónir króna á sama tíma og viðvar- andi 25% halli hefur verið á bæjarsjóði í bæjarstjóratíð Magn- úsar og skuldaaukning upp á meira en einn og hálfan milljarð á síð- asta ári? Það stafar ekki af fjármálasnilli Magnúsar og félaga hans. Í skýringum endur- skoðenda bæjarins kemur skýrt fram hvað um er að ræða. Með samruna Rafveitu Hafn- arfjarðar og Hitaveitu Suðurnesja var ,,eignarhluti bæjarsjóðs í HS færður í ársreikningi með hlut- deildaraðferð og nemur hann kr. 1.591.500.000 í árslok 2001“, segir þar. Falinn fjársjóður Hvað þýðir þetta? Peningaleg staða bæjarsjóðs í bókhaldi batnar um tæplega 1,6 milljarða kr. við það eitt að Rafveitan, eftir samruna við HS, er færð í fyrsta sinn til eignar í bókhaldi og verðmæti hennar dreg- ið frá skuldum bæjarins. Menn hafa alla tíð verið fyllilega meðvitaðir um þennan bókhaldslega falda fjársjóð, þ.e. verðmæti RH. Peningaleg staða bæjarsjóðs hefði því versnað um tæpan milljarð á síðasta ári ef þessi gamla eign Hafnfirðinga hefði verið færð í bókhaldi með sama hætti og gert hefur verið um áratuga skeið. Þar fyrir utan var gengið frá upp- gjöri við Reykjavíkurborg vegna gamalla ágreiningsmála um arð, allt frá þeim tíma þegar Perlan var í byggingu, og endaði með að Hafn- arfjarðarbær fékk 1% hlutdeild í Orkuveitu Reykjavíkur. Hlutur Hafnarfjarðar er metinn á um 384 milljónir kr. Af þessu má ljóst vera að peningaleg staða hefði versnað um 1,3 milljarða á síðasta ári ef ekki hefði komið til sú nýjung að færa inn í bókhald verðmæti þessara orkufyrirtækja og draga frá skuld- um. Þau verðmæti voru hins vegar hvorki sköpuð af Magnúsi Gunn- arssyni né í bæjarstjóratíð hans. Fetað í fótspor Farum Það yrði of langt mál að gera glögga og fræðilega grein fyrir einkaframkvæmdasamningum og bókhaldslegri meðferð þeirra hér. Það kann að vera að bæjarstjórinn sé sínu ánægðari með að geta sýnt fram á með hæpnum núvirðisreikn- ingum að skuldir bæjarsjóðs hafi ,,aðeins“ vaxið úr um 4,9 milljörðum kr. í um 12 milljarða á þremur og hálfu ári í stað um 15–16 milljarða. Eftir stendur að bæjarbúar eiga eft- ir að greiða vegna umræddra samn- inga rúmlega 6,8 milljarða króna næsta aldarfjórðunginn og standa þá uppi grunnskólalausir, leikskóla- lausir og án íþróttahúsa í ýmsum hverfum bæjarins. Það eru blákald- ar staðreyndir málsins. Að lokum vil ég fagna allri um- ræðu um fjármál bæjarins og sveit- arfélaga almennt. Tryggja verður að bókhald sveitarfélaga sé gagn- sætt og ekki sé hægt að halda millj- arða skuldbindingum fyrir utan efnahagsreikning í því augnamiði að blekkja almenning. Greinargott og skýrt bókhald er liður í auknum kröfum um upplýsingagjöf um þró- un fjármála sveitarfélaga. Undan- brögð og hundakúnstir eiga ekki að líðast í þeim efnum. Það var reynt í Farum-bæ í Danmörku sem hefur verið brautryðjandi á sviði einka- væðingar sveitarfélaga. Nú er Far- um-bær, sem er álíka stór og Hafn- arfjörður, talinn gjaldþrota. Halli bæjarsjóðsins í Farum virðist hafa verið álíka mikill síðustu árin og hjá bæjarsjóði