Morgunblaðið - 12.04.2002, Qupperneq 66
DAGBÓK
66 FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur verið ögn hugsiyfir þeirri ákvörðun fyrirtækj-
anna, sem standa að Fríkortinu, að
leggja kortið niður. Ef Víkverji man
rétt, áttu ýmis fyrirtæki, sem
standa að fríkortinu, áður aðild að
afsláttarkortum, sem veittu jafnvel
afslátt í beinhörðum peningum. Svo
fóru frípunktar að koma í staðinn,
en nú þykja þeir ekki lengur snið-
ugir. Fyrirtækin benda á að „mark-
aðskannanir hafa sýnt dvínandi
áhuga á tryggðarkerfum og þeirri
umbun sem þau fela í sér.“ Hvað
geta fyrirtækin þá gert til að laða að
sér viðskiptavini? Víkverja finnst
það liggja í augum uppi: Lækka hjá
sér verðið. Bónus er líklega það fyr-
irtæki, sem Víkverji sýnir mesta
tryggð (með því að verzla þar
nokkrum sinnum í viku) og það er
bara af einni ástæðu; þar er lægsta
verðið á nauðsynjum til heimilisins.
Víkverji bíður nú spenntur eftir
verðlækkunum hjá Fríkortsfyrir-
tækjunum, enda vilja þau „líkt og
önnur mæta óskum um aukna hag-
kvæmni með því að draga eftir föng-
um úr markaðskostnaði,“ svo aftur
sé vitnað í fréttatilkynningu frá Frí-
kortinu. Ef það hjálpar til að rauðu
strikin haldi, sér Víkverji ekki eftir
Fríkortinu sínu og er reiðubúinn að
klippa það í þágu lágs vöruverðs.
x x x
KAUPMENN við Bankastrætiog Laugaveg kunna að bjarga
sér, nú þegar fyrrnefnda gatan er
öll sundurgrafin vegna fram-
kvæmda. Á miðvikudaginn auglýsti
fataverzlunin Redgreen á Lauga-
vegi 1 15% afslátt af öllum vörum á
meðan á framkvæmdum stendur.
Það er alvöru kjarabót og sennilega
vekur auglýsingin líka athygli fólks,
sem hefði ekkert verið að spá í vör-
urnar hjá Redgreen þótt Banka-
strætið hefði verið slétt og fellt og
kantsteinninn gullbryddaður. Þarna
má segja að verzlunin hafi snúið
vandamáli upp í tækifæri til að
vekja athygli á sér. Fleiri mættu
taka sér þetta til fyrirmyndar.
x x x
BJÖRGVIN Þorsteinsson verk-fræðingur skrifar ágæta
ádrepu um störf mannanafnanefnd-
ar og íslenzku nafnalögin á strik.is.
Víkverji leyfir sér að grípa niður í
grein Björgvins: „Ein af megin-
reglum um mannanöfn er að enginn
má taka upp nýtt ættarnafn hér á
landi. Þessi hluti laganna er auðvit-
að líka úr takti við tímann. Að bera
ættarnafn – hvort sem það er af er-
lendum eða íslenskum uppruna –
eiga ekki að vera forréttindi fárra
eins og er í dag. Ástæða fólks til að
taka upp ættarnafn getur t.d. verið
fjögurra manna fjölskyldan sem er
orðin þreytt á sífelldum erfiðleikum
og spurningum á ferðalögum um
hvers vegna hún beri fjögur mis-
munandi ættarnöfn (þ.e. kenni-
nöfn)!“
Björgvin bendir líka á að í þjóð-
skránni sé einungis 31 stafur áætl-
aður til að geyma hvert nafn. „Þetta
þýðir að oft þarf að klippa nöfnin til
ef þau eru löng – þ.e. fólk þarf að
breyta nafni barna sinna svo þau
passi í tölvuforrit þjóðskrárinnar!
Ekki er t.d. hægt að heita hinu
rammíslenska nafni – og löglega
samkvæmt mannanafnanefnd –
Kristmundur Björgvin Þangbrands-
son – því það er 32 stafir!“ segir
Björgvin Þorsteinsson.
