Morgunblaðið - 19.05.2002, Síða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðinu í dag fylgir
auglýsingablaðið „Gefðu fótun-
um frelsi“ frá ecco. Blaðinu
verður dreift um allt land.
ELLIÐAÁRSTÖÐ í Reykjavík er
ekki starfrækt yfir sumarið. Er
Árbæjarstífla opnuð til að hleypa
úr lóninu laxi sem þar hefur verið
um veturinn.
Tækifærið er notað til að kanna
stíflumannvirki og aðrennslispípu.
Sést hér sjálfur stöðvarstjórinn,
Þorsteinn Ingi Kragh, ganga píp-
una og hefur hann gripið með sér
smádrasl sem hefur safnast fyrir.
Elliðaárstöð verður 81 árs á þessu
ári og lætur lítið á sjá. Hún mun
vera ein elsta vatnsaflsvirkjun í
heiminum sem enn er tengd við
raforkunet. Er rekstri hennar hátt-
að á nánast sama hátt í dag og þeg-
ar Alexandrína drottning og Krist-
ján konungur X vígðu hana árið
1921.
Morgunblaðið/Friðþjófur
Eins í dag og fyrir 81 ári
GIFTINGARTÍÐNI hefur farið
heldur hækkandi á Íslandi á síðustu
árum og mælist nú rúmlega 5 af þús-
undi. Skilnaðartíðni hefur hins vegar
staðið í stað í nær aldarfjórðung og
var 1,9 af 1.000 íbúum í fyrra. Örust
var hækkun skilnaðartíðni á ára-
bilinu 1960 til 1975.
Þetta kemur fram í nýjum upplýs-
ingum Hagstofunnar um hjóna-
vígslur og hjúskaparslit árið 2001.
Samkvæmt þeim fór fram 1.471
hjónavígsla á Íslandi árið 2001. Að
auki voru 13 staðfestar samvistir,
átta með konum en fimm með körl-
um. Í 1.214 tilvikum voru hjónaefni
með íslenskan ríkisborgararétt, en í
257 tilvikum voru bæði eða annað
brúðhjóna með erlent ríkisfang.
Mun algengara er að erlendar
konur giftist íslenskum körlum, en
öfugt (159 konur á móti 65 körlum).
Lögskilnaðir á árinu 2001 voru jafn-
margir og skilnaðir að borði og sæng
eða 550.
Líkt og víða annars staðar á Norð-
urlöndum er giftingartíðni á Íslandi
fremur lág. Giftingartíðni er reiknuð
sem fjöldi hjónavígslna af hverjum
1.000 íbúum. Allt fram undir miðbik
áttunda áratugarins var giftingar-
tíðni á Íslandi há, þ.e. milli 8 og 9 af
1.000 íbúum. Eftir 1975 lækkaði gift-
ingartíðni ört og náði lágmarki um
miðbik tíunda áratugarins. Gifting-
artíðni hefur farið heldur hækkandi
á síðustu árum og mælist nú rúmlega
5 af þúsundi.
Í dag er skilnaðartíðni á Íslandi
1,9 af 1.000 íbúum. Hún hefur staðið í
stað í nær aldarfjórðung, en örust
var hækkun skilnaðartíðni á ára-
bilinu 1960 til 1975.
Giftingaraldur
fer hækkandi
Lækkandi giftingartíðni á Íslandi
hefur haldist í hendur við hækkandi
giftingaraldur. Meðalgiftingaraldur
karla er nú 35,3 ár en 32,2 ár meðal
kvenna, samanborið við 26 ár og 24
ár um 1970.
Það heyrir nú til undantekninga
að fólk undir tvítugu gangi í hjóna-
band, en á árunum 1960 til 1970 var
fremur algengt að konur á þessum
aldri giftust.
Algengast er nú að íslenskar kon-
ur gangi í hjónaband á aldrinum 25–
29 en aldurshópurinn 30–34 ára
fylgir fast í kjölfarið. Allt fram undir
miðjan áttunda áratuginn var hins
vegar langalgengasti giftingaraldur
kvenna 20–24 ár. Nú er algengast að
karlar kvænist á aldrinum 30–34 ára,
samanborið við aldurshópana 20–24
og 25–29 á sjöunda og áttunda ára-
tugnum.
Það vekur athygli að þrátt fyrir
þær miklu breytingar sem átt hafa
sér stað á giftingaraldri á síðustu
áratugum, hefur aldursbil milli
hjóna haldist nokkuð stöðugt allt
þetta tímabil. Brúðgumar eru þann-
ig að meðaltali um þremur árum
eldri en brúðir.
