Morgunblaðið - 23.04.2002, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ertu a› ver›a pabbi?
Pabbi er greinargó› handbók
sem svarar öllum helstu
spurningum um me›göngu,
fæ›ingu og ungbarni›.
Ómissandi bók fyrir ver›andi
fe›ur.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
E
D
D
1
75
29
04
/2
00
1
Það er nú ekkert smá hagræði að geta verið í eilífu góðæri og þurfa
aldrei framar að taka niður sólgleraugun, góði minn.
Alþjóðlegur dagur bókarinnar
Staða bókar-
innar á Íslandi
er firnasterk
Í DAG er alþjóðlegurdagur bókarinnar oger heilmikið á dag-
skrá hér á landi í tilefni
þess eins og vant er. Það
er Bókasamband Íslands
sem sér um hátíðarbrigði
dagsins. Formaður sam-
bandsins er Stefán Ólafs-
son, en hann er fulltrúi
Félags bókargerðar-
manna í stjórn Bókasam-
bandsins. Morgunblaðið
lagði nokkrar spurningar
fyrir Stefán á dögunum
og eru svör hans hér að
neðan.
Segðu okkur aðeins frá
alþjóðlegum degi bókar-
innar og Bókasambandi
Íslands.
„Alþjóðlegur dagur
bókarinnar var fyrst
haldinn 23. apríl árið 1996. Okk-
ur Íslendingum finnst það sjálf-
sagður hlutur að fæðingardagur
Halldórs Kiljan Laxness sé al-
þjóðlegur dagur bókarinnar, en
auðvitað er það aldeilis frábær
tilviljun að aldarafmælis skálds-
ins okkar á Gljúfrasteini skuli
vera minnst um allan heim í dag.
Bókasamband Íslands hefur um-
sjón með Degi bókarinnar á Ís-
landi. Sambandið er lausleg sam-
tök Félags bókargerðarmanna,
Félags íslenskra bókaútgefenda,
Hagþenkis, Rithöfundasambands
Íslands, Samtaka gagnrýnenda,
Samtaka bókaverslana, Samtaka
iðnaðarins og Upplýsingar. Ég
er fulltrúi Félags bókargerðar-
manna í stjórn Bókasambands-
ins og er nú formaður þess.“
Hvernig stendur bókin að vígi
í tölvu- og margmiðlunarum-
hverfinu?
„Staða bókarinnar á Íslandi er
firnasterk þótt sviptingar séu í
bókaútgáfunni. Við lesum mikið,
kaupum bækur og teljum bók
sjálfsagða gjöf. Bókasöfn eru í
sókn og eru alhliða menningar-
stofnanir um land allt. Já, það er
óhætt að segja að bókin lifi góðu
lífi á Íslandi í dag.“
Er einhver sérstök yfirskrift
að þessu sinni?
„Börn og bækur er yfirskrift
bókavikunnar í ár. Barnabækur
eru á tilboðsverði í bókabúðum
og ég hvet fólk til að nýta sér
það. Ég tel reyndar að áhyggjur
af því að tölvukynslóðin lesi ekki
bækur séu orðum auknar. Þátt-
taka í og áhugi á upplestrar-
keppni barna og unglinga um
land allt segir okkur ennfremur
að unga fólkið les einnig bækur
sjálfu sér til gagns og ánægju.
Það eru hins vegar gömul sann-
indi og ný að það sem börn venj-
ast í æsku verður vani. Ef ekki
er lesið fyrir börnin eru minni
líkindi til að þau lesi sjálfum sér
til ánægju og ef ekki er lesið á
heimilinu verður það ekki eðli-
legur þáttur af lífinu.
Sjálfur er ég nýbúinn
að lesa bækurnar um
Harry Potter og bíð
spenntur eftir næstu
bók. Ég var einfald-
lega ekki samræðuhæfur við
börnin í fjölskyldunni. Ég komst
þó fljótlega að því að biðröð var
eftir bókunum á bókasafninu
mínu og það endaði með því að
ég las þær á ensku.“
Segðu okkur annars frá dag-
skrá Dags bókarinnar í dag.
