Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 33

Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 33 hvort sem væri á landsvísu eða í sveitarstjórnum, sem kjörnir fulltrúar hafa fram að þessu tekið. Á þessum forsendum fagnaði Morgunblaðið þeirri atkvæðagreiðslu, sem Reykjavíkurlistinn efndi til um framtíð Reykjavíkurflugvallar, og taldi að sú atkvæðagreiðsla væri vísir að því, sem koma skyldi. Skipulagsmál Geldinganess er dæmigert mál, sem eðlilegt er að leggja undir dóm kjósenda í Reykjavík sérstaklega og fela þeim hið endanlega úrskurðarvald um framtíð þessa svæðis. Það væri óneitanlega fróðlegt að fá fram viðhorf frambjóð- enda listanna í Reykjavík til þess. Upplýsingagjöf Aðalsmerki lýðræðis- legra stjórnarhátta er gagnsæ stjórnsýsla og opin og víðtæk upplýsingagjöf. Í kosningabarátt- unni hafa komið upp einstök mál, sem vekja spurningar um hvernig þessum málum er háttað hjá Reykjavíkurborg. Hinn 1. maí sl. birtist hér í blaðinu frétt um fyrirhugaða stofnun félags um byggingu hjúkr- unarheimilis á 20 þúsund fermetra lóð í Sogamýri austan við Mörkina. Þar sagði að borgarráð hefði deginum áður frestað að afgreiða viljayfirlýsingu um stofnun þessa félags. Síðan sagði orðrétt: „Að viljayfirlýsingunni standa auk borgarinnar, Frumafl hf., sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún og sjálfseignarstofnunin Markholt. Hlutur Reykjavíkurborgar í umræddu félagi á að vera 40%, hlutur Frumafls hinn sami og Markarholt er með um 20% hlut. Við byggingu hjúkrunarheimila leggur ríkið fram 40% af stofnkostnaði þannig að félagið skiptir á milli sín hinum 60 prósentunum.“ Hinn 14. maí sl. birtist hér í blaðinu frétt þar sem sagði: „Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, und- irrituðu í gær sameiginlega viljayfirlýsingu um endurbætur og uppbyggingu nýrra hjúkrunar- rýma í Reykjavík á árunum 2003 til 2007…Gert er ráð fyrir, að hlutur ríkisins verði 70% í nýbygg- ingum en kostnaður Reykjavíkurborgar er áætl- aður um 1,4 milljarðar króna…Eignarhlutur rík- isins verður 70% en borgarinnar 30%…Í viljayfirlýsingunni kemur fram að framkvæmd hennar sé háð samþykki borgarráðs og því að nauðsynlegt fé fáist á fjárlögum á tímabilinu.“ Hinn 16. maí sl. sagði í frétt hér í blaðinu: „Í svari borgarstjóra Reykjavíkur við fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, sem lagt var fram í borgarráði, kemur fram, að með viljayfir- lýsingu heilbrigðisráðherra og borgarstjóra um fjölgun á hjúkrunarrýmum í Reykjavík um 284 á árunum 2003–2007 hafi sameiginleg viljayfirlýsing Reykjavíkurborgar, Frumafls hf. og sjálfseignar- stofnunarinnar Markarholts um að stofna félag til að reisa hjúkrunarheimili við Sogamýri fallið úr gildi…Árni Þór Sigurðsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkurborgar og efsti maður á Reykjavíkurlistanum, sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki telja ástæðu til að tjá sig um efni fyrri yfirlýsingarinnar enda væri hún fall- in úr gildi.“ Í dag, laugardaginn 18. maí, segir í frétt hér í blaðinu um þetta mál: „Jón Kristjánsson, heil- brigðisráðherra, segir að viljayfirlýsing hans við Reykjavíkurborg um uppbyggingu hjúkrunar- heimila fyrir aldraða sé oftúlkuð, en í umræðunni og m.a. í auglýsingu á vegum Reykjavíkurlistans hefur verið talað um samkomulag við ríkisvaldið. „Þetta er viljayfirlýsing og það er fyrirvari í henni um fjármögnun, sem við höfum ekki endanlega gengið frá af okkar hálfu. Þarna er um að ræða stefnu ráðuneytisins, þetta er viljayfirlýsing en ekki samningur.“ Í annarri frétt í Morgunblaðinu í dag, laugardag 18. maí, segir: „Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, segir að viljayfirlýsing Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra og Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra um uppbyggingu 284 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2003–2007 sé marklaust plagg…Geir segir óeðlilegt að ráðherra skrifi und- ir slíka viljayfirlýsingu án þess að ræða það við fjármálaráðherra og ríkisstjórn og segir að fjár- hagslegur grundvöllur yfirlýsingarinnar hafi ekki verið tryggður.“ Í þessu tölublaði Morgunblaðsins segir borgar- stjóri sorglegt að Sjálfstæðismenn ætli að bregða fæti fyrir þetta verkefni. Hvað er hér að gerast? Er þetta einhvers konar pólitískur leikur? Er ekki ljóst, að aldraðir íbúar Reykjavíkur eiga kröfu á frekari skýringum? Er þetta viðunandi upplýs- ingagjöf til almennings í borginni? Annað dæmi um misvísandi upplýsingagjöf snertir byggingu líkamsræktarstöðvar við sund- laugina í Laugardal. Í Morgunblaðinu birtist frétt hinn 14. maí sl. þar sem m.a. var spurt um útboð vegna þessara framkvæmda. Þar segir: „Steinunn Valdís (Óskarsdóttir, borgarfulltrúi Reykjavíkur- listans) lítur svo á að um könnunarviðræður vegna útboðs hafi verið að ræða en þar sem aðrir en Björn (K. Leifsson) hafi ekki sýnt málinu áhuga hafi ekki þótt ástæða til að fara í formlegt útboð.