Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 8

Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Íslensk ferðaþjónusta á Netinu Varpa ljósi á stöðu mála ÍSLENSK ferðaþjón-usta á Netinu – erupplýsingahraðbraut- in greiðfær – eða ófær? er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður fimmtudag- inn 23. maí nk. Sigríður Þrúður Stefánsdóttir ferðamálafræðingur og forstöðumaður Ferða- málaskólans í Kópavogi, í námsleyfi sem stendur, er í forsvari fyrir ráðstefnuna. – Hver heldur ráðstefn- una, hver er tilurð hennar og hvað felst í yfirskrift- inni? „Íslensk ferðaþjónusta á Netinu. Er upplýsinga- hraðbrautin greiðfær – eða ógreiðfær? Ráðstefnan er haldin á vegum Félags há- skólamenntaðra ferða- málafræðinga, FHF. FHF hefur það markmið að stuðla að faglegri umræðu um ferðaþjónustu og þró- un hennar á Íslandi. Í þeim til- gangi heldur félagið reglulega ráðstefnur og ráðstefnan 23. maí er ein slík. Ráðstefnan er haldin á Hótel Loftleiðum frá klukkan 13 til 18. Í tengslum við ráðstefnuna er haldin kynning á fyrirtækjum sem bjóða fyrirtækjum í ferða- þjónustu allar tæknilausnir vegna heimasíðna, aðstoð og upplýsing- ar um vefsíðugerð og hvaða nýj- ungar og möguleikar eru fram- undan á sviði netmála í ferða- þjónustu.“ – Hver er tilgangurinn með ráð- stefnunni og hverjar verða helstu áherslur hennar? „Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á stöðu mála hvað snertir notkun og áhrif Netsins í íslenskri ferðaþjónustu. Meðal þess sem verður fjallað um er hvort, hvernig og á hvaða hátt Netið er notað við markaðssetn- ingu íslenskrar ferðaþjónustu. Fjallað er um Netið almennt, hvað það er og hvaða tækifæri og möguleika tæknin veitir. Einnig hvaða tækni þarf til að ná árangri við markaðssetningu og sölu á Netinu. Sérstakur fyrirlestur verður um Netið sem sölutæki í ferðaþjónustu og einnig um hvaða hópar ferðamanna leita upplýs- inga, bóka og kaupa ferðaþjón- ustu á Netinu. Fulltrúar fyrir- tækja í ferðaþjónustu skýra reynslu sína af þessum málum. Í lok ráðstefnunnar verður svo sagt frá reynslu notenda af vefsíðum íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja og kynnt úttekt á tíu vefsíðum ís- lenskra fyrirtækja.“ – Hvernig standa þessi mál á Íslandi, t.d. í samanburði við önn- ur lönd? „Almennt er talið að Íslending- ar standi framarlega í notkun Netsins bæði almennt og við markaðssetningu ferðaþjónustu. Það er þó lítið af tölulegum gögn- um til um raunverulega stöðu þessara mála. Í tilefni ráðstefn- unnar hefur FHF gert úttekt meðal aðildarfélaga Samtaka ferðaþjónustunnar, SAF, um útbreiðslu, notkun og áhrif Nets- ins í ferðaþjónustu hér. Niðurstöður úttektar- innar verða kynntar við upphaf ráðstefnunnar. Markmið úttektarinnar er að varpa ljósi á stöðu íslenskrar ferðaþjónustu á netinu.“ – Er skoðunin almennt sú að ferðaþjónustan og Netið eigi sam- leið … eða ekki? „Um þetta eru ekki til nákvæm- ar upplýsingar en telja má líklegt að íslensk ferðaþjónustufyrirtæki noti Netið mikið til markaðssetn- inga. Úttekt FHF á m.a. að varpa einhverju ljósi á þessi mál. Það er þó nokkuð þekkt að almenn notk- un Netsins er mismunandi meðal þjóða og því má telja víst að sumir markhópar íslenskrar ferðaþjón- ustu noti Netið minna en aðrir. Það hvort Netið hentar sem miðill til markaðssetningar ferðaþjón- ustu er einnig nokkuð óljóst og það er líklegt að miðillinn henti vörum ferðaþjónustu misvel. Hentar Netið t.d. jafnvel til að selja flugsæti, ráðstefnu eða skoð- unarferð um Ísland?