Morgunblaðið - 23.04.2002, Side 17
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 17
Hlífðar- og flísfatnaður
Jakki og buxur
til í tveim litum
9.980 kr.
Flíspeysur
mikið úrval
2.995kr.
Verð frá
HALLDÓR Laxness skapaði marg-
ar eftirminnilegar persónur í verk-
um sínum og ennfremur gaf hann
þeim nöfn sem vöktu athygli. Eftir
miðbik síðustu aldar fór að bera
meira á fólki sem bar nöfn skáld-
sagnapersóna hans, Bjartur, Diljá,
Steinn Elliði, Snæfríður, Ásta Sól-
lilja og Salka, svo nokkur séu
nefnd. Í tilefni af aldarafmæli Nób-
elskáldsins hitti blaðamaður þrjár
ungar stúlkur sem bera nöfn helstu
kvenskörunga í verkum hans, Snæ-
fríði, Ástu Sóllilju og Sölku.
„Hún var ótrúlega grönn, barm-
urinn næstum einginn, hinn gullni
útilitur hennar frá í fyrrahaust
hafði laungu þokað fyrir við-
kvæmum fölva, en blámi augnanna
var jafnvel skærari en þá.“ Þannig
er Snæfríði lýst í Íslandsklukkunni
þegar athyglin beinist að henni í
verkinu.
Snæfríður Stefánsdóttir, 13 ára,
er ákaflega stolt af nafni sínu en
segir að stundum hafi sér verið
strítt þegar hún var yngri. „Krakk-
arnir hrópuðu stundum á eftir mér
Snæfríður snjókall eða eitthvað í
þá áttina, en ég lét það ekkert á
mig fá.“ Það var faðir Snæfríðar
sem átti hugmyndina að nafninu,
en hann hafði þá lesið Íslands-
klukkuna og hrifist af því. „Fólk-
inu leist nú ekkert á þetta fyrst.
Snæfríður var bara 8 merkur þeg-
ar hún fæddist og þegar hún var
skírð fannst fólki þetta alltof stórt
nafn á svona litla stelpu. Hún heitir
Aþena að millinafni og Snæfríður
Aþena stóð eitthvað í fólki. Í dag er
fólk hins vegar mjög jákvætt og
finnst þetta glæsilegt nafn,“ segir
Sólveig Ásta Jónasdóttir, móðir
Snæfríðar.
„Þetta var dökkhærður únglíng-
ur, fölleit, með lánga kjálka og
sterka höku, skaut öðru auganu
dálítið í skjálg. Hún var dökk á
brún og brá, en augun sindurgrá
einsog brotið járn. Þetta var eina
andlitið á bænum sem hafði lit og
lögun, …“ segir um Ástu Sóllilju í
Sjálfstæðu fólki.
Soffía Inga Axelsdóttir móðir
Ástu Sóllilju Jónsdóttur, sem er
fimm ára, hafði lesið Sjálfstætt fólk
í íslenskuáfanga í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja og nafnið sat í henni.
„Þegar við maðurinn minn eign-
uðumst svo stelpu fyrir fimm árum
stakk ég upp á þessu nafni en hann
sagði þvert nei. Móðir hans heitir
Ásta en honum leist ekkert á að
skeyta Sóllilju-nafninu við. Hann
tók það svo í sátt og yfirhöfuð eru
allir mjög jákvæðir gagnvart nafn-
inu. Maður finnur það þó strax í
viðhorfi fólks hvort það þekkir
söguna eða ekki,“ segir Soffía.
Kristján Jóhannsson, faðir hinn-
ar fjögurra ára gömlu Sölku, tekur
undir orð Soffíu hvað síðasta atrið-
ið varðar og bætir við að í skírn-
arathöfninni hafi gretta komið á
andlit sumra þegar nafn hennar
var tilkynnt. „Þeir sem á annað
borð tjá sig um nafnið eru yfirleitt
þeir sem þekkja Sölku Völku. Ég
hafði reyndar ekki lesið bókina
þegar ég stakk upp á því að skíra
dóttur okkar Sölku, en konan mín
hafði stúderað Laxness í Háskól-
anum og varð strax hrifin. Ég
drakk hana svo í mig seinna, ásamt
öðrum verkum skáldsins. Við leit-
uðum einnig á mið Laxness þegar
kom að millinafni, en þar varð
Björt fyrir valinu,“ sagði Kristján
að lokum og ljóst er að nöfnurnar
eiga að minnsta kosti flétturnar
sameiginlegar.
„Hár hennar skolljóst, var í
tveim fléttum, glær augun, næstum
vatnslit, kvikuðu frá einu til annars
og breiður munnurinn með þykk-
um sívotum vörum, hreyfðust
óþarflega mikið þegar hún talaði;
bros hennar, sem beraði mikla og
sterka skolta, var ekki fjarri því að
líkjast grettu, en augun þrýstust
saman og urðu að tveim rifum.“
Þannig lýsir Laxness Sölku Völku
ungri.
Bera nöfn kven-
skörunga Laxness
Ásta Sóllilja, Snæfríður og Salka með þau verk Laxness sem nöfn þeirra
eru sótt í. Yfir þeim trónir skáldið sjálft en lágmyndin er sköpunarverk
Erlings Jónssonar myndhöggvara og í eigu Bókasafns Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær
HÖSKULDUR Heiðar Ásgeirsson
skipar efsta sætið á lista Framsókn-
arfélags Sandgerðis við komandi
bæjarstjórnar-
kosningar. Nýr
frambjóðandi er í
öðru sætinu, Est-
er Grétarsdóttir.
Framsóknar-
menn eiga einn
fulltrúa í bæjar-
stjórn Sandgerðis,
Höskuld Heiðar
Ásgeirsson, og er
hann í minnihluta.
Hann mun áfram
leiða framboðið en nýtt fólk er í
næstu sætum.
Listi flokksins er þannig skipaður:
1. Höskuldur Heiðar Ásgeirsson
bæjarfulltrúi, 2. Ester Grétarsdóttir
rannsóknamaður, 3. Ástvaldur Jó-
hannesson sjómaður, 4. Haraldur
Hinriksson bæjarstarfsmaður, 5.
Jónína G. Hlíðberg leirlistakona, 6.
Helga Hrönn Ólafsdóttir húsmóðir,
7. Jóhannes Bjarnason stálvirkja-
smiður, 8. Kolbrún Marelsdóttir
þroskaþjálfi, 9. Bjarki Dagsson
nemi, 10. Jón Sigurðsson, bóndi og
golfvallarstjóri, 11. Elfar Grétars-
son, beitningamaður og þjálfari, 12.
Anna Elín Björnsdóttir húsmóðir,
13. Unnur Sveindís Óskarsdóttir
verslunarstjóri og 14. sætið skipar
Pétur Guðlaugsson sjómaður.
Kosningaskrifstofa B-listans verð-
ur opnuð á Strandgötu 21 sumardag-
inn fyrsta, kl. 14, og eru allir vel-
komnir, segir í fréttatilkynningu.
Heiðar
Ásgeirsson
áfram í
fyrsta sæti
Höskuldur
Heiðar
Ásgeirsson
Sandgerði
BOÐAÐ hefur verið til stofnfundar
Tómstundabandalags Reykjanes-
bæjar (TRB) í kvöld. Fundurinn
verður í Selinu, Vallarbraut 4, og
hefst klukkan 20.30.
Á kynningarfundi sem haldinn var
á dögunum kom fram mikill áhugi fé-
laga á stofnun Tómstundabandalags.
Rétt til inngöngu hafa klúbbar sem
starfa að hvers kyns tómstunda- og
félagsmálum og standa fyrir utan
Íþróttabandalag Reykjanesbæjar.
Tómstunda-
bandalag
stofnað
Reykjanesbær
ATVINNUÁSTAND á Suðurnesj-
um hefur heldur versnað fyrstu mán-
uði ársins ef miðað er við tvö síðustu
ár. Ástandið núna er líkt og árið
1999, samkvæmt upplýsingum Ketils
G. Jósefssonar, forstöðumanns
Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja,
en ólíkt hvað kynjahlutfall snertir
þar sem karlmönnum á atvinnuleys-
isskrá hefur fjölgað umtalsvert. Útlit
fyrir næstu mánuði er hins vegar tal-
ið nokkuð gott.
Meðalfjöldi atvinnulausra á Suð-
urnesjum var 191 í mars, eða 2,4%
sem er það sama og var í febrúar
samkvæmt samantekt Vinnumála-
stofnunar. Í lok mars voru 93 karlar
atvinnulausir á móti 146 konum.
Flestir eru ófaglærðir.
Samdráttur í byggingageiranum
og í verktakastarfsemi hefur bitnað á
atvinnu karla, samkvæmt upplýsing-
um Ketils. Einnig hefur borið á upp-
sögn sjómanna þar sem verið er að
leggja smærri bátum vegna kvóta-
leysis og erfiðrar fjárhagsstöðu.
Samdráttur hefur einnig átt sér stað
í verslun, smærri verslunum fækkar.
Eins og venjulega á þessum árs-
tíma er verið að ráða fólk til sum-
arafleysinga og gengur það nokkuð
greitt fyrir sig, að því er fram kemur
hjá Katli. Hann metur það svo að
horfur séu nokkuð góðar fyrir næstu
mánuði en blikur á lofti varðandi
næsta haust og vetur. Ef fram held-
ur sem horfir í sjávarútveginum
muni starfsfólki í fiskvinnslu fækka.
Þá hafi Flugleiðir greint frá sam-
drætti í flugi til Bandaríkjanna með
því að ferðir til New York verði lagð-
ar niður á haustdögum og fram til
vors. Segir Ketill að það sé bót í máli
að enn sem komið er sé lítið um lang-
tíma atvinnulaust fólk á skrá. Með-
alviðverutími á atvinnuleysisskrá
hafi verið í kringum 3 mánuði.
„Þrátt fyrir bjartsýni erum við
sannfærð um að hlúa þurfi betur að
þeirri atvinnustarfsemi sem fyrir er
á svæðinu og vera opin fyrir nýjum
tækifærum,“ segir Ketill G. Jósefs-
son á Svæðisvinnumiðlun Suður-
nesja.
Heldur meira atvinnuleysi er á Suðurnesjum en undanfarna tvo vetur
Horfur taldar
nokkuð góðar
Reykjanes
♦ ♦ ♦