Morgunblaðið - 12.04.2002, Qupperneq 59
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 59
MESSAÐ verður sunnudaginn 14.
apríl kl. 14 í nýju kirkjunni á
Ljósavatni. Þessi guðsþjónusta er
sérstaklega merkileg fyrir þær
sakir, að fjögur prestaköll í Þing-
eyjarprófastsdæmi (Skútustaða-,
Grenjaðarstaða-, Ljósavatns- og
Laufássprestakall) sameinast um
þessa messugjörð.
Á þessu svæði eru starfandi 11
kirkjukórar sem lúta stjórn og
handleiðslu 7 organista. Stór hluti
kórfélaganna úr þessum kirkju-
kórum sameinast í kórsöngnum í
Þorgeirskirkju á sunnudaginn, og
á æfingum undanfarið hefur söng-
ur þessa sameiginlega kirkjukórs
hljómað tígulega í Þorgeirskirkju,
sem er einstaklega gott tónleika-
hús.
Fjórir prestar munu þjóna við
guðsþjónustuna, og prédikun flyt-
ur sr. Þorgrímur G. Daníelsson,
prestur á Grenjaðarstað.
Upprunalega var ætlunin að
hafa þessa sameiginlegu guðsþjón-
ustu í lok febrúar sl. en veður kom
í veg fyrir að sú ætlan gengi eftir.
En nú er aftur blásið til sam-
starfs og messan byrjar kl. 14
hinn 14. apríl, og eru allir vel-
komnir.
Samstarfsmessa
í Þorgeirskirkju
Háteigskirkja: Samverustund eldri borg-
ara kl. 13 í umsjón Þórdísar þjónustufull-
trúa.
Laugarneskirkja: Morgunbænir kl. 6.45–
7.05 alla virka daga nema mánudaga.
Mömmumorgnar kl. 10 í umsjá Hrundar
Þórarinsdóttur djákna. Kaffispjall fyrir
mæður, góð upplifun fyrir börn.
Digraneskirkja. Egilsstaðakirkja Laugar-
dagur 13. apríl fræðsla og fyrirbænir með
Teo van der Weele kl. 20.
Kirkjuskólinn í Mýrdal. Lokasamvera.
Síðasta samvera vetrarins á morgun,
laugardag, kl. 11.15 í Víkurskóla. Kveðj-
um brúðurnar Sollu og Kalla. Fjölmenn-
um. Sóknarprestur.
Landakirkja Vestmannaeyjum. Kl. 16.
Litlir lærisveinar, æfing, allir hópar.
Lágafellskirkja. Kirkjukrakkafundur í
Varmárskóla kl. 13.15–14.30.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11–12.30. Lof-
gjörð, barnasaga, prédikun og biblíu-
fræðsla. Barna- og unglingadeildir á
laugardögum. Létt hressing eftir sam-
komuna. Allir velkomnir. Biblíufræðsla
alla virka daga kl. 10, 13 og 22 á FM
105,5.
Hjálpræðisherinn. Kl. 20 bæn og lofgjörð,
umsjón: Major Elsabet Daníelsdóttir.
Hvítasunnukirkjan á Akureyri. Kl. 21 er
unglingasamkoma.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Flóamarkað-
ur frá kl. 10–18.
Sjöundadags aðventistar á Íslandi: Að-
ventkirkjan, Ingólfsstræti: Biblíufræðsla
kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Björgvin Snorrason. Biblíurannsókn og
bænastund á miðvikudagskvöldum kl.
20. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut
2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15.
Guðsþjónusta kl. 11. Í umsjá unga fólks-
ins.
Samlestrar- og bænastund á föstudags-
kvöldum kl 20. Allir hjartanlega velkomnir.
Safnaðarheimili aðventista, Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðs-
þjónusta kl. 11.
Ræðumaður: Kristján Friðbergsson.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum: Biblíufræðsla kl. 10.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Brynj-
ar Ólafsson. Samlestrar- og bænastund
er í safnaðarheimilinu á fimmtudögum kl
17.30. Allir hjartanlega velkomnir.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/biblíufræðsla kl. 11.
Ræðumaður: Maxwell Ditta.
Biblíurannsókn/bænastund á miðviku-
dagskvöldum kl. 20. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Safnaðarstarf
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Mosfellsbær
Tillaga að breytingu
á deiliskipulagi
Höfðahverfis í Mosfellsbæ
Á fundi bæjarstjórnar þann 27. mars 2001
var samþykkt kynning á tillögu að breytingu
á deiliskipulagi Höfðahverfis, í Mosfellsbæ í
samræmi við 1. mgr. 26. gr. skipulags- og
byggingalaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum.
Breyting felst í því að svæði sem áður var
merkt sem framtíðaríbúðarsvæði verður nú
nýtt íbúðarsvæði. Bráðabirgðagöngustígur
færist í legu stígs sem merktur var á upp-
drætti sem framtíðarlega stígs. Bráða-
birgðaaðstaða golfklúbbsins Kjalars ásamt
bráðabirgðabílastæðum flyst af þessu
svæði áður en uppbygging hefst á því.
Tillagan verður til sýnis í afgreiðslu bæjar-
skrifstofu Mosfellsbæjar, Þverholti 2, fyrstu
hæð, frá 10. apríl til 22. maí nk.
Athugasemdir, ef einhverjar eru, skulu hafa
borist skipulagsnefnd Mosfellsbæjar fyrir
24. maí nk.
Þeir, sem ekki gera athugasemdir innan til-
skilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Bæjarverkfræðingurinn í Mosfellsbæ.
TILKYNNINGAR
Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er
hér með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagsáætlun í Reykjavík.
Ártúnshöfði-Eystri, svæðið austan Höfðabakka og norðan Vesturlands-
vegar að Grafarvogi.
Tillagan tekur til svæðis er afmarkast af Vesturlandsvegi til suðurs, Höfðabakka til vesturs,
Grafarvogi til norðurs og landi Keldna til austurs.
Um er að ræða tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir svæðið. Helstu markmið tillögunnar eru að
uppfæra skipulag svæðisins og gera af því heildarskipulag sem bætir ímynd þess og
umhverfisgæði, auka nýtingu á lóðum og þétta byggð, bæta aðkomur og fjölga bílastæðum og
síðast en ekki síst að bæta ásýnd grænna svæða og gera þau aðgengilegri fyrir gangandi
umferð.
Með tillögunni eru skilgreindir byggingarreitir og byggingarréttur á hverri lóð og þ.a.l.
uppbyggingarmöguleikar til framtíðar. Tillagan gerir ráð fyrir að nýtingarhlutfall á svæðinu verði
allt að 0,7 þar sem aðstæður leyfa en að auki verði heimilt, að uppfylltum skilyrðum, að byggja
neðanjarðargeymslur og tæknirými. Gerð er grein fyrir sérskilmálum fyrir hverja lóð varðandi
nýbyggingar, ofanábyggingar og viðbyggingar. Þá gerir tillagan ráð fyrir breytingum á
lóðarmörkum nokkurra lóða auk þess sem skilgreind er ný lóð austan við lóð nr. 44 við
Stórhöfða.
Tillagan liggur frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
10.00 – 16.00 frá 12. apríl til 24. maí 2002. Eru lóðarhafar, fasteignaeigendur og aðrir, sem telja
sig eiga hagsmuna að gæta, hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum
við hana skal skila skriflega til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar
en 24. maí 2002.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Reykjavík, 12. apríl 2002.
Skipulags- og byggingarsvið
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILBOÐ / ÚTBOÐ