Morgunblaðið - 19.05.2002, Side 45
Samkeppni
umhverfis-
verkefna
HALDIN verður ráðstefna og sýn-
ing í Stokkhólmi um athyglisverð
umhverfisverkefni sem stuðla að
sjálfbærri þróun á ýmsum sviðum
dagana 4.–8. júní. Sýningin er
haldin í tilefni þess að 30 ár eru
liðin um þessar mundir frá Stokk-
hólmsráðstefnunni 1972 sem mark-
aði upphaf samvinnu á alþjóðavísu
um varnir gegn spillingu umhverf-
isins. Verkefnin koma frá öllum
heimshornum en nokkrum þeirra
verður veitt sérstök viðurkenning í
bláa Nóbelsalnum í Stokkhólmi að
viðstöddum sænsku konungshjón-
unum.
Haft var samband við borgir,
fyrirtæki og stofnanir til að benda
á aðila, einstaklinga sem og félög
sem þykja vinna vel að framförum
í umhverfismálum. Fyrirtækið Ís-
lensk nýorka var hvatt í septem-
ber í fyrra til að taka þátt í sýn-
ingunni og senda gögn á heimasíðu
hennar. Gerð var grein fyrir verk-
efninu ECTOS um prófun vetn-
isvagna í almenningssamgöngum á
götum Reykjavíkur. Verkefnið
skipar nú sess í hópi heiðursverk-
efna, svokallaðra ambassadorverk-
efna, sem verður sérstaklega
hampað.
Um svipað leyti verður haldið
hátíðlegt 750 ára afmæli Stokk-
hólmsborgar, segir í fréttatilkynn-
ingu.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 45
AUSTURSTRÆTI - SKRIFSTOFUHÆÐIR
Í þessari þekktu húseign eru til leigu 2 hæðir, 3. og 4. hæð. Hæðirnar eru hvor um
sig 105 fm með hlutdeild í sameign. Mögulegt er að leigja hæðirnar hvora í sínu
lagi. Þetta er mjög skemmtilegt og bjart húsnæði í góðu ástandi sem skiptist í mis-
munandi stór skrifstofuherbergi. Lyfta er í húsinu. Húsnæðið er laust nú þegar.
FYRIR ELDRI BORGARA
Bólstaðarhlíð - eldri borg-
arar
Erum með í einkasölu fallega og
bjarta u.þ.b. 86 fm 3ja herbergja
íbúð á 2. hæð í þessu vinsæla fjöl-
býlishúsi f. eldri borgara. Íbúðin er í
góðu ástandi og með fínum innrétt-
ingum og góðum suðursvölum. Mikil
sameign. V. 13,9 m. 2397
EINBÝLI
Silungakvísl - glæsilegt hús
m. sundlaug
Erum með í einkasölu ákaflega
vandað og fallegt einbýlishús sem er
tvær hæðir og kjallari, samtals u.þ.b.
527 fm, auk 35 fm bílskúrs. Í húsinu
er m.a. óvenju stórt og vandað eld-
hús, 3-4 stofur, sex herbergi, glæsi-
leg innisundlaug, sauna, sjónvarps-
tofa með arni o.fl. Vandaðar innrétt-
ingar, gólfefni og tæki. Mjög sérstök
eign á eftirsóttum stað. Ákveðin
sala. Nánari uppl. gefur Stefán
Hrafn. V. 46,7 m. 2383
PARHÚS
Krókamýri - laust fljótlega
Tveggja hæða parhús á góðum og
eftirsóttum stað. Á neðri hæðinni er
forstofa, snyrting, hol, góð stofa,
eldhús og þvottahús. Í risi eru þrjú
herbergi, hol og baðherbergi. V.
14,5 m. 2179
RAÐHÚS
Vættaborgir - glæsilegt
Glæsilegt tveggja hæða um 243 fm
raðhús með innbyggðum 28 fm bíl-
skúr. Á efri hæðinni er forstofa, her-
bergi, stórar stofur með mikilli loft-
hæð, eldhús og innbyggður 28 fm
bílskúr. Á neðri hæðinni eru þrjú her-
bergi, hol, baðherbergi og þvotta-
herbergi auk um 50 fm geymslurým-
is. V. 21,9 m. 2399
HÆÐIR
Súluhöfði - útsýni - golf-
völlur
Einstaklega falleg 189 fm efri sér-
hæð auk 36 fm innbyggðs bílskúrs
með frábæru útsýni m.a. til Akra-
fjalls, Esjunnar, Hallgrímskirkju o.fl.