“ Sl. miðvikudag birtist frétt hér í blaðinu um þetta mál. Þar segir m.a.: „Ágústa Johnson, fram- kvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hreyf- ingar, segir það ekki rétt, sem fram hafi komið í máli Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, borgar- fulltrúa og formanns Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, ÍTR, í Morgunblaðinu í gær, að aðrir en Björn K. Leifsson, eigandi World Class, hafi ekki sýnt því áhuga að reka líkamsræktarstöð í Laugardalnum. Hreyfing hafi þvert á móti lýst yf- ir eindregnum vilja til að koma að rekstri líkams- ræktarstöðvar í Laugardalnum. Ágústa bendir því til sönnunar á bréf frá henni til borgaryfirvalda á árunum 1998 til 1999. Í bréfi til borgarstjóra, Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur, dagsettu 19. ágúst 1998, segir m.a.: „Í framhaldi af samþykkt borg- arráðs, sem kynnt var fjölmiðlum í gær, um könn- un á áhuga einkaaðila á byggingu og rekstri heilsuræktarstöðvar í tengslum við sundlaugarnar í Laugardal, vill undirrituð fyrir hönd Hreyfing- ar…staðfesta áhuga á að Hreyfing taki þetta verk- efni að sér.“ Undir bréfið ritar Ágústa Johnson fyrir hönd Hreyfingar – heilsuræktar… Ágústa Johnson segir að Steinunn fari með rangt mál og vísar m.a. máli sínu til stuðnings í fyrr- greint bréf til borgarstjóra. Í framhaldi af því bréfi segist Ágústa hafa átt fund með Ómari Einars- syni, framkvæmdastjóra ÍTR, og Stefáni Her- mannssyni, borgarverkfræðingi. „Á fundinum kom fram, að málið ætti að fara í ákveðið ferli í fjórum liðum og að við ættum að koma fram með hugmyndir, þegar haft yrði samband við okkur að nýju,“ segir Ágústa. „Það kom okkur því mjög á óvart, þegar við lásum það í fjölmiðlum haustið 1999 að Reykjavíkurborg væri búin að skrifa undir viljayfirlýsingu um samstarf við Björn Leifsson.“ Í frétt hér í blaðinu sl. föstudag segir m.a.: „Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að heilsurækt- armiðstöðin, sem rísa eigi í Laugardalnum, sé ekki opinber framkvæmd og þar af leiðandi ekki út- boðsskyld. „Borgin er í þessu tilviki að úthluta lóð. Það er ekki verið að byggja heilsuræktarmiðstöð fyrir borgina…“…Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir að það hafi verið álit borgarráðs að það væri réttlætanlegt að fara ekki hefðbundna útboðs- leið…Í því ferli hafi átt sér stað ákveðin mistök, þar sem Ágústu Johnson…var ekki tilkynnt um að ákveðið hafi verið að ganga til samninga við Björn og hún beðin velvirðingar á þeim mistökum.“ Allt er þetta illskiljanlegt. Fyrst segir Steinunn Valdís í samtali við Morgunblaðið 14. maí sl. að farið hafi verið í könnunarviðræður vegna útboðs. Síðan segir borgarstjóri í samtali við blaðið 17. maí að framkvæmdin sé ekki útboðsskyld. Hvers vegna var þá farið í könnunarviðræður vegna út- boðs? Borgarstjóri segir að um sé að ræða út- hlutun á lóð og umrætt fyrirtæki hafi greitt 158 milljónir fyrir lóðina. Úr því að um var að ræða út- hlutun á lóð, hvers vegna var sú lóðarúthlutun ekki boðin út eins og Reykjavíkurlistinn hefur hvatt til að gert sé, ekki sízt þar sem um var að ræða lóð á svo óvenjulegum stað og þar með sann- reynt hvort aðrir aðilar væru tilbúnir til að greiða meira en 158 milljónir fyrir lóðina? Allt er þetta mjög óskýrt svo ekki sé meira sagt. Eiga borgarbúar ekki kröfu á skilmerkilegri upp- lýsingum? Það verður aldrei undirstrikað nægilega vel, hvað víðtæk upplýsingagjöf er mikilvæg í lýðræð- islegu þjóðfélagi. Í kosningabaráttunni hefur kom- ið í ljós, að þar er pottur brotinn, sem út af fyrir sig kemur á óvart. Því verður ekki á móti mælt að bæði á landsvísu og í sveitarstjórnum hefur orðið bylting í miðlun upplýsinga til almennings á all- mörgum undanförnum árum. Það er til fyrir- myndar og sú þróun þarf að halda áfram. Það er kannski ekki sízt þess vegna, sem ástæða er til að stöðva við þau tvö dæmi um allt annað, sem hér hafa verið nefnd. Morgunblaðið/Árni Sæberg Selur í sólbaði. „Á þessum for- sendum fagnaði Morgunblaðið þeirri atkvæðagreiðslu, sem Reykjavíkur- listinn efndi til um framtíð Reykja- víkurflugvallar, og taldi að sú at- kvæðagreiðsla væri vísir að því, sem koma skyldi. Skipulagsmál Geld- inganess er dæmi- gert mál, sem eðli- legt er að leggja undir dóm kjósenda í Reykjavík sér- staklega og fela þeim hið endanlega úrskurðarvald um framtíð þessa svæð- is. Það væri óneit- anlega fróðlegt að fá fram viðhorf frambjóðenda listanna í Reykjavík til þess.“ Laugardagur 18. maí

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.