Morgunblaðið - 23.04.2002, Page 60
DAGBÓK
60 ÞRIÐJUDAGUR 23. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Discovery kemur og fer
í dag. Tjaldur kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss kom til
Straumsvíkur í gær,
Prizvanie, Gnúpur GK
og Ljósafoss komu í
gær.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs, Hamraborg
20a. Fataúthlutun í dag
kl. 17–18.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, leirkera-
smíði, kl. 10 boccia, kl.
10 enska, kl. 11 enska
og dans, Lance-dans, kl.
13 vinnusofa, postulíns-
málning og bað. Mið-
vikud. 24. apríl verður
farið um nýju hverfin í
Garðabæ og Hafn-
arfirði. Laufey Jóhanns-
dóttir, forseti bæj-
arstjórnar í Garðabæ
veitir leiðsögn á ferð
um Garðabæ og Magn-
ús Gunnarsson, bæj-
arstjóri, veitir leiðsögn
á ferð um Hafnarfjörð.
Kaffi drukkið í Fé-
lagsmiðstöð aldraðra í
Hraunseli í Hafnarfirði.
Lagt af stað frá Afla-
granda kl. 13. Skráning
á skrifstofunni eða í s.
562 2571.
Árskógar 4. Kl. 9 bók-
band og öskjugerð, kl.
13 opin smíðastofa. All-
ar upplýsingar í s.
535 2700. Sumarfagn-
aður síðasta vetrardag,
24. apríl, dansleikur frá
kl. 20.30 – kl. 11.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9–9.45 leik-
fimi, kl. 9–12 tréskurð-
ur, kl. 9–16 handavinna,
kl. 10–17 fótaaðgerð, kl.
10 sund, kl. 13 leirlist,
kl. 14 dans.
Eldri borgarar, Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið,
Hlaðhömrum, er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Lesklúbbur kl.
15.30 á fimmtudögum.
Jóga föstudaga kl. 11.
Kóræfingar hjá Vorboð-
um, kór eldri borgara í
Mosfellsbæ, á Hlað-
hömrum fimmtudaga kl.
17–19. Púttkennsla í
íþróttahúsinu kl. 11 á
sunnudögum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586 8014
kl. 13–16. Uppl. um fót-,
hand- og andlitssnyrt-
ingu, hárgreiðslu og
fótanudd, s. 566 8060 kl.
8–16.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9–12 aðstoð
við böðun, kl. 9–16.45
hárgreiðslustofan opin,
kl. 10 samverustund, kl.
14 félagsvist.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 13
föndur og handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Brids,
saumur undir leiðsögn
og frjáls handavinna kl.
13.30, spænskukennsla
kl. 16.30. Á morgum
línudans kl. 11, myndlist
og glerskuður kl 13,
pílukast kl 13.30. Dans-
leikur á morgun. „Síð-
asta vetrardag“ kl.
20.30, Caprí tríó leikur
fyrir dansi. Morg-
ungangan hefst laug-
ardaginn 27. apríl, farið
frá Hraunseli kl. 10.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádeginu.
Þriðjudaginn: Skák kl.
13 og alkort spilað kl.
13.30. Miðvikud.:
Göngu-Hrólfar fara í
göngu frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10. Söng-
félag FEB, kóræfing kl.
17. Línudanskennsla kl.
19.15. Söguslóðir á
Snæfellsnesi og þjóð-
garðurinn Snæfellsjök-
ull, þriggja daga ferð
6.–8. maí, gisting á
Snjófelli á Arnarstapa,
farið verður á Snæfells-
jökul, leiðsögn Valgarð
Runólfsson. Skráning
hafin á skrifstofu FEB.
Silfurlínan er opin á
mánudögum og mið-
vikudögum frá kl. 10–
12, s. 588 2111. Skrif-
stofa félagsins er flutt
að Faxafeni 12, sama
símanúmer og áður. Fé-
lagsstarfið er áfram í
Ásgarði, Glæsibæ. Upp-
lýsingar á skrifstofu
FEB.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
vinnustofa, tréskurður,
kl. 9–13 hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 12.40
Bónusferð, kl. 13.15
bókabíll. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–
16, blöðin og kaffi.
Félagsstarf eldri borg-
ara, Grafarvogi. Mið-
vikudaginn 24. apríl kl.
