Morgunblaðið - 19.05.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ eru 182 framboðslistar í boði
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
25. maí næstkomandi og hefur þeim
fækkað um fimm frá síðustu kosn-
ingum, en félagsmálaráðuneytið hef-
ur tekið saman upplýsingar frá kjör-
stjórnum landsins um framboðslista
fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Í
66 sveitarfélögum eru boðnir fram
listar og þar af er sjálfkjörið í sjö
sveitarfélögum, þar sem aðeins einn
framboðslisti er í kjöri. Í 39 sveit-
arfélögum komu engir framboðslist-
ar fram áður en framboðsfrestur
rann út og fer því fram óhlutbundin
kosning á þessum stöðum. Allir
flokkar, sem fulltrúa eiga á þingi,
bjóða fram sjálfstætt eða í samstarfi
við aðra og býður Sjálfstæðisflokk-
urinn fram lista í flestum sveitar-
félögum, eða sjálfstætt á 37 stöðum.
„Það er fróðlegt að ef talið er
saman á þessum listum þá eru karl-
ar í 59% sætanna en konur í 41%
sætanna. Við höfum nú sett okkur
það mark að lágmarkshlutfall í
kynjaskiptingu verði sextíu á móti
fjörutíu og ef talið er saman á list-
unum þá næst það,“ segir Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra. Hann
bendir hins vegar á að þegar skoðuð
séu efstu sætin þá leiði karlar 146
lista og konur aðeins 36 lista, eða
20%. Að hans sögn eru karlar í
meirihluta á 70% listanna, konur í
meirihluta á 11 listum og jafnræði
er á 44 listum eða 24%. „Það er ekki
verulegur munur eftir landsvæðum.
Það má segja að hlutföllin séu lökust
á Austurlandi og Reykjanesi. Við
síðustu sveitarstjórnarkosningar
voru konur jafnmargar körlum á 28
listum og á fimm listum í meirihluta
en nú eru þær í meirihluta á ellefu
listum, svo þetta er nú greinilega
framför.“
Flestir frambjóðendur eru á aldr-
inum 38–47 ára. Þrír frambjóðendur
yfir nírætt skipa heiðurssæti á list-
um og er elsti frambjóðandinn 92
ára, en hann býður sig fram í Gerða-
hreppi.
1.300 erlendir ríkisborgarar fá
kosningarétt og kjörgengi
Félagsmálaráðuneytið hefur einn-
ig gefið út bækling í tilefni af sveit-
arstjórnarkosningunum 2002 og
verður hann sendur öllum þeim ein-
staklingum sem öðlast kosningarétt,
samkvæmt breytingu á lögum um
sveitarstjórnarkosningar, sem gerð
var í vor. Eftir breytinguna fjölgar
þeim erlendu ríkisborgurum sem
eiga rétt til að kjósa og bjóða sig
fram til setu í sveitarstjórn. Allir er-
lendir ríkisborgarar, sem átt hafa
lögheimili á Íslandi í fimm ár sam-
fleytt fyrir kjördag og eru orðnir 18
ára að aldri, öðlast nú þennan rétt.
Lagabreytingin mun ekki hafa áhrif
á réttarstöðu danskra, sænskra,
norskra og finnskra ríkisborgara, en
þeir öðlast kosningarétt eftir að
hafa átt lögheimili hér í þrjú ár sam-
fellt.
Bæklingurinn er á ellefu tungu-
málum og á hann meðal annars að
kynna fyrir fólki nýju lögin og hvar
og hvernig fólk eigi að nýta þennan
rétt sinn. Páll segir að um 1.300
manns öðlist kosningarétt eftir
þessa breytingu og séu um sjötíu af
hundraði þessara aðila búsettir á
höfuðborgarsvæðinu. Að hlutfalli
eru þeir samt flestir búsettir á Vest-
fjörðum. Flestir erlendu ríkisborg-
aranna, sem hafa kosningarétt og
kjörgengi hér á landi, koma frá Pól-
landi, Bandaríkjunum og Dan-
mörku. Páll segist hafa orðið var við
mikinn áhuga meðal útlendinga á
þátttöku í kosningunum og hafa
Fjölmenningarsetrið á Vestfjörðum
og Alþjóðahúsið í Reykjavík kynnt
þessar breytingar ötullega. Hann
segir einnig dæmi þess að útlend-
ingar séu í framboði.