Hafnarfjarðar en þessi sveitarfélög hafa verið í fararbroddi einkavæðingar hvort í sínu landi. Það þarf því ekki að koma á óvart að þeir sem hafa fylgst með þróun fjármála Hafnarfjarðarbæjar séu áhyggjufullir. Sýndarveru- leiki bæjar- stjórans Tryggvi Harðarson Hafnarfjörður Tryggja verður, segir Tryggvi Harðarson, að bókhald sveitarfélaga sé gagnsætt. Höfundur er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. ALVARLEGASTA meinsemd íþrótta í heiminum er lyfjamis- notkun afreksíþrótta- manna. Græðgi í verð- laun, óheiðarleiki og virðingarleysi gagn- vart íþróttinni og öðr- um keppendum ræður þar mestu um. Í gegn- um áratugina hafa fjöl- margir íþróttamenn látist vegna lyfjamis- notkunar, en áfram koma misferlin, aftur og aftur, og setja svart- an blett á íþróttastarf- ið. Fyrirmyndir æsk- unnar breytast úr hetjum í lögbrjóta. Mest ber á þess- um vágesti erlendis en því miður er- um við Íslendingar engin undan- tekning. Alþjóðaólympíunefndin Alþjóðaólympíunefndin tekur nú enn harðar á þessu vandamáli og má nefna nýafstaðna vetrar Ólympíu- leika í Salt Lake City. Þar voru fleiri íþróttamenn teknir fyrir lyfjamis- notkun en á öllum öðrum vetrar Ól- ympíuleikum til samans. Þetta sýnir ákveðni Alþjóðaólympíunefndarinn- ar og vilja hennar til að reyna að uppræta þessa mein- semd. Í Ólympíusátt- málanum er skýrt kveðið á um að þjóðirn- ar verði að fara eftir settum lyfjareglum. Hvað er að gerast hjá ÍSÍ? ÍSÍ er einnig Ólymp- íunefnd Íslands. Þar gerast alvarlegir hlutir. Í grein sem Birgir Guð- jónsson, læknir, ritar í Morgunblaðið 3. apríl undir heitinu „Lyfja- misnotkun og forusta ÍSÍ“. Rifjar hann upp þessi mál af alþjóða- vettvangi og síðustu vandamál ÍSÍ. Allir sem til þekkja vita að Birgir Guðjónsson hefur mestu þekkingu og reynslu Íslendinga af lyfjamálum íþróttahreyfingarinnar, bæði af inn- lendum verkefnum og alþjóðlegum lögum, reglugerðum og framkvæmd lyfjaeftirlits. Í grein Birgis koma fram alvarlegar ásakanir á hendur Ellert B. Schram forseta ÍSÍ og stjórn ÍSÍ. Þar lýsir hann því yfir að steinar séu lagðir í götu lyfjaeftirlits af íþróttaforustunni, ákveðna hópa megi ekki lyfjaprófa, hvað þá ákæra og eigi íþróttamenn sterka að, innan sem utan hreyfingarinnar, sé þeim borgið. Hér koma fram einhverjar alvar- legustu ásakanir á hendur forustu ÍSÍ í 90 ára sögu sambandsins. Fram hjá þessum ásökunum getur íþrótta- hreyfingin ekki litið. Stærsti ágrein- ingurinn gerðist á síðasta ári þegar nokkrir íþróttamenn voru teknir fyr- ir misnotkun lyfja og tveir Íslands- meistaratitlar unnust undir lyfjamis- notkun. Íþróttamennirnir fengu nokkra vikna dóm en erlendis hefðu dómarnir orðið verulega lengri. Það sem vakti athygli við umrædda dóma var að þeir voru það stuttir að hægt var að taka refsinguna út á milli Ís- landsmeistaramóts og landsleikja hrinu mánuði síðar. Einkennileg til- viljun það. Allir sem kynna sér málið gera sér grein fyrir að dómarnir eru hreinir „skandal dómar“ og að málið lyktar illa af öðru enn verra. Forseti