„Dagskrá dagsins er þétt. Í
bókasöfnum um land allt er dag-
skrá helguð Laxness og í bóka-
verslunum verður einnig mikið
um að vera. Laxnesshátíð hefst í
heimabæ skáldsins, Mosfellsbæ,
en segja má að dagskráin hefjist
með því að klukkan 10 afhjúpar
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
hellu í gangstétt sem merkir
steinbæinn, fæðingarstað Hall-
dórs Laxness á Laugavegi 32 í
Reykjavík. Rithöfundasamband-
ið og Borgarbókasafnið standa
að þessu og rithöfundar hlaupa
síðan 24 km Laxness-boðhlaup
upp að Gljúfrasteini. Hagþenkir
og Reykjavíkurakademían gang-
ast fyrir upplestri úr verkum
Laxness frá morgni til kvölds.
Vigdís Finnbogadóttir hefur
lesturinn klukkan 10. Um kvöld-
ið verður bókmenntakvöld í
Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8,
heimili Rithöfundasambandsins.
Dagskrá vikunnar var auglýst í
Morgunblaðinu á sunnudaginn
og dagskrá hvers dags er kynnt
dag hvern.“
Og svo er eitthvað meira eða
hvað?
„Bókasambandið ætlar að
bjóða í Halldórsgöngu um kvöld-
ið. Gangan hefst klukkan 19 við
Laugaveg 32, fæðingarstað Hall-
dórs Laxness. Guðjón Friðriks-
son, rithöfundur og sagnfræðing-
ur, leiðir okkur um slóðir
Halldórs. Hversu víða verður
farið ræðst af veðrinu. Göngunni
lýkur í Félagsheimili bókargerð-
armanna, Hverfisgötu
21, en þangað komu
Halldór og vinir hans
gjarna á heimili þeirra
Kristínar Guðmunds-
dóttur og Hallbjarnar
Halldórssonar. Félag bókargerð-
armanna býður veitingar í tilefni
dagsins. Til sýnis verða áritaðar
frumútgáfur bóka Halldórs og
skjöl tengd Halldóri og félögum
hans í Mjólkurfélagi heilagra.
Félag bókargerðarmanna mun
við þetta tækifæri afhenda
Landsbókasafni Íslands – Há-
skólabókasafni bréfasafn Hall-
bjarnar og Kristínar.“
Stefán Ólafsson
Stefán Ólafsson er fæddur í
Reykjavík 16. júní 1945. Hann
lauk námi í prentsetningu í
Alþýðuprentsmiðjunni 1968.
Vann hann við bókaútgáfu næsta
áratuginn og var þvínæst fram-
leiðslustjóri í prentsmiðju í hálft
fimmta ár. Frá 1983 hefur hann
unnið við blaðaútgáfu og er nú
annar tveggja umsjónarmanna
minningargreina í Morgun-
blaðinu. Eiginkona Stefáns er
Bára Björk Lárusdóttir banka-
maður og eiga þau þrjú börn.
Yfirskriftin
er börn og
bækur
FERÐAMÁLARÁÐ Íslands veitti
um helgina Klúbbi matreiðslu-
meistara fjölmiðlabikar ferða-
málaráðs fyrir gott starf í þágu Ís-
landskynningar sem hefur skilað
sér í mikilli erlendri fjölmiðlaum-
fjöllun. Afhendingin fór fram á sýn-
ingunni „Matur 2002“ í Kópavogi
og veitti Gissur Guðmundssyni, for-
maður Klúbbs matreiðslumeistara,
bikarnum viðtöku úr hendi Sturlu
Böðvarssonar, samgönguráðherra.
Sturla sagði við afhendinguna að
kynningar íslenskra matreiðslu-
meistara á hámenningu Íslendinga
í matargerð hefðu vakið mikla at-
hygli erlendis og áhersla þeirra á
úrvals hráefni og náttúrulegar af-
urðir hefðu opnað augu ótalmargra
á hreinni og óspilltri náttúru Ís-
lands. Mikil umfjöllun um íslenskan
mat og íslenskt hráefni í stórum og
virtum erlendum fjölmiðlum hefði
leitt af sér mikil greinaskrif um Ís-
land sem áskjósanlegan áningar-
stað fyrir sælkera.
Fjölmiðlabikar Ferðamálaráðs
Íslands var afhendur í fyrsta sinn
árið 1982, þá Sæmundi Guðvinssyni
fyrir skrif hans um ferðamál. Síðast
fékk bikarinn Gunnar Marel Egg-
ertsson, skipasmiður og skipstjóri
víkingaskipsins Íslendings.
Morgunblaðið/Jim Smart
Fjölmiðlabikarinn var afhentur
Klúbbi matreiðslumeistara á 30
ára afmæli klúbbsins.
Fjölmiðlabik-
arinn til Klúbbs
matreiðslu-
meistara