Morgunblaðið - 22.05.2002, Page 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LISTI sjálfstæðismanna í Reykja-
vík efndi til fjölskylduhátíðar í
Grafarvogi annan í hvítasunnu.
Meðal annars var farið í vett-
vangsferð um Geldinganes undir
leiðsögn Björns Bjarnasonar,
borgarstjóraefnis D-listans, þar
sem grjótnámur voru skoðaðar en
stóru framboðin hafa tekist á um
Geldinganesið í kosningabarátt-
unni í borginni síðustu vikur.
Morgunblaðið/RAX
Gengið
um Geld-
inganesið
ÞEIR sem áttu leið um Laugaveg-
inn síðastliðinn föstudagseft-
irmiðdag áttu þess kost að ræða
við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladótt-
ur borgarstjóra um borgarmálin í
aðdraganda sveitarstjórnarkosn-
inganna sem fram fara á laug-
ardag. Gátu vegfarendur gætt sér
á pönnukökum, sérbökuðum af
frambjóðendum R-listans á meðan
stór mál og smá bar á góma.
Morgunblaðið/Einar Falur
Spjallað
yfir pönnu-
kökum
♦ ♦ ♦
LANDSVIRKJUN hyggst leggja
nýja 400 kV háspennulínu, Sultar-
tangalínu 3, frá tengivirki við Sult-
artangastöð að aðveitustöð Lands-
virkjunar á Brennimel á
Hvalfjarðarströnd.
Landsvirkjun hefur skýrt frá því
að út sé komin matsskýrsla um
framkvæmdina sem kynnt hefur
verið Skipulagsstofnun til athugun-
ar.
Áhugasamir geta einnig kynnt
sér skýrsluna á heimasíðu Lands-
virkjunar www.lv.is
Hér má sjá hvar fyrirhugað er að
Sultartangalína 3 liggi, en hún mun
liggja nánast samsíða Hrauneyjar-
fosslínu 1.
! "#
!
!
!
"!
$ $
!"
#
%
& #
"# "# "# #
$
% &$
' Landsvirkjun leggur
nýja háspennulínu
– Sultartangalínu 3
NIÐURSTAÐNA hagkvæmniat-
hugunar bandaríska álfyrirtækis-
ins Alcoa á þátttöku í byggingu ál-
vers í Reyðarfirði er að vænta á
næstu dögum, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Aðgerða-
áætlun, sem fulltrúar íslenskra
stjórnvalda og Alcoa undirrituðu í
apríl sl., átti að gilda til föstudags-
ins 24. maí nk. og þá átti að verða
ljóst hvort fyrirtækið væri
reiðubúið í formlegar viðræður við
stjórnvöld.
Fulltrúar Alcoa hafa verið hér á
landi að undanförnu til að afla sér
upplýsinga um ýmsa þætti álvers-
framkvæmdarinnar, s.s. umhverf-
is- og tæknimál og orkuverð. Hafa
þeir átt viðræður við stjórnvöld,
skoðað aðstæður á Austfjörðum og
rætt þar við heimamenn, líkt og
greint hefur verið frá í Morgun-
blaðinu.
Jake Siewert, upplýsingafulltrúi
hjá Alcoa, sagði við Morgunblaðið
að tíðinda gæti verið að vænta frá
þeim um næstu helgi. Enn væri
verið að vinna að nokkrum atrið-
um sem samið hefði verið um í að-
gerðaáætluninni.
Komið á lista Fortune yfir
50 virtustu fyrirtæki heims
Fram hefur komið að Alcoa sé
stærsta álfyrirtæki heims um
þessar mundir en á nýjum lista
tímaritsins Fortune er það einnig
metið stærst meðal allra fyrir-
tækja í málmiðnaði í heiminum.
Fær fyrirtækið meðaleinkunnina
7,62 og til samanburðar fær næst-
stærsta málmfyrirtækið, Usinor,
einkunnina 5,53.
Þá kemst Alcoa í fyrsta sinn á
lista Fortune yfir 50 virtustu fyr-
irtæki heims (World’s Most
Admired Companies), fer þar úr
58. sæti fyrir árið 2000 í það 44.
fyrir síðasta ár. Fram kemur á
fréttavef Alcoa að Fortune byggi
þetta mat sitt á samtölum við tíu
þúsund stjórnendur þar sem þeir
eru beðnir að gefa stórfyrirtækj-
um einkunnir frá 1–10 út frá fyr-
irfram gefnum níu atriðum, m.a.
gæðum stjórnunar, framleiðslu,
þjónustustigi, hæfni til nýsköpun-
ar og þróunar, gildi langtímafjár-
festingar og fjárhagsstöðu.
Einnig kemur fram að álfyrir-
tækið er í 77. sæti yfir stærstu
fyrirtæki Bandaríkjanna og er í
197. sæti á lista Fortune yfir 500
stærstu fyrirtæki heims, miðað við
ársveltu. Velta Alcoa á síðasta ári
nam 23 milljörðum Bandaríkjadala
eða um 2.300 milljörðum íslenskra
króna.
Hjá fyrirtækinu starfa um 129
þúsund manns í 350 verksmiðjum í
38 löndum, m.a. á nokkrum stöðum
í Evrópu.
Fulltrúar Alcoa kynntu sér umhverfis- og tæknimál og orkuverð
Hagkvæmniathugun
fyrirtækisins að ljúka
EVRÓPUSÖNGVAKEPPNIN
fer fram á laugardaginn kemur
sama dag og sveitarstjórnar-
kosningarnar hér á landi og
lýkur beinni útsendingu frá
keppninni í Sjónvarpinu ekki
fyrr en á klukkan er langt
gengin í tíu um kvöldið,
skömmu áður en kjörstöðum
verður lokað og getur kosn-
ingavaka Sjónvarpsins ekki
hafist fyrr en að lokinni söngva-
keppninni.
Pétur Matthíasson frétta-
maður segist engar áhyggjur
hafa af því að áhorfið færist yfir
á Stöð 2, enda geti fréttastofan
engu breytt með Eurovision.
„Ég held að áhorfið á kosninga-
vökurnar sé fyrst og fremst
þegar að tölurnar fara að ber-
ast, það er það mikilvægasta í
þessu og þær koma ekki fyrr en
eftir tíu. Ég held líka að fólk
horfi á Eurovision, kosninga-
vakan kemur síðan í framhald-
ið,“ segir hann.
Vökulok óákveðin
Að sögn Péturs verður áhorf-
endum kosningavökunnar boð-
ið upp á Eurovisionlög, bæði
gömul og ný. „Það verður þessi
sami andi yfir öllu kvöldinu,
það verða tölur og aftur tölur.“
Hann bendir á að venjulega
byrji kosningavakan um hálf-
tíu, þannig að það muni nú ekki
nema tuttugu mínútum.
Bæði fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar síðustu og fyrir
átta árum hófst kosningavakan
um klukkan hálftíu en stundum
hefur hún hafist fyrr í alþing-
iskosningum.
Lok vökunnar eru óákveðin
og segir Pétur þau velta á taln-
ingunni, stöðunni og spenn-
unni, en fyrir fjórum árum var
útsendingu hætt um þrjúleytið
um nóttina.
Kosninga-
vakan og
söngva-
keppnin
skarast
JARÐSKJÁLFTI, sem mældist 3,0
á Richterskvarðanum, varð um 14
kílómetra norðaustur af Grímsey
laust fyrir klukkan ellefu í gærmorg-
un. Þetta var skömmu eftir að jarð-
skjálfti, sem mældist 2,9 á Richter,
varð á sama stað.
Skjálftar við
Grímsey