Morgunblaðið - 19.05.2002, Page 51
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 d6 5. c3 Bd7 6. d4 De7
7. 0–0 g6 8. He1 Bg7 9. d5
Rb8 10. Bxd7+ Rxd7 11. c4
Rh6 12. Rc3 0–0 13. h3 f6
14. Be3 Rf7 15. Rd2 Bh6
16. Rf1 Bxe3 17. Rxe3 b6
18. a4 a5 19. Rc2 Rc5 20.
b4 axb4 21. Rxb4 Dd7 22.
Ha3 f5 23. f3 fxe4 24. fxe4
Rg5 25. Dd2 h6 26. Hea1
Hf4 27. Rd3 Rxd3 28.
Dxd3 Haf8 29. De2
Staðan kom upp á
Reykjavíkurskákmótinu
sem lauk fyrir skömmu.
Hans Joachim Schubert
hafði svart gegn Hall-
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
dóri B. Halldórssyni (2149).
29... Rxh3+! 30. Kh2 Ekki
gekk upp að þiggja manns-
fórnina þar sem hvítur yrði
þá umsvifalaust mátaður.
Framhaldið varð: 30... Hh4
31. Kg3 Hff4 32. Kh2 Rf2+
33. Kg3 Rh1+ 34. Hxh1
Hxh1 35. Rd1 De7 og hvítur
gafst upp.
ÞESSI pistill er beint
framhald af síðasta pistli,
þar sem vikið var að no.
staðall, sem Ólafi M. Ólafs-
syni hafði hugkvæmzt að
taka upp í mál okkar í stað
danska tökuorðsins stand-
ard. Áður hafði verið reynt
að nota no. standarður (eða
standarð) í íslenzku, en það
mun ekki hafa hlotið veru-
legan hljómgrunn. Menn
héldu sig þá frekar við
standardinn og samsetn-
ingar af því orði. Ólafur
rökstyður nýyrði sitt á
þennan hátt í Iðnaðarmál-
um 1955: „Eins og aðall
leiðir af sér öðlun og að
aðla, mætti af orðinu stað-
all leiða stöðlun og að
staðla.“ Þarna hitti Ólafur
alveg í mark og vel það. Í
ritmálssafni OH eru nú 15
dæmi úr prentuðum ritum
um no. staðall eftir 1955 og
að auki margar samsetn-
ingar af því orði. Í OM
(1983) höfum við no. eins
og staðalstærð um
ákveðna, fasta stærð; stað-
alhús, hús, byggt eftir
stöðlum, gæðastaðall
o.s.frv. Í fyrstu var eðlilegt,
að menn kynntu þessi ný-
yrði með danska orðinu í
sviga, svo að ekki færi á
milli mála, við hvað væri
átt með þeim. Þannig var í
einu riti (1967) talað um
„að taka einhverja ákveðna
blöndu sem staðal („stand-
ard“) og miða síðan allt við
hana“. Í öðru riti (1967)
stendur þetta: „Það […] er
mikið vandamál að staðla
(standardisera) fiskmjöls-
framleiðsluna.“ Nú hafa
nýyrði Ólafs hins vegar
festst svo í sessi, að þess
gerist ekki lengur þörf að
kynna þau með erlendum
orðum. Smám saman fóru
þessi nýyrði svo að sjást í
ýmsum greinum í Tímariti
Verkfræðingafélagsins og
eins í öðrum ritum, svo sem
mörg dæmi eru um í seðla-
safni OH. Var það að von-
um, þar sem þau eru þjál í
notkun, og ekki hefur það
heldur spillt fyrir, að þau
hafa sama hljóðasamband,
st-, í upphafi orðanna. Þau
hafa því hlotið fullan þegn-
rétt í íslenzku máli. – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Að staðla eitthvað
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MAÍ 2002 51
DAGBÓK
Safety Five Svitavörn sem virkar
í 5 daga! Undir hendur og á fætur
Rapid White
Viðurkennda
tannhvítunarefnið
sem virkar strax
Meðmæli tannlækna
LJÓÐABROT
SLÉTTUBÖND
Sóma stundar, aldrei ann
illa pretta táli,
dóma grundar, hvergi hann
hallar réttu máli.
Jón Þorgeirsson
75 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 20. maí, er 75 ára Að-
alheiður Halldórsdóttir,
Kóngsbakka 16, Reykjavík.
Hún tekur á móti gestum
þann sama dag kl. 19 í Flug-
röst, Nauthólsvík.