ÍSÍ situr undir ásökunum og ámæl- um, og íslensk íþróttahreyfing hefur beðið hnekki, bæði innan- og utan- lands. Hvað gerist næst hjá ÍSÍ? Og hvað svo? Verður þessum mál- um troðið undir stól? Nei, ÍSÍ ætlar að gera skipulagsbreytingar á starf- semi heilbrigðisráðs sambandsins, sem fer með þessi mál. En breyt- ingar á reglugerð koma ekki í veg fyrir óheiðarleika og eftir sem áður standa ásakanirnar á Ellert B. Schram og stjórn ÍSÍ. Ásakanirnar eru það alvarlegar að forseti og stjórn verða að gera hreint fyrir sín- um dyrum. Hvað gera stjórnvöld? Nýlega skipaði menntamálaráð- herra einn af alþingismönnum þjóð- arinnar fulltrúa sinn í heilbrigðisráði ÍSÍ. Ætlar viðkomandi alþingismað- ur að líta framhjá þessu alvarlega máli? Hvað gerist ef málið verður rætt á Alþingi til dæmis við af- greiðslu fjárlaga þar sem íþrótta- hreyfingin fær hundruð milljóna króna í styrk? Munum við haga okk- ur eins og eitthvert „bananalýðveldi“ þar sem fyrirmynd æskunnar, af- reksíþróttamaðurinn, notar ólögleg lyf og sleppur með skrekkinn? Það má ekki gerast. Þessi staða er það al- varleg að hvorki íþróttahreyfingin né opinberir aðilar þola óbreytt ástand. Dópið í íþróttunum og forusta ÍSÍ Júlíus Hafstein Íþróttir Hvorki íþróttahreyf- ingin né opinberir að- ilar, segir Júlíus Haf- stein, þola óbreytt ástand. Höfundur er fyrrverandi formaður Ólympíunefndar Íslands. BÖRN eiga rétt á vernd gegn líkamlegu, kynferðislegu og and- legu ofbeldi og gegn vanrækslu (19. gr. Barnasáttmála SÞ). Fæstir foreldrar vilja börnum sínum illt og flestir foreldrar gera eins vel og þeir geta. Fæstir meiða börn sín viljandi eða af illmennsku en sumir gera það sökum and- legrar eða líkamlegrar vanheilsu, alkóhólisma eða annarra fíknisjúk- dóma eða vegna van- þroska. Það fer yfirleitt ekki á milli mála ef barn hefur verið meitt líkamlega eða kynferðislega en það gegnir öðru máli ef barn er beitt andlegu ofbeldi eða það er andlega eða til- finningalega vanrækt. Andlegt of- beldi á börnum er ekki síður skað- legt og í mörgum tilfellum verra en hið líkamlega, einkun vegna þess hve erfitt er að festa hendur á því og hvað það getur staðið lengi yfir. Það vefst oft fyrir okkur sem er- um fullorðin að átta okkur á and- legu ofbeldi og hvernig við getum brugðist við því. Fyrir barn er það enn erfiðara og það á enga mögu- leika á að verjast því. Andlegt ofbeldi á börnum getur verið í formi harðstjórnar og kúg- unar eða niðurlægingar, vanrækslu og höfnunar. Sumar gerðir refsinga teljast ofbeldi svo og hótanir, öskur, ofurmannlegar kröfur, sum stríðni, háð og uppnefningar. Þá teljast ásakanir um persónu- leikabresti eða vanhæfni til ofbeld- is, vanþóknun sýnd með þögn eða píslarvætti, óviðeig- andi athugasemdir, stöðug neikvæðni, gagnrýni og tvöföld skilaboð. Það telst til andlegrar vanrækslu þegar andlegum, til- finningalegum eða vitsmunalegum þörf- um er ekki sinnt; ekki sýndur áhugi, ekki spjallað, kennt né leið- rétt. Ekki hrósað, hvatt eða leiðbeint. Sumt andlegt of- beldi er alvarlegra