Golfvöllur í 50 metra fjarlægð. Morg-
unsól og kvöldsól. Eignin afhendist
tilbúin undir tréverk. Afhending við
samning. V. 18,9 m. 2392
Digranesvegur - einstakt
útsýni
Vel skipulögð 110 fm efri sérhæð í
góðu 3-býlishúsi. Hæðin skiptist í 3
svefnherbergi, 2 stofur, eldhús og
bað. Suðursvalir, parket á gólfum og
flísalagt bað. Sérinng. og rúmgóð
geymsla í kjallara. V. 13,8 m. 2328
Hjallabraut - Hafnarf.
Falleg 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð í
mjög góðu fjölbýlishúsi sem hefur
verið klætt og sameign verið gerð
upp. Íbúðin er í góðu ástandi, nýleg
eldhúsinnr., parket og tvennar svalir.
V. 12,5 m. 2377
Flétturimi - m. bílskýli
Gullfalleg 105 fm íbúð á 2. hæð
ásamt rúmgóðu bílskýli í góðu 3ja
hæða fjölbýli. Sérþvottahús í íbúð,
parket á gólfum og innang. í bílskýl-
ið. V. 14,5 m. 2384
3JA HERB.
Ægisíða - glæsileg eign
Höfum í einkasölu þessa glæsilegu
eign á besta útsýnisstað við Ægis-
íðu. Um er að ræða efri hæð og ris,
samtals u.þ.b. 190 fm, auk 30 fm
bílskúrs. Húsið er glæsilega hannað
og er eitt af fallegri húsum við Ægis-
íðuna. Á hæðinni eru m.a. þrjár
glæsilegar stofur, eldhús og her-
bergi og í risi eru m.a. þrjú herbergi,
baðherbergi o.fl. Arinn í stofu. Á
íbúðinni eru fernar svalir. Parket er á
stofum, baðherbergið er nýlegt en
eldhús er gamalt. Stórbrotið útsýni
er úr íbúðinni og er sjón sögu ríkari.
V. 29,0 m. 2171
Mosarimi - laus
3ja herb. falleg og björt íbúð á 2.
hæð með sérinng. af svölum. Góðar
bogadregnar suðursvalir. Þvotta-
aðst. í íbúð. Laus strax. V. 10,5 m.
2390
Fífulind - úrvalsíbúð
Sérlega glæsileg 3ja-4ra herbergja
íbúð á 2. hæð með rúmgóðum svöl-
um til há-suðurs. Eignin skiptist m.a.
í stofu, borðstofu, eldhús, baðher-
bergi og tvö herbergi. Baðherbergi
flísalagt í hólf og gólf með sturtu og
baðkari. Eftirsótt eign á vinsælum
stað. V. 13,2 m. 2393
Nóatún - nýlegt m. bílskúr
Vorum að fá í einkasölu glæsilega
3ja herbergja efstu hæð í nýlegu 3ja
hæða litlu fjölbýli. Íbúðin er u.þ.b. 83
fm auk 25 fm bílskúrs. Mikil lofthæð,
stórar svalir og gott útsýni, parket
og vandaðar innréttingar. Eignin
skiptist m.a. í stóra stofu, eitt her-
bergi, (eru tvö skv. teikn.), eldhús,
baðherbergi o.fl. Íbúðin er staðsett
rétt við Háteigskirkju og er laus nú
þegar. V. 15,9 m. 2395
Klapparstígur - m. bílskýli
Erum með í einkasölu glæsilega 3ja
herbergja íbúð, u.þ.b. 78 fm, á jarð-
hæð með sérlóð og verönd og stæði
í bílageymslu. Lyfta úr bílageymslu
er upp á hæðina. Mjög vandaðar
innréttingar og gólfefni. Vönduð íbúð
í miðbænum. V. 13,9 m. 2381
2JA HERB.
Æsufell - sérgarður
2ja herb. góð íbúð á jarðhæð með
sérgarði. Lögn fyrir þvottavél á baði.
Sérfrystihólf fylgir í sameign. Gengið
beint út í garð úr íbúðinni. V. 7,4 m.
2398
Sogavegur
Glæsileg 63 fm 2ja herbergja íbúð á
jarðhæð í þríbýlishúsi með sérgarði.