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Sagt er að ekkert geti haldið
aftur af þér, enda hefur þú
ákveðna sýn á lífið, ímynd-
unarafl og hugrekki til þess
að takast á við nýja hluti.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Hver tilraun til þess að efla
fjölskyldutengslin mun
skipta máli þegar fram líða
stundir.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur átt það til að vilja
gera hluti á eins fullkominn
hátt og mögulegt er. Þá viltu
leggja hart að þér og hafa
alla hluti í kringum þig í röð
og reglu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ástvinur þinn gæti orðið óró-
legur vegna þess að gamall
vinur úr fortíðinni leitar þig
uppi. Sýndu öðrum skilning
því fólk sér ekki hlutina alltaf
með sömu augum og þú.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Umræður um reikninga og
eyðslu þurfa að eiga sér stað
því fjármálin stefna í óefni ef
ekki verður gripið til að-
gerða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Skipulegðu sumarfríið þitt í
dag. Þú þarft nauðsynlega á
því að halda að komast á nýj-
ar slóðir og læra nýja siði.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það gæti farið svo að þú yrðir
að annast mikilvæg verkefni í
dag og axla mikla ábyrgð. Þú
skalt taka áskoruninni enda
munt þú eiga auðvelt með að
leysa verkefnin þín af hendi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur fengið næga hvíld
að undanförnu og átt auðvelt
með að eiga samskipti við
aðra. Þú skalt hins vegar
ætíð hvíla þig nægilega því
annars verða samskiptin erf-
iðari.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ræktaðu samband þitt við
ættmenni eða ástvini í dag.
Það er nauðsynlegt fyrir
framtíðina.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert í aðstöðu til þess að
kaupa eitthvað einstakt í
dag. Sýndu hugrekki og láttu
til skarar skríða.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú verður fyrir vonbrigðum
með það sem yfirmaður þinn
í starfi kann að segja við þig.
Það leiðir til þess að þú munt
fá nýja sýn á hann.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Næsti mánuður verður anna-
samur því framundan eru
margar veislur og mannfagn-
aðir. Vandaðu samt valið og
taktu ákvörðun um með
hverjum þú vilt eyða tíma
þínum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú munt taka fjármál þín til
endurskoðunar og velta fyrir
þér hversu miklu þú aflar og
hve miklu þú eyðir í hverjum
mánuði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
OFT á tíðum skiptir höfuð-
máli að vernda slemmu fyrir
útspili. Ef við lítum á spil NS
hér að neðan kemur fljótlega
í ljós að besti samningurinn
er sex spaðar í SUÐUR, en
þar sem norður er með
lengdina í spaða er ekki
hlaupið að því að gera suður
að sagnhafa í spaðasamningi.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ K98732
♥ 2
♦ ÁDG3
♣32
Vestur Austur
♠ 5 ♠ G106
♥ 943 ♥ D87
♦ K982 ♦ 10754
♣ÁD1074 ♣G85
Suður
♠ ÁD4
♥ ÁKG1065
♦ 6
♣K96
Spilið kom upp á landsliðs-
æfingu síðastliðinn miðviku-
dag, þar sem spilað var á
þremur borðum. Eitt par lét
sér nægja að spila geim, ann-
að fór í sex spaða, sem fóru
einn niður með laufi út í
gegnum kónginn, en þriðja
parið stýrði sögnum í sex
grönd í suður, sem unnust.
Þar voru á ferðinni Helgi Jó-
hannsson og Guðmundur
Hermannsson, en mótherjar
þeirra voru landsliðsmenn-
irnir Steinar Jónsson og
Stefán Jóhannsson:
Vestur Norður Austur Suður
Steinar Guðm. Stefán Helgi
– – Pass 1 lauf *
1 grand **2 spaðar Pass 3 spaðar
Pass 4 tíglar Pass 4 hjörtu
Pass 5 hjörtu Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
* 16+ HP.
** Láglitir.
Helgi og Guðmundur spila
Precision, svo laufopnunin er
sterk og grandinnákoma
Steinars lofar a.m.k. níu spil-
um í láglitunum. Guðmundur
krefur síðan í geim með
tveimur spöðum, Helgi styð-
ur og við taka fyrirstöðu-
sagnir. Helgi sér að makker á
ekkert í laufi og ákveður því
að spila sjálfur sex grönd
frekar en láta makker fara
beint niður í sex spöðum með
laufútspili.
Helgi fékk út hjarta og
þurfti því ekki að kveljast
lengi yfir úrspilinu, því
drottningin lá þriðja rétt.
Slemman virðist fara niður ef
austur á drottningu fjórðu í
hjarta, en svo þarf ekki að
vera. Segjum að út komi
hjarta og sagnhafi taki þrjá
fyrstu slagina þar án þess að
drottningin komi. Þá er tígli
svínað og sex slagir teknir á
spaða. Í lokastöðunni á blind-
ur ÁG í tígli og eitt lauf, en
heima á sagnhafi Kxx í laufi.
Vestur verður að hanga á Kx
í tígli og fara niður á stakan
laufás. Sagnhafi spilar þá
laufi og fær fría svíningu í
tíglinum.
Það hefði verið skemmti-
legra að vinna slemmuna á
þennan hátt, en enginn ræð-
ur legunni.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Árnað heilla
Heyrðu mig nú! Ég hef
aldrei setið fyrir nakin
hjá þessum málara. Hann
hlýtur að hafa málað hana
eftir minni.
Smælki
Þið eruð velkomin
hvenær sem er, að
spila póker.