Dýrahald
Hefur einhver séð
Brútus?
BRÚTUS sem er grá-
bröndóttur högni rúmlega
ársgamall hvarf af heimili
sínu, Dísaborgum 7 (íbúð
203), á fimmtudagskvöldið
4. apríl sl.
Hans er sárt saknað og
er fólk í Grafarvogi vinsam-
legast beðið að horfa eftir
honum og láta heimilisfólk-
ið í Dísaborgum vita ef það
hefur orðið vart við ferðir
hans. Upplýsingar vel
þegnar í eftirtalda síma; hs.
586-2044, Hjördís í síma
698-2916 eða Elvar í síma
699-8944.
Litla læðu
vantar heimili
LÍTIL 2 ára svört og hvít
vönuð læða óskar eftir
heimili. Mjög þrifin og
skynsöm.
Sími 897-8996.
Jóakim er týndur
KÖTTURINN Jóakim, 10
ára dökkbröndóttur högni,
týndist föstudaginn 5. apríl
sl. Jóakim átti að heim-
sækja dýralækninn en
stökk burt frá aðstandend-
um sínum á hlaðinu við
Dýralæknastofu Dagfinns
við Skólavörðustíg 35 og
hefur ekki sést síðan.
Jóakim er auðþekktur á því
að hann er haltur á hægra
afturfæti, því þar vantar
hann framan af þófanum,
og hann hleypur því yfir-
leitt á þremur fótum. Hann
er ómerktur, en tattóverað-
ur í eyra, og með bláa
bjölluól um hálsinn. Fjöl-
skylda Jóakims, sem býr á
Bræðraborgarstíg í gamla
vesturbæ, biður þá sem
hafa séð kisa að láta vita í
síma 695- 0965 eða 562-
7218.
Íbúar í grennd við Skóla-
vörðustíg eru sérstaklega
beðnir að líta eftir Jóakim;
hans er sárt saknað.
Köttur óskar eftir
nýju heimili
ÞRIGGJA til fjögurra ára
fresskött bráðvantar gott
heimili. Hann er afar blíð-
ur, en hefur búið við öm-
urlegar aðstæður undan-
farin ár. Búið er að gelda
hann og hann er eyrna-
merktur. Ef þið hafið
áhuga vinsamlegast hafið
samband í síma 551-7787.
Skari
er týndur
SKARI er fimm mánaða
svartur og hvítur kettling-
ur.
Hann fór frá heimili sínu,
Miðvangi 93 í Hafnarfirði,
laugardaginn 6. apríl sl. og
hefur ekki sést síðan.
Okkur þætti vænt um ef
þið leitið í geymslum, bíl-
skúrum eða öðrum stöðum
þar sem hann gæti leynst.
Vinsamlega hafið sam-
band í síma 692-4493 eða
821-4493 ef þið hafið orðið
hans vör.
Herkúles
er týndur
HERKÚLES er eins árs
persneskur inniköttur.
Hann hvarf aðfaranótt 9.
apríl sl. Herkúles er hvítur,
rakaður á búk, en ekki á
rófu og höfði. Hann er
ómerktur. Ef einhver getur
gefið upplýsingar um ferðir
hans vinsamlegast hafið
samband í síma 863-8550.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT:
1 tilkynnir, 8 úrræðis, 9
bræði, 10 ungviði, 11
staði, 13 út, 15 ósoðið, 18
reik, 21 máttur, 22 rifa,
23 grenjar, 24 glaðvær.
LÓÐRÉTT:
2 fiskar, 3 nirfilslegi, 4
hlífði, 5 sívinnandi, 6 reit-
ur, 7 sigra, 12 op, 14
pinni, 15 ræma, 16 dögg,
17 skánin, 18 herskipa-
mergð, 19 graman, 20
groms.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 glæta, 4 hlýri, 7 tuddi, 8 ristu, 9 næm, 11 nóri,
13 hrun, 14 neita,15 görn, 17 lund, 20 egg, 22 lifur, 23
ryðja, 24 sorti, 25 temja.