Að sögn Páls var einnig sú breyt-
ing gerð á kosningalögunum að nú
þarf ekki meðmæli í sveitarfélögum
þar sem íbúarnir eru innan við
hundrað. Þar með getur lítill meiri-
hluti ekki komið í veg fyrir að
minnihluti fái mann inn í hrepps-
nefnd eða sveitarstjórn. Ekki virðist
sem reynt hafi á þessa breytingu við
kosningarnar nú.
Upplýsingar um framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar
Karlar eru í fyrsta sæti á
146 af 182 framboðslistum
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl-
mann á þrítugsaldri í árs fangelsi
fyrir að valda eldsvoða í mannlausu
íbúðarhúsi á Hvalnesi í Lóni, fyrir
húsbrot og fyrir að bera rangar
sakir á hendur nafngreindum
manni.
Héraðsdómur Austurlands hafði
áður dæmt manninn í 60 daga fang-
elsi og sýknað hann af ákæru um að
hafa af ásetningi kveikt í húsinu svo
það brann til kaldra kola.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
brotist inn í húsið og að hafa farið
um það með logandi kerti, sem
hann hefði síðan stillt upp á borði
ofan í bráðið vax. Hann hefði síðan
gleymt að slökkva á kertinu þegar
hann yfirgaf húsið en hefði alls ekki
ætlað sér að kveikja í. Krafa lög-
reglu um að hann yrði sakfelldur
fyrir að hafa af ásetningi kveikt í
húsinu byggðist m.a. á því að rann-
sókn á brunarústunum hefði leitt
það í ljós að eldurinn hefði kviknað í
miðri forstofunni, en ekki á þeim
stað þar sem hann sagðist hafa skil-
ið kertið eftir. Hlyti hann að hafa
fært muni til í forstofunni og síðan
borið eld að. Þegar hann var hand-
tekinn hefði jafnframt fundist
brunalykt af fötum hans og í bifreið
hans voru tveir bensínbrúsar sem
hann gat ekki gefið skýringar á.
Hæstiréttur taldi ekki efni til að
sakfella hann fyrir að hafa af ásetn-
ingi kveikt í húsinu. Hins vegar
hefði hann gerst sekur um stórkost-
legt gáleysi með því að skilja kertið
eftir á borðinu. Fyrir öll brotin var
hann dæmdur í árs fangelsi og til að
greiða allan sakarkostnað, þ.m.t.
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns Sveins Andra Sveinssonar hrl.
Ragnheiður Harðardóttir sak-
sóknari sótti málið. Hæstaréttar-
dómararnir Guðrún Erlendsdóttir,
Gunnlaugur Claessen og Ingibjörg
Benediktsdóttir kváðu upp dóminn.
Árs fang-
elsi vegna
brunans í
Hvalnesi
SAMÞYKKTAR voru á fundi
borgarstjórnar á fimmtudags-
kvöld tillögur um breytingar á
lögreglusamþykkt Reykjavíkur
þess efnis að banna svokallaðan
einkadans, sem boðið hefur
verið upp á á nektardansstöð-
um borgarinnar.
Rökin fyrir því að banna sér-
staklega einkadans eru þau að
þar sé um að ræða tilfelli þar
sem „áhorfandi er einn með
einum eða fleiri sýnendum og
því illmögulegt að hafa eftirlit
með því sem þar fer fram,“ eins
og segir í mati starfshóps borg-
arstjóra og lögreglustjórans í
Reykjavík sem fjallað hefur um
veitingamál.
Einka-
dansinn
bannaður
HJÓLREIÐAMÖNNUM fjölgar í
borginni jafnharðan og sól tekur að
hækka á lofti. Flestir stunda hjól-
reiðar sér til gamans en sumir
kjósa að nýta sér kosti reiðhjólsins í
vinnu sinni. Lögregluþjónarnir
Dagný Steinunn Hjörvarsdóttir og
Björn Heiðar Þórðarson eru í þeim
hópi. Þau segja þetta annað sum-
arið í röð sem lögreglan í Reykjavík
tekur reiðhjól í sína þjónustu við
hefðbundið eftirlit í bænum. Þau
segja að með þessu sé verið að gera
lögregluna sýnilegri meðal borg-
arbúa og mælist það vel fyrir.
Þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari Morgunblaðsins rákust á Dag-
nýju og Björn Heiðar í Hlíðahverf-
inu síðdegis á föstudag, þar sem
þau voru að koma úr eftirlitsferð
um Öskjuhlíð, höfðu þau komið
stúlku á vélarvana bíl til aðstoðar.
Þau segjast hjóla um miðbæinn og
nærliggjandi hverfi og að sjálf-
sögðu eru þau með reiðhjólahjálma
á höfði. Morgunblaðið/Sverrir
Hjólandi
laganna
verðir
ALLIR heilsugæslulæknar á heilsu-
gæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði,
níu fastráðnir læknar og einn afleys-
ingalæknir, hafa skrifað uppsagnar-
bréf, sem verða afhent þegar fram-
kvæmdastjóri heilsugæslustöðvar-
innar kemur aftur til starfa úr leyfi,
að sögn Emils Sigurðssonar yfir-
læknis.
Læknarnir hafa þriggja mánaða
uppsagnarfrest en heilbrigðisyfir-
völd hafa heimild til að framlengja
uppsagnirnar um þrjá mánuði til við-
bótar.
Mikil óánægja er meðal lækna á
heilsugæslustöðvum vegna starfs-
skilyrða og kjaramála og aðgerða-
leysis heilbrigðisráðuneytisins. Eins
og greint var frá í seinustu viku hafa
allir heilsugæslulæknar á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja sagt upp störf-
um.
Viljum að grunnþjónustan
sé aðgengileg og ódýr
,,Við viljum, eins og ráðherra, að
grunnþjónustan sé aðgengileg og
ódýr, en ráðherra verður þá að koma
að því, í stað þess að horfa á þetta
fara allt í einkarekstur, án þess að
ríkið geti haft nokkur áhrif á það,“
segir Emil.
Læknarnir buðu stjórn Sólvangs
að ganga til samninga og bar stjórn-
in það undir heilbrigðisráðuneytið.
Að sögn Emils vildi ráðuneytið hins
vegar ekki gefa umboð til slíks eða
reyna þá leið. Hann tók fram að
læknarnir ættu ekki í neinum deilum
við stjórn heilsugæslustöðvarinnar.
Emil segir að læknarnir séu nú að
vinna að því hvort hópurinn geti
staðið saman að stofnun læknastofu
og er m.a. verið að skoða húsnæðis-
mál í því sambandi þessa dagana.
Allir læknarnir á
Sólvangi segja upp BÆJARSTJÓRN Reykjanesbæjarsamþykkti einróma á aukafundi
stjórnarinnar í gærkvöldi samning
um lóða- og hafnargjöld við banda-
ríska stálfyrirtækið IPT sem hyggst
reisa stálpípuverksmiðju í Helguvík.
Ellert Eiríksson bæjarstjóri segir að
þegar tryggingar fyrirtækisins liggi
fyrir geti framkvæmdir af hálfu bæj-
arins og Hafnarsamlags Suðurnesja
hafist í Helguvík.
Hann segir forsvarsmenn IPT
væntanlega hingað til lands í lok
næstu viku og verður samningur
milli þeirra, Hafnarsamlagsins og
Reykjanesbæjar þá formlega undir-
ritaður. Hafnarsamlag Suðurnesja
samþykkti samninginn fyrir sitt leyti
fyrir nokkrum dögum. „Það sem
snýr beint að bænum í þessum samn-
ingi eru fasteignagjöld, gatnagerð-
argjöld og annað slíkt, en bærinn á
höfnina,“ sagði Ellert. „Megin-
áherslan hjá okkur hefur verið á að
fyrir liggi tryggingar ef eitthvað
skyldi koma upp á, en þau mál eru í
höfn. Framkvæmdir hefjast þegar
tryggingar IPT frá viðurkenndri al-
þjóðlegri bankastofnun, sem við
samþykkjum, liggur fyrir. Við förum
ekki út í neinar framkvæmdir fyrr.
Við vitum ekki hve langan tíma tekur
að fá þessar tryggingar. En frá því
að tryggingin liggur fyrir hefur bær-
inn og höfnin tíu mánuði til að gera
lóðina klára. Í framhaldi af því
myndi bandaríska fyrirtækið hefja
byggingarframkvæmdir sínar.“
Samþykkti
lóðasamning
í Helguvík