10 boða Korpúlfarnir til
mánaðarlegs fundar í
Miðgarði, Langarima
21. Gestur fundarins er
Ragnheiður Davíðs-
dóttir, forvarnafulltrúi
hjá VÍS. Umræður og
fyrirspurnir að loknu
erindi. Heitt á könn-
unni. Farið verður 26.
apríl. Varðskipið skoðað
undir leiðsögn fulltrúa
Landhelgisgæslunnar
og snæddur hádeg-
isverður í skipinu að
skoðun lokinni. Skrán-
ing í síðasta lagi mið-
vikud 24. apríl hjá Þráni
í s. 5454 500.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
mennska, kl. 13 boccia,
veitingar í Kaffi Bergi.
Föstudaginn 26. apríl
opnar Hugi Jóhann-
esson myndlistarsýn-
ingu kl. 16, m.a. syngur
Gerðubergskórinn, allir
velkomnir. Allar upplýs-
ingar í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.50 leik-
fimi, kl. 9.30 gler-
skurður, kl. 10 handa-
vinna, kl. 14
þriðjudagsganga og
boccia, kl. 16.20 kín-
versk leikfimi, kl. 19
brids.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13–16 handa-
vinnustofan opin, leið-
beinandi á staðnum, kl.
19 gömlu dansarnir.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og leikfimi, kl.
9.45 bankaþjónusta, kl.
13 handavinna, kl. 13.30
helgistund. Kl. 14
Heimsókn frá D-lista
Sjálfstæðiflokks og
verður Björn Bjarnason
í broddi fylkingar. Fóta-
aðgerð, hársnyrting.
Leikhúsferð. Föstudag-
inn 5. maí verður farið
að sjá Kryddlegin
hjörtu í Borgarleikhús-
inu. Skráning á skrif-
stofunni og í s.
588 9335.
Hraunbær 105. Kl. 9
postulínsmálun, kl. 9
glerskuður og trémálun,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 12.15 versl-
unarferð í Bónus, kl. 13
myndlist, kl. 13–17 hár-
greiðsla.
Háteigskirkja. Eldri
borgarar á morgun,
miðvikudag, samvera,
fyrirbænastund í kirkj-
unni kl. 11, súpa í Setr-
inu kl. 12, spil kl. 13.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 tréskurður og op-
in vinnustofa, kl. 10
boccia, kl. 9–17 hár-
greiðsla. Félagsstarfið
er opið öllum aldurs-
hópum, allir velkomnir.
Vesturgata 7. Kl. 9
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–16
bútasaumur, kl. 9.15–
15.30 handavinna, kl. 11
leikfimi, kl. 13 spila-
mennska.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 hand-
mennt og körfugerð, kl.
14 félagsvist.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids í kvöld kl.
19.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa saln-
um.
Félag ábyrgra feðra.
Fundur í Shell-húsinu,
Skerjafirði, á mið-
vikudögum kl. 20, svar-
að í s. 552 6644 á fund-
artíma.
MG-félag Íslands (Fé-
lag sjúklinga með
Myasthenia gravis (vöð-
vaslensfár) sjúkdóm-
inn). Heldur aðalfund
laugard. 27. apríl kl. 14
í Hátúni 10a í kaffisal
Öryrkjabandalags Ís-
lands. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Vestfjarðaleið. Kynn-
ingarfundur í kvöld kl.
18 í húsi Ferðafélags
Íslands, Mörkinni 6
(risi). Um ferð til Fær-
eyja og Noregs 12.–27.
júní, rútuferð um Fær-
eyjar og Noreg, hring-
ferð um Ísland fylgir.
Afsláttur er í ferðina til
Félags eldri borgara.
Í dag er þriðjudagur 23. apríl, 113.
dagur ársins 2002. Jónsmessa. Orð
dagsins: Sá sem gætir munns síns,
varðveitir líf sitt, en glötun er búin
þeim, er ginið glennir.
(Orðskv. 13, 3.)
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 glymja, 4 veita ráðn-
ingu, 7 tíu, 8 óbeit, 9 ham-
ingjusöm, 11 keipur, 13
fræull, 14 tæla, 15 þekk-
ing, 17 málmur, 20 bók-
stafur, 22 talaði um, 23 ís-
húð, 24 veslast upp, 25
sjúga.