Lóðrétt: 1 gætin, 2 ældir, 3 alin, 4 harm, 5 ýmsir, 6 Ið-
unn, 10 æfing, 12 inn, 13 hal, 15 gulls, 16 ræfur, 18 urð-
um, 19 draga, 20 ergi, 21 grút.
K r o s s g á t a
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
AÐ gefnu tilefni langar
mig að biðja starfsfólk
Sorpu að ganga vel og
snyrtilega um fatapok-
ana sem ætlaðir eru
Rauða krossinum. Það
er mikil vinna sem ligg-
ur í því að þurfa að
ganga frá fötunum í
nýja poka, því þeir koma
opnir og illa rifnir frá
Sorpu. Fólkið, sem lætur
fatapokana til Sorpu,
gengur afskaplega vel
frá þeim og þeir eru vel
lokaðir. Þegar fatasöfn-
unin var fyrir utan
verslanir, voru pokarnir
alltaf heilir og órifnir.
Vonandi takið þið
þessum tilmælum mínum
vel.
Guðjón Frímannsson,
kt. 221128-4949.
Vinsamleg tilmæli
til starfsmanna Sorpu
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Jo
Elm og Árni Frið-
riksson koma í dag.
Navigo og Mánafoss
fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
leikfimi og vinnustofa,
kl 12.45 dans, kl. 13
bókband, kl. 14 bingó.
Jóna Kristín stjórnar
söng. Búnaðarbankinn
nk. þriðjudag kl. 10.15.
Árskógar 4. Bingó kl.
13.30, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í síma
535 2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–12 bók-
band, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 10–17 fótaað-
gerð, kl.13 frjálst að
spila. Félagsvist kl.
13.30.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Kóræfingar hjá
Vorboðum, kór eldri
borgara í Mosfellsbæ, á
Hlaðhömrum fimmtu-
daga kl. 17–19. Les-
klúbbur kl. 15.30 á
fimmtudögum. Jóga á
föstudögum kl. 11.
Púttkennsla í íþrótta-
húsinu kl. 11 á sunnu-
dögum. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og
fótanudd, s. 566 8060
kl. 8–16.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 9 opin handa-
vinnustofan.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Bingó í Gullsmára 13 í
dag kl 14.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
13. „Opið hús“ spilað á
spil.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Mynd-
list og brids kl. 13.30.
Skoðunarfeð að Kleif-
arvatni miðvikud. 17.
apríl, lagt af stað frá
Hraunseli kl. 13. Kaffi í
Kænunni í lok ferðar.
Skráning í Hraunseli,
sími 555 0142.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Leikfélagið
Snúður og Snælda sýn-
ir í Ásgarði í Glæsibæ,
félagsheimili Félags
eldri borgara, söng- og
gamanleikinn „Í lífsins
ólgusjó“ og „Fugl í
búri“. Næstu sýningar:
Síðasta sýning í dag
föstudag kl. 14, miða-
pantanir í s: 588 2111
og 568 9082, einnig eru
miðar seldir við inn-
ganginn. Heilsa og
hamingja laugardaginn
13. apríl kl. 13.30 í Ás-
garði. Söguslóðir á
Snæfellsnesi og þjóð-
garðurinn Snæfellsjök-
ull, 3 daga ferð 6.–8.
maí. Skráning hafin á
skrifstofu FEB,
s. 588-2111.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
myndlist og rósamálun
á tré, kl. 9–13 hár-
greiðsla, kl. 9.30
gönguhópur, kl. 14
brids. Opið alla sunnu-
daga frá kl. 14–16,
blöðin og kaffi.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar frá
hádegi, spilasalur op-
inn, Súpa og salatbar í
hádeginu. Laugardag-
inn 20. apríl kl. 16 tón-
leikar Gerðubergskórs-
ins í Fella- og
Hólakirkju. Nánar
kynnt síðar. Upplýs-
ingar um starfsemina
á staðnum og í síma
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 9.15
rammavefnaður, kl. 13
bókband, kl. 13.15
brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 10 glerlist,
bingó kl. 14.