og hefur alvarlegri afleið- ingar en annað. Það er alvarlegt andlegt ofbeldi þegar barn er látið bera ábyrgð á fullorðnu fólki og þá látið sinna andlegum, tilfinningaleg- um eða félagslegum þörfum þess. Dæmi um þetta er þegar barn er gert að trúnaðarvini og þarf að heyra um persónulegar áhyggjur og leyndarmál foreldris síns og jafnvel gert þátttakandi í hjóna- bandserfiðleikum, stundum kallað andleg eða tilfinningaleg sifjaspell: „Finnst þér að ég ætti að skilja við pabba þinn?“ „Ég er að hugsa um að skilja við mömmu þína, ég þoli hana ekki lengur.“ „Passaðu að pabbi þinn drekki ekki of mikið.“ „Ég held að mamma þín sé að halda framhjá mér, reyndu að kom- ast að því fyrir mig.“ „Ég hélt framhjá pabba þínum og ef hann spyr þig, segðu þá að …“ „Ég á aldrei eftir að komast yfir allt það sem hann pabbi þinn gerði mér.“ „Hún mamma þín lagði líf mitt í rúst.“ Þá er þess krafist að barnið beri ábyrgð á líðan og velferð foreldris og skynji þarfir þess og bregðist við þeim: „Þú verður að vera heima svo mömmu leiðist ekki.“ „Aumingja pabbi er alltaf svo þunglyndur, þú verður að reyna að gleðja hann.“ „Mamma á svo bágt því það hafa allir verið svo vondir við hana, þú ert eina manneskjan sem hún á að.“ „Ef þú hefðir ekki verið svona óþekkur hefði mamma ekki dottið í það.“ „Pabbi er kominn með maga- sár út af frekjunni í þér.“ „Ef þú færir frá mér myndi ég drepa mig.“ „Þú áttir að sjá hvernig mér leið, ég átti ekki að þurfa að biðja þig …“ Með þessu er verið að leggja á barn ábyrgð sem það getur ekki borið. Barnið fær ekki að vera barn en er þvingað til að taka á sig óbærilegar byrðar sem jafnvel full- orðnum er um megn að bera. Andlegt ofbeldi er ekki alltaf svona skýrt eins og í dæmunum hér að ofan og hægt er að beita miklu andlegu ofbeldi án þess að segja eitt einasta orð! Í mörgum ákvæðum barnavernd- arlaga er andlegt ofbeldi á börnum lýst refsivert og segir til dæmis í 64. grein: Hver, sem beitir barn refsingum, hótunum eða ógnunum og ætla má að slíkt skaði barnið andlega eða líkamlega, skal sæta sektum eða fangelsi allt að þremur árum. Sá skaði sem andlegt ofbeldi veldur er oft mikill og erfitt að bæta. Margir þurfa að glíma við af- leiðingar andlegs ofbeldis alla ævi. Afleiðingar andlegs ofbeldis eru m.a. öryggisleysi, vantraust, erfið- leikar við að tengjast fólki, mikil skömm og vanlíðan, óskýr sjálfs- mynd og óljós mörk, sjálfsfyrirlitn- ing, kvíði, þunglyndi, ofbeldi, sálvef- ræn einkenni, vímuefnanotkun, fíknir, áhættuhegðun og jafnvel sjálfsmorð. Við getum e.t.v. ekki hindrað að börn okkar verði fyrir barðinu á arfgengum geðsjúkdómum en við getum hlúð að geðheilsu þeirra með því að axla ábyrgð á okkur sjálfum og verndað börnin okkar gegn of- beldi, hvaða nafni sem það nefnist. Andlegt of- beldi á börnum Ásta Kristrún Ólafsdóttir Höfundur er ráðgjafi og kennari. Börn Við getum hlúð að geð- heilsu barna, segir Ásta Kristrún Ólafsdóttir, með því að axla ábyrgð á okkur sjálfum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.