Yfirlit yfir hjónavígslur og hjúskaparslit á árinu 2001
Giftingartíðni fer hækkandi á
ný en skilnaðir standa í stað
Í UPPHAFI hvítasunnuhelgarinnar
var umferð á þjóðvegum líkt og á
venjulegri sumarhelgi, að mati lög-
reglu, og á hádegi í gær höfðu ekki
borist fregnir af alvarlegum slysum.
Lögreglan á Selfossi og í Borgar-
nesi sagði umferðina um bæina hafa
verið talsverða en óhappalausa.
Búast má við að margir leggi land
undir fót um helgina enda veður víð-
ast hvar með afbrigðum gott og veð-
urspáin hagstæð. Hvort sem menn
ætla í fermingarveislur, sumarbú-
staði eða eitthvert annað þá beinir
Umferðarráð því til ökumanna að
miða ökuhraða við aðstæður á veg-
um landsins og fara varlega í fram-
úrakstur. Minnt er á að aldrei megi
aka fram úr á óbrotinni línu. Þá hvet-
ur Umferðarráð ökumenn og far-
þega þeirra til að spenna beltin og
minnir ennfremur á að áfengi og
akstur fara ekki saman. „Að vera vel
hvíldur áður en ekið er af stað og ef
syfja sækir á í akstri, að stöðva bílinn
og fá sér frískt loft í góða stund,“
segir einnig.
Góð þátttaka er í hvítasunnuferð-
um Útivistar og Ferðafélags Íslands.
Um 40 manns skráðu sig í jeppa- og
gönguferð á Snæfellsjökul með Úti-
vist og mun félagið einnig fara í
dagsferð um Méltunnuklif að Hös-
kuldarvöllum á sunnudag.
Ferðafélag Íslands stendur fyrir
fjallgönguferð á hæsta tind landsins,
Hvannadalshnúk í Öræfajökli, um
helgina og er fullbókað í þá ferð. Þá
verður farin dagsferð annan í hvíta-
sunnu á Hestfjall og að Gullfossi
austanverðum.
Umferð
eins og um
venjulega
sumarhelgi
AÐSÓKN í Listaháskóla Íslands hef-
ur aldrei verið meiri en nú, að sögn
Hjálmars Ragnarssonar, rektors
skólans. Að meðaltali sóttu um það bil
5,5 nemendur um hvert pláss í skól-
anum og voru 12 umsækjendur um
hvert pláss í leiklistardeild skólans.
Hann segir að aðsóknin hafi aukist
í öllum deildum frá því í fyrra, jafnvel
þótt nýrri námsgrein hafi verið bætt
við, en í haust hefst í fyrsta skipti
kennsla í arkitektúr við skólann. 93
nemendur sóttu um nám í arkitektúr
og voru 14 teknir inn. Hlutfallslega er
aðsóknin mest í leiklist, 109 sóttu um
en 9 voru teknir inn, í myndlist sóttu
115 um og komust 24 að. Af 99 um-
sækjendum voru 18 teknir inn í nám í
grafískri hönnun og 18 af 75 umsækj-
endum um nám í vöruhönnun. Enn er
verið að velja nemendur í tónlistar-
deild skólans, en þar sóttu 35 um.
Þurfa að vera
strangar kröfur
Hjálmar segir skýringu þessarar
miklu aðsóknar líklega vera að gott
orð fari af skólanum og að hann sé að
festast í sessi. „Hin skýringin er mik-
ill áhugi ungs fólks á námi sem þjálf-
ar skapandi hugsun og gefur mögu-
leika til sköpunar,“ segir hann.
Listnám nýtist vel til hvers konar
skapandi starfa, hvort sem er í fyr-
irtækjum, skólum eða listalífi.
Hjálmar segir að bæði hagkvæmn-
innar vegna og þar sem skólinn þurfi
að hafna góðum nemendum vildi
hann gjarnan geta tekið fleiri nem-
endur inn í skólann. Þó segir hann
nauðsynlegt að halda kröfunum mjög
ströngum, það sé eðli listnáms, og að
allir umsækjendur eigi ekki erindi í
skólann.
Inntökuskilyrði eru þau að hafa
lokið stúdentsprófi, eða jafngildi þess
náms, en hægt er að gera undantekn-
ingu frá þeirri reglu sýni umsækjandi
framúrskarandi hæfileika. Engin
skilyrði eru sett um aldur nemenda,
en Hjálmar segir að langflestir þeirra
séu á þrítugsaldri.
Mikil
aðsókn í
Listahá-
skólann
„MÉR finnst afskaplega sorglegt ef
sjálfstæðismenn ætla að bregðast
öldruðum Reykvíkingum með þeim
hætti sem mér finnst Geir H. Haarde
gefa tilefni til að ætla,“ sagði Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri um þau ummæli Geirs H.