Hraunbær 105. Kl. 9–
12 baðþjónusta, kl. 9–
17 hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir, kl. 9 handa-
vinna, bútasaumur, kl.
11 spurt og spjallað.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 böðun, leikfimi og
postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
13 tréskurður, kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10
boccia. Félagsstarfið
er opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15
handavinna, kl. 13.30
sungið við flygilinn, kl.
14.30 dansað við laga-
val Sigvalda. Rjóma-
pönnukökur með
kaffinu, allir velkomn-
ir.
Vitatorg. Kl. 9 smíði
og hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 leikfimi
og fótaaðgerðir, kl.
12.30 leirmótun,
kl.13.30 bingó.
Háteigskirkja, aldr-
aðir. Samvera í Setr-
inu kl. 13–15. Kl. 13.30
teflt, spilað og rabbað,
kaffi á eftir. Söngur
með Jónu, vöfflur með
kaffinu.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan
verður á morgun. Lagt
af stað frá Gjábakka,
Fannborg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13 kl. 10 á laug-
ardögum.
Söngvinir – Kór aldr-
aðra í Kópavogi – held-
ur vorkonsert í Digra-
neskirkju laugardag kl.
17. Söngstjóri Kjartan
Sigurjónsson, undir-
leikari Sigrún Magna
Þórsteinsdóttir. Á
söngskrá eru innlend
og erlend lög frá æsku-
tíð þeirra sem syngja í
kórnum.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum (um
16–25 ára) að mæta
með börnin sín á laug-
ard. kl. 15–17 á Geysi,
Kakóbar, Aðalstræti 2
(Gengið inn Vest-
urgötumegin). Opið hús
og kaffi á könnunni,
djús, leikföng og dýnur
fyrir börnin.
Minningarkort
Minningarkort ABC
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu
ABC hjálparstarfs í
Sóltúni 3, Reykjavík, í
síma 561-6117. Minn-
ingargjafir greiðast
með gíróseðli eða
greiðslukorti.
Allur ágóði fer til
hjálpar nauðstöddum
börnum.
Minningarkort Barna-
heilla til stuðnings
málefnum barna fást
afgreidd á skrifstofu
samtakanna á Lauga-
vegi 7 eða í síma 561-
0545. Gíróþjónusta.
Barnaspítali Hringsins.
Upplýsingar um minn-
ingarkort Barnaspít-
alasjóðs Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hrings-
ins í síma 551-4080.
Kortin fást í flestum
apótekum á höfuðborg-
arsvæðinu.
Bergmál, líknar- og
vinafélag. Minning-
arkort til stuðnings or-
lofsvikum fyrir krabba-
meinssjúka og
langveika fást í síma
587-5566, alla daga fyr-
ir hádegi.
Minningarkort barna-
deildar Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Minningarkort Thor-
valdsensfélagsins eru
til sölu á Thorvaldsens-
bazar, Austurstræti 4,
s. 551-3509.
Minningarspjöld
Kristniboðssambands-
ins frást á skrifstof-
unni, Holtavegi 28 (hús
KFUM og K gegnt
Langholtsskóla), sími
588-8899.
Líknarsjóður Dóm-
kirkjunnar, minn-
ingaspjöld seld hjá
kirkjuverði.
Minningarkort Stóra-
Laugardalssóknar,
Tálknafirði, til styrktar
kirkjubyggingarsjóði
nýrrar kirkju í Tálkna-
firði, eru afgreidd í
síma 456-2700.
Minningarspjöld Frí-
kirkjunnar í Hafn-
arfirði fást í Bókabúð
Böðvars, Pennanum í
Hafnarfirði og Blóma-
búðinni Burkna.
Í dag er föstudagur 12. apríl, 102.
dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Lofaður sé Drottinn, hrópa ég, og
ég frelsast frá óvinum mínum.
(Sálm. 18, 4.)