LÓÐRÉTT:
1 stúfur, 2 slátrað, 3 for-
ar, 4 mas, 5 dóna, 6 ágóði,
10 óskar eftir, 12 reið, 13
hryggur, 15 dreng, 16
súrefnið, 18 byggt, 19
malda í móinn, 20 gufu-
sjóða, 21 auðugt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fjandmenn, 8 fátíð, 9 liðið, 10 ill, 11 skips, 13
aumur, 15 lafði, 18 alger, 21 lof, 23 skell, 23 tíndi, 24
kinnungur.
Lóðrétt: 2 jötni, 3 næðis, 4 molla, 5 náðum, 6 ofns, 7 æð-
ur, 12 peð, 14 ull, 15 last, 16 freri, 17 illan, 18 aftan, 19
gengu, 20 reit.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Víkverji skrifar...
SÍÐASTLIÐINN sunnudag fórVíkverji í góðra vina hópi í
gönguferð um Gálgahraun í landi
Garðabæjar og fór ekki framhjá nein-
um í hópnum að vorið var komið. Ló-
an söng í hrauninu eins og hún ætti
lífið að leysa, enda ánægð með sig þar
sem hún hefur verið kosin fulltrúi Ís-
lands í Evrópufuglasöngkeppninni í
ár. Mávager virtist hins vegar líta á
sig sem keppinaut lóunnar á sviði
sönglistarinnar, en Víkverji telur að
bæjaryfirvöld í Garðabæ mættu að
ósekju gera ráðstafanir til að fækka
mávum á þessu svæði. Þeir eru bæði
ógn við mófuglana og auk þess er
gargið í þeim og sóðaskapurinn sem
þeim fylgir til ama fyrir þá sem þarna
leggja leið sína, auk þess sem það
hlýtur að vera íbúum á þessum slóð-
um kappsmál að losna við þennan
vargfugl úr nágrenni sínu.
Gálgahraunið heitir eftir Gálga-
kletti sem skagar klofinn upp úr
hrauninu andspænis Bessastöðum í
nágrenni við sjóinn þar sem hraunið
rennur í Arnarnesvoginn. Herma
gamlar sagnir að í klettinum hafi
sakamenn verið aflífaðir á sínum
tíma. Hraunið er afar fjölbreytt með
hraunbollum og kynlegum kletta-
myndum og er Víkverji ekki í
minnsta vafa um að þarna mætti gera
eftirsótt útivistarsvæði. En sennilega
eru litlar líkur á því að úr því verði því
stikur sem finna má í hrauninu benda
til þess að ekki sé langt í að þessari
náttúruperlu verði spillt með vega-
gerð í gegnum hraunið, en áætlanir
eru uppi um að leggja hraðbraut á
þessum slóðum út á Álftanesið.
x x x
AÐ LOKINNI gönguferðinni umGálgahraun brá Víkverji sér í
bíó og sá sérlega vandaða og áhuga-
verða mynd sem byggð er á ævi
bresku skáldkonunnar og heimspek-
ingsins Iris Murdoch. Kannski má
segja að myndin sé í eðli sínu nokkuð
óvenjuleg ástarsaga, en áhrifaríkust
er lýsingin á því hvernig Alzheimer-
sjúkdómurinn leikur skáldkonuna á
ævikvöldinu. Sem kunnugt er lýsir
þessi sjúkdómur sér í hægt vaxandi
minnisleysi, einkum er varðar
skammtímaminni, og erfiðleikar með
tjáningu, hugsun og algeng störf gera
vart við sig. Jafnframt þjáist fólk með
Alzheimer oft af öryggisleysi, kvíða
og þunglyndi. Á sínum yngri árum
kenndi Iris Murdoch heimspeki í Ox-
ford og varð hún síðan afkastamikill
og viðurkenndur rithöfundur og fyr-
irlesari. Eftir að hinn ógnvænlegi
sjúkdómur gerir vart við sig breytist
hún svo smám saman í hjálparlausan
vesaling sem verður með öllu ófær
um að takast á við einföldustu hluti
hins daglega lífs og verður þar með
sífellt háðari hinum trygglynda eigin-
manni sínum. Saga skáldkonunnar er
að mati Víkverja einstaklega áhrifa-
ríkarík og þótt efnið sé langt frá því
að vera uppörvandi ætti það að vera
hollt öllum að gefa sér tíma til að sjá
umrædda kvikmynd. Ekki spillir fyr-
ir að leikur þeirra Judi Dench í aðal-
hlutverkinu og Kate Winslet sem
leikur skáldkonuna á yngri árum er
einstaklega sannfærandi, enda voru
þær báðar tilnefndar til Óskarsverð-
launanna fyrir leik sinn. Sömu sögu
er að segja um stjörnuleik Jim
Broadbent í hlutverki eiginmannsins
á efri árum, enda hlaut hann Óskars-
verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni.