“ – Sumir telja að sala ferðaþjón- ustu á Netinu marki endalok ferðaskrifstofa og fleiri milliliða í mjög náinni framtíð … „Telja má víst að fjölmargir markhópar og neytendur noti Netið í auknum mæli sem miðil til að kaupa ferðir og aðrar vörur í ferðaþjónustu. Þó er þetta eflaust mismunandi milli markhópa. Það er t.d. ekki víst að gestir sem koma á ráðstefnur noti Netið sem miðil til kaups. Með aukinni notk- un Netsins breytist hlutverk milli- liða eins og ferðaskrifstofa og ætla má að stærri hluti starfseminnar snúi að ráðgjöf til ferðamanna og upplýsingagjöf svo eitthvað sé nefnt.“ – Hvernig stendur til að nýta efni ráðstefnunnar? „Markmið ráðstefnunnar er bæði að varpa ljósi á stöðu Nets- ins í íslenskri ferðaþjónustu en einnig að ná fram umræðu um það að það er mikilvægt að vanda vel til uppsetningar heima- síðna og þeirra upplýs- inga og þjónustu sem þar er. Það er ekki nóg að vera með heimasíðu ef hún er ekki virk og enginn sinnir henni. Netið er ekki alltaf lausn allra vandamála í markaðssetningu ferðaþjónustu og það er mikilvægt að læra af því sem kemur fram á ráðstefnunni. Það er okkar von að íslensk ferða- þjónustufyrirtæki nýti sér upplýs- ingar af ráðstefnunni til að læra af og setja sér markmið um hvort og á hvern hátt þau vilja markaðs- setja sína vöru á Netinu.“ Sigríður Þrúður Stefánsdóttir  Sigríður Þrúður Stefánsdóttir er fædd í Reykjavík 3. desember 1967. Hefur BA-próf (Honours) frá Strathclyde University í Skotlandi 1993 og er að ljúka MS-prófi í stjórnun og stefnu- mótun frá viðskipta- og hag- fræðideild HÍ. Núverandi starf er forstöðumaður Ferðamála- skóla Kópavogs. Er í námsleyfi. Er og formaður Félags háskóla- menntaðra ferðamálafræðinga. Maki er Benjamín Gíslason og eiga þau eina dóttur, Herthu Kristínu. …ekki nóg að vera með heimasíðu Hver hefur sinn djöful að draga. HARVARD-háskóli og Háskóli Ís- lands standa á morgun, mánudag, í sameiningu fyrir alþjóðlegri ráð- stefnu sem ber heitið Ísland og heimsbúskapurinn: Hagkerfi smárra eyríkja á tímum alþjóða- væðingar og fram fer í Harvard- háskóla í Boston. Þetta er í fyrsta skipti sem þessir skólar leiða saman hesta sína með þessum hætti, að sögn Þorvaldar Gylfasonar prófess- ors sem skipulagði ráðstefnuna ásamt Jeffrey Sachs, einum virtasta hagfræðingi heims, sem er forstöðu- maður Alþjóðaþróunarstofnunar Harvard og jafnframt prófessor þar. Ráðstefnan er lokuð og er hún einkum ætluð forystumönnum í stjórnmálum og atvinnulífi auk hag- vaxtarfræðinga víðs vegar að úr heiminum. Alls munu milli 70 og 80 manns sækja ráðstefnuna, að sögn Þorvaldar. Hann segir að fræði- menn, sem hafa sérstaklega rann- sakað hagkerfi smáríkja, muni fjalla um rannsóknir sínar. Ísland verði í forgrunni, eins og nafn ráðstefnu- nar ber með sér. „Einnig verður fjallað sérstaklega um Máritíus, sem er eitt þeirra undralanda í þriðja heiminum, reyndar í Afríku, sem hafa rifið sig upp úr örbirgð og stefna á allsnægtir. Þá verður einn- ig fjallað um Míkrónesíu, ýmsar Karíbahafseyjar og Kýpur,“ segir Þorvaldur. Í inngangserindi sínu munu þeir Þorvaldur og Sachs glíma við spurn- ingar er varða hagkerfi smáríkja og stærri landa, hvað er frábrugðið og hvað þau eiga sameiginlegt. Til dæmis hvort hagvöxtur sé hraðari eða hægari í smáum hagkerfum en stórum og hvaða kostir og gallar fylgja smæðinni. „Við erum ríkasta landið í þessum