Haarde fjármálaráðherra í Morgun-
blaðinu í gær að viljayfirlýsing Jóns
Kristjánssonar heilbrigðisráðherra
og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur
borgarstjóra, um uppbyggingu
hjúkrunarrýma í Reykjavík, væri
marklaust plagg. „Viljayfirlýsingin
er algjörlega fyrirvaralaus af hálfu
Reykjavíkurborgar. Við erum tilbúin
til að leggja þessa fjármuni af mörk-
um til þessarar uppbyggingar. Í
undirritun heilbrigðisráðherra felst
að hann muni beita sér pólitískt fyrir
því að hún [viljayfirlýsingin] nái
fram að ganga og fyrir því að þeir
fjármunir fáist á fjárlögum sem til
þess þarf. Hann þarf auðvitað vissan
stuðning samstarfsflokksins í ríkis-
stjórn og ég trúi því ekki að Sjálf-
stæðisflokkurinn ætli að bregða fæti
fyrir uppbyggingu í þágu aldraðra í
Reykjavík með þeim hætti sem mér
finnst Geir Haarde gefa í skyn.“
Ingibjörg segir uppbyggingu á
hjúkrunarrýmum í þágu aldraðra
hafa dregist aftur úr í Reykjavík.
„Reykvíkingar hafa ekki setið þar
við sama borð og aðrir landsmenn og
löngu tímabært að þar sé gert átak.
Sjálfstæðismenn í borginni eru að
boða slíkt í þeim kosningum sem við
stöndum núna í. Það er þá meiri tví-
skinnungur en maður hefur séð
dæmi um ef þeir boða eitt í borginni
en leggjast gegn því hjá ríkinu.“
Heilbrigðisráðherra sagði í Morg-
unblaðinu í gær að viljayfirlýsingin
væri oftúlkuð. „Þetta er spurning um
hvort hún er kölluð samkomulag.
Samkomulagið felst í því að við ætl-
um að standa við okkar hlut í
Reykjavík, það er skýrt. Af hans
hálfu er þetta yfirlýsing um það að
hann muni beita sér fyrir tilteknum
hlutum. Þetta er samkomulag okkar
um að standa svona að verki. Ég
gerði mjög vel grein fyrir því í borg-
arstjórn á fimmtudaginn að af ráð-
herrans hálfu væri gerð grein fyrir
því að hann þyrfti að sækja þetta fé á
fjárlög og að hann væri ekki kominn
með tryggingu fyrir því. En hann
undirgengst það að beita sér fyrir
því pólitískt og það væri mjög sér-
kennilegt ef samstarfsflokkurinn
ætlaði að bregða fæti fyrir það.“
Borgarstjóri um ummæli ráðherra vegna yfirlýsingar
Viljayfirlýsing fyrirvara-
laus af hálfu borgarinnar
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu gerði í gær 1:1-jafn-
tefli við Rússa í 3. riðli undan-
keppni HM í knattspyrnu en leik-
ið var í Moskvu. Heimamenn
komust yfir snemma í síðari hálf-
leik en Olga Færseth jafnaði er 8
mínútur voru til leiksloka.
Íslenska liðið lék mjög vel í
leiknum og var óheppið að sigra
ekki þar sem það fékk fleiri mark-
tækifæri en heimamenn. Rússar
eru efstir í riðlinum með 8 stig en
Íslendingar neðstir með 5 stig og
einum leik minna. Þar á milli eru
Spánverjar og Ítalir með 6 stig.
Jafntefli í Rússlandi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN í
Reykjavík sækir í sig veðrið, en
Reykjavíkurlistinn tapar fylgi, að því
er fram kemur í nýrri skoðanakönn-
un Gallup um viðhorf til borgar-
stjórnarkosninganna næsta laugar-
dag. Frjálslyndir og óháðir bæta
einnig við sig fylgi en ná ekki inn í
borgarstjórn, að því er fram kemur í
könnun Gallup. Segir að Reykjavík-
urlistinn fái 48,5% og Sjálfstæðis-
flokkurinn 45,2%, en munurinn er
ekki marktækur.
Reykjavíkurlistinn fékk 56,3% og
Sjálfstæðisflokkurinn 39,3% í síð-
ustu könnun Gallup. Frjálslyndir fá
5,2% en fengu áður 3,9%. Höfuð-
borgarsamtökin fá 0,3%, húmanistar
0,3% og Vinstri hægri snú fær 0,5%.
Úrtak könnunarinnar var 730
manns, 18 ára og eldri. Svarhlutfall
var rúmlega 67%. 9% voru óákveðin,
5,5% neituðu að svara og rúmlega
4% ætla ekki að kjósa eða munu skila
auðu.
D-listinn með
45,2% og R-
listinn 48,5%