Íbúðin hefur öll verið endurnýjuð s.s.
parket, bað, eldhús og herbergi. Út-
sýni. V. 9 m. 2401
Lækjasmári
Falleg rúmgóð 68 fm íbúð á 2. hæð í
nýlegu húsi á besta stað í Kópavogi.
Sérþvottahús, góðar svalir og parket
á gólfum. V. 10,7 m. 2336
Súlunes - byggingarlóð
Vel staðsett 1.110 fm sjávarlóð, eignarlóð, innst í breiðri
og fallegri botnlangagötu á einstökum stað. Lóðin er
endalóð og ekkert hús á móti. Á lóðinni má byggja veglegt
einbýli án hönnunarkvaða. Áhv. 3,5 millj. 2385
Sumarhús við Stóra Fjall
Suðurlandsbraut 20, sími 533 6050
www.hofdi.is
Til sölu snyrtilegt og vinalegt
sumarhús í landi Stóra Fjalls í
Borgarfirði. Stórt kjarrivaxið
land með fagurri fjallasýn og
útsýni til jökuls. Friðsæll stað-
ur. Innan við klukkust. akstur
frá Reykjavík. Verð 3,4 millj.
Sumarhús
Upplýsingar veitir Guðmundur
í síma 897 4231
Fundur hjá Aðgerðarann-
sóknafélagi Íslands
AÐGERÐARANNSÓKNAFÉLAG
Íslands heldur fund hjá Orkuveitu
Reykjavíkur þriðjudaginn 21. maí kl.
16–18, í matsal OR á Suðurlands-
braut 34.
Kynnt verða tvö verkefni þar sem
aðgerðarannsóknir hafa verið notað-
ar í rekstri Orkuveitu Reykjavíkur.
Flytjendur erinda stunda allir MBA-
nám við Háskóla Íslands, þau eru:
Guðmundur Karl Marinósson bygg-
ingatæknifræðingur, verkefnis- og
þjónustustjóri hjá Ískerfum, Stef-
anía Karlsdóttir matvælafræðingur,
framkvæmdastjóri hjá Mennt, og
Steinar Frímannsson vélaverkfræð-
ingur, fræðslustjóri hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Að erindunum loknum
fara fram almennar umræður um
mögulega notkun aðgerðarannsókna
í veiturekstri, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Hljóðkerfis-
vitund og mál-
notkun
FÉLAG talkennara og talmeina-
fræðinga heldur námskeið í sam-
vinnu við Símenntunarstofnun
Kennaraháskóla Íslands föstudag-
inn 24. maí kl. 13–17 í Kennarahá-
skóla Íslands við Stakkahlíð, stofu
301. Yfirskrift námskeiðsins er
„Hljóðkerfisvitund og málnotkun:
Mat og meðferð“.
Fyrirlesari er dr. Barbara Hod-
son, prófessor við Wichita State
University, Kansas, Bandaríkjun-
um.
Á þessu námskeiði verður eink-
um fjallað um þróun málhljóða og
hljóðkerfis hjá börnum, hljóðkerf-
isvitund og undirbúning lestrar-
náms og hvernig hægt er að meta
og efla hljóðkerfisvitund m.t.t.
lestrarfærni. Námskeiðið er ætlað
talmeinafræðingum, kennurum á
leik- og grunnskólastigi, þroska-
þjálfum og öðrum áhugasömum.
Nánari upplýsingar veitir Sí-
menntunarstofnun Kennaraháskóla
Íslands (http://simennt.khi.is) en
einnig er hægt óska eftir upplýs-
ingum í tal@simnet.is.
Foreldrafélag mis-
þroska barna
Kynning á
námi í fram-
haldsskólum
FORELDRAFÉLAG misþroska
barna stendur fyrir kynningu á námi
í framhaldsskólum þriðjudaginn 21.
maí kl. 20 í safnaðarheimili Háteigs-
kirkju, gengið inn frá bílastæðinu.
Fulltrúar frá Fjölbrautaskóla
Garðabæjar (FG), Borgarholtsskóla,
Iðnskólanum í Reykjavík (IR) og
Fjölsmiðjunni verða með kynningu.
Ókeypis aðgangur.
RJÚPNATALNING á Þingvöllum á
fjölskyldudegi SKOTVÍS verður á
Þingvallasvæðinu þriðjudagskvöldið
21. maí. Hist verður í þjónustumið-
stöðinni á Þingvöllum kl. 20.
Rjúpnatalning
á Þingvöllum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