hópi og njótum ýmissa af kostum smæðarinnar, en þurfum ef til vill einnig að líða fyrir hana. Stóri gall- inn við smæðina er sá að heima- markaðurinn er svo lítill að menn njóta ekki hagkvæmni stærðarinn- ar, nema menn eigi þá þeim mun meiri viðskipti við útlönd til að eiga þá aðgang að stærri markaði. Þetta er höfuðvandi smáríkja í efnahags- málum. Svo er einnig vert að velta því fyrir sér hvort smæðin bjóði upp á kosti sem vega gallana upp. Reyndar eru höfuðniðurstöður okk- ar Sachs á þá leið, að það er miklu minni munur á litlum löndum og stórum en margir hafa haldið,“ seg- ir Þorvaldur. „Okkar aðalniðurstaða er að hag- vöxtur í smáríkjum er eiginlega óað- greinanlegur frá hagvexti í heim- inum í heild síðastliðin 40 ár. Gallar smæðarinnar virðast ekki svo stór- vægilegir að þeir dragi úr hagvexti, eins og stundum hefur verið haldið fram. Ef smæðinni fylgja kostir eru þeir ekki heldur svo miklir að hag- vöxtur þessara landa sé hraðari en annars staðar,“ segir Þorvaldur. Hann segir að þannig hafni þeir þeim skoðunum sem haldið hefur verið á lofti ýmist um veikleika eða yfirburði smáríkjabúskapar. Ný fræðileg rök fyrir yfir- burðum veiðigjalds Þorvaldur heldur einnig fyrirlest- ur með Martin Weitzman, sem er þekktur hagfræðingur við Harvard- háskóla, um rannsóknir þeirra á stjórnun fiskveiða á Íslandi. „Weitzman liðsinnti á sínum tíma auðlindanefndinni og er öllum hnút- um kunnugur hér heima. Það er mikill fengur í því að afburðafræði- maður, eins og hann, fallist á að fjalla um íslensk málefni. Aðalnið- urstaða okkar er að veiðigjald hafi ótvíræða hagkvæmniskosti umfram kvótakerfi af því tagi sem tíðkast á Íslandi og munum við færa ný fræðileg rök fyrir þeirri skoðun,“ segir Þorvaldur. Fleiri fræðimenn munu kynna rannsóknir sínar á ráðstefnunni, þar á meðal ýmsir sérfræðingar við Harvard-háskóla og einnig Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Ís- lands, og Gylfi Zoega, dósent í Birckbeck College í London, sem munu fjalla um það, hvernig sér- hæfing getur vegið upp galla smæð- arinnar í litlum löndum og ýtt undir hagvöxt. Þá mun Már Guðmunds- son, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands, fjalla um fyrirkomulag stjórnunar peninga- og gengismála í litlum hagkerfum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flytur ræðu um tækifæri smáríkja á tím- um alþjóðavæðingar. Þorvaldur segir að stefnt sé að því að gefa út bók með fyrirlestrum sem fluttir verða á ráðstefnunni. Harvard og HÍ standa að ráðstefnu um hagkerfi smáríkja Hagvöxtur í smærri ríkj- um fylgir heimsþróun HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni fyrir að hafa sært blygðunarsemi þriggja stúlkna sem fæddar voru 1989, með því að hafa girt niður sundskýlu sína í heitum potti í Sundhöllinni í Reykjavík og handleikið lim sinn. Maðurinn hafði neitað sök en útilokaði ekki að kynfæri hans hefðu berast í pottinum. Höfðu stúlkurnar allar borið mjög á sama veg um háttsemi mannsins og þótti ekkert fram komið sem rýrði framburð þeirra. Var mað- urinn dæmdur til að greiða 60.000 krónur í sekt og borga allan sakarkostnað. Bragi Steinarsson, vararíkis- saksóknari, sótti málið í Hæsta- rétti en Jóhannes Albert Sæv- arsson hrl. var til varnar. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Hrafn Bragason, Garðar Gísla- son og Pétur Kr. Hafstein. Sektaður fyrir að bera kynfæri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.