Góð þjónusta
Í BYRJUN apríl þurfti ég
að koma tveimur hundum í
gæslu vegna ferðalags. Í
þetta skipti varð fyrir val-
inu nýlega opnað gælu-
dýraheimili í Víðidal, þar
sem áður var dýraspítali.
Ég hef áður þurft að
koma hundum í gæslu og
þó ekki hafi verið yfir neinu
að kvarta á þeim stöðum
finnst mér ástæða til að
nefna það, að á þessum stað
var öll þjónusta með af-
brigðum góð og elskuleg,
aðbúnaður dýranna og
meðferð í dvölinni til fyrir-
myndar og var greinilegt
við móttöku þeirra að
þarna hafði þeim liðið eins
og best verður á kosið.
Eftir þessa reynslu er
mér ljúft að gefa þessum
stað mín bestu meðmæli og
óska ég eigendunum alls
hins besta í framtíðinni.
Hrönn.
Keyrt á hund
– léleg lýsing
SÁ leiðinlegi atburður átti
sér stað á Hallsvegi
fimmtudagshvöldið 18. apr-
íl að keyrt var á hund. Öku-
maður stöðvaði ekki en ver-
ið gæti verið að hann hafi
ekki orðið þess var. Vil ég
því biðja ökumanninn að
hafa samband við Tomma í
síma 869 5095 eða Sólveigu
í síma 695 9989
Einnig viljum við þakka
yndislegum hjónum sem
fundu hana Donnu okkar
þannig að hún komst heim
og undir læknishendur en
hún slasaðist mikið.
Viljum við líka benda
borgaryfirvöldum á að lýs-
ing er mjög léleg þarna,
margir ljósastaurar virka
hreinlega ekki en þarna eru
margir á ferð, sérstaklega
börn á hjólum. Viljum við
ekki þurfa að sjá svona ger-
ast þegar aðeins þarf að
bæta ljósin á þessari fjöl-
förnu götu.
Um útivistartíma
MIG langar að koma með
ábendingu um útivistar-
tíma barna og unglinga, þar
sem útivistartíminn breyt-
ist 1. maí til kl 22.00, en ein-
mitt í maí eru próf hjá skól-
um landsins og mun
erfiðara að fá börnin til að
vera heima hjá sér að læra
þegar þau mega vera úti til
kl. 22.00. Fyndist mér því
mjög snjallt að útivistar-
tíminn breyttist ekki fyrr
en 1. júní og væri þá í sam-
ræmi við skólana.
Móðir.
Hver veit svarið?
OKKUR fýsir að vita svar
við þessari gátu:
Holdið skilur seint við
sál/ faðirinn heitir fremst á
nál/ fæddur í tveimur pel-
um.
Þeir sem gætu liðsinnt
okkur vinsamlega hafið
samband við Andrés í síma
691-8073.
Tapað/fundið
Svört hliðartaska týnd
STÓR svört hliðartaska
týndist á Dvalarheimili
aldraðra, Dalbraut 27,
Kópavogi, sl. mánudags-
kvöld. Skilvís finnandi hafi
samband við Sóleyju í síma
564 2478 eða 568 5377.
Gleraugu týndust
GLERAUGU týndust 7.
apríl á göngu meðfram
Kópavogi frá Kársnesi út
að Hafnarfjarðarvegi. Skil-
vís finnandi hafi samband í
síma 893 2175.
Dýrahald
Brand vantar heimili
BRANDUR Ari sem er
fress og er að verða 2ja ára
vantar nýtt heimili vegna
flutninga eigenda. Brandur
er geltur og eyrnamerktur.
Upplýsingar í síma
866 8255.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn