Morgunblaðið - 23.04.2002, Síða 33
Lyfjamál
Dómurinn hefur því
hvorki hlustað á, segir
Birgir Guðjónsson, né
lesið rök mín.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 33
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi sjóðsins á árinu 2001.
2. Tryggingafræðileg úttekt.
3. Fjárfestingarstefna sjóðsins.
4. Ársreikningur fyrir árið 2001.
5. Kosning stjórnarmanna og varamanna þeirra.
6. Kosning endurskoðanda.
7. Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
8. Önnur mál.
Dagskrá:
A
B
X
/
S
ÍA
Ármúli 13, 108 Reykjavík
sími 515 1500
www.kaupthing.is
Tillögur að breytingum á samþykktum sjóðsins hafa
verið sendar öllum sjóðfélögum og rétthöfum. Einnig
er hægt að nálgast tillögurnar á skrifstofu Kaupþings
að Ármúla 13.
Sjóðfélagar og rétthafar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
Stjórn Lífeyrissjóðsins Einingar minnir á ársfund fyrir
sjóðfélaga og rétthafa, í dag þriðjudaginn 23. apríl
kl. 17.15. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu.
Til sjóðfélaga og rétthafa í
Lífeyrissjóðnum Einingu
MANNVIRKJUM er
yfirleitt ætlað að vera
varanleg og þess vegna
eru með skipulagi ekki
bara teknar ákvarðanir
fyrir nútímann heldur
einnig gjarnan fyrir
framtíðina. Næstu kyn-
slóðir verða að sitja
uppi, ekki bara með það
sem vel þykir hafa tek-
ist, heldur einnig það
sem lakara reynist.“
Þessar línur las und-
irrituð í Fasteignablaði
Morgunblaðsins 19.
sept. árið 2000. Það
hefði farið betur ef
hugsað hefði verið til framtíðar
þegar svæðið fyrir neðan Grænás-
veginn var skipulagt og þar hefðu
komið falleg íbúðarhús undir klett-
unum í stað iðnaðarhverfisins sem
þar er nú. Þetta iðnaðarhverfi sitja
íbúarnir nú uppi með þeim til ama
og leiðinda.
Reyndar er í núverandi skipu-
lagi verið að dreifa iðnaðarsvæðum
út um allan bæ og
nýjasta hugmyndin
er svokallað Borgar-
hverfi við Reykja-
nesbraut sem er al-
gjörlega á skjön við
hugmyndir umhverf-
issinnaðra íbúa bæj-
arins því að það er í
alltof mikilli nálægð
við Rósaselsvötnin
en þar er mikið
fuglalíf, ræktun trjá-
gróðurs komin vel af
stað og komin vísir
að skemmtilegu úti-
vistarsvæði.
Talsverðar skipu-
lagsbreytingar hafa
orðið í Reykjanesbæ undanfarin
ár.
Gömul hús hafa horfið og ný
komið í þeirra stað og misjafnlega
vel tekist til. Það er mikill vandi að
hanna hús á auðar lóðir í grónum
hverfum eins og talsvert hefur ver-
ið gert í bænum.
Ný hverfi eru byggð og bærinn
stækkar og þéttist. Hefur undirrit-
uð fylgst af áhuga með þessum
breytingum öllum. Leikmanni virð-
ast ákvarðanir sem teknar eru um
skipulag í bænum oft á tíðum ákaf-
lega handahófskenndar. Íbúar
bæjarins eiga að geta treyst því að
við aðalskipulag hverfisins sem
þeir kjósa að búa í sé hugsað til
framtíðar.
Grænás
Fyrsta húsið er nú að rísa á einu
af skemmtilegasta byggingarsvæði
bæjarins, Grænásnum. Útsýni það-
an er stórkostlegt yfir Njarðvík-
urfitjarnar, byggðina í Innri-
Njarðvík, svartan og hrikalegan
Vogastapann, Reykjanesfjallgarð-
inn og Keili, byggðina á Stór-
Reykjavíkursvæðinu að ógleymdri
Esjunni, Akrafjallinu og Skarðs-
heiðinni. Það eina sem skyggir á
útsýnið er Steypustöðin en hún er
fortíðarskipulagsgalli sem þarf að
hverfa. Skipulagsyfirvöld tóku þá
einkennilegu ákvörðun að staðsetja
húsin í Grænásnum þannig að
frekar var tekið tillit til þess að
þau hefðu suðurgarð en að taka
mið af því að frá þeim mætti njóta
útsýnisins sem best. Vonandi hafa
hönnuðir húsanna því séð til þess
að bæta úr þessum skipulagsgalla
og íbúar þeirra fái notið útsýnisins.
Lágseyla
Í Lágseylunni er fyrsta húsið
risið og annað í byggingu. Þar eru
ákaflega skemmtilegar lóðir þar
sem aðeins nokkrir metrar eru nið-
ur að sjó og útsýni er yfir víkina
og sjóinn til Keflavíkur, Bergs,
Snæfelljökuls og fjallgarðsins á
Snæfellsnesi. Eflaust forðast
margir þessar lóðir sökum nálægð-
ar þeirra við sjóinn því í norð-
anroki er sjávarseltan mikil og
eins og ein kunningjakona und-
irritaðrar sagði: „Eftir norðanátt
eru krossfiskarnir límdir við
gluggana hjá manni.“ En hvað er
ekki hægt að leggja á sig til þess
að hafa fallegt útsýni og greiðan
aðgang að skemmtilegu útivistar-
svæði? Þegar þessi byggingasvæði
eru orðin að veruleika eru byggð-
irnar í Reykjanesbæ, Keflavík og
Ytri- og Innri-Njarðvík samtengd-
ar.
Á skipulagi sem nú er í vinnslu
er gert ráð fyrir íbúðarbyggð við
Kópuvík og á svæðinu fyrir ofan
Stapann. Á báðum þessum svæð-
um er útsýnið stórkostlegt og það
sem mestu máli skiptir við skipu-
lagningu og hönnun húsanna.
Torkelískóli á að rísa í Innri-
Njarðvík árið 2007, fyrir íbúa þess-
ara byggða.
Með góðri stjórn á Reykjanes-
bær mikla framtíð fyrir sér. Þar er
næg atvinna og gott að búa. Fegr-
un bæjarins hefur víða tekist vel
en betur má ef duga skal og því
næg verkefni fyrir nýja stjórnend-
ur. Vonandi verður þetta grein-
arkorn til þess að vekja byggingar
og skipulagsnefndir til umhugsun-
ar um það hversu mikil ábyrgð
hvílir á þeim fyrir framtíð bæj-
arins og íbúa hans.Svanhvít
Guðmundsdóttir
Höfundur er lyfjatæknir að mennt
og skólaritari Njarðvíkurskóla.Skipulag
Með góðri stjórn,
segir Svanhvít Guð-
mundsdóttir, á Reykja-
nesbær mikla framtíð
fyrir sér. Þeir sem
skipuleggja umhverfi
og byggð gegna ábyrgð-
armiklu hlutverki.
Skipulagsmál í Reykjanesbæ
Í GREIN sinni í
Mbl. 20.04. lætur
lyfjadómstóll ÍSÍ að
því liggja að niður-
staða dómsins hafi
verið vegna vankunn-
áttu minnar og óljósra
krafna og dómstóllinn
hafi aðeins hlustað á
mín rök. Það síðasta
er einfalt að afsanna.
Í upphafi dómhaldsins
leyfði dómforseti lög-
fræðingi að ávarpa
réttinn þótt sá ætti
ekki aðild að málinu.
Ég taldi sýknukröfu
fáránlega í ljósi þess
að um borðleggjandi tveggja ára
brot var að ræða.
Kæran var sett fram á
þann hátt sem við-
gengist hefur um
tveggja áratuga skeið.
Lokasetning var:
„Heilbrigðisráði sem
ábyrgðaraðila lyfjaeft-
irlits hafa til þessa
ekki borist nein gögn
um astma eða
áreynsluastma og
verður því að krefjast
refsingar skv. lögum
ÍSÍ.“ Þetta urðu einn-
ig mín síðustu orð,
eftir árangurslausa
tilraun til að fá gögn
sem hefðu dugað til að réttlæta
þriggja mánaða keppnisbann með
leyfi FIBA og IOC.
Dómurinn hefur því hvorki
hlustað á né lesið rök mín.
Næsti gjöriði svo vel.
Birgir
Guðjónsson
Höfundur er læknir og fv. formaður
Heilbrigðisráðs ÍSÍ.
Svar til lyfjadómstóls